Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Side 2
2 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 Fréttir Slðbúinn jólaglaðningur 1 Grafarvogi: Jólakortin voru níu mánuði á leiðinni - úr Árbænum, frá Hveragerði og Selfossi Þau urðu ekki lítið undrandi, Guðmundur Jóhannesson og Guð- ný Erla Eiríksdóttir í Veghúsum 31 i Grafarvogi, þegar þau sóttu póstinn sinn í póstkassann sl. fbstudag. í kassanum voru nefni- lega þrjú jólakort, sem höfðu öll verið stimpluð á pósthúsi þann 17. desember 1996. Það þýðir að þau voru búin að vera tæpa níu mán- uði á leiðinni til viðtakenda. Þau voru öll stíluð á rétt nöfn og rétt heimilisfang þannig að ekki gat það hafa tafið fyrir þeim. Eitt kortið var frá Hveragerði, annað frá Selfossi og hið þriðja Ur Árbæjarhverfinu. Kortið frá Hveragerði sendu systir og mágur Guðnýjar Erlu, en hann lést raun- ar eftir að kortið var sent, eða í mars sl. Jólakortið frá Selfossi sendi systurdóttir Guðnýjar Erlu en kortið Ur Árbænum var frá systur Jóhannesar og mági. „Kortin voru í póstkassanum þegar við komum Ur sumarbústað síðdegis á fóstudag," sagði Jóhann- es. „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvert grín en þegar við opnuð- um umslögin sá ég að svo var ekki. Þetta voru allt kort sem hefðu átt að berast okkur fyrir síð- ustu jól ef allt hefði verið með felldu. Ég hringdi auðvitað strax í systur mína og þakkaði henni fyr- ir jólakortið. „Betra er seint en aldrei," sagði hún. Ég sagði henni Johannes meö jólakortin sem skiluðu sér u.þ.b. níu mánuðum eftir að þau voru send. DV-mynd Pétur þá að ég hefði verið að fá kortið. HUn varð alveg forviða." Þau Guðný Erla og Jóhannes kváðust ekki hafa getað leitað skýringa á þessu hjá póstinum, enn sem komið væri, þar sem klukkan hefði verið orðin meir en fimm á fostudeginum og því búið að loka. Setti kortin í póstkassa Sigmar Hróbjartsson, sem sendi jólakortið úr Árbænum, kvaðst hafa farið með öll sín jólakort í póstkassa í nágrenninu vel fyrir síðustu jól. „Skýringin hlýtur að vera sú að kortin hafi komist á pósthúsið en lent einhvers staðar á miili þar og fundist síðar." „Burtséð frá þessu tilviki þá verð ég að segja að mér finnst póstþjónustan héma í Grafarvogi léleg,“ sagði Jóhannes. „Launin mín eru lögð inn á reikning en seðilinn fæ ég ekki fyrr en eftir dúk og disk. Ég bjó áður í Breið- holtinu og þar var launaseðillinn kominn viku fyrir Utborgun. Vinnuveitandinn er sá sami þannig að ekki er hægt að kenna honum um þetta. Sama máli gegn- ir um hina ýmsu reikninga. Þeir em að berast i marga daga í kring- um mánaðamótin. Ég hef talað um þetta við starfsfólk á póstinum en þar þykist enginn vita neitt.“ -JSS Vél hinna ríku DV, Suðurnesjum: Jumbó-flugvél Atlantaflugfélags- ins var stödd á Keflavíkurflugvelli í gær. Eigendur flugfélagsins, Þóra Guðmundsdóttir og Amgrímur Jó- hannsson, tóku á móti tæplega 300 boðsgestum í Leifsstöð. Flugvélin er sérstaklega innréttuð með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. I henni er meðal annars her- bergi sem er útbúið eins og svíta með öllu tilheyrandi, stóru hjóna- rúmi, sjónvarpi, leðurstólum, borði, sturtu, sána og skrifborði. Einnig er er fundarborð með leður- klasddum stólum svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleyma gullinu Atlanta tók vélina á leigu í ágúst af fjárfestingarfyrirtæki. Arngrím- ur og Þóra voru fljót að koma henni í leigu. Ríkasti maður heims, soldáninn af Brunei, Haji Hasan-al, var nýlega með vélina á leigu fyrir fjölskyldu sína, 47 manns. Að sögn Amgríms Jó- hannssonar er vélin alveg bókuð fram að áramótum. Það kostar sitt að taka vélina á leigu. Klukkutím- inn kostar 20 þúsund dollara eða 1,5 milljónir íslenskar krónur. Rolling Stones með Mick Jagger í fararbroddi taka vélina á leigu á þriðjudag og verða með hana á meðan tónleikafórin stendur yfir. Þá hefur sjálfur eigandi tölvuris- ans Microsoft, Bill Gates, sýnt áhuga á að taka vélina á leigu. Flugvélin er af geröinni Boeing 747- SP og er hún sérhönnuð til að fljúga lengri vegalengdir. Hún get- ur veriö 16 klukkustimdir í háloft- unum í einu, eða flogið hálfan hnöttinn án þess að taka eldsneyti. Hún tekur 99 manns í sæti. Vélin er í dag hvít að lit en verður mál- uð dökkblá. Heimastöð hennar verður Palm Beach i Flórída. Áhöfnin verður bæði íslensk og bandarísk. -ÆMK Lúxusaðstaða fyrir hina rfku f breiöþotu Atlanta DV-mynd Ægir Már Fjöldi manns í Esjugöngu Á níunda hundraö manns tóku þátt í hinni árlegu Esjugöngu sem haldin var í gær. Farið var frá Mó- gilsá um tíuleytið og gengiö upp á Þverfellshorn Esjunnar. Það er Hjálparsveit skáta í Reykjavik sem stendur fyrir göngunni og var þetta i sjötta sinn sem hún var haldin. Að sögn Ingimars Ólafssonar, sveitar- foringja hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík, voru þátttakendur í göngunni á öllum aldri. Þá tóku á þriðja tug manna þátt í Esjuhlaupinu. Þaö tók sigurvegar- ann einungis rúmar 32 mínútur að komast á topp fjallsins. Fjöldi manns tók þátt f Esjugöngunni sem haldin var í einmuna blíöu f gær. DV-mynd Pjetur Sjúkrahúsin: Samið um verka- skiptingu Heilbrigðisráðherra, fjármála- ráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík hafa undirritað sam- komulag um spamaðaraðgerðir, verkaskiptingu og samræmingu á rekstri Ríkisspítala og Sjúkra- húss Reykjavíkur. Jafnframt verða rekstrarframlög til sjúkra- húsanna aukin og fær Sjúkrahús Reykjavíkur 232 milljónir króna en Ríkisspítalar 223 milljónir króna. Það sem einkum felst í sam- komulaginu er breytt hlutverk Vífilsstaðaspítala, aukin endur- hæfing, breytt verkaskipting við bæklunarlækningar og við geð- lækningar. Þá verður rekstrar- fyrirkomulagi rannsóknarstofa breytt og gagnavinnsla stofnana sameinuð. í frétt frá heilbrigðisráðuneyt- inu segir að búast megi við að þær aðgerðir sem gripið verði til samkvæmt samkomulaginu skili talsverðri hagræðingu í rekstri beggja stofnana á næsta og þamæsta ári. Þá segir að for- stjórum sjúkrahúsanna hafi ver- ið falið að framkvæma sam- komulagið en heilbrigðisráðu- neytið muni hafa eftirlit með framkvæmdum. -SÁ Stuttar fréttir Milljónasamningur Islenska hugbúnaðarfyrirtæk- ið hf. hefur gert milljóna- samning við sænska stórfyrir- tækið Ericsson. Samningurinn felur í sér víðtækt og marghliða samstarf milli fyrirtækjanna. Stöö 2 greindi frá. Ásdís formaður Ásdís Halla Bragadóttir var kjörin formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna á þingi sambandsins um helgina. Hún er fýrsta konan sem kjörin er for- maður SUS í 67 ára sögu sam- bandsins. Metkuldi í Reykjavík Metkuldi var í Reykjavík að- faranótt laugardags þegar 1,7 gráða frost mældist í borginni. Svo mikill kuldi hefur ekki mælst svo snemma að hausti síð- an 1949, að sögn Morgunblaðs- ins. Haustferðir vinsælar Reikna má með að íslendingar eyði um 4-5 milljörðum í utan- landsferðir nú í haust. Þetta er 30% aukning frá síðasta ári sem þó var metár. Stöð 2 sagði frá. Vigdís heiðruð Vigdís Finnbogadóttir, fýrr- verandi forseti, hefur fengið heiðursviðurkenningu Norræna félagsins fyrir stuðning sinn við Norðurlönd og norræna sam- vinnu. RÚV sagði frá. Áhugi á samvinnu Yfirvöld í Moskvu hafa sýnt áhuga á samvinnu við íslend- inga um einangrun húsa og lagn- ingu hitaveitu. Von er á sendi- néfnd Rússa hingaö til lands til frekari viðræðna, að því er Sjón- varpið greindi frá. III meðferð á börnum Bömum sem bakvakt Félags- málastofnunar hefúr þurft að hafa afskipti af vegna haröræðis og óreglu foreldra hefur fjölgað um 60% á sl. 2 árum. Dagur-Tím- inn greindi frá. -kbb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.