Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
Neytendur
Rifsberjahlaup
Vlða í görðum fólks skarta rifs-
berjarunnar fagurrauðum rifsberj-
um. Þau er tilvalið að nota i rifs-
berjahlaup þó ekki væri nema til
að eiga með jólarjúpunni. Reynið
að tína með svolítið af berjum sem
ekki eru fullþroskuð því að i þeim
er meira af náttúrulegum hleypi
en fullþroska berjum.
Efni:
rifsber
vatn
sykur
saftpoki (soðin grisja)
litiar, sótthreinsaðar
krukkur
smjörpappír
melatfn
Byrjið á því að skola rifsberin
mjög vel.
Setjið þau síðan í pott ásamt
vatninu í hlutfóllunum 1 kg rifs á
móti 1 dl vatns og hafið á vægum
hita í 30 mínútur. Hafið stönglana
og grænu berin með í suðunni.
Hellið síðan öllu í saftpoka og
látiö renna af berjunum í annan
stóran pott. Það má þrýsta örlítið á
berin í saftpokanum en alls ekki
kremja þau.
Látið vökvann standa og kólna i
um það bil 12 tíma.
Blandið því næst 800 g af sykri á
móti 1 lítra af saft. Sjóðið síðan
saftina á hægum hita og fleytiö
froðuna ofan af vökvanum.
Prófið eftir 5 mínútur hvort vök-
vinn er tekinn að hlaupa. Setjið
eina teskeið af vökvanum á disk og
ef hann hleypur er hlaupið tilbúið.
Ef ekki þarf að láta hlaupið sjóða
lengur, allt upp undir hálftíma. Ef
það dugar ekki getur veriö að
þurfi að nota tilbúinn hleypi,
melatin, og ber þá að fara eftir
leiðbeiningunum á pakkanum.
Þegar hlaupið er tilbúið er því
hellt á heit glös sem eru skoluð
upp úr spíra, pektini eða sítrónu-
sýru. Breiðið hreint viskastykki
yfir glösin og látið kólna. Hafið
glösin vel full og setjið smjörpapp-
ír ofan á, vættan í sítrónusýru,
áður en glösunum er lokað.
Merkið krukkurnar með litlum
límmiðum þar sem kemur fram
hvert innihaldiö er og hvenær
hlaupið er gert.
Rifsberjasultan geymist vel á
köldum stað og passar vel meö ost-
um, vöfilum, gæs og jólarjúpunni.
Ágætt ráö er að safna berjunum
saman í frysti og búa til hlaupið
þegar hæfilegu magni er náð. Tvö
til fjögur. kíló er mjög viðráðanleg-
ur skammtur fyrir flesta.
Gangi ykkur vel.
-ST
Bragöprófun:
Misgóð kæfa
Bragögæðingar DV komu saman
nýverið og prófuðu ólíkar kæfuteg-
undir. Þetta voru 11 tegundir frá
þremur framleiðendum og fengu
þær nokkuð misjafna dóma. Bestu
dómana fékk gróf bökuð lifrarkæfa
frá Ali en smurkæfa frá SS fékk þá
lökustu.
Þau Sigmar B. Hauksson, Dröfn
Farestveit og Úlfar Eysteinsson not-
uðu stjörnuskalann l-5(l=mjög
vont, 2=vont, 3=sæmilegt, 4=gott og
5=mjög gott) og var oft talsverður
munur á dómum þremenninganna.
Bökuð lifrarkæfa
Hæstu stjörnugjöfina fékk gróf
bökuð lifrarkæfa frá AIi. Dröfn gaf
henni hæstu gjöf, 5 stjömur með
umsögninni: „Gróf kæfa með góðu
lifrarbragði, hæfilegt kryddbragð."
Úlfar gaf henni 4 stjömur og um-
sögnina: „Falleg kæfa með hleyptu
kjötseyði, bragðmild og fallegur lit-
ur“. Sigmar var hógværari, gaf
henni 3 stjörnur og fannsí hún um
margt ágæt en þó „ósköp venjuleg
smurkæfa ... vottar fyrir reyk-
bragði".
Lifrarkæfa með og án rjóma
fráSS
Tvær kæfutegundir fengu 11
stjörnur, báðar framleiddar hjá Slát-
urfélagi Suðurlands. Lifrarkæfa,
pökkuð í plastpylsu, fékk 4 stjöm-
ur frá Dröfn og Úlfari. Dröfn
skráði hjá sér „gott lifrarbragð" og
Úlfar „bragðgóð og fín kæfa með
fallega áferð“. Sigmar gaf henni
3 stjörnur og umsögnina
„Sæmileg - þó einkennilegt /V ^
eftirbragð, ágætlega kryd- '}
duð“.
Rjómalifrarkæfan frá SS
fékk 4 stjömur frá karlpeningn-
um en Dröfn gaf henni 3. í umsögn
Sigmars segir: „Fallegur litur, afar
gott bragð, vel krydduð! Namm,
namm - góð vara“. Úlfar var hóg-
værari í sínum dómi en sagði hana
„áferðarfallega, litur finn og bragð-
góð“. „Hvorki ilmur eða bragð sem
hrífur," sagði Dröfh.
3 fengu 10 stjörnur
Lifrarkæfa frá SS fékk hæst 4
stjömur hjá Úlfari. Honum fannst
kæfan góð og meö „gott eftirbragð“.
LinU A VERÐIO!
iTilkBMS.V.E RÐ !
SAMSUNG MflX-630 með200W
(100 RMS) magnara, 7 banda
tónjafnara auk þriggja forstillinga
(pop, rock jazz), 3 diska geisla-
spilara, stafrænu útvarpi með
MW/FM-bylgjum og 30 stöðva
minni, klukku og þriggja liða
tímarofa, tvöföldu kassettutæki
með Dolby og slspilun, fullkom-
inni fjarstýringu, tengi fyrir heym-
artól og góðum hátölurum
SAMSUNG MAX-445
hljómtækjasamstæðan er með 80
W (40 RMS) magnara, þriggja
forstilltra tónstillinga (pop, rock
jazz), 3 diska geislaspilara með
24 minni, stafrænu útvarpi með
MW/FM-bylgjum og 30 stöðva
minni, klukku og þriggja liða
tímarofa, tvöföldu kassettutæki,
fullkominni fjarstýringu, tengi fyrir
heymartól og góðum hátölurum
' >
Opið laugardafla kl. 10:00 • 14:00
Grensásvegi 1 1
Sími: 5 Ö86 886
Bragðpréfun á kæfu
Sýnishorn Úlfar Dröfn Sigmar Samt.
Gr. bökuð lifrak. Ali 12
Lifrakæfa (plastpylsa) SS ★★■★★. ★★★ 11
Rjómalifrak. SS ★ ★★★ ★★★'3 t 11
Lifrakæfa SS ★★★★ j ibicrk 10
Lifrak. gróf Ali ,★★★★ 10
Dönsk lifrak. Ali ★.★★ ý&fr* ★t| 10
Kindakæfa Ali ★★★ ★★W 9
Rjómalifrak. Goöi ★#★ ★★★ 9
Kindakæfa Goði ★★★ ★ ★★★~ji 8
Smurkæfa SS *★ ★ ★ ★★ 6
Skólakæfa SS ★★ ★ ★ ★★★ 7
rarai
Dröfn og Sigmar gáfu henni 3
stjörnur hvort. Dröfn fannst hún
„hlutlaus í bragði" og saknaði lifr-
arkeimsins. Sigmari fannst hún
ágæt en „bragðið þó ekki afgerandi
- hæfilega krydduð".
Dröfn og Úlfar gáfu grófu lifrar-
kæfunni frá Ali 4 stjömur. Dröfn
fann í henni „Ijúft
bragð“
'W mm.
flestum
verslunum er
gott úrval af alls kyns smurkæfum.
Að þessu sinni voru 11 tegundir
prófaðar, frá þremur framleiðend-
um.
og Úlfari fannst hún „mild og góð“.
Sigmar var hins vegar gagnrýnni og
fannst hún „bragðdauf en þó rífandi
piparbragð, lítið spennandi".
Sama stjörnugjöf var fyrir
dönsku lifrarkæfuna frá Goða.
Dröfn fannst hún „mjög þægileg í
bragði og hæfilega krydduð" og Úlf-
ari fannst af henni „gott lifrarbragð
og útlit“. Sigmari fannst hún hins
vegar „þurr og bragðlítil - frekar
ólystug".
Gamaldags kæfa eins og all-
ir þekkja
Tvær kæfutegundir fengu 9
stjömur, kindakæfa frá Ali og rjó-
malifrarkæfa frá Goða. Dóm-
nefndaraðilar gáfu Ali kæfunni
hvert sína einkunn: Úlfar gaf
henni hæstu einkunn-
ina, 4 stjörnur, með
umsögninni:
„Gamaldags
kæfa eins og
allir þekkja."
Dröfn gaf
henni 3
stjörnur,
fannst hún
„of sölt“.
Sigmar
var á
sama
máli og
bætti við
„alls
ekki góð ... vatnsbragð, þurr, of mik-
ill pipar, afar ólystug - ojbarasta".
Hann gaf 2 stjömur.
Fyrir rjómalifrarkæfuna frá Goða
gáfu allir í dómnefndinni 3 stjömur.
Úlfari og Dröfn fannst hún hlutlaus
og Sigmari fannst þetta „sæmileg-
asta kæfa, gott jafnvægi á milli
bragðs og fítuinnihalds“.
„A ia mamma"
Kindakæfa frá Goða fékk 8 stjöm-
ur og mjög misjafna dóma. Sig-
mar gaf henni 4 stjörnur með
, umsögninni: „Ágæt gamaldags
smurkæfa „a la mamma“,
ófrumleg en vel gerð - sem
sagt: gott!“ Úlfar gaf sömu kæfu
3 stjörnur; „mild en vantar
karakter“. Dröfn gaf henni hins veg-
ar ekki nema 1 stjörnu og umsögn-
ina: „Litur minnir mig helst á
fituklump, litið kjötbragð“.
Slæmt eftirbragð
Skólakæfa SS bragðaðist dóm-
nefndinni vel við fyrstu smökkun
en allir fundu fyrir einhverju
óþægilegu eftirbragði sem dró niður
stjömugjöfma. í umsögn Sigmars
stóð: „Sæmilega góð smurkæfa. Milt
og gott bragð - vel krydduð, gott að
smyrja hana á brauð. Þó dregur
þessa kæfu niður eitthvað óljóst eft-
irbragð eða bragð af torkennilegu
efni.“ Sigmar gaf henni 3 stjömur
en Dröfn og Úlfar 2 hvor.
Minnir helst á kjötfars
Smurkæfan frá SS fékk samdóma
2 stjörnur frá þremenningunum. 1
umsögn Úlfars stóð: „Bragðlítil,
minnir helst á kjötfars, liturinn tor-
kennilegur." Dröfn fannst kæfan of
sölt, „bragðið afar lítið spennandi,
útlitið ekki fallegt". Sig-
mar spurði einfald-
lega; „úr hverju
er þessi kæfa -
sagi? Hreint og
beint vont“.
Kæfan var
keypt í verslun
Nóatúns við
Hlemm og geymd
í kæli fram að
smökkun.
-ST
Tvær tegundir fengu 4 stjörnur frá Sigmari B. Haukssyni, rjómalifrarkæfa frá
SS og kindakæfa frá Goöa. DV-myndir E.ÓI.
Geymsla á
grænmeti og
ávöxtum
Uppskeran í görðum fólks er
senn fullsprottin og tími kom-
inn til að færa hana í hús.
Margir hafa aðgang að jarðhýsi
fyrir geymslu á afurðunum en
miklu máli skiptir að þar sé
rétt hitastig. Neytendasiðan tók
saman nokkra punkta um hita-
stig og fleira sem ætti að gagn-
ast við geymslu grænmetisins.
Upplýsingarnar um hitastig eru
til leiðbeiningar og nokkuð víst
að fæstir munu telja sig geta
verið með eins breytilegt hita-
stig og mælt er með. Hugsan-
lega er uppröðunin í ísskápnum
okkar ekki alveg í samræmi við
kjörhita í geymslunni og sitt-
hvað má eflaust bæta án mikill-
ar fyrirhafnar.
Kartöflur
Fyrst eftir að kcu*töflur koma
í hús á að geyma þær við 4-5°
hita. Síðan á að lækka hitann
enn frekar, eða I 2° C. Kartöfl-
unum á að halda frá öllu ljósi
til að varna því að þær verði
grænar.
Kál, rófur, gulrætur,
laukur, blaðlaukur
og sveppir
Allt kál, rófur, gulrætur, lauk
og sveppi á að geyma við 0-2° C.
Best er að rakastigið í geymsl-
unni sé 95% til að koma í veg
fyrir uppgufun úr grænmetinu
en nýtt grænmeti er viðkvæm-
ast fyrir allri uppgufun á
vökva. Að öðrum kosti borgar
sig að úða yfir salatið eða
geyma ílát með fersku vatni í
geymslunni.
Sveppi er gott að geyma í
fléttuðum bastkörfum með
plastfilmu yflr til varnar vökva-
tapi en alls ekki í lokuðum
plastílátum sem ekki geta and-
að.
Geymsla ávaxta
Sítrusávexti er best að geyma
við 5° hita og melónur viö 8° en
epli, vínber og kíví geymast
best við 0-2° hita. Banana á að
geyma við stofuhita, þeir mega
ekki fara undir 13°, þá fara þeir
aö grána og verða ólystugir.
Ylræktaö grænmeti
Tómata, gúrkur og paprikur
er best að geyma við 10° hita.
Varist að geyma tómatana með
öðru grænmeti. Best er að skola
þá og setja í sérílát og geyma
þannig við rétt hitastig.
Etalíngas
þroskar ávexti
Ávextir og gi-ænmeti gefa frá
sér etalíngas við þroskun. Gas-
ið er þó mismikið í hverri teg-
und og fer ekki ætíö vel að
blanda saman ólíkum ávöxtum
til geymslu. Þannig gefa epli og
bananar mikið af etalingasi frá
sér en ekki appelsínur og kíví.
Því ætti að forðast að blanda
þessum tegundum saman. Epli
og bananar fara ágætlega sam-
an i skál og i aðra skál mætti
setja saman appelsínur og kíví.
-ST