Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Síða 7
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
7
DV Sandkorn
Metár hjá
Samherja?
Alltaf viröast Samheijamenn á
Akureyri vera á réttum stað á rétt-
um tíma. Nú er staðan á mörkuðum
fyrir loðnu- og síldarafurðir einstök
því íslendingar eru einir um hituna,
veiðin mikil og
afurðaverð hef-
ur hækkað gríð-
arlega og ljóst
að framhald
verður á í vetur.
Samherjamenn
hafa einmitt
aukið umsvif
sín í loðnuveið-
um, frystingu og
bræðslu á und-
anförnum miss-
erum, eru orðn-
ir kvótahæstir í þessum tegundum
og hitta nú beint inn í þetta gullár
veiða og verðhækkana. Skip félags-
ins hafa á þessu ári landað upp und-
ir 50 þúsund tonnum af loðnu og
sögusagnir eru þær að árið sé það
besta í sögu Samherja. Nú velta
menn því fyrir sér hvort hagnaður-
inn geti náð tíu stafa tölu þegar ár-
inu lýkur en í fyrra var hann litlar
635 milljónir króna.
Ástríki loðnu-
kónganna
Þeir sem hagnast mest á þessu
gullári loðnunnar eru m.a. uppsjáv-
arfyrirtækin á Austfjörðum, Sildar-
vinnsian og Hraðfrystistöð Eski-
fjarðar. Oft hafa hugleiðingar um
sameiningu
þessara félaga
skotið upp koll-
inum en nú
blandast inn í
umræðuna
samstarf við
SR-mjöl og tíð-
ar ferðir Þor-
steins Más
Baldvinssonar
Samherjafor-
stjóra austur á
firði á undanfómum mánuðum. Eig-
inkona hans er frá Eskifirði þar
sem Alli ríki er allsráðandi og for-
stjóri Síldarvinnslunnar, Finnbogi
Jónsson, er náfrændi Þorsteins Más
og er með þeim og Jóni Reyni, for-
stjóra SR-mjöls, mikið ástríki. Nú
segja spekúlantarnir að Samherji
muni standa fyrir mestu samein-
ingu allra sameininga þegar Sam-
heiji, SR-mjöl, Síldarvinnslan og
Hraðfrystistöð Eskifiarðar renni
saman í eina heild. Við það verði
Finnbogi Óðríkur, Jón Reynir Sjóð-
rikur, Aðalrikur setjist í helgan
stein og Þorsteinn Már verði að
sjáifsögðu Steinríkur.
Sérkennileg staða
Eins og flestir vita eflaust var
skipað i bankaráð rikisbankanna í
síðustu viku. Einn þeirra sem sett-
ist I bankaráð Búnaðarbankans hf.
er Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri Kaupfé-
lags Skagfirð-
inga, og menn
fóru strax að
ræða það á
Króknum hvort
kaupfélagið ætl-
aði að hætta við-
skiptum við
Búnaðai'bank-
ann þar sem
kaupfélagsstjór-
inn gæti ekki setið beggja vegna
borðsins. Þórólfur er einnig stjórn-
arformaður Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings, sem er að mestu leyti með við-
skipti sín við Búnaöarbankann,
þannig að Þórólfur er að margra
mati kominn í mjög sérkennilega
stöðu.
Betra en hvað?
Þegar gluggað er í símaskrána
fyrir Akureyri má sjá ýmislegt
skemmtilegt eins og gengur og ger-
ist. Þar eru m.a. fyrirtækin Betra
brauð, Betri fiskur, Betri þrif og
Betri stofan.
Einnig er þar
skráð fyrirtæk-
ið Betri líðan
undir kirkju-
tröppunum. Til
skamms tíma
voru almenn-
ingssalemi und-
ir kirkjutröpp-
unum á Akur-
eyri og eflaust
hefur ýmsum
liðið vel þar eftir að hafa sinnt kalli
náttúrunnar. En nú er þar komin
önnur starfsemi sem skapar enn
betri líðan ef marka má nafn fyrir-
tækisins.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
HAGKAUP
iilegra reita
fjSjcLero'j
Munið fríkortið!
Tilboðin gilda mánudag og þriðjudag