Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Side 8
8
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
__smelBtu þér
á netið A
• Hringdu í síma 750 5000 og
fáðu allar upplýsingar um
Intemetáskrift hjá okkur.
&
O*
islandia internet
Krókliálsi 0 110 Reykjavik • Sinii 750 5000
INNKA UI?ASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 -121 Reykjavík
Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16 Netfang: isr@rvk.is
Til sölu
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðar og tæki fyrir Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurhöfn:
Fyrir Vélamiöstöð:
1. IsekiTX 2160 4x4
2. Caterpillar D6C
3. Toyota Corolla
4. MMC L-300 4x4
skemmdur eftir veltu
5. Toyota Corolla
6. Toyota Corolla
7. Toyota Corolla
8. Toyota Corolla
9. Toyota Corolla
10. Toyota Corolla
11. Toyota Corolla
skemmdur eftir árekstur
12. Toyota Corolla
13. Daihatsu Rocy
14. Massey Fergusson
15. Toyota Hi Ace
16. Yfirbygging af flokkabíl
17. Krani af flokkabíl
18. Rafsuðuvél Kemppi Hilarc
19. Rafsuðuvél Eutectic
mini traktor árg. 1992
jarðýta árg. 1971
þriggja dyra árg. 1990
fimm dyra árg. 1988
þriggja dyra árg. 1988
þriggja dyra árg. 1988
fjögurra dyra árg. 1988
þriggja dyra árg. 1987
þriggja dyra árg. 1988
þriggja dyra árg. 1988
þriggja dyra árg. 1990
þriggja dyra árg. 1990
þriggja dyra árg. 1990
traktor árg. 1984
sendibíll árg. 1985
(hús) árg. 1987
450
harðvírsuðuvél
Fyrir Reykjvíkurhöfn
20. Volvo F6
með Hiab krana
21. Volvo F6
óvirkar sturtur
22. MMC L-300
23. MMC L-300
24. MMC L-300
25. MMC L-300
26. Monimac bandsög (ítöl
27. ARC Royal B.K.B. Electric Motor rafsuðuvél 400 amp. jafnstraums dísel
vörubíll árg. 1985
vörubíll árg. 1985
sendibíll árg. 1988
sendibíll árg. 1988
sendibíll árg. 1988
sendibíll árg. 1984
3ja fasa 380V 105 cm hjól 1 * blað
T ækin og bifreiðarnar verða til sýnis dagana 15.-17. september í porti
Vélamiðstöðvar, Skúlatúni 1, nema nr. 2 sem er staðsett á athafnasvæði
Vélamiðstöðvar á Ártúnshöfða.
Bjóðendur athugi aö Reykjavíkurhöfn er ekki virðisaukaskattsskyld.
Opnun tilboða: miövikudag 17. september n.k. kl. 14.00 á skrifstofu vorri.
Útlönd
DV
Stefnir í sögulegar kosningar í Noregi í dag:
Klúður hjá Jagland
á endasprettinum
Dv, Ósló:
Litlar líkur eru nú taldar á að
Verkamannaflokkurinn norski fái
þau 36,9 prósent sem formaðurinn,
Thorbjörn Jagland, hefur sett sem
skiiyrði þess að hann haldi áfram að
leiða stjórn landsins. Skoðanakönn-
un birt í Aftenposten í gær ætlar
flokknum 34,8 prósent. Töfratalan í
norskum stjórnmálum er 36,9 pró-
sent en það fékk Verkamannaflokk-
urinn undir forystu Gro Harlem
Brundtland i siðustu kosningum.
Jagland hefur verið í sókn síð-
ustu daga en nú efast menn um að
hann nái markinu. Kjörfundur hófst
í gær víða á landsbyggðinni þótt að-
alkjördagurinn sé í dag. Jagland
kaus sjálfur í gær og bíður nú
spenntur eftir að fyrstu tölur birtist
í kvöld. Hann getur sjálfum sér um
kennt ef fylgi flokks hans dalar nú á
endasprettinum. Klúður og hroki í
sjónvarpsumræðum á fóstudaginn
kunna að reynast dýr.
Helsti fréttaskýrandi Aftenposten,
Per Norvik, lýsir framgöngu Jag-
lands í sjónvarpsumræðunum sem
„ömurlegri og ótrúverðugri". Jafn-
vel flokksblað Verkamannaflokksins
hefur viðurkennt að „meðferð for-
sætisráðherrans á sannleikanum
hafi verið ónákvæm" eins og það er
orðað. Jagland reyndi að ljúga sök-
um upp á andstæðinga sína í flokki
Kristilegra og hann tók langan krók
framhjá sannleikanum þegar hann
var krafinn um skýringar á af
hverju fleiri Norðmenn væru nú
undir fátæktarmörkum en um langa
hríð.
Carl I. Hagen og flokksmenn hans
verða að sjá á bak æ fleiri stuðnings-
mönnum. í skoðanakönnun Aften-
posten er Framfaraflokknum bara
ætlað 11 prósenta fylgi en það er
helmingur þess sem var þegar best
lét i sumar. Flokkurinn tvöfaldar
engu að síður fylgi sitt frá síðustu
kosningum. -GK
Bandarískur fríðargæsluliði leitar vopna á múslíma áöur en hann fær aö fara
inn á svæði Bosníuserba til aö kjósa. Mikil þáttaka var í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í Bosníu um helgina. Sfmamynd Reuter.
Israelar afhenda
Yasser Arafat fé
Forsætisráðherra ísraels, Benja-
min Netanyahu, hefur ákveðið að
afhenda palestínskum yfirvöldum
helminginn af fé því sem fryst var
eftir sjálfsmorðssprengjuárásimar i
Jerúsalem í júlí. Um er að ræða toll-
fé og skattatekjur sem ísraelar
skulda Palestínumönnum.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hafði hvatt
ísraela til að afhenda féð. ísraelska
útvarpið hafði það eftir Netanyahu
að hann hefði tekið þessa ákvörðun
þar sem Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, hefði lofað banda-
rískum yfirvöldum að hann myndi
berjast gegn hermdarverkamönnum
á sinu svæði og að hann myndi ekki
sleppa þeim sem væru í haldi.
í gær hvatti Albright ríki við
Persaflóa að hætta fjárstuðningi við
herská samtök múslíma sem sökuð
eru um aö eyöileggja friðarferlið í
Miðausturlöndum með sprengju-
árásum í ísrael.
Reuter
Þyrluslysið í Noregi:
Erfiðleikar við
björgun
DV, Ósló:
Miklir erflðleikar hafa verið aUa
helgina við að ná upp flakinu af
norsku Super Puma-þyrlunni sem
fórst fyrir viku úti fyrir strönd
landsins. Þá hefur enn ekki tekist
að ná upp líkum þriggja hinna tólf
sem fórust. Veöur hefur verið mjög
erfitt og einnig hafa björgunarmenn
ekki viljað hætta á að tapa brotum
úr flakinu við hífinguna. Því er ver-
ið að sérsmíða búnað til að tryggja
að allir hlutirnir komi upp.
Svarti kassinn svokallaði er kom-
inn upp á yfirborðið og verður
rannsakaður í Englandi. Þá er unn-
ið að rannsókn þeirra hluta flaksins
sem upp eru komnir.
-GK
Stuttar fréttir
Tugir farast
Að minnsta kosti 60 létu lífið
og 200 slösuðust í miðhluta Ind-
lands í gær þegar 5 vagna lest
féll ofan af brú í á.
Uppgjöf forsetans
BUl Clinton Bandaríkjaforseti
ætti að styðja
alþjóðlegt
bann við jarð-
sprengjum.
Þetta er mat
fyrrum ráð-
gjafa forset-
ans, Georges
Stephanop-
oulos. Segir
hann þögn Clintons jafhgilda
uppgjöf fyrir hemum.
Flugvélar í árekstri
Ekki er talið útilokað að þýsk
herflugvél með 24 farþega og
bandarísk herflugvél með 9 far-
þega hafi lent í árekstri í suður-
hluta Afriku. Beggja vélanna er
saknað.
Hýja eld
Átján létu lífið og 100 þúsund
lögðu á flótta er eldur kviknaði í
olíuhreinsunarstöð í suðurhluta
Indlands í gær.
Nauðgari í leikskóla
Leikskólakennari í Karlstad í
Svíþjóð hefur játað að hafa
nauðgað sex bömum á aldrinum
1 til 5 ára á leikskólanum þar
sem hann starfaði. Talið er að
fleiri börnum kunni að hafa ver-
ið nauðgað.
Mobutu jarðsettur
Fyrnun forseti Sair, Mobutu
Sese Seko, var
jarðsettur á
laugardaginn í
Rabat, höfuð-
borg Marokkó.
Hvorki stjóm-
arerindrekar
né fulltrúai'
fyrrum banda-
manna Mobut-
us, til dæmis
Frakka, voru viðstaddir.
Þunglyndi dýrt
Þunglyndi verður þung fjár-
hagsleg byrði á þjóðfélögum í
framtíðinni verði ekki betri lyf
þróuð. Þetta kemur fram í
skýrslu prófessors frá Oxford
sem kynnt var í gær.
Jeltsín boðar fund
Jeltsín Rússlandsforseti mun i
dag hitta fjölda rússneskra kaup-
sýslumanna, samkvæmt frásögn
Interfaxfréttastofunnar. Ekki
var gefin upp ástæða fúndarins.
Reuter