Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 11 TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, hefur veriö kyrrsett aö beiöni Loftferða- eftirlitsins. TF-LÍF kyrrsett - vegna þyrluslyssins í Noregi Loftferðaeftirlitið hefur beðið Landhelgisgæsluna að kyrrsetja þyrlu sína TF-LÍF þar til nánari upplýsingar hafa borist frá Noregi um þyrluslysið undan strönd Hálogalands. Þyrlan sem fórst með 12 manns innanborðs sl. sunnudag var af gerðinni Super Piuna en það er sama gerð og TF-LÍF. Að sögn Hafsteins Hafsteinsson- ar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, mun beiðni Loftferðaeftirlitsins verða hlítt. -RR 20 ára afmæli Umsjónarfélags einhverfra: Sérfræðingar með símaráðgjöf „Markmiðið með símaráðgjöfinni er að styðja einhverft fólk, foreldra þess og aðra aðstandendur með ráð- gjöf og fræðslu. Fagfólk á sviði ein- hverfu mun veita ráðgjöfina en fyr- irmyndin er sótt til hagsmunafélaga einhverfra í Danmörku og Englandi," segir Ástrós Sverrisdótt- ir, formaður Umsjónarfélags . ein- hverfra, við DV. Félagið á 20 ára afrnæli um þess- ar mundir og í tilefni afmælisins mun félagið standa fyrir símaráð- gjöf. Að sögn Ástrósar er hér um að ræða tilraunaverkefni og mun síma- ráðgjöfin byija með að vera á þriðjudagskvöldum milli klukkan 20 og 22 í september og október, not- endum að kostnaðarlausu. Félagið hefur fengið til liðs við sig marga sérfræðinga sem hafa að baki margra ára reynslu í ráðgjöf og stuðningi við einhverfa og fjölskyld- ur þeirra. Ástrós segir að þekking þeirra og reynsla spanni vítt svið og saman myndi þeir góða heild. „Reynslan hefur sýnt að hér á landi er mikil þörf á fræðslu um einhverfu og ekki síst faglegri ráð- gjöf til aðstandenda. Ráðgjöfin er af ýmsum toga og getur meðal annars falist í þvi hvemig bregðast eigi við aðstæðum í daglegu lífi einhverfs bams, þar sem almennar uppeldis- aðferðir duga skammt, ásamt al- mennum upplýsingum um fötlun- ina,“ segir Ástrós. -RR Sértílboð til Parísar 9. otj 13. október frá kr. 19. Nú seljum viö síðustu sætin í helgarferð til Parísar 9. október. Við höfum tryggt okkur viðbótargistingu á vin- sælustu hótelum okkar, Europa og La Galerie, bæði staðsett í hjarta Parísar þar sem þú getur notið þessar- ar borgar sem á engan sinn líka. Og á meðan á dvöl- inni stendur, nýtur þú rómaðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Bókaðu strax - síðustu sætin ■ (6 LHEI IMSFERf y\R' T ' Austurstræti 17,2. hæfi * síml 582 4600 Fréttir Heyskapur erfiður DV, Hólmavik: Grasvöxtur var með alira mesta móti þetta sumarið hér um slóðir en gæði heyjanna eru ekki alls staðar að sama skapi mikil vegna veðráttunn- ar. Á Ströndum telst nú enginn leng- ur bóndi meðal bænda nema hann eigi besta fáanlega búnað til rúllu- heyskapar, 3 dráttarvélar og allra best þykir að þessi búnaður standi ónotaður um 50 vikur ár hvert. En þrátt fyrir alla tæknina gekk heyskapur á Ströndum heldur sein- lega á þessu sumri, einkanlega í ágústmánuði enda var um hluta sýsl- unnar úrkoma í 21 dag í þeim mán- uði. Suma dagana rigndi ailhressi- lega og í lok mánaðarins höfðu ekki allir lokið heyskap af þeim sökum. Farsælust hefúr reynst votheys- verkun þegar þannig viðrar. Hana tóku Strandabændur upp einna fyrst- ir fyrir um hálfr i öld, sem án efa varð til þess að byggð hefur haldist hér um slóðir. Fyrir um áratug hófú nokkrir bændur rúlluverkun heys, reyndar sumir fyrir misskiining; því sjást nú aftur eftir langt hlé hrakin hey á túnum Strandabænda. -GF BIFRESÐASTILLINGAR u a 3 Ð \ UM / I FRVSÍIKISTUR | 234 Itr. 2 körfur 39.990 stgr. 348 Itr. 3 körfur 45.990 stgr. 462 Itr. 4 körfur 53.990 stgr. 576 Itr. 5 körfur 68.380 stgr. Góðir greiðsluskilmálar. VISA og EURO raðgreiðslur án útb. o Fyrsta flokks frá /FDniX HATÚN (,A ■ SÍMI STT 44_>() A GOÐU VERÐI 3-Diska geislaspilari • SUPER T-BASSl (3ja þrepa) • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með sjálfvirkum radddeyfi Hægt er að tengja 2. hljóðnema viö stæðuna • 40 + 40 W RMS magnari með surround kerfi • Al leiðsögukerfi með Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tvöfalt .auto reverse" segulband • Fulikomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir • Tengi fyrír aukabassahátalara. ( SUPER VWOOFER ) • Segulvarðir hljómmiklir hátaiarar. • 3-Diska geislaspilari • 75+75 W RMS magnari með surround kerfi SUPER T-BASSI (3ja þrepa) • BBE hljómkerfi (3ja þrepa) • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með DIGITAL ECHO og sjálfvirkum radddeyfi • Hægt er að tengja 2 hljóðnema við stæöuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-CLASSIC • Nýr fjöllita skjár Al leiðsögukerfi með Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi Tvöfalt auto reverse segulband • Fullkomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir Segulvaröir hátalarar með innibyggðu umhverfishljómkerfi (FRONT SURROUND) 1998 hljómtaekin frá aiwa eru kraftmikil, hljómsóð og nýstárleg í útliti. Tækin eru L hlaðin öllum tækninýjungum sem völ er á. Komið og kynnist hljómtækjum í algjörum sérflokki. Ármúla 38 í é<m fím SÉtS. 4-"-'' ‘> > > > jis UMBOÐSMENN AIVVA UM LAND ALLT: Reykjavík: Heimskringlan Kringlunni - Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla - Grindavík: Rafeindaþjónusta Guðmundar - Keflavík: Radiókjallarinn - Akranes: Hljómsýn - Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga - Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjópusta Odds Sigurðssonar - Sauðárkrókur: Skagfirðingabúð - Búðardalur: Verslun Einars Stefánssonar Bolungarvík: Vélvirkinn - ísafjörður: Ljónið / Frummynd - Siglufjörður: Rafbær - Akureyri: Tölvutæki Bókval - Húsavik: ómur Vopnafjörður: Verslunin Kauptún - Egilsstaðir: Rafeind - Neskaupsstaður: Tónspil Eskifjörður: Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Turnbræður - Höfn: Rafeindaþjónusta BB - Hella: Qilsá - Selfoss: Radlórás - Þorlakshöfn: Rás - Vestmannaeyjar: Eyjaradló

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.