Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 pv________________________________________________Fréttir Grasrótin til styrktar landsbyggðinni: Styrking jaðarbyggða hefst í grunnskólunum „Væntumþykja, vilji og sjálfsvirðing skiptir mestu ef við ætlum að halda uppi byggð í dreifbýlinu," segir Inger Marie Olsen sem hefur stýrt byggðarþróunarverk- efni í Troms í Noregi síðustu Qögur árin. Inger Marie er stödd hér á landi í tveggja vikna kynningarferð þar sem hún ferðast um landið, kynn- ir verkefnið sem hún leiðir og aflar sér um leið upplýs- inga um stöðu mála í dreif- býlinu á íslandi. Hún segir sem er að samkvæmt eðli málsins verði ekki öllum byggðum vamað því að leggj- ast í eyði en víða i Troms hef- ur hægt verulega á fólksflótt- anum suður á bóginn. Fyrst og fremst em það konur og böm sem hlúð er að í verk- efninu sem hún stýrir. Inger Marie Olsen, verkefnisstjóri í byggðaþróun sjávarþorpa í Troms-fylki, hefur kynnt sér ástand dreifbýlisins á íslandi ásamt Birnu Halldórsdóttur sem fylgdi henni um landið. DV-mynd E.ÓI. Mikill áhugi hér á landi „Það er alltaf konur sem fyrst eru látnar víkja fyrir tækninýjungum. Mér fannst þróunin ógnvekjandi og hætti í mínu starfi sem leið- beinandi í Troms fyrir fjór- um ámm og ákvað að sinna „Kystsamfunn- prosjektet" af öllum mínum krafti," segir Inger Marie. Og verkefnið hefúr sannarlega hlað- ið utan á sig. í dag er virk samvinna um aðlaðandi byggð i sex sveitarfé- lögum Troms- sýslu í Norður-Noregi og verkefnið er víða notað sem fyr- irmynd í öðmm sýslum landsins. Inger Marie Olsen segist hafa fund- ið mikinn áhuga á verkefninu á Is- landi en það virðist sem stefna stjórnvalda sé alfarið á þá leið að búseta á landsbyggðinni sé einskis virði. Norsk stjómvöld vilja hins vegar hlúa að þessum málum og tel- ur hún þann vilja skipta miklu fyr- ir íbúana. Væntumþykja og vilji Þetta er ekki dýrt verkefni en þetta kallar á væntumþykju og vilja til að efla sjálfsvirðingu þeirra sem jaðarbyggðimar byggja. Verkefninu er beint að byrjunar- reitunum. Strax í leikskóla og síðan áframhaldandi í grunnskóla er hald- ið uppi kennslu sem er samofin því hvaða hlutverki heimabyggðin hef- ur gagnvart heiminum. í stærðfræði em búin til efnahagslíkön úr fisk- iðnaðinum og í ensku era gerðir viðskiptasamningar um sölu á fram- leiðslu þorpsins til útlanda. Jap- anskir fiskréttir era æfðir í mat- reiðslu og þannig mætti áfram telja. Ekki skortur á fjármagni Olsen segir af samtölum sínum við fólk á íslandi að fjármagn til að hleypa verkefni sem þessu af stað virðist vera til í landinu en að því sé ekki rétt úthlutað. Það eru nokkrir þættir sem hún hefur séð hér á landi sem hrífa hana eins og til dæmis fjarnám kennara- háskólans, Menntasmiðjan á Akur- eyri og unglingavinna sveitarfélag- anna. Hún hefur verið í sambandi við Simennt og hefur verið að leita eftir samstarfi við íslendinga á þessu sviði. „Það er svo margt sem tengir okk- ur, bæði hvað varðar landshætti og fleira auk þess sem við erum einu Norðurlöndin sem stöndum enn utan við Efnahagsbandalag Evr- ópu,“ sagði þessi bjartsýna kona að lokum. -ST 13 m SB - »B IS ■ * • * í’tf KF-265 Kælir 197 Itr. Frystir 55 Itr. HxBxD 146.5 x 55 x 60 TILBOÐ Aðeins 54.990,- „5„ Það eru nýjar glæsilegar innréttinqar I öllum 20 gerðum kæliskápanna. fyrsta flokks frá »'♦ /Fonix HÁTÚNI6A REYKJAVIK SÍMI 552 4420 Frá 1,2-15 tonn. Fyrirliggjandi 1,8 og 2,5 t raf. HEKLA véladeild Laugavegi 170-174, sími 569 5500 Miðheimar ~ Meiri hraði og aldrei á talí! Gunnlaugur Briem er einn allra besti trommuleikari okkar. Nú er hann kominn með aðgang að Internetinu og tölvupóst og er þvi ekki lengur upp á félaganna kominn vilji hann skoða sig um í hinum framandi heimum Netsins. Eg er á réttum stað... Brautarholti 1 • Sími 511 7000 • Fax 511 7070 centrum @ centrum.is • www.centrum.is Eg er... @centrum.is u

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.