Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 18
Pessir nemendur hafa væntanlega útskrifast án hjálpar Netsins. DV-mynd S
Skólaritgerðir á vefnum
Eitt af því sem hefur farið hvað
mest í taugarnar á nemendum er að
skrifa ritgerðir. Þetta veldur stressi
og spennu því oft eru ritgerðirnar
gerðar á síðustu stundu. En fyrir þá
sem eru með nettengingu er til
„hjálp“. Og þessi hjálp hefur ekki
vakið mikla lukku meða sumra
kennara.
Sá sem vill skila inn falsaðri rit-
gerð þarf ekki að leita langt. Það
eina sem hann þarf að gera er að
fara á réttu vefsíðuna þar sem sem
hægt er að panta, kaupa eða jafnvel
fá gefins ritgerðir. Meðal þeirra sem
bjóða upp á þessa þjónustu er Col-
legiate Care Research Assistance.
Þar er til dæmis til sölu fyrir 30
dollára (2.100 krónur) um andlega
erfiðleika Hamlets. Ekkert mál! En
ef mönnum finnst þetta of dýrt geta
þeir í staðinn farið í Collegiate
Care. Þar eru ritgerðir boðnar á 6
dollara (420 krónur) síðan. Fleiri
slíkar hjálparsíður eru til.
Svindl ekki útbreiddara
Nemar í Bandaríkjunum virðast
notfæra sér slíka hjálp nokkuð mik-
ið. Margir hafa áhyggjur af því að
Netið, sem hefur áður verið lofað
sem ein besta leiðin til að afla upp-
lýsinga, sé nú orðin besta leiðin til
að svindla.
Þar er reyndar ekkert nýtt að rit-
gerðir séu falsaðar og það hefur allt-
af tíðkast í einhverjum mæli að
menn reyni að kaupa ritgerðir af
einhverjum öðrum. Menn hafa hins
vegar áhyggjur af því að slíkt sé að
verða algengara með tilkomu Nets-
ins. Prófessor við Berkley-háskóla
efast um það. Hann segir að þeir
sem hafi tilhneigingu til að svindla
geri það alveg sama hversu háþróuð
tækni er til þess. Nemandi í sama
skóla tekur í sama streng.
Kennarar næmir
Kennarar þurfa að komast ein-
hvern veginn að því hvort sá sem
skilar ritgerðinni og skrifar nafn
sitt undir hana sé raunverulegur
höfundur. Jane Morrison kennari
segir þó að hún sé ekki í vandræð-
um með það. „Nemendur sem fá rit-
gerð sína af Netinu líta ekki beint á
mig þegar þeir skila ritgerð sinni.
Þeir kipra munninn og horfa á
tærnar á sér. Þeir sem skrifa rit-
gerðina sjálfir tala mjög gáfulega
um ritgerðina og horfa beint í aug-
un á mér,“ segir hún.
Og annar kennari segir að það sé
hægt að hafa verkefni þess eðlis að
ekki er hægt aö svindla, t.d. ef þarf
að gera bækling úr verkefninu, gera
leikrit eða fyrstu persónu frásögn.
Sem sagt, ef einhver er að hugsa
um að svindla með því að ná sér í
ritgerð um vefinn er það ekki ráð-
legt. Þó að foreldrarnir komist ekki
að því mun kennarinn örugglega
gera það! -HI/CNN
Blaðamaður hjá Wired
verðlaunaður
Steve Silberman, blaðamaður hjá
vefdagblaðinu Wired
(http://www.wired.com), varð ný-
lega lýrstur til að hljóta verðlaun
sem kölluð hafa verið New Media
Award. Verðlaunin eru veitt af sam-
tökum samkynhneigðra blaöa-
manna í Bandaríkjunum. Verðlaun-
in fékk Silberman fyrir að skrifa
mikið um málefni samkynhneigðra
T I; ('r | \ ** /'
Fred Astaire
Það eru
margir hrifn-
ir af dans- og
söngvamynd-
um Freds
Astaires enda
var maðurinn
engum likur.
ítarlegt æviá-
grip um hann er að finna á
http://www.kcmetro.c-
c.mo.us/penn-
valley/biology/lewis/cros-
by/as taire.htm.
Dauðarefsing
Skiptar skoðanir hafa verið
um dauðarefsingu en fjallað er
um þetta umdeilda mál frá ýms-
um hliðum á
http://www.eu.utex-
as.edu/~tonya/spring/cap/gro
upl.html.
f - •
Bragi Ólafsson
Ljóðskáldið Bragi Ólafsson,
fyrrum meðlimur Sykurmol-
anna, er með síðu með nokkrum
af þeim ljóðum sem hann hefur
samið. Slóðin er
http://saga.is/Menning/Lag-
menning/Popp/Bad-
Web/bragi.html.
KR
Heimasíðu Knattspyrnufélags
Reykjavíkur, eða KR, er að finna
á http://www.toto.is/felog/KR.
t Wired. Þannig hafi hann stuðlað
að því að samkynhneigðir séu hluti
af samfélagi mannanna. Nokkrar
af greinum Silbermans má lesa á
heimasíðu Wired á
http://www.wired.com.
Ákærður fyrir greiðslukortasvik um
Netið
Fyrrum háskólanemi í Flórída hef-
ur verið ákæröur fyrir að reyna aö
fá greiðslukort um Netið með óheið-
arlegum hætti. Honum er gefið að
sök að hafa sótt um 174 greiðslu-
kort um Netið með þvt að nota
nöfn nemenda í sama háskóla og
hann. Nöfnin hafði honum tekist
að fá úrtölvukerfi háskólans.
Grundsemdir vöknuðu þegar kom
t Ijós að senda átti öll svör við um-
sóknum á sama heimilisfang. Eng-
in kort voru gefin út. Nemandi þessi
á yfir höfði sér allt að fimm ára
fangelsi og allt að 250 þúsund doll-
ara sekt (kr. 17,5 milljónir) verði
hann fundinn sekur.
Indverskar síður í Explorer
Microsoft mun vera með fimm ind-
verskar vefsíður í vafra sfnum Inter-
net Explorer 4.0 en hann mun koma
út 30. septemher. Með því að
smella á rétta staði í vafranum
verður hægt aö komast inn á
skemmtilegar indverskar upplýs-
ingasfður sem innihalda m.a. frétt-
ir frá Indlandi, upplýsingar um
skemmtikrafta ogjafnvel krikket-
fréttir. Talsmaöur útibús Microsoft
í Indlandi segir að þetta verði einnig
innifalið í Windows 98 stýrikerfi
Microsoft. Það mun koma út
snemma á næsta ári.
Tekjuupplýsingar aftur á Netið
Tryggingastofnun Bandaríkjanna
ætlar að gera aðra tilraun til aö
gera tekjuupplýsingar fólks að-
gengilegar á Netinu. Slík stða var
tekin af Netinu í apríl þar sem of
auðvelt þótti fyrir fólk aö fá slík-
ar upplýsingar um einhvern ann-
an. Stofnunin hefur hert öryggi
þannig að nú á að vera erfiðara
fyrir fólk að fá aðrar fjárhagsupp-
lýsingar en þess eigin. Nú þarf að
slá inn sérstakt leyniorö til að fá,
aðgang að slíkum upplýsingum. Á
stðunni á að vera hægt að spá fyr-
ir um fjárhaginn í framtíðinni, t.d.
hve mikinn ellilífeyri maðurfær mið-
að við óbreyttar tekjur.
Málaferli gegn netdálkahöfundi
Sidney Blumenthal, aðstoðarmað-
ur Bandaríkjaforseta og fýrrverandi
blaðamaður, hefur höfðaö mál á
hendur dálkahöfundinum Mark
Drudge sem skrifar aðallega slúð-
ur. Dálkar hans hafa verið mikið
iesnir meðal áhugamanna um
fræga fólkið. Drudge skrifaði t dálki
stnum að Blumenthal hefði áður
fyrr vanhelgað hjónabandið. Blu-
menthal neitaði þessum ásökun-
um og síðar dró Drudge þetta til
baka. Nú hefur Blumenthal fengið
stuðning Bills Clintons og Als Gore
varaforseta við málaferli gegn
Drudge.
é
r »1 • • r1 (1 , *
MANUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
Islensk málstöð setur orðasöfn á Netið:
Tvíburar
Tvíburar hafa löngum þótt
sérstakur þjóðflokkur. Sérstakt
tímarit tileinkað þeim er á http:
//www.twinsmagazine.com.
mikið
WorldCom hefur keypt tölvuris-
ann Compuserve fyrir 1,2 milljarða
Bandaríkjadala. Ætlunin er að fyr-
irtækið muni skipta meö America
Online þeirri vöru og þjónustu sem
Compuserve sá um áður. Þessi kaup
munu breyta forminu á netþjónustu
víða.
Samkvæmt samningnum munu
þeir 2,6 milljón viðskiptavinir net-
þjónustu Compuserve nú skipta við
AOL. í staðinn mun WorldCom
kaupa dótturfyrirtæki AOL, net-
þjónustufyrirtækið ANS Commun-
ications, fyrir 175 milljónir Banda-
ríkjadala. Þar sem viðskiptavinum
AOL mun fjölga talsvert á einu
bretti við þetta mun það styrkja
stöðu fyrirtækisins sem aðalnet-
þjónustuaðila Bandarikjanna. Þeir
sem skipta við netþjónustu AOL eru
nú um níu milljónir.
MikUl og þrátlátur orðrómur hef-
Steve Case stjórnarformapur AOL. Nú hefur fyrir-
tækið ráðandi stöðu á netþjónustumarkaðnum í
Bandaríkjunum. Símamynd Reuter.
ur verið á kreiki um
einhvers konar sam-
runa milli AOL og
Compuserve en
menn voru ekki á
einu máli um hvem-
ig sá samruni ætti að
eiga sér stað. Nú hef-
ur það sem sagt kom-
ið í ljós.
Fyrst um sinn
mun AOL reka
Compuserve aðskilið
frá núverandi starf-
semi sinni. Með því
vonast fyrirtækið til
að slá á tortryggni
viðskiptavina
Compuserve sem hafa
hingað til sneitt hjá að skipta við
AOL.
WorldCom hefur verið að víkka
út starfsemi sína undanfarið. Fyrir-
tækið er nú fjórða stærsta netþjón-
ustufyrirtæki Bandaríkjanna. Ný-
lega keypti fyrirtækið NLnet, sem
er stærsta netþjónustufyrirtæki
Hollands, þannig að worldCom virð-
ist stefna á einhverja landvinninga í
Evrópu.
Sérfræðingar em ekki alveg viss-
ir um hvort hagnaður fyrirtækisins
muni aukast eftir þessi viðskipti en
forsvarsmenn fyrirtækisins eru
sannfærðir um það. Aðrir sérfræð-
ingar hafa einnig minnst á að dóms-
málaráðuneytið gæti hugsanlega
gert athugasemdir vegna þess að eft-
ir þessi viðskipti verður AOL alls-
ráðandi á netþjónustumarkaðnum i
Bandaríkjunum. Forsvarsmenn
AOL hafa litlar áhyggjur af þessu.
Samningur þessi mun hjálpa AOL
við útbreiðsluna í Evrópu en hún
hefur verið nokkuð hæg. T.d. fengu
þeir 150 þúsund nýja viðskiptavini
bara í Evrópu við þennan nýja
samning. -HI/Reuter
Þar er að finna upplýsingar um
alla liðsmenn KR í karla- og
kvennaílokki og upplýsingar um
leiki liðsins.
Heimspeki
Allir sem hafa áhuga á góðum
heimspekiumræðum ættu að
skoða http://killdevil-
hill. com/philosophy cat/w ww-
board.html.
Maradona Tlmes
Dagblaðiö Maradona Times er
blað sem er sérstaklega tileink-
að knattspymugoðinu ógæfus-
ama, Diego Maradona. Slóðin á
þetta sérstaka blað er
http://www.geociti-
es.com/colosseum/Field/1782.
Vinna er nú i fullum gangi hjá ís-
lenskri málstöð við að setja öll orða-
söfn sem gefm hafa verið út inn á
Netið. Áætlað er að opna þennan
orðabanka 16. nóvember, á degi ís-
lenskrar tungu. Dóra Hafsteinsdótt-
ir hefur séð um tæknilega vinnu við
gerð bankans.
Ari Páll Kristinsson, formaður Is-
lenskrar málstöðvar, segir að hug-
myndin hafi fyrst komið upp um
1980 en tæknileg framkvæmd á
henni hafi síðan breyst með árun-
um, sérstaklega með tilkomu Nets-
ins. „Eftir það varð öll framkvæmd
mun auðveldari," sagði Ari Páll. I
árslok 1995 fékk íslensk málnefnd
síðan styrk úr Lýðveldissjóði til að
kom fram mikill
áhugi á slíkum
banka. Við sjáum
því fram á að
þetta gagnist
þýðendum mjög
mikið," sagði
Ari Páll. Hann
sagði að við-
brögðin
hefðu einnig
verið já-
kvæð með-
al ís-
lensku-
fræð-
Nú er hægt að fletta
upp á orðum sem byrja á „a“ og ,,á“
í flugorðasafni og tölvuorðasafni.
Þessi söfn verða að sjálfsögðu i
heild sinni í gagnabankanum þegar
hann verður opnaður. Einnig verða
þar orðasöfn úr ýmsum öðrum svið-
um, svo sem töifræði, sálarfræði og
stjörnufræði.
Ari Páll sagði að lokum að tækni-
leg vinna við orðabankann væri
nánast búin. Aðeins væri eftir að
safna orðum í hann. Bankinn verð-
ur síðan opnaður á Netinu á degi ís-
lenskrar tungu og verður öllum að-
gengilegur þar.
Slóðin á orðabankann er http:
//www.ismal.hi.is/ob. -HI
Jamaíka
Ef menn vilja ferðast um
Jamaíka er hægt að athuga
hvaða staði er skemmtilegt að
skoða þar á
http://www.inside-ja.com.
Þetta orðasafn fer lík-
lega inn á Netið.
setja orða-
söfnin á
Netið og hef-
ur verið unn-
ið að því af
krafti síðan.
Hann segir
fólk þegar hafa
sýnt þessum
orðabanka mik-
inn áhuga. „Við
héldum fjölmenn-
an fund með þýð-
endum í vor og þar