Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 19
Robert Wilson sálfræöingur og nokkrir starfsfélaga hans í sálfræði- þjónustunni Wilson Banwell & Associates eru þessa dagana að kynna nýja vefsíðu. Þar getur fólk talað við sálfræðing um Netið ef það á við einhver vandamál að stríða. Wilson situr þá við tölvu á skrif- stofu sinni í Vancouver og skrifar sínar spumingar. Þeir sem hjálpina vilja eru á ýmsum öðrum stöðum og skrifa um áhyggjur sínar án þess að sjá nokkurn tímann sálfræðinginn. Slóðin á þessa síðu er http: // www.wilsonbanwell.com. Þetta er, eftir því sem best er vit- að, fyrsta síðan sem býður sálfræði- hjálp um Netið. Hins vegar hafa ver- ið taldar um 50 síður í heiminum sem bjóða einhvers konar andlega hjálp. „Þetta er nýtt og spennandi svið. Það eru margir á Netinu sem þurfa á slíkri hjálp að halda,“ segir dr. John Grohol sálfræðingur í Col- umbus í Ohio. Grohol býður ráðgjöf í andlegri heilsu á slóðinni http: / / www.cmhc.com. Sálfræðingar tvístígandi Margir sálfræðingar eru mjög hrifnir af því að nota þessa tækni, einkum vegna þess að hægt er að ná til fleira fólks með minni tilkostn- aði. Menn eru samt ekki áhyggju- lausir yfír því að bjóða þjónustuna á þennan hátt og eru þá einkum að hugsa um siðfræðireglur sálfræð- inga. Sumir sálfræðingar óttast að ekki sé hægt að tryggja fullan trún- að milli sjúklings og sálfræðings með því að nota Netið. Einnig hafa menn áhyggjur af því að þegar Net- ið er notað geti sálfræðingar ekki fýlgst nógu graimt með sjúklingn- um til að grípa inn í þegar sjúkling- ur er í mikilli kreppu, jafnvel sjálfs- morðshugleiðingum. En Wilson, sá sem minnst var á hér að framán, telur aö sú þjónusta sem hann bjóði hafi yfirstigið sum- ar af þessum hindrunum. Á vefsíðu hans er til dæmis sérstakur brengl- unarbúnaður sem tryggir fullan trúnað og meðferðin á sér stað í lok- uðu spjallherbergi. Ýmsir ókostir Wilson viðurkennir þó að net- meðferð hafi ýmsa ókosti umfram þá hefðbundnu. Þeir fá til dæmis ekki vísbendingar frá rödd eða lík- amsbeitingu sjúklingsins. Einnig er hægt að nota tæknina til að afvega- leiða sálfræðingana. Hins vegar er Dell fram úr Compaq Dell hefur komist fram úr fyrir- tækinu Compaq í sölu á einkatölv- um til stærri fyrirtækja. Markaðs- hlutdeild Dell var 18,4% á þeim markaði fyrstu sex mánuði ársins á meðan hlutdeild Compaq var 16,5%. Næst á eftir komu Hewlett Packard og IBM. Compaq hefur þó enn forystu í heildarsölu á tölvum. Forsvars- menn Dell kæra sig kollótta um slíkar tölur og heldur því fram að þeir séu ráðaandi á þeim sviðum sem máli skipta. Þessi einkatölvumarkaður er talinn vera um 30% af allri heild- arsölu i Bandaríkjunum. Búist er við að Dell muni jafnvel ná foryst- unni í heildarsölunni áður en langt um líður. -HI framtíöinni fer maöur á Netiö til aö leita til sálfræöings. DV- mynd ÞÖK hann bjartsýnn á að þetta sé fram- tíðin og telur að allt að 40% sjúk- linga hans verði í meðferð um Net- ið á næstu fimm árum. Hins vegar skal tekið fram að menn geta ekki bara farið inn á síð- una og sagt: „Ég þarf á hjálp að halda.“ Til þess að komast í slíka meðferð verður fyrst að staðfesta hver maður er. Einnig verður mað- ur að hafa farið í heimsókn til sál- fræðings í heimabæ sinum áður en tekið er þátt í meðferð um Netið. Og ekki er tekið á móti sjúklingum sem eiga við alvarleg vandamál að stríða, svo sem ímyndunarveiki, sjálfsmorðshugleiðingar eða ofbeld- ishneigð. Wilson segir að lokum að þetta sé tilvalin meðferð fyrir netfikla. „Nú er tækifærið til að segja þeim að slökkva nú á fjandans tölvunni!" segir hann. -HI/Reuter Minningarsíða um móður Teresu Sett hefur verið á vefinn minn- ingarsíða um Móður Teresu þar sem hægt er að skrifa samúðar- kveðjur og minningarorð um þessa frægu nunnu. Vefur þessi hefur að- setur á Indlandi og er slóðin http://www.indi- achat.net/motherteresa. Þegar hafa hundruð skilaboða verið send inn á vefinn og bera þau með sér hvað Teresa skipti marga menn miklu máli. „Guð hefur tek- ið ljósið frá okkur. Megi hún lýsa upp himnana líka,“ hljóma til dæmis ein skilaboðin sem send hafa verið. Öllum skilaboðum, sem send verða á síðuna, veröur komið áleiðis til reglunnar í Kalkútta sem Teresa var meðlimur í. Síðan var komin á Netið aðeins 15 klukku- stundum eftir dauða hennar en hún lést fyrir tíu dögum, 87 ára að aldri. LsrkíaLnðlár Unnið að framhaldi af Diablo Blizzard Entertainment, sem fram- leiðir hinn vinsæla leik Diablo, hef- ur tilkynnt að framhald af þessum leik, Diablo II, muni koma út í lok næsta árs. Framhaldið mun gerast í sömu dimmu veröldinni sem Diablo stjórnar með harðri hendi. Þó verða ýmsar breytingar gerðar á umhverf- inu og bæjunum. Einnig verða ýms- ar nýjungar í bardagatækni. Hægt verður að velja um fimm persónur til að stjórna sem hver hefur sína sér- stöku eiginleika. Einnig þarf að kljást við ýmis ný dýr. Diablo hefur nú selst í milljón eintökum um allan heim. Varist sjóræningjaútqáfur Leikjaframleiðendur lenda iðulega í vandræðum vegna sjóræningjaút- gáfa af leikjum. í síðustu viku var sagt frá orðrómi þess efnis að út- gáfa af Dark Forces II væri komin á Netið en talsmaður Lucas Arts, sem framleiðir leikinn, kannast ekki við það. Meira er þó um að geisladisk- ar meö slíkum útgáfum séu í um- ferð. Einni slíkri útgáfu var dreift af kappakstursleiknum F1 Racing Simulator. Ókostirnir voru hins veg- ar margir. Útgáfan var t.d. 27 Mb og á frönsku. Svona útgáfur eru því ekki alltaf jafngóöar og leikurinn sjálfur. Eltir af paparazzi Paparazzi hafa verið mikio í umræö- unni eftir lát Díönu prinsessu. Ónefnt fýrirtæki hefur sent frá sér leik sem gengur út á það að paparazzi-ljós- myndarar elta mann á röndum við hinar ýmsu aðstæður. Þannig á að láta mann líða svipað og Díönu leið þegar blaðaljósmyndarar ofsóttu hana. Einn af þeim sem geröi leik- inn segir aö hann sé gerður til að mótmæla aðerðum þessara lítt geö- þekku Ijósmyndara. Hægt er að ná í leikinn á slóðinni http://www.fair- game.org/paparazi. Windows95 og þrívíddarskjákort er nauösynlegt. Leikur byggður á Blackstone Chronicle Fyrirtækið Mindscape hefur gert samning við John Saul, höfund met- sölubókaflokksins The Blackstone Chronicles, um að gera leik eftir þessum flokki. Þessar bækur fjalla um dularfulla atburði sem gerast t bænum Blackstone á Nýja- Englandi. Einnig er sagt frá hæli sem byggt var þar til að stemma stigu við glæp- um. Sex bækur eru í þessum bóka- flokki og verður umhverfi hverrar bók- ar heimfært í tölvuleikinn. ABC er einnig að gera sjónvarpsþætti eftir þessum bókum. Þættirnir verða á dagskrá snemma á næsta ári en leikirnir koma aðeins seinna á ár- inu. Myst vinsælastur Samkvæmt alþjóðlegum tölvuleikja- sölulista var Myst sá leikur sem seld- ist mest í júlí fyrir PC- tölvur. Þetta er annar mánuðurinn í röö sem Myst heldur þvi sæti. í öðru sæti er Di- ablo og Dungeon Keeper í því þriðja. Það sem vekur mesta athygli er að Quake fellur úr 12. sæti í það 18. á aðeins einum mánuði og þykir það mikiö. Af leikjum fyrir Machintosh er Duke Nuken í efsta sæti, Archives II í öðru og LinksPro í því þriöja. Machintosh útgáfan af Myst er I fjórða sæti. ^ Og toppþjónusta ókeypís Nii tengjum víð heimíli og fyrírtæki Allt að 56K eða ISDN tenging til þín* 100% stafrænt samband - aldrei á tali Ókeypis heimsókn tæknimanns til að tengja þig** \- Vel valinn hugbúnaður Ótakmarkaður aðgangur - engin aukagjöld Ókeypis Internet kynningarnámskeið Tæknimenn á vakt alla daga kl. 9-24 Ókeypis 2 netföng/pósthóif sem hægt er að tengjast hvar sem er í heiminum Frír septenbamánuður co (5 £ Ol O) C ® « .E | ‘o t ££ izr d) 03 E 3 o q. ro c in 3 "o gœ ,= !=•£•§ Ín-S-SIE “ SgS-sS JOm »- '3 n- “ 56Keðaminna ** Stofngjald kr. 2.450 Nóatún 17 • S: 562 6000 • www.xnet.is Mánaðargjald kr. 1.780 ISDN Stofngjald kr. 5.280 Mánaðargjald kr. 3.820 Document: Doní. Létt V*rk Auglýsingastofa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.