Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Síða 22
30
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
Brautarholti 22 • Sími 551 4003
'iMME
Byrjendanámskeið
PMi''
% eru að heíjast.
Sjálfsvörn f Barua-, unglinga-,
ng fullorðinsflokkar.
A§il ^Líkamsrækt
Karatefélagið Þórshamar
Slœrsta karatefélag landsins
Fréttir
/
Björk á NBC
Björk á blaðamannafundi nýlega.
Sjónvarp á Vestfjöröum:
Vilja
mann
í fullt
DV, Akranesi:
Hróður íslensku stórstjörnunnar
Bjarkar Guðmundsdóttur fer víða
og sjónvarpsstöðvar keppast við að
taka viðtöl við hana. 18. október
næstkomandi mun hún koma fram í
þættinum Saturday Night Live á
NBC. Þetta kom fram á heimasíðu
sem kallast tónlist í sjónvarpi og er
slóðin fyrir hana „http:// www. roc-
kontv.com. Þeir sem hafa aðgang að
fjölvarpi munu geta fylgst með þess-
um þætti og DV mun greina frá
tímasetningu hans þegar nær dreg-
ur. Ekki er að efa að fleiri sjón-
varpsstöðvar munu bítast um Björk
því að 15. þessa mánaðar kemur
smáplatan Joga út og stóra platan
Homogenic viku siðar. Þá munu
myndbönd fara að birtast á tónlist-
arstöðvum víða um heim, svo sem
MTV.
-DVÓ
Orkubú Vestfjarða:
Leitað að
heitu vatni í
Skutulsfirði
- 14 hitastigsholur verða boraðar
DV, Vestfjörðmn:
í sumar gerði Orkubú Vestfjarða
samning við Orkustofnun um að
bora 14 hitastigsholur í Skutulsfirði.
Verða holumar boraðar á næstu
vikum á svæðinu frá Engidal og út
á Óshlíð. Að sögn Kristjáns Haralds-
sonar, framkvæmdastjóra Orkubús-
ins, er þetta gert til að fá frekari vit-
neskju um svæðið.
„Þetta á að gefa okkur vísbend-
ingar um það hvort um sé að ræða
„óeðlilega" hitaaukningu og hvort
ástæða sé til frekari borana. I þetta
verkefni er áætlað að verja fimm
milljónum króna. Það sem við erum
að gera þarna er að kanna jarðhit-
ann nálægt þeim stað þar sem við
eigum þegar dreifikerfi,“ sagði
Kristján Haraldsson.
-HKr.
Hér sést steypubíll dæla steypu ofan á skúrþak á Eiríksgötu. Steypubíllinn
er í um 30 metra fjarlægð en notar langar slöngur til verksins. Steypunni er
síöan dreift yfir skúrþakiö. Áður fyrr var steypan keyrö í hjólbörum þarna að
og síöan hífð í fötum upp á þakið. Vinnubrögðin nú eru því með talsvert
minni fyrirhöfn. DV-mynd S
Skagaflöröur:
Tveir listar til
Búnaðarþings
Tveir listar komu fram i Skaga-
firði vegna kosninga til Búnaðar-
þings nú í haust, en við siðustu
kosningar var óhlutbundin kosning.
Búnaðarsamband Skagfirðinga á
rétt á tveimur fúlltrúum og skipa
núverandi búnaðarþingsfulltrúar
efsta sætið á hvorum lista.
Eftirfarandi listar verða í kjöri
nú:
Listi framfarasinnaðra bænda
með listabókstafinn F.
1. Jóhannes Ríkharðsson, Brúna-
stöðum. 2. Anna M. Stefánsdóttfr,
Hátúni II. I
Varamenn Smári Borgarsson,
Goð- dölum( og Trausti Kristjáns-
son, Syðri-Hofdölum.
Skagfirski bændalistinn með
listabókstafinn S.
1. Rögnvaldur Ólafsson, Flugu-
mýrarhvammi. 2. Bjami Axelsson,
Litlu-Brekku.
Varamenn Agnar Gunnarsson,
Miklabæ, og Þorsteinn Ásgrímsson,
Varmalandi.
Ákveðið hefur verið að fram fari
svokölluð póstkosning og á henni að
verða lokið fyrir 1. nóvember nk.
-ÖÞ
alltaf betra og betra
Aukablað um Suðurnes mun fylgja blabinu
24. september.
* Fjallað verður um ýmis fyrirtæki og rætt við forsvarsmenn þeirra.
* Rætt við forystumenn sveitarfélogonna.
* Tekin verða viðtöl við fólk á förnum vegi og fleira.
Þeir sem vilja koma auglýsingum í blaðið hafi samband
við Gústaf Kristinsson, auglýsingadeild, sími 550 5731,
eða Guðna Geir Einarsson, sími 550 5722 í síðasta lagi
fimmtudaginn 19. september.
starf
42. Fjórðungsþing Vestfirðinga
fól stjóm sambandsins að beita
sér fyrir því að ráðinn verði á
vegum Rikissjónvarpsins frétta-
maður i fast starf á Vestfjörðum.
Þá er þeim tilmælum beint til
Stöðvar tvö að koma á fót frétta-
stöð á Vestfjörðum sem sinni
fréttaflutningi af svæðinu og
skýri viðhorf Vestfirðinga til
þjóðfélagsmála. -HK