Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 23
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 31 f DV Fréttir Eskifjörður og Reyðarfjörður: Læknisleysi hrjáir íhúana DV, Eskifirði: Læknislaust verður eina ferð- ina enn á Eskiflrði og Reyðarfirði írá og með fostudeginum 12. sept- ember nk. Er það mikið áhyggju- efni fyrir íbúa þessara byggðar- laga að missa nú bæði Örvar Þór Jónsson og Theódór Jónsson sem starfað hafa hér undanfarið sem afleysingalæknar með mikilli sæmd og sóma. Okkar ágæti hér- aðslæknir, Auðbergur Jónsson, sem starfað hefur hér á Eskifirði og Reyðarfirði sl. 18 ár, er búinn að finna sér vinnu á Egilsstöðum og mun flytja þangað. Þess má geta að Jóhann Klausen, fyrrverandi bæjarstjóri, spáði því þegar Svavar Gestsson, þáverandi ráðherra, tilkynnti að apótekið yrði tekið af læknunum hér, sem annars staðar á landinu, myndu þeir ekki sætta sig við slíkt þar sem það hefði í för með sér verulega kjaraskerðingu fyrir þá. Enda væru hin raunverulegu læknalaun lág og aldrei nein hvíld hjá læknum vegna mikilla anna á öllum tímum sólarhrings- ins. Hefur Jóhann reynst sann- spár í þessum efnum því lækna- málin hafa verið í miklu uppnámi hér í læknishéraðinu síðan. Hefur það ástand skapað ótta og öryggisleysi meðal íbúanna. Sveinbjörg Pálsdóttir, yfirhjúkr- unarkona i Hulduhlíð, hefúr veru- legar áhyggjur af ástandinu þar sem þar er alltaf læknislaust af og tiL -Regína Bæjaryfiröld á Akranesi: Vilja fresta sölu á Sements- verksmiðjunni DV, Akranesi: í fjárlögum fyrir árið 1998 er gert ráð fyrir því að Sementsverksmiðja ríkisins hf. verði seld. Akranes- kaupstaðar á þar mikilla hagsmuna að gæta. Þar vinna um 100 manns og bærinn lagði verksmiðjunni til land þegar hún var reist og felldi niður ýmis gjöld. Til að spyrjast fyrir um viðbrögð Skagamanna við sölu Sementsverk- smiðjunnar sneri DV sér til Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra á Akranesi: „Ætlunin er að hitta Finn Ingólfs- son iðnaðarráðherra mánudaginn 8. september og fara yfir málið,“ sagði Gísli. „Bærinn lagði fram tillögu þess efnis að sölu verksmiðjunnar yrði frestað og að tilnefndir yrðu að- ilar sem mætu hvort bærinn ætti réttmæta kröfu á hendur ríkinu vegna framlaga við stofnun hennar. Tillaga bæjarins fékk ekki hljóm- grunn hjá iðnaðarráðuneytinu að svo stöddu en áfram verður rætt um málið.“ -DVÓ Haskolastofnun Háskólamenntaður maður, karl eða kona, óskast til þess að vinna að stofnun og skipu- lagningu náms í nýjum verslunarháskóla. Ráð- gert er að kennsla hefjist 1. september 1998 í húsnæði sem nú er verið að reisa við Ofanleiti nr. 2 í Rvk. Fyrirhugað er að innrita 150 nýstúdenta til þessa náms næsta haust. T.V.Í. mun einnig flytja í hið nýja húsnæði en þar stunda nú um 200 nemendur nám. Að Ofanleiti 2 verður rúm fyrir 500 nemendur. Verkefnið er í því fólgið að fara yfir allar fyrir- liggjandi áætlanir, endurskoða þær og kynna þegar fullnaðarsamþykkt skólanefndar liggur fyrir. Enn fremur að aðstoða við faglega upp- byggingu og ráðningu kennara. Æskilegt er að umsækjandi hafi víðtæka þekk- ingu á alþjóðlegu viðskiptalífi, nútíma háskóla- starfi og háskólakennslu. Laun eru skv. samkomulagi og fara eftir mennt- un, starfsreynslu og hæfileikum. Umsóknir skal senda til undirritaðs sem einnig veitir allar frekari upplýsingar. Umsóknarfrest- ur er til 1 5. október nk. Tölvuháskóli V.í. Þorvarður Elíasson skólastjóri, Ofanleiti 1 Thorvard@tvi.is Fax 568 8024 Sími 568 8400 SPAR SPORT SPRETTUR flOIDAS ■ROTTAGALLAR BARNA kr. 4990 FULLORÐINS kr. 5500 Skólataska kr. 3490 SPAR ISPORT TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI NOATUNSHUSINU NÓATÚNI 17 • SÍMI 511 4747

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.