Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Side 36
— t
44
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
Jtr
Tröllið eins og
tuskubrúða
„Arthúr Bogason, tröllið sjálft,
hefur látið Kristján litla Ragn-
arsson kasta sér eins og tusku-
brúðu.“
Garðar Björgvinsson, útgerðar-
maður og bátasmiður, í DV.
Viðskiptasjónarmiðin
víkja
„í hinni gagnrýnislausu logn-
mollu sem lagst hefur yfir þjóðfé-
lagið verða meira að segja hin
heilögu viðskiptasjónarmið að
víkja, því Jón Viðar „trekkti",
eins og það er kallað."
Illugi Jökulsson, á rás 2.
Viðburður aldarinnar
„Ef marka ætti viðbrögð fjöl-
miðla er andlát Díönu meiri við-
burður en upphaf heimsstyrjald-
anna tveggja, lok kalda stríðsins
og fjöldamorðin í Rúanda.“
Dagur Þorieifsson, í Degi- Tím-
anum.
Ummæli
Réttlátara dómskerfi
„Okkar dómskerfi er réttlátara
en það norska.“
Kristján Ragnarsson, form.
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, í DV.
Eitt bannað, hitt leyft
„Það sýnir fáránleikann að á
sama tíma og sala á Pistasio-
hnetum er stöðvuð vegna mögu-
leika á krabbameinsvaldandi
efni, þá á að flytja inn nýja vöru-
tegund með 40 krabbameinsvald-
andi efnum.“
Þorgrímur Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri Tóbaksvarna-
nefndar, í Degi-Tímanum.
Bókasöfn í heiminum eru mis-
stór en sameiginlegt er með
þeim að þau eru nauðsynleg í
hverju bæjarfélagi sem hefur ein-
hvern metnaö.
Bókasöfn
Elstu bókasöfn sem vitað er
um voru í Egyptalandi og
Babýlon og er sagt frá þeim í rit-
um. Það elsta sem hefur varð-
veist er leirtöflusafn
Assúrbanúipals annars Assýríu-
konungs og er það frá sjöundu
öld f.Kr. Það bókasafn sem fræg-
ast var í fornöld var Alexandr-
íusafnið. í Rómaveldi voru mörg
merk bókasöfn en ekkert þeirra
varðveittist lengur en fram á
miðaldir. Þegar leið á aldirnar
voru bókasöfn yfirleitt í klaustr-
um og við kirkjur. Síðar komu
háskólabókasöfn til sögunnar og
á endurreisnartímanum urðu til
stór einkabókasöfn, mörg þeirra
i eigu þjóðhöfðingja, sem síðar
urðu að þjóðarbókasöfnum.
Blessuð veröldin
Almenningur fær aðgang
Það var á nítjándu öld sem
byrjað var að skrá bækur eftir
skipulagi í bókasöfnum til að
gera þau aðgengilegri og þá voru
þau fyrst opnuð almenningi.
Stærstu bókasöfn í heimi eru
Library of Congress í Was-
hington, Lenínbókasafnið í
Moskvu, Bibliothéque Nationale
í París og British Library í
London. Á íslandi var fyrsta bók-
hlaðan reist í Flatey á Breiða-
firði árið 1864. Stærstu bókasöfn
á Islandi eru Landsbókasafn ís-
lands og Háskólabókasafnið.
Gengið á Háleyjarbungu
Margar göngulsiðir er hægt að
velja um ef gengið er á Reykjanesi.
Gangan getur hafist í Mölvík eða
Sandvík og er gengið nokkum veg-
inn beint upp á Háleyjarbungu, sem
er gömul dyngja við ströndina og
aðeins 38 metra há. Nokkuð hefur
sjórinn brotið af dyngjunni og efst
uppi er allstór gígur 25 metra djúp-
ur. Mikið er um ólivínkristalla í
hrauninu, enda er þetta sams konar
hraun og í Lágafelli og nefnist
pikrít.
Umhverfi
Frá gígnum er stefnan tekin á
Krossavíkurberg og gengið vestur
bjargbrúnina, sem fer hækkandi er
vestar dregur. Þar sem bergið er
einna hæst heitir Hrafnkelsstaða-
borg.
Nokkru vestar er komið að svæði
sem Skemmur heitir. Rétt þar fyrir
utan er gulur aðstoðarviti á stað
sem Skarfasetur nefnist og svo
Reykjanestá. Stefnt er í átt að Vala-
hnúkum og á leiðinni þangað fórum
við fram af háum misgengisstalli,
Valbjargagjá og eftir Valahnúka-
möl, einni fallegustu hnullungafjöru
sem maður sér. í heild sinni er þessi
ganga mjög áhugaverð, alls um 7
kílómetrar og 3-4 tíma ferð.
Alfreð Möller:
Vona að áhugi á tækjaþjálfun aukist
DV, Suðurnesjum:
„Áhugi fólks á Suðumesjum á
tækjaþjálfun og lóðum hefur verið
lítill. Með tilkomu stöðvar minnar
vona ég að áhugi fólks vakni. Stefn-
an er að efla heUsu og hraustleika
fólks á Suðurnesjum," sagði Alfreð
Möller, 27 ára, sem rekur sólbaðs-
og líkamsræktarstöðina Lífsstíl í
Keflavík. Alfreð hefur rekið sólbaðs-
stöð í rúm þrjú ár en fjárfesti nýlega
í nýjum tækjum og tólum fyrir
margar milljónir og hefur sett upp
líkamsræktarstöð eins og þær ger-
ast bestar með öUu tilheyrandi. Lífs-
stUl er í 700 fermetra húsnæði. Al-
freð er liklega sá maður á Suður-
nesjum sem mest er talað um þessa
dagana og það fyrir að fjárfesta
mUljónir í öflugum tækjasal fyrir
Suðurnesjamenn.
Aðspurður hvort þetta væri ekki
mikUl áhætta sagði Alfreð: „Þetta er
náttúrlega geggjun. Ef þú ert nógu
klikkaður til að gera hlutina þá
ganga þeir upp. Ég hef mikla trú á
að þetta gangi upp, annars hefði ég
aldrei farið út í þessar framkvæmd-
ir. Það hentaði vel að stækka á
þennan hátt við sólbaðsstöðina. Það
sem ég er að gera er í samræmi við
það sem góðar stöðvar eru að gera í
Reykjavík. Viðbrögðin hafa veriö
frábær og fólk er ánægt með stöð-
ina. Áður en ég
fór út í þessar
framkvæmdir
fékk ég mikla
hvatningu frá
fólki hér á svæð-
inu. Mottóið mitt
er að þegar mað-
ur fer út í svona
framkvæmdir þá
gerir maður þær
með stæl.“
Alfreð segir að
þegar hann opn-
aði hafi verið ein
stöð fyrir í Kefla-
vik með tækjum.
„Fólk verður að
geta valið á mUli
stqðva. Sam-
keppni er af hinu
góða.“ Alfreð seg-
ist fylgjast vel
með þróun mála í
líkamsrækt í
heiminum. „Mað-
ur verður að fylgjast vel með. Al-
menn þróun í heiminum er sú að
lóðin og tækjaþjálfun eru að koma
meira inn og spinning á mikUli upp-
leið. Það sem er að gerast helst er að
hlaupabretti, þrekstigar og hjól eru
á hraðri uppleið, svoköUuð upphit-
unartæki."
Alfreð er yngstur þriggja systk-
ina, en hann á
tvær eldri systur.
Hann er fæddur
og uppalinn á
Akureyri. Þar bjó
hann tU 18 ára
aldurs og fluttist
tU Reykjavíkur.
Hann fluttist síð-
an tU Keflavíkur
1993 og keypti
sólbaðsstöðina
1994. Foreldrar
Alfreðs búa á Ak-
ureyri. Alfreð á
sér nokkur
áhugamál þrátt
fyrir að eyða
miklum tíma í að
sinna fyrirtæki
sínu. „Ég hef
mikinn áhuga á
seglskútusigling-
um, ferðalögum
almennt og ljós-
myndun."
Alfreð segir að það sem hafi kom-
ið mest á óvart þegar hann opnaði
líkamsræktarstöðina 4. júlí sé að
stór hluti viðskiptavina séu konur á
aldrinum 35-55 ára. „Það er mjög
skemmtUegt að hafa þennan hóp hjá
sér. Þetta er kannski sá hópur sem
ég átti síst von á,“ sagði Alfreð.
-ÆMK
Alfreð Möller. DV-mynd Ægir Már
Maður dagsins
Myndgátan
Nýbakaður meistari
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Árni Arinbjarnarson leikur á org-
elið í Selfosskirkju.
September-
tónleikar í
Selfosskirkju
Stuttir tónleikar eru á þriðju-
dagskvöldum í Selfosskirkju all-
an septembermánuð. Fyrir viku
var Bjöm Steinar Sólbergsson
orgelleikari með tónleika og nú
er komið að Áma Arinbjarnar-
syni að leika á orgelið í kirkj-
unni annað kvöld. Eftirtalin verk
verða leikin: Toccata og fúga eft-
Tónleikar
ir J.F.N. Seger, fúga í a-moU eftir
B.M. Czernhorsky, þrír sálmafor-
leikir eftir J.S. Bach, sónata nr. 6
í d-moU eftir F. Mendelssohn,
Choral nr. 3 í h-moll eftir C.
Franck og gotnesk svíta eftir
Boelmann.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30
og er aðgangur ókeypis.
Bridge
—
í Bandaríkjunum eru margar
sterkar bridgekonur sem gefa körl-
um í íþróttinni ekkert eftir. Lands-
lið Bandaríkjanna í kvennaflokki
hafa, líkt og lið þeirra í opnum
Uokki, margoft náð því að verða
heimsmeistarar. Margir em á því
að sterkasta bridgekona Bandaríkj-
anna frá upphafi sé Helen Sobel en
nokkuð er um liðið síðan hún lést
(1969). Helen Sobel náði því tU dæm-
is að vera meðal 25 stigahæstu spU-
ara landsins. í spUadæminu hér á
eftir sjáum við Helen Sobel í vöm
gegn 4 spöðum suðurs í VanderbUt-
útsláttarkeppni sveita á fimmta ára-
tugnum. Sagnir tók fljótt af, suður
gjafari og allir á hættu:
* 3
* K4
* ÁD9742
* ÁK63
é Á975
* DG1076
* K3
* G10
* KDG108642
* 93
* G
* 72
Suður Vestur Norður Austur
4 * pass pass pass
Þessum samningi er varla hægt
að tapa þrátt fyrir 4-0 leguna í
trompinu og þá staðreynd að hjarta-
ásinn liggm- hjá austri. Sobel spUaði
út hinu sjálfsagða útspili, hjarta-
drottningunni. Vörnin tók tvo
fyrstu slagina á hjarta og síðan spU-
aði Sobel laufagosanum. Sagnhafi
drap á kónginn í blindum og spUaði
strax spaða á kónginn. Sobel drap á
ásinn og spUaði áfram laufi og sagn-
hafi var í ákveðnum vanda. Hann
þurfti einhvern veginn að komast
heim en vegna 4-0 legunnar hafði
hann ekki efni á,að trompa með háu
spUi. TU þess að fresta| ákvörðun-
inni lagði sagnhafi niður tígulás og
Sobel fylgdi strax í með kóng. Sagn-
hafi engdist í nokkra stund en
ákvað síðan að spUa laufl úr blind-
um og komast heim þannig. Sagn-
hafi hefði getað gert betur. Hann
átti að draga tennumar úr andstöð-
unni með svoköfluðu „dentist coup“
(tannlæknabragði). Eftir að hafa
drepið á laufkóng hefði hann átt að
spUa laufásnum og tígulásnum áður
en hann spUaði trompi á kónginn.
Vestur hefði þá neyðst tU að gefa
sagnhafa innkomuna.
ísak Örn Sigurðsson