Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 45 DV Eitt verka Fríöu sem sýnd eru i Stöðlakoti. Myndverk og þrívíð verk í dag opnar Fríða S. Kristins- dóttir sýningu í Stöðlakoti, Bók- hlöðustíg 6, Reykjavík. Á sýning- unni eru myndverk og þrívíð verk úr vír, pappír, roði og hör ofín með tvötoldum vefhaði. Fríða er mynd- og handmenntakennari við Handíöabraut Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti. Hún rekur ásamt sjö öðrum listakonum Kirsuberja- tréð, Vesturgötu 4. Sýningin er opin 13. til 28. september. Sýningar Dada - nýtt listagallerí í dag verður opnað nýtt lista- gallerí, Dada, í Reykjavík og er opnað með sölusýningu á verkum eftir 30 þekkta íslenska lista- menn. Það er markmiðið hjá eig- endum Dada að bjóða innlendum sem og erlendum gestum upp á úrval listaverka eftir bestu lista- menn þjóðarinnar. Þeir sem eiga verk á sýningunni í dada eru meðal annars Ásgerður Búadótt- ir, Bryndis Jónsdóttir, Georg Guðni, Grétar Reynisson, Gunnar Öm, Helgi Þorgils Friöjónsson, Jón Axel, Kristján Davíðsson, Kristján Guðmundsson, Páll á Húsafelli, Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir og Þor- valdur Þorsteinsson. Ráðstefna nor- rænna geðhjúkr- unarfræðinga Dagana 17-20. september hefst á Hótel Loftleiðum ráðstefna nor- rænna geðhjúkrunarfræðinga. Aðalefni ráðstefnunnar er þáttur geðhjúkrunarfræðinga í forvörn- um, meðferð og stuðningi við ungt fólk með geðræna erflðleika og fjölskyldur þeirra. Tvímenmngur og söngvaka Á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík verður spiiaður tví- menningur i bridge í Risinu í dag kl. 13. í kvöld kl. 20.30 verður svo söngvaka og er stjómandi Stein- unn Finnbogadóttir. Samkomur ITC-deildin fris ITC-deildin íris, Hafnarfirði, heldur fund kl. 20 i kvöld í Safn- aðarheimili Þjóðkirkjunnar við Strandgötu. Whiplas ísland Whiplas Island heldur sinn fyrsta fund að afloknu sumarfríi í kvöld kl. 20 í ÍSÍ-hótelinu, Laug- ardal. Gestur fundarins er Bergur Konráðsson kírópraktor. ITC-deildin Kvistur Fyrsti fundur vetrarins verður í kvöld kl. 20. Sunnusalur á Hótel Sögu: Tómas leikur eigin tónsmíðar Á RúRek-hátíðinni verða tónleikar í kvöld í Sunnusalnum á Hótel Sögu þar sem flutt verða djass- lög eftir Tómas R. Einarsson. Höfundurinn sjálfur og kvartett hans flytja. Lögin era öll samin á síðustu árum, þau elstu frá 1995. Á liðnu ári fékk Tómas sex mánaða starfslaun úr Listasjóði til að semja og flytja eigin verk og var sú tónlist frumflutt í Jazzklúbbn- irni Múlanum í mars síðastliðnum. Þessi lög Tómas- ar taka meira mið af kontrabassanum en flestar fyrri tónsmiðar hans. Með Tómasi leika í kvöld Eyþór Gunnarsson á pí- anó, Jakob Fischer á gítar og Gunnlaugur Briem á trommur. Fischer er sérstakur gestur á hljómleikun- um. Hann er þrítugur Dani sem hefúr komið áður hingað til lands með hljómsveitum fiðluleikarans Svends Asmussens og bassaleikarans Jespers Lund- gaards. Hann hefur á síðari árum verið einn eftir- sóttasti djassleikari Dana og hljóðritað á plötur með fjölmörgutn listamönnum, svo sem Asmussen, Lund- gaard og Repoertory Quartett. Jakob Fischer er jafn- vígur á rafinagnsgítar og kassagítar en að þessu sinni leikur hann einvörðungu á kassagítarinn. Tómas R. Einarsson leikur eigin tónsmíðar í kvöld. Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri léttskýjaö 6 Akurnes skýjaö 5 Bergsstaöir léttskýjaö 7 Bolungarvík léttskýjaö 6 Egilsstaöir léttskýjaö 6 Keflavíkurflugv. skýjaö 7 Kirkjubkl. skýjaó 6 Raufarhöfn léttskýjaö 6 Reykjavík skýjaö 7 Stórhöföi skýjaö 6 Helsinki skúr 14 Kaupmannah. úrkoma Ósló í grennd 15 skýjaö 15 Stokkhólmur rigning 13 Þórshöfn rigning 7 Faro/Algarve skýjaö 25 Amsterdam léttskýjað 17 Barcelona alskýjaó 22 Chicago þokumóöa 17 Dublin hálfskýjaö 16 Frankfurt skýjaö 16 Glasgow skúr 12 Halifax skýjaö 18 Hamborg þrumuveöur á síö. kls. 11 Las Palmas skýjaó 25 London skýjaö 17 Lúxemborg skýjaö 15 Malaga Mallorca skýjaö 26 Montreal alskýjaö 18 París skýjaö 18 New York hálfskýjaö 19 Orlando skýjaö 24 Nuuk rigning 3 Róm alskýjaö 23 Vín skýjaö 17 Washington Winnipeg heiöskírt 8 Smáskúrir norð- vestanlands í dag er spáð norðan- og norðaust- anátt. Það verður stinningskaldi Veðrið í dag eða allhvasst norðan og austan til en kaldi eða stinningskaldi suðvest- anlands. Rigning austan til á land- inu, smáskúrir norðvestanlands en skýjað með köflum suðvestan til. Hiti verður á bilinu 3 til 9 stig, kald- ast allra nyrst en hlýjast um landið sunnanvert síðdegis. Eftirlíkingar og draumur Jakobs Sýning á verkum þriggja lista- manna frá Sviss stendur yfir í Lista- safiii íslands. Listamennimir sem sýna era Thomas Huber og tvíeykið Peter Fischli og David Weiss. Listamannatvíeykið Fischli og Weiss hafa sýnt um allan heim á undanfornum árum og geta því með sönnu kallast alþjóðlegir listamenn. Sýningar Thomas Huber hefur, allt frá þvi að hann var valinn til að taka þátt í Aperto-sýningunni á Feneyjartvíær- ingnum 1986, verið að vinna sér sess sem einn af áhugaverðustu lista- mönnum Evrópu. Hann hefur á undanfórnum árum sýnt í öllum helstu sýningarsölum, bæði í Frakk- landi og Þýskalandi. Tvíburar Hrefnu og Sigurðar Þessir myndarlegu tví- burar, sem era drengur og stúlka, fæddust á fæð- ingardeild Landspítalans 8. september. Drengurinn fæddist kl. 4.27. Hann var 2615 grömm að þyngd og Barn dagsins 47,6 sentímetra langur og stúlkan fæddist kl. 4.29 og var 2620 grömm að þyngd og 48,1 sentímetra löng. Foreldar þeirra era Hrefiia Höskuldsdóttir og Sigurður Geirfinnsson. Þeir eiga tvö systkini, Díönu, sem er 10 ára, og Hafþór Inga sem er 5 ára. Patricia Arquette leikur eitt aöal^, hlutverkið í Truflaöri veröld. Truflud veröld Laugarásbíó sýnir nýjustu kvikmynd Davids Lynch, Trufl- uð veröld (Lost Highway). Mynd- in fjallar um venjulegt fólk í venjulegri borg sem gerir óvenjulega hluti við óvenjulegar aðstæður. Við kynnumst hjónun^, um Fred og Reene Madison sem fara að berast einkennileg mynd- bönd af þeim sjálfum sofandi í rúmum sínum. Skömmu síðar rekst Fred á djöfullega útlítandi mann sem virðist vita ýmislegt um hans mál. Það næsta sem ger- ist er að Fred er handtekinn fyr- ir morð á Reene, konu sinni. Fred veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Sönnunargögnin eru borðleggjandi og Fred er handjárnaður og settur í fang- elsi. Kvikmyndir Næst þegar klefi hans er opn- aður er Fred svo horfinn og í hans stað er kominn ungur mað- ur að nafni Pete. Pete veit hins vegar ekkert hvemig hann lenti í fangaklefanum. í aðalhlutverkum eru Bill Pullman, Patricia Arquette, Balt- hazar Getty, Robert Blake, Gary Busey og Robert Loggia. Nýjar myndir: Háskólabíó: Skuggar fortíðar Háskólabíó: When We Were Kings Laugarásbíó: Spawn kr Kringlubíó: Addicted to Love Saga-bíó: Face/Off Bíóhöllin: Breakdown Bíóborgin: Hefðarfrúin og um- renningurinn Regnboginn: Spitfire-grillið Stjörnubíó: Lífsháski Krossgátan Lárétt: 1 tala, 5 brún, 8 átelur, 9 runur, 10 kvæði, 11 klaufar, 13 tíndi, 15 etja, 17 heimsku, 19 smábýli, 20 sjón. Lóðrétt: 1 smásopi, 2 trufla, 3 kven- dýr, 4 hlæi, 5 friðsams, 6 vaxa, 7 lund, 11 ferill, 12 andstreymi, 14 þannig, 16 drunur, 18 umdæmisstaÁ ir. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 þögn, 5 eik, 8 ýr, 9 reiða, 10 ævi, 11 stuð, 12 pantur, 13 andi, 15 ræl, 17 sauður, 19 Grimur. Lóðrétt: 1 þý, 2 örva, 3 grindur, 4 nestiö, 5 eitur, 6 iöur, 7 kaðall, 10 æpa, 14 nag, 16 æru, 17 sá, 18 um:..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.