Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Síða 40
Vinningstölur laugardaginn 13- Jfl4 ((l5 «18 35 26 Vinningar Fjöldi vinninga Vinning&upphœð '• S“tS 6.853.750 2. /, at s+'pi® 3 173.120 3 4 “t s 75 11.940 4-3 at 5 3.164 660 Heildarvinningsupphœð 10.356.850 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MANUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 Ólafsvík: Gróf líkams- árás ► Ráðist var á mann í Ólafsvík að- faranótt sunnudagsins og honum misþyrmt. Maðurinn, sem er á þrí- tugsaldri, var staddur fyrir utan sam- komuhús í Ólafsvík, en þar stóð þá yfir dansleikur. Annar maður réðst að honum, barði hann niður og sparkaði í hann. Sá fyrrnefndi var mjög ölvaður og gat litla björg sér veitt. Hann var talsvert slasaður eft- ir árásina, nefbrotinn og skrámaður á ýmsum stöðum, auk þess sem hann kvartaði um í baki. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynn- ingar. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður til yflrheyrslu hjá lögreglu. Honum var síðan sleppt. -JSS Flugslys á AustQörðum: Þyrla hrapar í Hamarsfiröi - björgunarmenn komu á slysstað um miðnætti Þyrlan TF-HHD, sem var í hreindýraflutningum i Hamars- flrði á Austfjörðum í gær, fórst í sunnanverðum firðinum í svoköll- uðum Kálfeyrarfjöllum, skammt suður af Djúpavogi. Slysið varð skömmu fyrir kl. 19.30 í gær- kvöldi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Þyrluþjónustunni í gærkvöldi var flugmaðurinn einn í vélmni þegar atvikið varð. Að sögn björgunarmanns sem DV ræddi við í gærkvöldi varð slysið þannig að flugmaðurinn hafði nýlokið við að setja farþega út úr þyrlunni og var að hefja hana á loft á ný. Skyndilega hrap- aði þyrlan og skall í jörðina. Far- þeginn, sem nýstiginn var út úr þyrlunni þegar slysið varð, hlúði að flugmanninum á slysstað í gær og tókst honum að kalla í hjálp um farsíma sem hann hafði með- ferðis. Hann var í sambandi við björgunarmenn og miðuðu þeir björgunarundirbúning sinn við það að flugmaðurinn væri talsvert slasaður. Þegar DV fór í prentun seint í gærkvöldi voru fyrstu björgunar- menn að koma á slysstaðinn og hafði veöur á slysstað versnað verulega frá því að slysið varð. Aðstæður á slysstað voru þannig þegar slysði varð að byijað var að skyggja en veður var þokkalegt, fremur lítill vindur og úrkomu- laust. Þegar björgunarmenn komu á staðinn var hins vegar orðið all- hvasst og rigning eða slydda. Björgunarsveitir frá Djúpavogi, Fáskrúðsfirði og Höfn í Horna- firði voru þegar kallaðar út eftir slysið. Enn fremur var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kölluð út og flaug hún af stað og var áætlaður lendingartími henn- ar í Hamarsfirði kl. 22.15. Veður var hins vegar mjög slæmt við sunnanvert landið í gærkvöldi og varð Gæsluþyrlan að snúa við. í hennar stað var fengin þyrla frá vamarliðinu á Keflavíkurflug- velli. -SÁ Þyrla Þyrluþjónustunnar, TF-HHD, sem fórst í Hamarsfirði í gærkvöldi. Flugmaöurinn haföi nýsett farþega sinn af og var aö hefja hana á loft þegar hún hrapaöi skyndilega og skall í jörðina viö hliðina á farþeganum. Farþeginn hlúöi aö flugmanninum og tókst aö láta vita um atburðinn um farsíma. Björgunarmenn náöu aö slysstað um kl 11.30 í gærkvöldi. A-flokkar í Kópavogi: Borgarritara boðið fyrsta sætið „Þú verður að hafa aðra heimild- armenn að þessari sögu en mig. Ég vil ekkert ræða þetta,“ sagði Helga Jónsdóttir borgarritari í gærkvöldi þegar DV spurði hana hvort hún hygðist skipa efsta sætið á sameigin- legum framboðslista A-flokkanna í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar næsta vor. Samkvæmt heimildum DV gengu þrír fulltrúar flokkanna, einn frá Al- þýðuflokki, einn frá Alþýðubanda- lagi og einn frá Kvennalista, á fund Helgu í lok siðustu viku til að leita eftir því við hana að skipa efsta sæti sameiginlegs framboðslista i Kópa- vogi eftir fyrirmynd frá R-listanum í Reykjavík. Heimildarmenn blaðsins segja að Helga hafi tekið mjög dræmt í málið en sjálf vildi hún ekkert um málið segja. Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, vildi ekkert ræða þetta mál í gærdag en kvaðst undrast að tveggja til þriggja manna tal væri komið inn á borð blaða- manna. Maður sem er framarlega í flokks- starfi í Alþýðuflokknum og óskaði ekki eftir að koma fram undir nafni staðfesti í gær við DV að þessi fund- ur hefði átt sér stað. Hann kvaðst telja að Helga hefði ekki alfarið vís- að málinu frá sér. Málið væri enn opið. -SÁ Leikskólakennarar: Arangurslítill fundur Samningafundi leikskólakenn- ara og launanefndar sveitarfélag- anna, sem hófst kl. 14 í gærdag, lauk á tiunda tímanum í gærkvöld. Að sögn Bjargar Bjamadóttur, for- manns Félags íslenskra leikskóla- kennara, þokaðist sáralítið í sam- komulagsátt. Leikskólakennarar hafa boðað verkfall 22. september nk. Á fundinum í gær lagði samn- inganefnd leikskólakennara fram gagntilboð við síðasta tilboði launanefndarinnar sem kom fram sl. miðvikudag. Enn stendur allt í jámum hvað varðar launalið og röðun í launaflokka, en aðeins hef- ur þokast í samkomulagsátt hvað varðar aðra þætti. „Við munum skoða hvað er í heildarpakkanum, ef við nálgumst einhvem samn- ingagmndvöll, en hann er ekki í augsýn enn sem komið er,“ sagði Björg í gærkvöld. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á miðvikudag kl. 16. -JSS A ÞA AÐ INNLIMA BORGINA í KÓPÓ? Veðrið á morgun: Hlýjast suðaust- anlands Á morgun má búast við norð- vestangolu eða kalda. Slydduvél verða við ströndina norðaustan- lands en annars þurrt. Víða létt- skýjað um suðvestanvert landið. Hiti verður á bilinu 2-10 stig, hlýj- ast suðaustanlands. Veðrið í dag er á bls. 45

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.