Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Page 4
„Þetta er gríðarálag og menn eru
örþreyttir. Það hlýtur að vera
heilsuspillandi að vera undir þessu
vinnuálagi, þótt við séum ungt og
frískt fólk. Og það sér hver heilvita
maður að viö viljum ekki vinna alla
þessa yfirvinnu. Við viljum eiga
þess kost að vinna hana ekki,“ seg-
ir Guðrún Guðmundsdóttir, vara-
formaður Félags ungra lækna.
Unglæknar á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur, Landspítalanum og Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri hafa
skilað inn tilkynningu til lækninga-
forstjóranna á ofangreindum
sjúkrahúsum. Þar segir að þeir
muni fara að vinnutilskipan Evr-
ópusambandsins um 48 stunda
vinnuviku frá og meö 1. desember
næstkomandi. Rúmlega 100
unglæknar á höfúðborgarsvæðinu
hafa skilað inn tilkynningu þessa
efnis, en í Félagi ungra lækna eru
um 150 manns.
Samkvæmt núgildandi ráðning-
arsamningi er unglæknum skylt aö
taka að minnsta kosti 90 stunda
yfirvinnu á mánuði. Grunnlaun
þeirra eru 97.000 krónur.
Fara eftir EES
„Við erum aö tilkynna að við ætl-
um, frá og með 1. desember nk., að
fara eftir EES-vinnutilskipuninni,
en íslenska ríkið hefur áður lýst
yfir að það muni fara eftir henni,"
segir Guðrún. „í kjarasamningavið-
ræðum sem standa yfir eiga menn
að taka tillit til þessa og semja um
hærri grunnlaun en minni yfir-
vinnu. Viö höfum veriö aö ýta á
þetta síöan um síðustu áramót, með
viötölum við heilbrigðisráöherra og
spítalastjómir.
Yflrvöld segja á sparidögum að
þessi vinnutilskipun skuli komast á
en það hefúr ekkert gerst. Við erum
hrædd um aö þetta renni út í sand-
inn. Viö höfum gefið ríkinu tvo
mánuði til að undirbúa sig. Löggjaf-
inn hefur keypt sér endalausa fresti
og nú finnst okkur nóg komið. Meö
þessum tilkynningum erum við að
senda þau skilaboð að ríkið veröi að
fara aö standa við gefln loforö. Við
erum reiðubúin að taka þátt í að
móta stefnu um hvemig koma megi
vinnutilskipuninni í framkvæmd."
Lftiö þokast í kjaramálum
Læknar á sjúkrahúsum hafa ver-
ið með lausa kjarasamninga í níu
mánuði. Samningaviðræður launa-
nefndar þeirra og viðsemjenda hafa
staöið yfir og lítið gerst fyrr en á
síðustu vikum, að haldnir hafa ver-
ið stífir samningafundir.
Guðrún segir aö framkvæmd
an“ mánuð. Iðulega ná læknar ekki
að hvílast nema 3-4 tíma á sólar-
hringsvöktum og stundum fá þeir
enga hvíld allan sólarhringinn.
Þeir læknar sem mikið álag er á,
eins og t.d. deildarlæknar á bama-
deild og svæfinga-
deild, þurfa að taka
tíðar vaktir og sigla
hæglega upp í 200
tíma yfirvinnu á
mánuði.
„Þá erum við al-
gerlega ofurseld því
aö þurfa að taka
aukavaktir," sagði
Guðrún. „Við erum
kannski fimm lækn-
ar sem erum að taka
þessar vaktir. Ef einn
veikist verður einn
hinna að taka auka-
vakt. Það er ekkert
greitt aukalega fyrir
slíka vakt, þ.e. tvö-
falda greiðslu eins og
ætti að vera, þar sem
búið er að birta
vinnuskrá og þetta er
auka-aukavakt. En
þetta er ekki í samn-
ingunum."
aö skipta um fót á sama stað og
geyma dót í rúminu sem vakthaf-
andi læknir á að hafa til hvíldar. Á
annarri deild sjúkrahússins kjósa
unglæknar frekar að halla sér á
skoðunarbekk í stað þess að nota þá
allur af þeim nær sér í norskt lækn-
ingaleyfi um leiö og það íslenska.
Svo vinna þeir að því að komast
utan á næstu mánuðum. Noregur
hefur í flestum tilvikum orðiö fyrir
valinu, því þangað er auðvelt að
Lítil hvíld á
slysadeild
Slysadeildin er erf-
ið, en hún er þó frá-
brugöin mörgum
hinna deildanna aö
því leyti að læknar
ganga ekki eins langar vaktir. Þar
taka þeir 12-16 tíma vaktir og upp í
22 tíma. Á móti kemur að þar er
gríöarlegt álag allan vaktatímann
og alltaf einhver á biðstofunni.
Menn eru því að keppast linnulaust
við allt upp í þá 22 tíma, sem þeir
eru á vakt. Eftir kl. 11 á kvöldin er
aðeins einn sérfræðingur og einn
aðstoðarlæknir á vakt, einnig um
helgar.
Hvíldaraðstaðan á sjúkrahúsun-
um er yfirleitt ekki beysin. Á skurð-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur er
hún t.d. i herbergi þar sem fjórir
aðrir hafa skrifstofu, margir þurfa
Guðrún Guðmundsdóttir, læknir á heila- og taugaskurödeild og varaformaöur Félags ungra
lækna, (hvíldaraöstöðunni á skurödeild. Þar hafa fjórir aörir en sá sem ætlar aö hvílast skrif-
stofu, auk þess sem starfsfólk skiptir þarna um föt og geymir ýmiss konar dót á hvíldarrúm-
inu. Oft eru þessar vistarverur fremur kaldar.
aðstöðu sem i boði er. Oft eru
„hvíldarherbergin" gluggalausar og
loftlausar skonsur.
Aö kyrkja sjúkrahúsin
Þetta mikla álag á unglækna
stafar fyrst og fremst af mannfæð og
niðurskurði á sjúkrahúsunum. „Það
er verið að kyrkja sjúkrahúsin hægt
og rólega,“ segir Guðrún. „Það eru
ekki nema um 30 læknar sem út-
skrifast hér á ári. Þá eru sérfræð-
ingar ekkert aö flýta sér að koma
heim vegna launamála hér.
Unglæknar eru famir að drifa sig
fyrr til útlanda en áöur. Fíöldinn
komast, launin eru góð og vinnuá-
lagið minna því þar er farið eftir
EES-reglum.
Ógjörningur aö manna
Ef unglæknar fara að starfa 48
tíma á viku samkvæmt EES-vinnu-
tilskipuninni verður þess áreiðan-
lega einhvers staðar vart. Innan
hennar er einnig það ákvæöi að
menn eigi að fá 11 stunda hvíld, sem
gerir það að verkum að fátt verður
um aðstoðarlækna á sjúkrahúsun-
um á nóttunni. Þaö verður algjör
ógjömingur að manna þessar vakt-
ir.“ -JSS
Þórhallur Ágústsson, deildarlæknir á skurödelld, f hvfldaraöstööunni á slysadeild, sem er meö því daprara sem gerist á sjúkrahúsinu.
DV-myndir E.ÓI.
vinnutilskipunarinnar sé nátengd
kjarasamningum. Trúlega verði að
setja inn ákvæði í samninginn sem
geri fólki kleift að fara eftir EES-
samkomulaginu. Þar þurfi að koma
til hækkanir á grunnlaunum, þar
sem unglæknar séu nú að fá a.m.k.
helming launa sinna í yfirvinnu. Þá
þurfi jafnvel að semja um einhverj-
ar bætur séu menn neyddir til að
vinna meira en löggjöfin segir til
um. Loks kveði vinnutilskipunin á
um tiltekinn hvíldartíma sem ekki
hafi verið inni í samningum lækna
hingað til.
200 yfirvinnustundir
Vinnuálagið á unglæknum er
mjög mikiö. Yfirvinna er aldrei
undir 100 stundum á mánuði og get-
ur hæglega farið upp í 150-200
stundir. Unglæknar á tilteknum
deildum taka sjö sólarhringsvaktir í
mánuði, auk dagvinnu. Þetta gerir
rúmar 150 yfirvinnustundir á mán-
uði. Þama er um aö ræða „venjuleg-
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Hálfgert
þrælahald
„Þaö verður að segjast eins og
er aö þetta er hálfgert þræla-
hald,“ sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir þegar DV innti hann
álits á gríðarlegu vinnuálagi á
unglækna hér á landi.
„Ungir læknar eru ódýrasti
vinnukraftur í landinu," sagði
Ólafur. „Þaö er ekki aöeins að
þeir séu ódýrir miðaö viö langan
vinnutíma, heldur ráöa þeir engu
um sinn vinnutíma. Þeir eru
sviptir öllum völdum hvað þaö
varðar. Þaö býr engin stétt við
slíka aðstöðu eins og þeir. ís-
lenskir aðstoðarlæknar, ásamt
breskum starfsbræðrum, hafa
lengstan vinnutíma í Evrópu.
Reyndin er sú, aö þeir eyða þess-
um aðstoðarlæknisárum sínum í
tvennt, þ.e. vinnu og svefn."
Landlæknir sagði að álag af
þessu tagi, sem þama væri rætt
um, ylli því aö menn yrðu streitu
hlaðnir.
-JSS
4 - FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER1997
Fréttir__________________________________________________pv
Gríðarlegt vinnuálag á ungum læknum á stóru sjúkrahúsunum:
Menn eru örþreyttir
- hyggjast stórdraga úr yfirvinnu samkvæmt EES-löggjöfinni