Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 33 Fréttir Málning ýrðist á bíla DV, Stöðvarfirði: Mikið hvassviðri var hér á Stöðvarfirði fyrstu dagana nú í vikunni eins og annars staðar á Austurlandi. í einni vindhviðunni fuku málningardósir sem staðið höfðu úti við og opnuðust með þeim afleiðingum að málningin ýrðist yfir nokkra bíla sem stóðu við samkomuhús bæjarins. Það verður ærinn starfi að fjar- lægja hinn nýja lit af bflunum og spuming hvort ekki verður að sprauta suma þeirra alveg á ný. -GH Endurokeppni Snigla: 36 þátttakendur í erfiðri keppni Laugardaginn 27. september fór fram í annað skiptið endurokeppni Snigla við Litlu kafflstofuna. Keppnin, sem styrkt er af Olis, er undirbúningur fyrir íslandsmeist- aramót á næsta ári. Óhætt er að segja að keppnin hafi vakið þó nokkra athygli bæði áhorfenda og keppenda en þeir voru 36 skráðir til leiks. Leiðin sem valin haföi verið var u.þ.b. 50 km löng í blandaðri keyrslu og voru keppendur á einu máli um að Hirti, skipuleggjanda Ikeppninnar, hefði tekist vel til með brautina. Keppnin hófst stundvís- lega klukkan 2 og voru keppendur ræstir með einnar mínútu millibili. Lagt var af stað frá Litlu kaffistof- unni og ekiö með fram línuvegi upp undir Húsmúla, kringum Bolavelli og Lyklafell, undir þjóðveg númer 1 við flugvöllinn á Sandskeiði, upp með fram malamámunum og endað afúu- við Litlu kaffistofúna. Brautin var mjög blönduð með bæði hröðum . og hægum köflum og veðrið var líka eftir því, sólskin og rigning til skipt- is. Greinilegt var á keppendum að keppnin var mjög erfið, eins og sjá mátti á einum keppanda sem missti hjólið sitt á hliðina í brattri brekku í seinni hluta brautarinnar. Kvaðst hann alveg vera búinn eftir átökin en var hvattur aftur af stað af hjálp- sömum áhorfendum. Eins og áður sagði hófu 36 keppn- ina en átta féllu úr keppni á leiö- inni, þ.á m. nokkrir er fyrir fram hafði verið búist við að yrðu ofar- lega, eins og Karl Gunnlaugsson og Heimir Bárðarson. Heimir datt og fór margar veltur á hjóli sínu en stóð strax upp til að veifa næsta keppanda áfram. Fimm efstu urðu þessir: 1. Viggó Viggósson, Honda XR 400 47,05 2 Einar Sigurösson, Honda XR 400 50,33 3. Reynir Jónsson, KTM 360 51,11 4. Guömundur Sigurðsson, KTM 360 51,12 5. Einar Bjamason, Husqvama 410 52,05 Sementsverksmiðjan: Engin hreyfing á sölu hlutabréfa Einnig hvort Akranesbær vilji hafa afskipti af sölumálum ríkisins. Afar óliklegt er nú að bærinn kaupi hlut í verksmiðjunni énda hefúr það verið markmið bæjarins að undanfömu að draga sig út úr rekstri fyrirtækja. Ríkið hefur látið Fjárvang meta söluvirði sementsverkmiðjunnar. Það mat hefúr tekið breytingum al- veg til þessa dags þannig að ekkert er hægt að fullyrða um raunveru- legt söluverð. Um þann þátt málsins verður iðnaðarráðuneytið að svara fyrir,“ sagði Gísli. -DVÓ Jj DV, Akranesi: Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa að undanfomu rætt við iðnaðarráð- herra og starfsmenn Sementsverk- smiðju ríkisins um sölu á 25% hlut ríkisins í Sementsverkmiðjunni hf. Ríkið á sem kunnugt er 100% hluta- fjár í SR. Til að kanna stöðu málsins sneri DV sér til Gísla Gíslasonar, ■ bæjarstjóra á Akranesi. „Málið er enn á því stigi að rætt er um á hvaða kjörum ríkið hefur í hyggju að bjóða hlutabréfm starfs- 1 mönnum Sementsverksmiðjunnar. Verið velkomin á Ostadaga í Perlunni um helgina þar sem kynntar verða ýmsar nýjungar. Boðið verður upp á osta og góðgæti úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar auk þess sem gestum gefst tækifæri til að kaupa íslenska gæðaosta á kynningarverði. I kaffiteríu Perlunnar verða ostakökur, ostabökur og ýmsir ostar á boðstólum. Birtar verða niðurstöður íslenska gæðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni. Gríptu tækifærið og kauptu þér íslenska afbragðsosta! OSTALYST 3 Fáðu að bragða á gómsætum réttum úr nýju matreiðslubókinni okkar sem er að koma út og verður á kynningarverði á Ostadögum. SKEMMTIATRIÐI Orn Árnason og Jónas Þórir skemmta gestum á laugardag kl. 14 - 15 og á sunnudag kl. 16 - 17 ÍSLENSKIR OSTAR^ ^tlNAS^ -- <23^ 4. og 5. október kl.13 - 18 íslandstneistarakeppnin í Ostagerð í Perlmmtn wm helginal* Spennandi nýjungar verða kynntar! OSTAR Á KYNNINGARVERÐI OSTAMEISTARIÍSLANDS Um helgina verður Ostameistari íslands útnefndur. ALLT UM OSTA Ostameistararnir verða á staðnum og sitja fyrir svörum um allt það sem lýtur að ostum og ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum. ÍSLENSKT GÆÐAMAT i i I t I 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.