Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 22
34 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 Fréttir Kolmunnaveiðunum lokið: ■ Heildarveið- in 10 þúsund tonn ^ - skipstjórar bjartsýnir á framhaldið „Ég er ánægöur meö árangurinn og það hefði örugglega mátt veiða talsvert meira af kolmunnanum ef við hefðum byrjað fyrr. Það var mikið af kolmunna á miðunum þeg- ar við byrjuðum en síðan hefur dregið jafnt og þétt úr veiðunum," sagði Hörður Guðmundsson, skip- stjóri á Þorsteini, en skipið kom inn til Neskaupstaðar á sunnudag með 300 tonn. Það fer nú á loðnuveiðar. Þorsteinn EA 810 hefur fengið mest af kolmunnanum. Skipið hóf veiðar um miðjan ágúst og hefur fengið á fjórða þúsund tonn þrátt fyrir talsverða byrjunarörðugleika í fyrstu tveimur túrunum, pokinn sprakk í hífmgu en kolmunninn þenst út þegar híft er og þarf að taka trollið mjög rólega upp. Nú er búið að veiða um 10.000 tonn af kolmunn- anum. Mest hefur verið landað á Neskaupstað, 7200 tonnum. -ÞGK Nótaskipið Þorsteinn á miðunum. DV-mynd Þorsteinn G. Kristjánsson Sementsverksmiðjan: Aukin fram- leiðsla DV, Akranesi: Forráðamenn Akraneskaupstað- ar og stjórn Sementsverksmiðju ríkisins hafa hist á fundum að undanfórnu þar sem rætt hefur verið um stöðu fyrirtækisins, hlutabréf þess og fleira. Það er í samræmi við ákvæði laga um Sementsverksmiðjuna hf. um sam- ráð stjómar verksmiðjunnar og bæjarins. „Rætt var almennt um stöðuna, helstu framkvæmdir sem verk- smiðjan ætlar að leggja í á næst- unni, svo sem vamir gegn ásókn fugla við sanddælingu, og meng- unarmál. Fram kom að framleiðsla verk- smiðjunnar er umfram það sem áætlað var á þessu ári og einnig var rætt um fyrirliggjandi hug- myndir um sölu á 25% hlut verk- smiðjunnar," sagði Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, í samtali við DV. -DVÓ Blaðbera vantar í Reykjavík Fossvogur - Gerðin - Árbær - Selás Skipasund - Melar. s Einnig vantar blaðbera í Kópavog og á Seltjarnarnesi. Upplýsingar í síma 800 70 80 —-_ -------_ ------- 4Dagur-9Itmmtt ## Grindavík: Orlátar kven- félagskonur Gunnhildur, formaður Kvenfélags Grindavíkur, og Hallgrímur Bogason, for seti bæjarstjórnar Grindavíkur, við máiverkið af Ingibjörgu Jónsdóttur DV, Suöurnesjum: Það er mikill kraftur og dugnað- ur í kvenfélagskonum í Grindavik. Nýverið létu þær listamanninn Guðmund Karl Ásbjörnsson mála mynd af Ingibjörgu Jónsdóttur. Ingibjörg, sem lést 1969, var einn af stofnendum kvenfélagsins og for- maður í 24 ár samíleytt. Hún stóð að byggingu gamla Kvennó 1930 en það hús er nú Menningarmiðstöð Grindavíkur. Á meðan Grindavík- urbær á húsið mun málverkið af Ingibjörgu vera þar. Kvenfélagið, sem er stofnað 24. nóvember 1923, lét sauma nýjan fána félagsins eins og sá gamli var. Nunnur í klaustrinu í Hafnarfirði saumuðu afar glæsilegan silkifána, sem Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sóknarprestur í Grindavík, vigði. Kvenfélagið gaf eina milljón króna í nýtt eldhús í Safnaðarheimili Grindavíkur sem var vigt 28. sept- ember. Þá gáfu þær Heilsugæslu- stöð Suðurnesja veglegan GSM- síma. í félaginu eru 120 konur. Formað- ur er Gunnhildur Guðmundsdóttir, kona Jóns Gunnars Stefánsonar bæjarstjóra, og varafomaður er Bima Óladóttir, kona hins kunna útgerðarmanns Dagbjarts Einars- sonar. -ÆMK KVÍNmAG ST0I NAÓ h. NÓvtM&ea Sóknarpresturinn, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, vígði nýjan félagsfána. DV-myndir Ægir Már Akranes: Sömdu um 18 holu golfvöll DV, Akranesi: Innan bæjarmarka Akraness er skemmtilegur golfvöllur. Er fyrirhugað að stækka hann þannig að eftir tvö ár verði hann orðinn 18 holu völlur. Á Skaganum er Golfklúbbur- inn Leynir starfræktur. Tveir meðlimir hans hafa orðið ís- landsmeistarar í meistaraflokki í golfi á síðustu tveimur árum, þ.e. þeir Birgir Leifur Hafþórs- son og Þórður Emil Ólafsson. Þann 26. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og golfklúbbsins. Er gert ráð fyrir að gerð 18 holu golfvallar verði lokið á árinu 1999 og greiðir bærinn á næstu sjö árum 80% kostnaðar sk. ákveðinni kostn- aðaráætlun. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.