Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Side 32
44
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
"1
*
Frumvarpi
stolið
„Því miður hefur það gerst að
eitt eintak þessa heftis, sem er
fylgirit með fjárlagafrumvarpinu
(Stefna og horfur), hefur borist
einum fjölmiðlanna, nánar tiltek-
ið fréttastofu Stöðvar 2. Það ein-
tak hefur verið tekið ófrjálsri
hendi í prentsmiðjunni..."
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra, í Degi-Tímanum.
Ummæli
Kappakstur
leigubíl-
stjóra
„Ökumenn strætisvagna og
bíla merktra borginni eru síður
en svo tillitssamari en aðrir.
Leigubilar sem aka að nóttunni
virðast ekki hafa hraðamæla,
ökumenn þeirra stunda
kappakstur á götunni til að eltast
við viðskiptavini.“
Guðlaugur Lárusson, í Mbl.
Menn-
ingarleg
drykkja
„Þegar bjórinn kom 1989 fóru
íslendingar að drekka menning-
arlega, en voru ekki skruggfullir
endrum og sinnum, einsog var.“
Jón Pétursson lögreglumaður,
í Degi-Tímanum.
Dýrasta
stríð
Beinn kostnaður við síðari
heimsstyrjöldina fór langt fram
úr kostnaðinum við allan stríðs-
rekstur manna til þess tíma og
hefur verið áætlaður 1,5 milljarð-
ar dala.
Flestar heið-
ursdoktors-
nafnbætur
Séra Theodore M. Hesburgh (f.
1918), rektor háskólans í Notre
Dame í Indiana í Bandaríkjun-
um, var útnefndur heiðursdoktor
111 sinnum á tímabilinu 1954 til
júní 1987.
Blessuð veröldin
Stærsta aug-
lýsingaskilti
Stærsta Ijósaskilti allra tíma
var raflýst „Citron" auglýsing á
Eiffelturninum í París, sem
kveikt var á 4. júlí 1925 og sást þá
um 38 km veg. Skiltið var með
250.000 ljósaperum í sex litum og
fóru í það 90 km af rafleiðslum.
Stafurinn „N“ í enda orðsins
„Citron" var 20,8 m hár. Allt var
þetta tekið niður 11 árum síðar,
1936.
DV
Hildur Helga Sigurðardóttir, blaðamaður og sagnfræðingur:
Úrvalsdeild
karla í körfu-
knattleik
Tindastóll mætir Skallagrími í
Úrvalsdeildinni í körfuknattleik
karla í kvöld klukkan 20. Liðin
eigast við á Sauðárkróki.
Lýst eftir betri fyrirsögnum
„Þessi nýi þáttur leggst prýðilega
í mig enda er ég umkringd góðu
fólki sem stendur að þessu með
mér. Það er dálítið snúið að undir-
búa svona þátt því við höfum eng-
ar formúlur við að styðjast. Þetta
verður svolítið óvenjulegur þáttur
og á eflaust eftir að þróast eftir því
sem á líður,“ segir Hildur Helga
Sigurðardóttir, stjórnandi spurn-
ingaþáttarins ...þetta helst", sem
verður í Sjónvarpinu á fimmtu-
dagskvöldum í vetur. Þessi nýi
spurningaþáttur er fréttagetraun
þar sem tekið verður mið af atburð-
um líðandi stundar.
Hildur Helga byrjaði sem blaða-
maður á Morgunblaðinu árið 1980.
Þar vann hún þangað til hún fór til
Englands árið 1985 að lesa sagn-
fræði við Cambridge-háskóla og í
Lundúnum. í stað þess að snúa
beint heim að námi loknu gerðist
hún fréttaritari Ríkisútvarps og
Sjónvarps í Lundúnum. Einnig var
hún öðru hverju fréttamaður á Rík-
isútvarpinu og Sjónvarpinu hér
heima. Hún fiutti ekki alkomin
heim fyrr en í fyrra og gerðist þá
ritstjórnarfulltrúi á Degi- Tímanum
í Reykjavík. „En þó ég hafi verið bú-
sett í Bretlandi í 11 ár hef ég alltaf
við og við verið hér heima og unnið
bæði sem blaða-
maður og frétta-
maður.“
Eiginmaður
Hildar Helgu er
Richard Midd-
leton. Þau kynnt-
ust á blaðamanna-
fundi i Lundúnum
en Richard var
blaðamaður á
Times áður en
þau fluttu til ís-
lands. Eftir að þau
fluttu heim hefur
hann verið að
læra íslensku fyr-
ir útlendinga við
Háskóla íslands
og skrifa kvik-
myndahandrit og
fleira. Sonur
þeirra hjóna heitirHildur Hel9a Siguröardóttir.
Óðinn Páll, 3 ára. _______________________________
He'Ífer sw' Maður dagsins
Bjarnason
ur
fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs-
ins, alþingismaður og sendiherra.
Móðir hennar er Ólöf Pálsdóttir
myndhöggvari. Hildur Helga er
fædd og uppalin í Reykjavik og lítur
fyrst og fremst á sig sem vesturbæ-
ing. Þau hjónin
festu nýverið
kaup á húsi við
Ásvallagötu í
vesturbænum.
„Blaðalestur er
mitt helsta
áhugamál. Það
hafa einhvern
veginn orðið mín
örlög. Ég er
blaðamannsbarn
og fer mjög ung í
blaðamennsku
sjálf. í sagnfræð-
inni getur maður
einnig þurft að
lesa gömul blöð.
Sem fréttaritari
þurfti maður að
liggja í ensku
blöðunum. Og
núna er ég svo far-
in að stýra og
skrifa handrit að
fréttagetraun. Ég
á mér því engrar
undankomu auðið.“
Að lokum vildi Hildur Helga
beina tilmælum til kollega sinna á
blöðunum: „í guðanna bænum farið
að skrifa skemmtilegri fyrirsagnir."
-VÁ
Myndgátan
Öryggisbelti
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði.
Iþróttir
Fyrsta deild
kvenna í
handknattleik
ÍBV og Grótta-KR eigast við í
fyrstu deild kvenna í handknatt-
leik í kvöld klukkan 20. Leikur-
inn fer fram í Vestmannaeyjum.
Bridge
Bræðurnir Hrólfur og Oddur
Hjaltasynir náðu sigri í haust- mon-
rad barómeterkeppni Bridgefélags
Reykjavíkur sem lauk síðastliðinn
miðvikudag. 40 pör tóku þátt í þess-
ari skemmtilegu keppni sem var
lengst af jöfn en er upp var staðið
höfðu bræðurnir náð umtalsverðri
forystu. Þeir enduðu með 264 stig í
plús en parið í öðru sæti (Júlíus Sig-
urjónsson-Hrannar Erlingsson) var
með 196 stig. í næstsíðustu umferð
keppninnar kom þetta spil fyrir.
Hrólfur fann hugmyndaríka sögn og
tryggði sér góða skor eftir hagstætt
útspil. Sagnir gengu þannig, austur
gjafari og AV á hættu:
* G
•* Á1076
■f ÁD32
* D974
* K643
DG2
* K95
* Á86
* Á9852
V 853
* 76
* K53
Austur Suður Vestur Norður
Jón Þ. Oddur ísak Hrólfur
1 -f pass 1 grand 2 é*
p/h
Eftir precision-opnun Jóns Þor-
varðarsonar í austur og eitt grand
ákvað Hrólfur að koma inn á fjórlit
sínum í hjarta. Hrólfur vildi þar
með koma í veg fyrir að félagi hans
kæmi inn á sagnir á spaðalit. Hrólf-
ur taldi líklegt að norður ætti spaða,
en þó ekki meira en 5 spil, því ann-
ars hefði hann sennilega komið inn
á sagnir á tveimur spöðum. Ákvörð-
un Hrólfs reyndist vel því 2 spaðar
eru vonlaus samningur. Hrólfur var
einnig heppinn með útspil, fékk út
tígulfimmuna og tókst þannig að
skrapa heim 8 slögum með vixl-
trompi. Talan 110 í NS gaf 34 stig af
38 mögulegum en ef Hrólfur hefði
aðeins fengið 7 slagi hefði hann
samt sem áður fengið meðalskor
fyrir spilið.
ísak Örn Sigurðsson
♦ D107
♦ K94
♦ G1084
4 G102
I
I
I
I
(
(
<
<
<
<
<
<
<
<
<
(
(
(
(
(
I
(
<
<
i