Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
Neytendur
Nettengingar eftir 1. nóvember:
Gríðarlegar
tekjur Pósts
og síma
Internet á íslandi hefur tekið
saman áætlun um heildarmarkað
landsins í nettengingum. Að sögn
Sigurðar Jónssonar hjá Interneti á
íslandi er heildarfjöldi notenda
18.800. Tengitími þeirra skiptist
nokkuð jafnt á dag- og næturtaxta,
samtals um klukkutíma á hverjum
degi. Miðað við sömu notkun á Net-
inu út næsta ár, hækka greiðslur
netverja til Pósts og síma um rúm-
lega 271 milljón króna. Samkvæmt
Nýi „upplýsingaskatturinn“
- Nettengingar fyrir allt landiö -
DV
1.745.956
eftir 1. nóv.
Sólarhringsgróði:
Pósts og síma = 744.468
Ársgróði
Pósts og síma
= 271.735.200
framtíðarspá Internets á íslandi
gerðu menn ráð fyrir því að eftir ár
væru notendur orðnir 27.100. Allt sé
hins vegar óvíst um þessa þróun eft-
ir hækkanir Pósts og síma á innan-
bæj arsamtölunum.
Samkvæmt notendakönnun Hag-
vangs eru yngri notendur vaxandi
hópur á Netinu að 29 ára aldri. Um
40% allra íslendinga á aldrinum
15-75 ára hafa einhvem aðgang að
Netinu, ýmist á vinnustað eða inn á
heimilum.
Aðspurður um yfirlýsingu
Hrefnu Ingólfsdóttur í útvarpinu,
þar sem hún lýsti því yflr að not-
endur Netsins væru fyrst og fremst
unglingar að leika sér, sagði Sigurð-
ur að skoðun hennar byggði sjálf-
sagt á því að unglingamir ættu
sjálfsagt erfiðast með að hemja sig í
því aö senda Hrefnu bréf á Netinu.
-ST
Viöbrögö viö gjaldbreytingum P&S:
Geðþótti ráðamanna
- voru allir á námskeiðum í gær
Viðbrögð fólks, eldri borgara, net-
notenda, verslunareigenda og alls
almennings hafa verið mjög hörð í
garð Pósts og síma vegna 80%
hækkunar fyrirtækisins á verði
innanbæjarskrefa. Á slóðinni http:
//www.aegis.is/simi/ hafa þúsund-
ir manna undirritað mótmæli sem
afhent verða yfirmönnum Pósts og
síma við Landssímahúsið við Aust-
urvöll í dag. Neytendasamtökin
hafa sent viðskiptaráðherra bréf og
farið þess á leit við hann að raun-
kostnaður við símtöl innanlands sé
birtur og að hann liðsinni samtök-
unum við öflun upplýsinga vegna
hækkananna. Um leið minna sam-
tökin á bréf af svipuðum toga sem
þau sendu ráðherra þegar Póstur og
sími hækkaði síðast innanbæjar-
samtöl. Neytendasamtökin hafa
ekki fengið endanlegt svar við því
erindi frá ráðherranum. í bréfi sinu
til ráðherra segja samtökin að gjald-
skrá Pósts og síma sé ákveðin að
geðþótta ráðamanna fyrirtækisins.
Hætta aö auglýsa
í símaskránni?
Sigmar Jónsson, eigandi heild-
verslunarinnar S. Ármann Magnús-
sonar, hafði samband við DV og
benti á að Póstur og sími væri einn-
ig að hækka auglýsingaverð í síma-
skránni. „Menn í verslunargeiran-
um ættu að setjast niður og athuga
hvers virði auglýsingar sinna fyrir-
tækja eru, sem birtast í síma-
skránni. Ég er með meðalstórt fyrir-
tæki af heildverslun að vera en
greiði í kringum 300.000. Við ættum
að minnka okkar auglýsingar vegna
allra þessara hækkana og mynda
þannig þrýstihóp á Póst og síma.“
Jónas Friðrik Jónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VerslunEirráðs,
sagði „nauðsyn á samkeppni á sviði
simaþjónustu alveg borðleggjandi.
Ef verðlagning er of há og ef aðrir
geta gert þetta betur, þá hlýtur það
að koma í ljós þegar opnað verður
fyrir samkeppni á þessu sviöi.“
Hann sagði að Verslunarráð hefði
ekki mótað neina stefnu gagnvart
gjaldskrárbreytingum P&S.
Forráðamenn Pósts og síma voru
ekki til viðtals allan daginn í gær
þar sem þeir voru uppteknir á nám-
skeiði innan fyrirtækisins. Hrefha
Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi upp-
lýsti DV um það.
-ST
FjölshLjldutilbað.
Láttu SEnda þér heim
1 ö" pitza m/3 áÍEggstEg.
1 E" hvitlauhshrauö
EÖa margarita.
EL CshE sg hvitlauhsalía
RÖEÍns 1 .7HU hr.
Þú sæhir
1 G" pitsa m/E aÍEggstEg
RÖEÍns flR□ hr
1 fllf pitsa m/E alEggstEg
RÖEins RRD hr
STRTUS 1 :1
‘v RELjHjavíh
5Gfl L.ÖL.Ö
Hafnarfjöröyr
5G5 1515
Aukinn gróði Pósts & síma
-áætlaðar breytingar vegna posanotkunar VISA
20 milljónif-_____-----------------------------
Símreikningur
verslunar
í Reykjavík
-ío hækkar um ca
19 milljónir
-15
Símreikningur
verslunar
úti á landsbyggð
lækkar um ca:
16 milljónir
Hlutur P&S
yröi þá ca
3 milljónir
-20
Gjaldskrárbreyting Pósts og síma:
3 milljónir aukalega fyrir VISA
Rafræn greiðslukortaviðskipti
VISA kalla á um 30 milljón sím-
hringingar innanlands á hverju ári,
að sögn Einars S. Einarssonar,
framkvæmdastjóra VISA íslands. Af
þeim eru um það bil 3/4 hringing-
anna innanbæjar en 1/4 utan af
landi. Gjaldskrárbreyting Pósts og
síma kemur því til með að kosta
verslun á höftiðborgarsvæðinu rétt
um 19 milljónir en lækkun til lands-
byggðarinnar vegna þessa nemur
um 16 milljónum. Eftir stendur að
Póstur og simi fær aukreitis í sinn
hlut 3 milljónir frá því sem nú er.
Einar segir fyrirtækið lengi hafa
krafist þess að komið sé til móts við
kaupmenn sem senda kortaviðskipt-
in irni símalínu þar sem hvert sím-
tal tekur á bilinu 10-20 sekúndur.
Þessi breyting taki hins vegar út
yfir allan þjófabálk og þó að þetta
komi vel við verslun á landsbyggð-
inni þá sé þetta ekki breytingin sem
fyrirtækið óskaði í heild fyrir sína
viðskiptavini. -ST
Afnotagjald Pósts og síma:
Niðurgreiðslur inn í bótakerfið
svipuðum tíma og aðrar veigamikl-
ar gjaldskrárbreytingar eru hjá
Pósti og síma. Eldri borgarar hafa
mótmælt hækkun á innanbæjarsím-
tölum kröftuglega og meö þessari
viðbót á reikninga
þessa hóps er erfiðara
en ella að sjá hvað
gjaldskrárbreytingin
hefur í för með sér fyr-
ir þennan hóp fólks.
Áð sögn Páls Gísla-
sonar, talsmanns Fé-
lags eldri borgara, virð-
ist sem allt bendi til
þess að þjónustu-
greiðslur, sem áður
áttu að létta þeim líflð
sem erfiðast áttu, sé
verið að smátína af
þeim. „Við höfum sent
mótmæli til samgöngu-
ráðherra og sent þing-
mönnum bréf þessa
efnis. Ef það væri bara
eitt þá væri það ekki katastrofa, en
þegar allt kemur saman þá verður
þetta ansi erfitt."
Margir eldri borgarar hafa hringt
og sett sig í samband við félagið
vegna breytinganna sem boðaðar
eru. Félagið hvetur alla til þess að
mæta og mótmæla þreytingunum
við Landssímahúsið í dag kl. 15.00.
Frá næstu áramótum mun Póstur
og sími, samkvæmt ákvörðun
stjómvalda, senda út reikninga fyr-
ir aftiotagjald símans til þeirra elli-
og örorkulífeyrisþega sem til þessa
hafa fengið afhota-
gjaldið frítt. Þetta á
við um þá bótaþega
sem era að fá fulla
tekjutryggingu
greidda hjá Trygg-
ingastofnun rikis-
ins og uppfylla önn-
ur skilyrði Pósts og
sima um niðurfell-
ingu. Svokölluð
heimilisuppbót
Tryggingastofnunar
til þessa fólks
hækkaði 1. júní síð-
astliðinn um sem
nemur afnotagjaldi
RÚV og Pósts og
síma.
Heimild fyrir
breytingunni lá fyrir um síðustu ára-
mót um leið og breytingar voru sam-
þykktar á fyrirkomulagi á innheimtu
afnotagjalda RÚV. Að sögn Hrefnu
Ingólfsdóttur, upplýsingafulltrúa
Póst og síma, ákvað fyrirtækið að
hinkra með breytinguna til aðlögun-
ar fyrir fólkiö.
Þessar breytingar koma inn á