Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Síða 9
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
9
Utlönd
Breska barnfóstran fundin sek um morð:
Brast í grát við
dómsúrskurðinn
Breska bamfóstran Louise Wood-
ward féll saman og frét þegar kvið-
dómur í Massachusetts í Bandaríkj-
unum hafði fundið hana seka um að
hafa myrt hinn niu mánaða gamla
Matthew Eappen í febrúar síðast-
liðnum.
„Ég gerði það ekki. Ég gerði það
ekki,“ hrópaði 19 ára bamfóstran
sem er frá þorpinu Elton nærri
Chester.
„Af hverju gerðu þau mér þetta?
Af hverju gerðu þau mér þetta? Ég
er bara 19 ára,“ sagði hún grátandi.
Lögfræðingar hennar reyndu að
hughreysta hana.
Kviðdómurinn komst að niður-
stöðu sinni eftir 26 klukkustunda yf-
irlegu á tveimur og hálfum sólar-
hring. Kviðdómendur, níu konur og
þrír karlar, voru folir og fáir þegar
þeir gengu út úr réttarsalnum.
Breska barnfóstran Louise Wood-
ward: Fundin sek um morð.
Foreldrar Louise, Susan og Gary
Woodward, voru sem þramu lostin
yfir úrskurði kviðdómsins. Vinir
þeirra, sem sátu fyrir aftan þau,
grétu.
Hiiler Zobel mun kveða upp dóm-
inn klukkan 14 að íslenskum tima í
dag og honum ber að dæma Louise
í lífstíðarfangelsi. Hún mun afþlána
dóminn í eina kvennafangelsi
Massachusetts-fylkis og á ekki
möguleika á reynslulausn fyrr en
eftir fimmtán ár.
Saksóknarar héldu fram að bam-
fóstran hefði hrist litla drenginn
óþyrmilega og síðan barið höfði hans
í harðan flöt þann 4. febrúar. Bamið
var með magakveisu og hágrét.
Læknar sem báru vitni töldu hins
vegar líklegt að drengurinn hefði
hlotið meiðslin sem dógu hann til
dauða tveimur vikum áður. Reuter
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
o\\t milii hlmifk
Smáauglýsingar
550 5000
Æ*ÆMMÆÆMMMÆÆWÆÆÆÆWÆWÆÆM
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smóaugtýsingoí
5M50CD
Mary McAleese.
McAleese
líklega næsti
forseti írlands
Lagaprófessorinn Mary
McAleese er talin líklegastur sig-
urvegari í forsetakosningimum i
írlandi sem fram fóra í gær. Sam-
kvæmt útgönguspám frá því í
gærkvöld fékk McAleese 42 pró-
sent atkvæöa. Stjómarandstöðu-
þingmaðurinn Mary Ranotti fékk
næstflest atkvæði eða 32 prósent.
Söngkonan Dana, sem heitir i
raun Rosemary Scallon, lenti í
þriðja sæti með 9 prósent.
Kosningaþáttakan var sú
minnsta hingað til eða aðeins 40
prósent. Úrslit liggja fyrir í dag.
Jólin byrjuðu
snemma hjá
forseta Kína
Stjórnmálasérfræöingar segja
að jólin hafl byrjað snemma hjá
Jiang Zemin, forseta Kína. Bill
Clinton Bandarikjaforseti hafi
gefiö Jiang næstum því allt sem
hann óskaði sér á leiðtogafundi
þeirra í Washington á miðviku-
daginn. Aö fúndinum loknum til-
kynnti Clinton meðal annars að
hann myndi heimila sölu á
bandarískum kjamakljúfum til
Kína en Kínverjar höfðu þráð
slík viðskipti áram saman.
í gær kom Jiang til New York
en fékk ekki opinbera móttöku.
„Það var erfitt að koma því við
og jafnvel þó hægt hefði verið að
koma þvi þá hefði ég ekki tekið á
móti honum," sagði Rudolph
Giuliani, borgarstjóri New York.
Um 200 manns, sem kínverska
sendiráöið hafði smalað saman,
tóku á móti forsetanum. Reuter
LAUGAVEGUR 26
- opið alla dagatil kl. 22.
Sími 525 5040
KRINGLAN
opið virka daga 10-20.
Laugardaga 10-18.
Sunnudaga 13-17.
Sími 525 5030
nema PlayStation leikjatölvum
LAUGAVEGUR 96
opið mánud.-fimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19.
Laugardaga 10-15.
Sími 525 5065