Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Side 11
DV FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
ennmg n
Verðlauna-
söngur
í gærkvöld voru haldnir tónleikar
í Háskólabíói í tengslum viö keppn-
ina um Tónvakaverðiaun Ríkisút-
varpsins, en þau voru nú veitt í
sjötta sinn. Nú sem fyrr sýndi verö-
launahafinn listir sínar með Sinfó-
níuhljómsveit Islands og veitti aö
tónleikunum loknum verðlaunun-
um viðtöku.
Tónlist
Sigfríður Bjömsdóttir
í þetta skipti varö hlutskarpastur
barítonsöngvarinn Keith Reed.
Hann er öllum sem fylgst hafa með
sönglífi á íslandi vel kunnur. Meðal
annars starfaði hann með íslensku
óperunni í nokkur ár og kom þá
fram í stórum hlutverkum. Efnis-
skráin nú var vel samansett því
verkefnin, sem öll voru áhugaverð,
gáfu söngvaranum tækifæri til að
sýna hversu fjölbreytt túlkunartæki
rödd hans er.
Eftir ágætan flutning hljómsveit-
arinnar á forleiknum að Hollend-
ingnum fljúgandi eftir Wagner söng
Keith Reed aríu úr sömu óperu.
Rödd hans er kröftug og karlmann-
leg, áferðin jafii breytileg og veðrið.
Þessa breytúegu áferð og magnaðar
litbreytingar notaði hann til að
túlka skipstjórann hrjáða á mjög
grípandi hátt. Einstöku sinnum var
eins og flotið væri um í tóninum, en
meira að segja það var ekki alltaf til
lýta.
Og ekki voru litimir síðri í laga-
flokknum Of Love and Death eftir
Jón Þórarinsson. Þetta er hrífandi
verk, ekki síst fyrsta lagið, og
söngvarinn túlkaði textann svo
innilega að ekki er hægt að hugsa
sér það betur gert. Orðin fengu eins
og innra líf, birtu og - þegar við átti
- yl. Þau urðu sjálf hluti merkingar
sinnar.
Að þessi sama rödd leiki sér svo
að því að syngja Mozartaríu er með
ólíkindum, en Keith Reed söng eftir
að hljómsveitin hafði leikið forleik-
inn að Brúðkaupi Fígarós aríu Fíga-
rós „Aprite un poqueglocchi“. Aftur
voru leikræn tilþrif mjög góð og
söngurinn öruggur.
Þama fer verðugur verðlauna-
hafi. En nauðsynlegt er að velta fyr-
ir sér hvort Tónvakaverðlaunin
verði hér eftir veitt reyndum lista-
mönnum eða hvort ungir aðilar og
upprennandi eigi áfram erindi inn í
þessa keppni.
Sinfóníuhljómsveitin var líka í
stóm hlutverki og sýndu bæði
hljóðfæraleikarar og stjómandinn,
Andrew Massey, góða takta þó sumt
hefði mátt betur fara. Eitt af því
sem var leikið var perla fyrir hljóm-
sveit eftir Wagner, Siegfried Idyll,
en eitthvað hljómaði hún nýkomin
úr skelinni í þessum flutningi. Það
hefði þurft að pússa hana betur.
Þetta er viðkvæmt og gegnsætt efni
sem auðvelt er að fara illa með.
Það er líka auðvelt að fara illa
með Mozart en svo fór ekki. Sinfón-
ía hans nr.38 í D-dúr K.504 er há-
klassískt, alvömþmngið verk.
Flutningurinn var mjög góður, túlk-
unin djúp og ágeng. í heildina vom
þetta vel heppnaðir tónleikar og öll-
um sem að þeim stóðu til mikils
sóma.
Keith Reed - veröugur verðlaunahafi. DV-mynd E.ÓL.
Lilla Mahagonny
Á seinni hluta menningardaga
heymarlausra verður leiklist í önd-
vegi. Til landsins kemur nú um
helgina sænski leikhópurinn Tyst
teater sem hefur starfað sjálfstætt
innan sænska þjóðleikhússins síðan
1970 og hefur þá sérstöðu að allar
sýningar hans fara fram á táknmáli.
Þetta er eini leikhópurinn sinnar
tegundar á Norðurlöndum.
Tyst teater sýnir þijú verk hér á
landi dagana 3., 4. og 5. nóvember. Á
mánudagskvöldið kl. 20 sýnir hann
verkið Lilla Mahagonny eftir Bert-
hold Brecht í Loftkastalanum. Á
þriðjudagskvöldið kl. 20 sýnir leik-
arinn Jianu Iancu valda kafla úr
verkum Shakespeares, Ríkharði 3.,
Rómeó og Júlíu, Hamlet, Makbeð og
Óveðrinu, einnig í Loftkastalanum.
Á miðvikudaginn kl. 15 sýnir hóp-
urinn leikritið Mirad, drengur frá
Bosníu, í húsnæði Félags heymar-
lausra, Laugavegi 26.
Allur flutningur í leiksýningun-
um fer fram á táknmáli og þykir
sérstaklega spennandi að „sjá“ leik-
arana syngja á táknmáli eins og
þeir gera í söngleiknum Lilla Ma-
hagonny, úrvinnslu Tyst teater og
Tom Fjordefalk leikstjóra á söngleik
Brechts. Sú sýning hefúr fengið
mikið lof í sænskum blöðum.
*■
★
■k
* Á
\
Draumsólir
íslenska leikhúsið frumsýndi 11. október
leikverk unnið upp úr sögum og ljóðum
Gyrðis Elíassonar, Draumsólir vekja mig.
Gyrðir hlaut sem kunnugt er Menningarverð-
laun DV í bókmenntmn í febrúar í ár. Þórar-
inn Eyfjörð samdi leikverkið og leikstýrir
því, nýstárleg leikmynd er eftir Egil Ingi-
bergsson og ffumsamin tónlist eftir Hjálmar
H. Ragnarsson, leikin af harmónikusnillingn-
um Tatu Kantomaa.
Athygli er vakin á þvi að aðeins eru eftir
tvær sýningarhelgar á þessu verki, sýningum
lýkur 9. nóvember.
Þorsteinn Bachmann er skáldið sem les bækur í baði.
194 x 252 x 37 cm.
Vönduð Dönsk hillu-
samstæða á góðu verði
Verð krónur
47.560,-
Vísa og Euro raðgreíðslur til kí£I
a 111 að 36 mánaða 0
1
HÚSGAGNAHÖLUN
Blldshöfðl 20-112 Rvík - S:510 8000
,±\