Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1998, Qupperneq 10
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 JLlV
10 menning
Sjö dómnefndir hafa tekið til starfa:
Valið er aldrei auðvelt
Menningarverðlaun DV eru tvítug í ár,
eins og áður hefur komið fram á menningar-
síðu. Ekki verður þó breytt sniði á þeim í til-
efni af tímamótunum; hefðir eru til að halda
í þær ef þær hafa reynst vel. Þó verður bætt
við sérstökum heiðursverðlaunum sem um-
sjónarnefnd verðlaunanna veitir í tilefni af-
mælisins.
Sjö dómnefndir hafa nú tekið til starfa - og
einstaka hefur alls ekki hætt störfum. List-
hönnunarnefndin hefur verið skipuð að
meiri hluta sömu mönnum síðan verðlaunin
í þeirri listgrein voru tekin upp, og þeir
vinna jafnt og þétt árið um kring að því að
fylgjast með afrekum í greininni. „Þetta er
áhugamál manns líka og sjálfsagt að fara á
allar sýningar," segir Eyjólfur Pálsson. „Það
er mun meiri gróska í listhönnun núna en
verið hefur. Ástæðan er sjálfsagt sú að allt
þjóðfélagið er jákvæðara enda uppgangur á
mörgum sviðum. En ég verð var við að ungt
listafólk vill fremur fara í myndlist en nytja-
list, í listinni eru meiri möguleikar á frama
og stuðningi. Þess vegna er ég afar ánægður
með að nytjalistin skuli vera meðal þeirra
listgreina sem DV verðlaunar."
Áslaug Thorlacius, myndlistarrýnir DV,
sagði að dómnefndarstöríln gengju vel en alls
ekki lægi i augum uppi hvað ætti að verð-
launa á árinu 1997. Nokkur merk gallerí
lögðu upp laupana á árinu, Sjónarhóll, Önn-
Bókmenntir
Sigríöur Albertsdóttir, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi DV,
Geröur Kristný, rithöfundur og blaöamaöur, og Skafti Þ. Halldórs-
son, bókmenntafræöingur og gagnrýnandi Morgunblaösins.
Bókmenntanefnd að störfum: Skafti Þ. Halldórsson, Sigríður Aibertsdóttir
og Gerður Kristný með örfáar af þeim tugum bóka sem þau þurfa að vega
og meta. DV-mynd Pjetur
ur hæð og Mokka, en
þó er fjöldi myndlistar-
sýninga nokkuð svip-
aður og undanfarin ár.
„Og heildarstandard-
inn er allgóður," sagði
Aðalsteinn Ingólfsson
sem hefur haldið utan
um menningarverð-
launin frá upphafi og
alltaf setið í myndlist-
arnefnd. Ýmsar viður-
kenningar eru veittar
myndlistarmönnum en DV-verðlaunin eru þau
einu sem markvisst velja úr sýningum hvers árs
og benda á það sem markverðast þykir.
„Dómnefndarstörfin eru aldrei auðveld," sagði
Sigfriður Björnsdóttir tónlistargagnrýnandi DV á
íljúgandi ferð milli vinnustaða sinna, „en með
góðu fólki takast jafnvel ómögulegir hlutir."
Hér á síðunni eru þau saman komin sem eiga
að „vera raunsæ og framkvæma hið ómögulega",
svo vitnað sé í Einar Má Guðmundsson, verð-
launahafa DV frá 1994. Frá og með mánaðamót-
um verður sagt frá því hverja nefndirnar tilnefna
til verðlauna, og 19. febrúar er stóri dagurinn.
Sigríður Albertsdóttir.
Gerður Kristný.
Skafti Þ. Halldórsson.
Byggingarlist
Dr. Maggi Jónsson arkitekt, Auöur Ólafsdóttir listfræöingur
og Guömundur Jónsson arkitekt.
Leiklist
Auöur Eydal, gagnrýnandi DV, Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri
og Sveinbjörn I. Baldvinsson leikskáld.
Or. Maggi Jónsson.
Auöur Ólafsdóttir.
Guömundur Jónsson.
Auður Eydal.
Sigrún Valbergsdóttir.
Sveinbjörn I. Baidvinsson.
Tónlist
Myndlist
Sigfríöur Björnsdóttir, gagnrýnandi DV, Hilmar Þóröarson tónskáld
og Olafur Axelsson arkitekt.
Aöalsteinn Ingólfsson Jistfræöingur, Áslaug Thorlacius, gagnrýn-
andi DV, og Ásta Ólafsdóttir myndlistarmaður.
Sigfríöur Björnsdóttir.
Hilmar Þóröarson.
Ólafur Axelsson.
Aöalsteinn Ingólfsson.
Aslaug Thorlacius.
Ásta Ólafsdóttir.
Listhönnun
Kvikmyndir
Torfi Jónsson leturhönnuöur, Eyjólfur Pálsson innanhússarkitekt
og Baldur J. Baldursson innanhússarkitekt.
Hilmar Karlsson, gagnrýnandi DV, Baldur Hjaltason forstjóri og
Ingólfur Hjörleifsson, textasmiöur og kvikmyndafræöingur.
Torfi Jónsson.
Eyjóifur Pálsson.
Baldur J. Baldursson.
Hilmar Karlsson.
Baldur Hjaltason.
Ingólfur Hjörleifsson.
Ií viðjum
Alzheimers
Bókin Karen - í viðjum
Alzheimers eftir Helje Solberg
segir söguna af lækninum
Karen Sofie Morstad og baráttu
hennar við Alzheimerssjúk-
dóminn. Bókin er tilraun til að
lýsa þjáningunni frá sjónarhóli
S manneskju sem haldin er þess-
um sjúkdómi en einnig við-
| brögðum hennar nánustu við
því þegar hún hveifur þeim
smám saman sjónum á
nokkrum árum.
Helje Solberg ræddi ótal
sinnum við Karen, alveg fram
undir það síðasta, og einnig við
lækna, hjúkrunarfólk, nánustu
Iaðstandendur Karenar og aðra
sem tengdust henni. Helje fékk
líka aðgang að
sjúkraskýrslum
og leyfi til að
birta upplýs-
ingar úr
þeim. Út-
koman er
óvægin
frásögn af
| mis-
1 kunnar-
lausum
sjúk-
dómi sem herj-
| ar á æ fleiri. Hér
I eru milli 1300 og 1800 manns
j með hann og fómarlömbunum
| mun fjölga stöðugt uns lækna-
I vísindunum tekst að stemma
I stigu við honum.
„Saga Karenar mun vonandi
; gera mörgum auðveldara að
|j fást við vandann sem við er að
glíma,“ segir höfundur í lok for-
SE: mála bókarinnar. „Því meira
’ sem vitað er um sjúkdómsferliö
og við hverju má búast, þeim
mun betur standa sjúklingar og
aðstandendur þeirra að vígi til
Í: að láta sjúkdóminn ekki buga
! sig.“
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
| og Guðmundur Þorsteinsson
þýddu bókina úr norsku, en
Jón Snædal öldrunarlæknir
| fylgir henni úr hlaði með stutt-
[: um aðfararorðum. Útgefandi er
Félag áhugafólks og aðstand-
| enda Alzheimerssjúklinga og
; annarra minnissjúkra, en Há-
1 skólaútgáfan annast dreifingu.
Vefsíöa Stofn-
unar Sigurðar
Nordals
Stofnun Sigurðar Nordals
| hefur komið sér upp vefsíðu
1 þar sem finna má almennar
| upplýsingar um stofnunina á ís-
lensku og ensku. Þá er þar gerð
grein fyrir starfsemi hennar,
: ráðstefnum, námskeiðum,
: bókaútgáfu og styrkjum sem
hún veitir. Jafnframt eru þar
upplýsingar um íslensku-
. kennslu fyrir útlendinga, nýjar
og væntanlegar bækur og tíma-
| rit, og fólk getur komist inn á
I vefsíður annarra stofnana sem
sinna íslenskum fræðum í
| gegnum vefsíðu Nordalsstofn-
unar.
Slóð vefsíðunnar er: http:
| //www.rhi.hi.is/HI/Stofn/Nor-
I dals
Eftir sem áður gefur Stofnun-
in út fréttabréf sitt fyrir þá sem
| ekki enn eru nettengdir og
1 þiggur feginshendi upplýsingar
sem þar eiga heima - og á vef-
j siðunni - um ráðstefnur, nýjar
bækur um íslensk fræði og ann-
| að sem fengur er að.
Stofnunin hefur safnað mikl-
um upplýsingum um þá sem
| stunda íslensk fræði í heimin-
- um og er nú unnið að því að
1 tengja þennan upplýsingabanka
. vefsíðu stofnunarinnar.
| Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
1
I
i