Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1998, Page 16
+
16
FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1998
FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1998
25
Iþróttir
Iþróttir
Svanasongur
- Svanur hetja Vals í góðum sigri á Haukum
„Það er oft svo þegar lykilmenn
eru fjarri að þá þjappar það liðum
saman. Það gerðist hjá okkur í þess-
um leik. Baráttan skilaði okkur
þessum sigri,“ sagði Ingi Rafn Jóns-
son, Valsmaður, eftir öruggan sigur
Vals á Haukum í Nissandeildinni,
30-27.
Guðmundur Hrafnkelsson lands-
liðsmarkvörður var veikur og lék
ekki með Val. Stöðu hans tók Svan-
ur Baldursson og hann var besti
maður Vals í leiknum, varði 17 skot.
Reyndar jafnaðist taflið nokkuð
þegar Petr Baumruk fékk að líta
rauða spjaldið eftir aðeins fimm
mínútna leik. Valsmenn voru hins
vegar mun ákveðnari, börðust mun
betur en Haukarnir og sigurviljinn
var Vals megin að þessu sinni.
Handboltalega séð var leikurinn
tæplega þokkalegur. Haukarnir eiga
greinilega í erfiöleikum þessa dag-
ana en Valsmenn eru til alls líkleg-
ir. Svanur var besti maður Vals í
jöfnu liði en hjá Haukum var meðal-
mennskan allsráðandi. -SK
Siggi Sveins sá
um Stjörnuna
- HK heldur föstu taki á Garðbæingum
„Við vorum ákveðnir í að taka
þennan leik því við vissum að ÍBV
ætti léttan leik. Sóknin var ekki góð
í fyrri hálfleik en hún kom í þeim
seinni," sagði Sigurður Sveinsson,
þjálfari HK, að loknum enn einum
sigri Kópavogsliðsins á Stjömunni,
nú 20-23, í Garðabæ.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
sterkum vömum beggja liöa, eink-
um hjá Stjörnunni, og sterkum
markvörðum bak við þær.
Undirtök Stjörnunnar héldust
fram í miðjan seinni hálfleik þegar
HK náði tveggja marka forystu.
Arsenal slapp
fyrir horn
Arsenal slapp naumlega í 4.
umferð ensku bikarkeppninnar í
knattspymu í gærkvöld. Lund-
únaliðið vann þá 1. deildar lið
Port Vale í vítaspymukeppni eft-
ir að liðin höfðu gert jafntefli
öðm sinni, nú 1-1, eftir fram-
lengdan leik í Stoke.
Dennis Bergkamp kom Ars-
enal yfir í framlengingunni en
Wayne Corden jafnaöi fyrir Port
Vale. í vítaspyrnukeppninni
vörðu báðir markverðir einu
sinni áður en Allen Tankard hjá
Port Vale skaut yfir.
Sheffield Wednesday þurfti
líka vítakeppni til að vinna 2.
deildar lið Watford eftir annað
0-0 jafntefli. Kevin Pressman,
markvörður Wednesday, varði
vítaspyrnu og skoraði svo sjálfur
úr lokaspymu liösins.
Aston Villa vann Portsmouth,
1-0, með marki frá Savo Milose-
vic og Wolves vann Darlington
úti, 0-4. -VS
Víkingur á
niðurleið
- afhroð í Eyjum
Ekkert nema kraftaverk getur
komið í veg fyrir fall Víkinga í 2.
deUd eftir afhroö gegn sprækum
Eyjamönnum, 33-24, i gærkvöld.
Yfírburðir ÍBV vom algjörir
frá upphafi og leyfðu Eyjamenn
sér þann munað að láta vara-
mennina spila nánast allan
seinni hálfleikinn.
Leikurinn var eins óspenn-
andi og tilþrifalítUl og getur
hugsast. Eyjamenn röðuðu
mörkum úr hraðaupphlaupum
og gerðu út um leikinn fyrir hlé.
Erlingur Richardsson og Robert
Pauzuolis vora bestu menn vall-
arins og Hjörtur Hinriksson átti
líka góðan leik hjá ÍBV. Hjá Vík-
ingi var fátt um fina drætti.
Þröstur Helgason og Eyjamaöur-
inn í markinu, Birkir ívar, vora
þeirra bestir. -ÞoGu
Sókn HK var góð með Sigurð Sveins-
son sem besta mann og gerði hann
mörk í öUum regnbogans litum.
Þessa forystu lét HK ekki af hendi.
Stjarnan lék ágæta vörn en sókn-
arlega séð var liðið slakt. Valdimar
Grímsson var sterkur að vanda en
misnotaði þó tvö víti.
Ingvar átti stórleik í markinu og
Einar Baldvin og Sæþór voru sterk-
ir í vörninni. Hlynur varði stórkost-
lega í markinu, sérstaklega þegar
HK var að ná yfirhöndinni. Auk
Sigurðar átti Hjálmar mjög góðan
leik í sókninni. -HI
0-1, 2-1, 5-3, 5-5, 7-5, 9-6, (9-7), 10-8,
11-9, 11-12, 12-13, 14-13, 15-15, 15-17,
17-19, 17-22, 19-23, 20-23.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar
Grímsson 9, Heiðmar Felixson 3,
Hilmar Þórlindsson 3, Magnús Agnar
Magnússon 2, Sigurður Viðarsson 2,
Arnar Pétursson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson
17/2.
Mörk HK: Sigurður Sveinsson 8,
Hjálmar Vilhjálmsson 5, Már Þórar-
insson 3, Alexander Arnarsson 2,
Gunnar Már Gíslason 2, Óskar Elvar
Óskarsson 2, Guðjón Hauksson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson
15/3.
Brottvísanir: Stjaman 6 mín.,
HK 6 mín.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson. Voru oft full-
fljótir að flauta. Áhorfendur um 200.
Maður leiksins: Hlynur Jóhann-
esson, HK.
„Hundfúll með þetta“
- FH kastaði frá sér sigri gegn KA
„Við köstuðum frá okkur sigrin-
um og maður er auðvitað hundfúll
með það. Það var algjört einbeit-
ingarleysi í gangi hjá okkur í sókn-
inni í seinni hálfleik og KA-menn
refsuðu okkur grimmt með hraða-
upphlaupum. Ég hélt að við værum
að klára þetta í lokin en það er víst
aldrei búið fyrr en flautað er af,“
sagði Guðmundur Pedersen, FH-ing-
ur, eftir jafntefli gegn KA,
28-28.
FH-ingar vora með
vænlega stöðu þegar
skammt var til leiksloka
en baráttuglaðir KA-
menn neituðu að gefast
upp og hinn ungi Heimir
Ámason jafnaði metin
skömmu fyrir leikslok.
FH-ingar léku vel i
fjrrri hálfleik, spiluðu vel
Hálfdán Þórðarson
lék frábærlega.
Lee í banastuði í markinu. KA-
menn urðu fyrir áfalli á 15. mínútu
þegar Karim Yala fékk rauða spjald-
ið fyrir að skjóta knettinum í andlit
Lee úr vítakasti og þetta virtist slá
norðanmenn töluvert út af laginu.
„Úr því sem komið var er ég sáttur
við þetta stig. Við lékum hræðilega
lélega vöm í fyrri hálfleik en náð-
um að hrista okkur vel saman í
þeim síðari. Það fór mik-
il orka i að vinna upp for-
skot FH-inga en í heild-
ina séð held ég að þetta
hafi verið sanngjöm úr-
slit,“ sagði Björgvin
Björgvinsson, KA. Hálf-
dán Þórðarson átti frá-
bæran leik á línunni hjá
FH og skoraði 10 mörk
úr jafnmörgum tilraun-
um. Leó Örn Þorleifsson
útfærðan sóknarleik, sterka vöm og var mjög drjúgur i liði KA. -GH
ÍBV (17)33 FH (15) 28
Víkingur (8)24 KA (11) 28
1-0, 2-3, 4-4, 8-4, 12-6, 16-6, (17-8),
19-10, 19-13, 24-15, 28-17, 31-21, 33-24.
Mörk ÍBV: Robert Pauzuolis 7/1,
Erlingur Richardsson 7, Zoltán Belá-
nýi 7/3, Hjörtur Hinriksson 4, Svavar
Vignisson 2, Guðfmnur Kristmanns-
son 2, Haraldur Hannesson 2, Sigurð-
ur Bragason 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 14, Reynir Pálsson 1.
Mörk Víkings: Þröstur Helgason
7/1, Rögnvaldur Johnsen 6, Birgir
Sigurðsson 5, Hjalti Gylfason 2, Níels
Carl Carlsson 2, Hjörtur Örn Amar-
son 1, Kristján Ágústsson 1.
Varin skot: Birkir ívar Guð-
mundsson 10.
Brottvísanir: ÍBV 6 min., Víking-
ur 6 mín.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvaldur Erlingsson, bestu menn
vallarins.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Erlingur Ric-
hardsson, iBV.
1-0, 3-3, 6-5, 10-7, 13-10, (15-11),
16-11, 16-15,19-19, 23-21, 23-25, 27-25,
28-26, 28-28.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 10,
Knútur Sigurðsson 6/1, Sigurgeir
Ægisson 5, Guömundur Pedersen 4,
Sigurjón Sigurðsson 1, Valur Amar-
son 1, Lárus Long 1.
Varin skot: Suk Huugn Lee 15/3.
Mörk KA: Leó Örn Þorleifsson 7,
Björgvin Björgvinsson 5/2, Halldór
Sigfússon 4, Heimir Árnason 4,
Karim Yala 2, Sverri A. Bjömsson 2,
Sævar Árnason 2, Hilmar Bjamason
1, Jóhann G. Jóhannson 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
6, Hafþór Einarsson 4/1.
Brottvísanir: FH 12 mín., KA 14
min.
Dómarar: Egill Már Markússon
og Láms Lárasson, sluppu fyrir hom.
Áhorfendur: Um 600.
Maður leiksins: Hálfdán Þórðar-
son, FH.
Þórður öflugur í góðum sigri Genk
Þórður Guðjónsson og félagar í Genk sigraðu meistara Lierse á sannfær-
andi hátt, 3-1, í 16 liða úrslitum belgísku bikarkeppninnar í knattspymu í
gærkvöld. Lierse var 0-1 yfir í hálfleik en Genk gerði út um leikinn í seinni
hálfleik. Þórður lék sem fremsti miðjumaður Genk og var mjög ógnandi.
Þjálfari Lierse, Jos Daerden, sagði eftir leikinn að sínir menn hefðu ekki
ráðið við hraðann hjá Þórði í seinni hálfleiknum. -VS
1-0, 3-1, 6-3, 9-6, 9-8, 11-9, 12-11,
(12-12), 14-12, 15-15, 15-16, 16-16,
17-17, 18-18, 21-18, 24-21, 27-26, 29-26,
30-27.
Mörk Vals: Sigfús Sigurðsson 7,
Jón Kristjánsson 7/1, Einar Örn
Jónsson 5/1, Davíð Ólafsson 3, Ari
Ailanson 3, Ingi Rafn Jónsson 3,
Theódór Valsson 1, Júlíus Gunnars-
son 1.
Varin skot: Svanur Baldursson
17.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson
7/4, Þorkell Magnússon 5, Aron Krist-
jánsson 4, Gústaf Bjarnason 4, Rúnar
Sigtryggsson 3, Jón Freyr Egilsson 2,
Einar Gunnarsson 2.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
6, Bjami Frostason 4.
Brottvisanir: Valur 6 mín., Hauk-
ar 4 mín.
Dómarar: Anton Gylfl Pálsson og
Hlynur Leifsson, þokkalegir.
Áhorfendur: Um 300.
Maöur leiksins: Svanur Bald-
ursson, markvörður Vals.
Stórleikur Patta
en Alfreð fagnaöi
Patrekur Jóhannesson átti stórleik og
skoraði 9 mörk þegar lið hans, Essen, sótti
Hameln heim í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í gærkvöld. Það dugði þó ekki til
því Alfreð Gíslason, þjálfari Hameln, fagn-
aði sætum sigri á sínu gamla félagi, 32-30.
Finnur Jóhannsson var ekki á meðal
markaskorara Hameln en Ziercke skoraði
13 mörk fyrir liðið.
Lemgo vann Dormagen, 24-18, eftir 12-12
í hálfleik. Róbert Sighvatsson skoraði 2
mörk fyrir Dormagen og Héðinn Gilsson
eitt en Sinjak gerði 7 mörk fyrir meistara
Lemgo.
Staða neðstu liða er þá sú að Hameln er
með 12 stig, Essen 10, Dormagen 8 og Gum-
mersbach 7. Aðeins neðsta liðið fellur,
vegna gjaldþrots Rheinhausen, en næst-
neðsta liðið þarf að spila um að halda sæti
sínu. -VS
Alfreð hrósaði sigri.
Leiftursliöið verður mjög alþjóðlegt næsta sumar:
Fimmí viðbót
Það verða líklega ekki margir Islend-
ingar í knattspymuliði Leifturs á Ólafs-
firði næsta sumar. Þegai' er ljóst að þrír
Færeyingar og einn Slóvaki leika með
liðinu og Nígeríumaður er væntanlegur
til reynslu.
Og nú hafa Ólafsfirðingar ákveðið að
sækja allt að fimm erlenda leikmenn í
viðbót. Páll Guðlaugsson, þjálfari Leift-
urs, fer til Bretlandseyja um helgina til
að semja við leikmennina og félög þeirra.
Þrir þeirra koma væntanlega frá Glas-
gow Rangers. Það verða piltar úr vara-
og unglingaliðum skosku meistaranna
sem verða þá á leigu hjá Leiftri í sumar.
Hinir tveir era danskir og annar
þrír Skotar og tveir Danir í sigtinu hjá Ólafsfirðingum
þeirra, John Nielsen, leikur
með Southend í ensku 2. deild-
inni og spilaði mikið með lið-
inu í 1. deild í fyrra. Hann er
25 ára miðjumaður og lék með
Ikast í dönsku úrvalsdeildinni
áður en hann fór til Englands.
Hinn heitir Sören Skov
Jörgensen og er hávaxinn
vamarmaður, 24 ára gamall.
Hann lék með Helsingör í Dan-
mörku og er nú að leika sitt
annað tímabil með bandaríska
félaginu Mobile Revelers en
það spilar í 2. deild bandarísku
deildarinnar.
Páll Guölaugsson
er á leið til Bret-
landseyja.
„Það er búið að hirða alla
bestu leikmennina af íslensku
liðunum og við erum því að
reyna að fá eitthvað annað í
staðinn. Víða, eins og á Bret-
landseyjum, eru margfr knatt-
spymumenn sem fá ekkert að
gera vegna þess fjölda útlend-
inga sem þar hefur flætt yfir
og þeir eru fegnir að komast
annað. Það er líka á hreinu að
það er ódýrari kostur fyrir
Leiftur að fá þessa erlendu
leikmenn en íslensku leik-
atvinnu- mennina sem félagið hefur fengið til sín
undanfarin ár. Síðan þurfa þessir er-
lendu strákar að sanna sig eins og hin-
ir,“ sagöi Páll Guðlaugsson við DV í gær-
kvöld.
Breytingamar á liði Leifturs frá síð-
asta tímabili eru geysilega miklar og að-
eins öraggt að Qórir af fastamönnum síð-
asta árs verða með í sumar. Það era Júl-
íus Tryggvason, Andri Marteinsson,
Rastislav Lazorik og Daði Dervic. En
Leiftur hefur þegar fengið Kára Stein
Reynisson frá ÍA, Jens Martin Knudsen,
Össur Hansen og Uni Arge frá Færeyj-
um, Pál Guðmundsson frá Raufoss, Pál
V. Gíslason frá Þór, Kára Jónsson frá
KVA, Amgrím Arnarson frá Völsungi og
Steinar Ingimundarson frá Fjölni.
Handbolti kvenna:
Magnús Ásgrímsson, Framari, ógnar vörn Aftureldingar í leiknum í gærkvöld en Jason Ólafsson reynir aö stööva hann. Á litlu myndinni fagnar Daði Hafþórsson
sem skoraði sigurmark Fram í leiknum. DV-mynd Brynjar Gauti
Framarar á flugi
- hleyptu gífurlegri spennu í 1. deildina með sigri á Aftureldingu, 22-21
Framarar halda áfram á sigurbraut-
inni en i gærkvöldi ýttu þeir úr vegi
efsta liði deildarinnar, Aftureldingu, á
heimavelli sínum í Safamýrinni í
æsispennandi leik, 22-21. Sigur Fram-
ara á efsta liðinu hleypti mikilli
spennu í efri hluta deildarinnar. Það
var Daði Hafþórsson sem tryggði
Fram sigurinn þegar 40 sekúndur
vora til leiksloka en tíminn sem eftir
lifði leik dugði Aftureldingu ekki til
að jafna og mikill hamagangur var í
öskjunni á lokasekúndum leiksins.
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem
Daði Hafþórsson tryggir liði sínu sig-
urinn á lokasekúndum leiks en er til-
finningin ekki sú sama? „Jú, það er al-
veg rétt að tilfinningin er alltaf jafn
æðisleg. Við voram ákveönir að mæta
einbeittir til leiks og láta ekki sigur-
inn á Haukum stíga okkur til höfuðs.
Það er fátt skemmtilegra en að leggja
Aftureldingu að velli. Úr því sem kom-
ið er munum við ekkert gefa eftir í
baráttunni og við stefnum enn hærra.
Það er frábær stemning í hópnum og
allir ákveðnir að leggja sig 100%
fram,“ sagði Daði Hafþórsson í spjalli
við DV eftir leikinn í gærkvöldi.
Það var alveg ljóst frá upphafsmín-
útum leiksins að hvoragur aðili ætl-
aði að gefa sinn hlut eftir í baráttunni.
Munurinn var aldrei meiri en tvö
mörk í fyrri hálfleik en heimamönn-
um tókst að jafna fyrir leikhlé, 12-12.
Frá miðjum síðari hálfleik upphófst
æðisleg spenna sem lyktaði með því
að Framarar höfðu betur eins og áður
var lýst.
Framliðið er á góðri siglingu þessa
dagana og er liðsheildin fimasterk.
Daði Hafþórsson og Njörður Árnason
áttu báðir stórleik. Reynir Þór Reynis-
son hrökk svo um munaði í gang í síð-
ari hálfleik og átti stóran þátt í sigrin-
um. Hann kórónaði hann þegar hann
varði frá Páli Þórólfssyni í blálokin.
Ekki má heldur gleyma þætti Olegs
Titovs í vöminni en hann bindur
hana vel saman.
Einar Gunnar Sigurðson lék sinn
besta leik í vetur með Aftureldingu.
Bergsveinn Bergsveinsson varði nokk-
uð vel og þá alveg sérstaklega í fyrri
hálfleik. Liðið er sterkt og hefur alla
burði til að halda efsta sætinu áfram.
Liðið missti Þorkel Guðbrandsson út
af í fyrri hálfleik vegna þriggja gulra
spjalda og það var mikil blóötaka fyr-
ir vömina. -JKS
FH i þriðja
- eftir stórsigur á Gróttu/KR
FH hafði sætaskipti við Gróttu/
KR í gærkvöld og komst í 3. sæti 1.
deildar meö stórsigri í leik liðanna
í Kaplakrika, 27-19. Staðan í hálf-
leik var 11-9 FH í hag.
Vaiva Drilingate átti stórleik í
marki FH og varði 24 skot á meðan
markverðir Gróttu/KR vörðu sam-
tals níu skot.
Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 7,
Björk Ægisdóttir 5, Eva Albrechtsen 4,
Guðrún Hólmgeirsdóttir 4, Hildur Er-
lingsdóttir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 2,
Hafdís Hinriksdóttir 1.
Mörk Gróttu/KR: Ágústa Edda
Bjamadóttir 8, Helga Ormsdóttir 3, Anna
Steinsen 3, Kristín Þórðardóttir 2, Þóra
Þorsteinsdóttir 2, Edda Kristinsdóttir 1.
Öruggur Haukasigur
Haukar fóra létt með Val í
Strandgötu, 28-17, eftir 15-9 í hálf-
leik.
Mörk Hauka: Judit Esztergal 7, Hulda
Bjamadóttir 6, Thelma Björk Árnadóttir
4, Björg Gilsdóttir 3, Ásbjörg Geirsdóttir
2, Jenna Björk Halldórsdóttir 2, Harpa
Melsted 2, Auður Hermannsdóttir 2.
Mörk Vals: Gerður B. Jóhannsdóttir
6, Brynja Steinsen 3, Þóra B. Helgadóttir
2, Hafrún Kristjánsdóttir 2, Eivor Pála
Blöndal 2, Sonja Jónsdóttir 1, Tinna Bald-
ursdóttir 1.
Víkingur í fimmta sætið
Víkingur lyfti sér upp i 5. sætið
með sigri á ÍBV í Víkinni, 20-16.
Staðan í hálfleik var 10-5 Víkingi í
hag.
Mörk Víkings: Halla Maria Helga-
dóttir 8, Heiða Erlingsdóttir 3, Guð-
munda Kristinsdóttir 2, Anna Kristín
Árnadóttir 2, Kristín Guðmundsdóttir 2,
Heiðrún Guðmundsdóttir 2, Helga Áskels
•Jónsdóttir 1.
Mörk ÍBV: Sandra Anulyte 6, Andrea
Atladóttir 5, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Unn-
ur Sigmarsdóttir 1, Guðbjörg Guðmanns-
dóttir 1.
-VS
Ekkert mál hjá IR
- sem vann Breiðablik, 21-31
ÍR-ingar unnu sanngjarnan sigur
á Blikum í Smáranum, 21-31. Þessi
tvö stig munu reynast ÍR-ingum vel
í baráttunni um að komast í átta
liða úrslit 1. deildarinnar. Blikar
héldu Breiðhyltingum við efnið
fyrstu 25 mínutur leiksins en eftir
það var leikurinn ÍR-inga. Elfar
Guðmundsson var bestur Blika en
einnig áttu Sigurbjörn Narfason og
Bjöm Hólmþórsson góða spretti.
ÍR-ingar léku allir mjög vel, þó er
rétt að minnast á þátt Hallgríms,
markvarðar ÍR, sem varði 12 skot í
seinni hálfleik ásamt því að skora
mark. -BB
0-1, 3-3, 4-6, 6-8, 8-8, 11-9, 11-12,
(12-12), 14-12, 14-13, 17-13, 17-17,
20-18, 21-20, 21-21, 22-21.
Mörk Fram: Daði Hafþórsson 6,
Njörður Ámason 6, Oleg Titov 5/2,
Gunnar Berg Viktorsson 2, Sigurpáll
Ámi Aðalsteinsson 2/1, Guðmundur
Helgi Pálsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson
14, Þór Bjömsson 1/1.
Mörk Aftureldingar: Einar Gunn-
ar Sigurðsson 5, Páll Þórólfsson 5/3,
Skúli Gunnsteinsson 3, Jason Ólafs-
son 3, Sigurður Sveinsson 2, Gunnar
Andrésson 2, Einar Einarsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 11/1.
Brottvísanir: Fram 8 mín., Aftur-
elding 14 mín.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og
Guðjón L. Sigurðsson. Ósamræmis
gætti hjá þeim félögum en segja má
að þeir hafi sloppið þokkalega.
Ahorfendur: 300.
Maður leiksins: Daði Hafþórs-
son, Fram.
1-0, 1-2, 3-2, 4-4, 6-6, 6-8, 8-8, 10-10,
10-13, 11-13, (11-14), 12-17, 14-17,
14-20, 16-22, 18-24, 19-26, 19-28, 21-31.
Mörk Blika: Bjöm Hólmgeirsson
7, Sigurbjöm Narfason 6, Bragi Jóns-
son 3, Magnús Blöndahl 2, Brynjar
Geirsson 2, Ólafur Snæbjömsson 1.
Varin skot: Elfar Guðmundsson
17/1
Mörk ÍR: Ragnar Óskarsson 10/2
Bjartur Sigurðsson 5, Frosti Guð-
laugsson 3, Jóhann Ásgeirsson 3,
Ingimundur Ingimundarson 3, Ólafur
Gylfason 2, Jens Gunnarsson 2, Ólaf-
ur Sigutjónsson 1, Brynjar Steinsson
1, Hallgrímur Jónasson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson
12, Hrafn Margeirsson 9/1.
Brottvlsanir: Blikar 6 min., ÍR 4
min.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson, vom í lagi.
Áhorfendur: Um 100.
Maður leiksins: Hallgrímur Jón-
asson, ÍR.
Bland í noka
Róbert Haraldsson, fyrirliði knatt-
spyrnuliðs KVA sem vann sér sæti 1.
deild í haust, er á leiö til sænska 2.
deildar liðsins Gallevare. „Tilboðið
sem ég fékk frá Svíunum var of gott
til að hafna því,“ sagði Róbert viö
DV.
Róbert mun síðan að öllum likindum
taka við þjálfun handboltaliðs Gálle-
vare í haust. Hann lék um skeið bæði
handknattleik og knattspyrnu með
Malmberget sem er frá svipuðum
slóöum í Norður-Svíþjóö.
Tékkneskar konur standa sig best á
alþjóðlega kvennamótinu i tennis
sem nú stendur yfir í Kópavogi. Þrír
tékkneskir keppendur tryggðu sér I
gær sæti í átta manna úrslitum í ein-
liðaleik.
Gabriela Navratilova er sigur-
stranglegust þeirra og ekki skemmir
fyrir að eftirnafn hennar er frægt úr
tennisheiminum.
Carolina Jagieniak frá Frakklandi
verður væntanlega skæðasti keppi-
nautur hennar en líklegast er talið að
þær mætist í úrslitaleik.
-vs
%
1. DEILD KVÍNNA
Stjarnan 15 12 2 1 369-304 26
Haukar 15 9 3 3 387-333 21
FH 15 7 2 6 322-308 16
Grótta/KR 14 7 2 5 276-289 l(i
Víkingur 15 6 1 8 341-351 13
Valur 15 5 2 8 294-313 12
ÍBV 14 5 1 8 309-324 11
Fram 15 0 3 12 295-371 3
*
1. DEILD KARLA
Afturelding 12 9 0 3 301-281 18
KA 12 7 2 3 338-302 16
FH 12 7 2 3 328-293 16
Fram 12 8 0 4 319-296 16
Valur 12 7 1 4 291-278 15
Haukar 12 6 2 4 326-309 14
Stjarnan 12 7 0 5 314-303 14
ÍBV 12 5 1 6 338-337 11
ÍR 12 5 1 6 305-316 11
HK 12 5 0 7 305-299 10
Vikingur 12 1 1 10 288-337 3
Breiðablik 12 0 0 12 272-374 0
Karim Yala, Alsírbúinn hjá KA,
fékk að líta rauða spjaldið þegar
hann skaut boltanum beint framan í
andlit Lee, markvarðar FH, úr víta-
kasti á 15 mín. leiksins í Kaplakrika.
Lee varöi 3 vítaskot KA-manna í
fyrri hálfleik auk þess sem KA-menn
brenndu einu af í síðari hálfleik.
+