Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
Fréttir
Vímuefnaneysla grunnskólanema:
Amfetamínneysla
hefur tvöfaldast
- og hassneysla eykst samkvæmt nýrri könnun RUM
Þrettán prósent unglinga í 10. bekk
grunnskóla hafa reykt hass og hefur
hassneysla þessa aldurshóps ekki ver-
ið meiri frá því að kannanir hófust á
vimuefhaneyslu unglinga. Neysla am-
fetamins hefur að sama skapi nánast
tvöfaldast á síðustu tveimur árum hjá
þessum hópi. Árið 1995 höfðu 2,5%
nemenda í 10. bekk prófað amfetamín
en árið 1997 höfðu 4,6% fimmtán ára
unglinga neytt efnisins. Neysla E-pilI-
unnar hefur hins vegar staðið í stað
hjá þessum aldurshópi á undanfómum
tveimur árum - var um 2,0% árið 1995
og 2,3% árið 1997, sem að sögn Þórólfs
Þórlindssonar prófessors er vart mark-
tækur munur.
Áfengisneysla og önnur vímuefna-
notkun unglinga í grunnskóla og á
framhaldsskólastigi hefur einnig farið
stigvaxandi frá árinu 1989 og er komin í
svipað horf og hún var árið 1984. Þetta
era niðurstöður nýrrar könnunar sem
unnin var af Rannsóknarstofnun upp-
eldis- og menntamála síðasta vor og
Þórólfur kynnti á ráðstefnunni „Frá for-
eldrum til foreldra" skömmu íyrir jól
Eins og sjá má á meðfylgjandi gröf-
um, dró mjög úr hassneyslu unglinga
á árunum 1984-1989. Svipaða sögu er
að segja um áfengisneyslu, þó að breyt-
ingamar þar séu töluvert minni.
Þórólfur segir ekki óliklegt að áróður
hafi haft áhrif á minnkandi vímuefna-
notkun á þessum árum, þó erfitt sé að
útskýra sveiflur sem þessar. Hins veg-
ar sé ljóst að hin mikla aukning á
Útbreiðsla áfengisneyslu meðal
nemenda í 10. bekk 1984-1997
82
% —iBÚ—i—
'85 '87 '89 '91 '93 '95 '97
neyslu þessara aldurshópa undanfarin
ár sýni að forvamir hafi ekki haft þau
áhrif sem skyldi og því ástæða til að
taka á þessum málum af festu.
Áfengið upphafið en alls ekki
endalokin
Þórólfur segist telja að of lengi hafi
verið einblínt á ólöglega vímuefnanotk-
un unglinga sem einangrað fyrirbæri,
en lítið verið lagt upp úr samhengi
hennar við áfengisneyslu meðal ung-
linga. Hann bendir á niðurstöður banda-
rískrar könnunar sem vakti mikla at-
hygli nýverið, en hún leiddi í ljós að þeir
sem byija að drekka áfengi mjög ungir
lenda frekar í ýmsum vanda.
Því yngri, því oftar, því meira
Þessi niðurstaða er sambærileg við
sams konar kannanir hérlendis. í
könnun, sem gerð var árið 1995 og birt-
ist í tímaritinu Áhrif nú í desember, er
greinilegt að unglingar sem hefja
neyslu áfengis mjög ungir, eða 13 ára
og yngri, drekka oftar en aðrir þegar
komið er upp í 10. bekk grunnskólans,
verða oftar fúllir en jafhaldrar þeirra
og neyta meira magns af áfengi en hin-
ir sem byija seinna að drekka. Hlutfall
þeirra unglinga sem notað hafa hass,
amfetamín og önnur vímuefni er að
sama skapi miklum mun hærra hjá
þeim sem hófu ungir neyslu áfengis.
Þórólfur segir þessi tengsl sýna að
leggja verði áhersluna á áfengi í áróðri
sem beint er að yngstu bömunum.
Ekki sé hægt að ná árangri í barátt-
unni gegn vímuefhavandanum öðru-
vísi. Hann bendir einnig á að Islend-
ingar séu of afslappaðir gagnvart
drykkju unglinga, en oftar en ekki sé
áfengið upphafið að annarri vímuefna-
notkun þegar neysla þess hefst mjög
snemma. -Sól.
Halldór Blöndal og ólöglega hótelnefndin:
Stjórnarandstaðan
vill afstöðu Davíðs
- máliö tekið upp á Alþingi næstu daga
Stjórnarandstaðan vill að Davíð Oddsson forsætisráðherra upplýsi hvað hann ætli að gera í mál-
efnum Halldórs Blöndals samgönguráðherra. DV-mynd ÞÖK
„Næsta skref verður aö óska eftir
utandagskrárumræðu þar sem for-
sætisráðherra verður inntur eftir því
hvað hann ætlar að gera nú þegar fyr-
ir liggur niðurstaða varðandi ólög-
mætt athæfi ráðherra," segir Lúðvík
Bergvinsson alþingismaður vegna
máls Halldórs Blöndals samgönguráð-
herra og ólöglegu hótelnefndarinnar.
Lúðvík segist munu taka mál þetta
upp í þingflokki Jafnaðarmanna í
dag.
Stjórnarandstaðan hyggst krefja
forsætisráðherra svara varðandi það
hvað hann hyggist gera í málefnum
samgönguráðherra eftir að fyrir ligg-
ur það álit umboðsmanns Alþingis aö
nefnd sem hafði með höndum úthlut-
un styrkja til hótela á landsbyggðinni
hafi ekki lagastoð til styrkveiting-
anna. Með skipan nefndarinnar gekk
Halldór Blöndal fram hjá Ferðamála-
ráði sem Alþingi úrskurðaði að ætti
að fara með úthlutun fjárins.
DV spurði Lúðvík hvort til greina
kæmi að bera upp vantraust á ráð-
herrann í ljósi allra þeirra mála sem
komið hafa upp að undanfornu varð-
andi embættisfærslur hans.
„Það tekur mið af því hvort og þá
hvemig forsætisráðherra hyggst
bregðast við í málum ráðherra síns,“
segir Lúðvík.
Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis,
staðfesti í samtali við DV að málið yrði
tekið upp á þingi einhvem næstu daga.
„Ég sé ekki betur en það snúi að for-
sætisráðherra að svara því hversu
lengi hann ætlar að líða ráðherrum
sinum embættisfærslur af því tagi að
umboðsmaður Alþingis þurfi að gagn-
rýna hana,“ segir Svavar Gestsson, for-
maður þingflokks Alþýðubandalags.
Aðspurður
um það hvort til
greina kæmi að
bera upp van-
traust á ráðherr-
ann sagðiSvavar
það geta orkað
tvímælis.
„Ég vil ekkert
um það segja þar
sem venjan er sú
að sé borið upp
vantraust þá
hlaupa allir í
strýtu, og veita
ráðherra enn
meira skjól en
aniiars. Það er
því mikill
ábyrgðarhluti af
stjómarandstæð-
ingi að bera upp
tillögu sem síðan
yrði felld. Ég
held að það sé
markvissara að
fara öðruvísi í
málin," segir
Svavar.
DV leitaði álits Magnúsar Oddsson-
ar ferðamálastjóra í gærmorgun vegna
þessa máls en hafði ekki erindi sem
erfiði. -rt
Stuttar fréttir i>v
Sameining
Stjómir frystihúsanna Hrað-
frystihúsið hf. og Króksnes hf. hafa
ákveðið að sameinast undir nafni
hins fyrmefhda. Fyrir átti Hrað-
frystihúsið hf. frystitogarana Bessa
og Andey og ísfisktogarann Pál
Pálsson. Við bætist rækjubáturinn
Öm ÍS með 200 þorskígilda kvóta.
Vilja endurgreiðslu
Innflytjendur
franskra
kartaflna sem
ríkið rukkaði
um ólöglegt jöf-
ununargjald
vilja fá milljónir
endurgreiddar.
Fjármálavaldið
þverskallaðst við að endurgreiða og
segir dæmdar sakir sínar fymdar.
Ný flugfargjöld
íslandsflug hefur breytt far-
gjaldaskrá sinni í innanlandsflugi
eftir að fargjaldakerfi félagsins
tengdist vildarpunktakerfi Flug-
leiða. Þá hefur félagið einnig tengst
Amadeus-bókunarkerfmu í gegn-
um SAS. 8000 flugfélög eru tengd
því í heiminum og yfir 41 þús.
ferðaskrifstofúr.
Aðstoð við munaðarlausa
í kvöld verður hátíðardagskrá á
Hótel íslandi í tilefni tíu ára af-
mælis ABC-hjálparstarfs. Aðal-
verkefni samtakanna hefur verið
að'Sjá fátækum og munaðarlausum
börnum í þriðja heiminum fyrir
menntun og framfærslu.
Gullið í biö
Gullleit Melmis hf. er i biðstöðu
meðan rannsökuð eru um 5000
sýni af Suðvestur-, Norður- og
Austurlandi. Visbendingar um að
gullnám borgi sig era jákvæðar að
sögn Viðskiptablaðsins.
Leifssaga leiðrétt
Friðrik Þór
Friðriksson og
fleiri kvik-
myndamenn
ætla að gera
heimildarmynd
um landafundi
Leifs heppna
Eiríkssonar og
og leiðrétta þar með mannkynssög-
una sem er vitlaust skráð, að sögn
Friðriks Þórs í Morgunblaðinu.
Línan samt lögð
Landsvirkjun heldur áfram fram-
kvæmdum við nýja BúrfeUslínu um
Ölkelduháls þótt skipulagssstjóri
hafi úrskurðað að frekara umhverf-
ismat eigi að fara fram á öðrum leið-
um fyrir línuna sem til greina koma.
RÚV sagði frá.
Lækkandi gengi
Gengi hlutabréfa í sjávarútvegs-
fyrirtækjum fer lækkandi og kaup-
endur virðast halda að sér höndum
og bíða þess að þau lækki enn meir
þegar sjómannaverkfall skellur á
innan fárra daga. Viðskiptablaðið
sagði frá.
300 bíða afvötnunar
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn-
ir á Vogi, segir
við Morgunblað-
ið að 300 manns
bíði eftir að
komast í vímu-
efiiameðferð.
Slæmur skortur
sé á skyndiþjón-
usturými fýrir
aðframkomið drykkjufólk.
Siggi dipló dæmdur
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt 76 ára gamlan leigubíl-
stjóra, sem hefur gælunafiiið Siggi
dipló, í sekt fyrir að aka farþegum
gegn gjaldi án þess að hafa lengur
atvinnuleyfi. Leigubílstjórar eiga
að hætta sjötugir.
Björgunaraðgerðir
Stjómvöld í Asíu reyna að róa
lífróður út úr efnahagskreppunni í
áifunni án mikils sjáanlegs árang-
urs enn sem komið er. Síðan í júli
hefur gengi rúpíu í Indónesíu fallið
um 78,85% gagnvart dollar, gengi
batsins í Taílandi um 52,39%, gengi
kóreska vonnsins 47% og ringitið i
Malasíu um tæp 43%. -SÁ