Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ísland freistandi en erfitt fyrir alþjóölegu olíufélögin: Statoil lyktaði af íslenska bensíninu - ekki pláss fyrir fleiri seljendur á íslenska markaönum DVi Ósló: „Við skoðum að sjálfsögðu alla möguleika á bensínsölu, einnig á Is- landi. Niðurstaða okkar var sú að eini möguleikinn til að komast inn á markaðinn væri að kaupa sig inn í þau félög sem fyrir eru. Það er ein- faldlega ekki pláss fyrir nýja selj- endur á þessum markaði," segir Poul Luksehoj, markaðsstjóri hjá norska ríkisolíufélaginu Statoil, i samtali við DV. Hjá Statoil var ákveðið á síðasta ári að herða markaðssóknina á Norðurlöndunum og i Eystrasalts- ríkjunum um leið og bensínstöðvar í Þýskalandi voru seldar. Statoil lét kanna hvort möguleiki væri á að ná fótfestu á íslandi en félagið hefur nú 1 reynd einokun á sögu bensíns og olíu til íslands. „Okkur sýndist sem smásölu- markaðurinn á íslandi væri það þróaður að það svaraði ekki kostn- aði að ná þar fótfestu. Við hefðum þá þurft að koma með nýjar hug- myndir um sölu á bensíni - sjálf- sala, afsláttarkort og greiðslukort - en þetta er allt þegar fyrir hendi svo við sáum ekki að það væri pláss fyr- ir okkur,“ sagði Luksehoj. Markaðsstjórinn var ekkert hrif- inn af hugmyndinni um að leggja út í verðstríð við íslensku olíufélögin enda selur Statoil þeim allt bensínið nú þegar. Fyrirtækið þykist því ekki standa svo illa á íslandi þótt það hafi ekki bensinstöðvar þar. „Við útilokum að sjálfsögðu ekki þann möguleika að kaupa að hluta eða öllu eitthvert þeirra fyrirtækja sem nú selja bensín og olíur á ís- landi. Núna i þessum töluðu orðum eru engin slík áform á döfinni," sagði Luksehoj. Norska ríkisolíufélagið Statoil er stærsta fyrirtæki landsins og skilar eiganda sínum árlega um 200 millj- örðum islenskra króna í hagnað. Fyr- irtækið er eitt af stærri olíu-, gas-, og bensínheildsölum í heiminum en fæst einungis við smásölu á Norður- löndunum og Austur-Evrópu. -GK X> Hvað mein- ar Friðrik? Kristín Ástgeirsdóttir alþingis- maðuit verður með utandag- skrárumræðu á Alþingi í dag. Til- ’efnið er ummæli Friðriks Sophus- sonar fjármálaráð- herra 1 Morgun- blaðinu nýlega um að jafna út launa- mun kynjanna innan stétta en ekki milli þeirra. „Þetta voru afar sérkennileg ummæli og ég ætla að inna hann eftir þvi hvað hann átti við,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir við DV í morgun. -SÁ Sótt á gúmbát Fólk lenti í vandræðum á sjötta tímanum i gær þegar féll að við Geld- inganes. Fólkið var í gönguferð og var skyndilega teppt á eyrinni þegar fallið var að. Lögregla brá skjótt við og fór á gúmbát til að flytja fólkið aftur í , j^land. Engum varð meint af. -RR Sjúklingaskrá afhent: Brot á settum reglum - segir landlæknir Skrá um 5000 áfengissjúklinga sem farið hafa í meðferð hjá SÁÁ á Vogi á sl. árum var afhent íslenskri erfða- greiningu á síðasta ári. Markmið ís- lenskrar erfðagreiningar var að rann- saka tengsl alkóhólisma og erfða. Tímaritið Mannlíf segir frá þessu máli og upplýsir jafnframt að Tölvu- nefnd hafi uppgötvað þetta við reglubundið eftirlit hjá fyrirtækinu og fyrirskipað umsvifalaust að gögnunum skyldi eytt. Ólafur Ólafsson landlæknir stað- festi við DV í morgun að umræddar skrár hefðu verið afhentar íslenskri erfðagreiningu. „Við fengum bréf um þetta mál frá Tölvunefnd. Ég trúi því að þama hafi verið misskilningur á ferð. Þarna er um að ræða algert brot á settum reglum en skránum hefur nú verið eytt og ég trúi þvi að mál- ið sé nú út úr heiminum," segir Ólafur. -rt Innbrotsþjófur á ferð íbúi í Mosfellsbæ tilkynnti til lög- reglunnar á þriðja tímanum i nótt að innbrot væri i gangi í söluturnin- um Bílanesti. Maðurinn hafði vaknað við brot- hljóð í söluturninum. Þegar lögregla kom örstuttu seinna var innbrots- þjófurinn á bak og burt. Nágranninn gat lýst innbrotsþjófnum sem ungum pilti og einnig klæðaburði hans. Lög- regla leitaði hans en án árangurs. Hann náði að stela litlum peninga- kassa sem í var reiðufé auk tóbaks og 30 strætómiða. -RR Það getur orðið hart í ári fyrir fuglana á Tjörninni þegar frýs og hana leggur. En börnin gleyma ekki þessum litlu vinum sínum, og það er greinilegt að tjarnarbúarnir kunnu vel að meta brauðmolana sem þessi drengur gæddi þeim á í gær. DV-mynd E.ÓI. Veðrið á morgun: Þurrt á Norður- landi Á morgun verður sunnangola eða -kaldi. Dálítil rigning sunn- an- og vestanlands en þurrt á Norður- og Austurlandi. Veörið í dag er á bls. 37. Itel jblr* ásérUlboði Bílheimar ehf. opel fPi«r4t] ■■■ Sœvarhöfba 2a Sími:52S 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.