Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Blaðsíða 8
Hrannar Björn í borgarstjórn
Sagöi af sér
Hiroshi Mitsuzuka, fjármála-
ráðherra Japans, varð að segja af
sér vegna mútumáls er varðar
starfsmenn ráðuneytisins.
Mikið rifist
Friðarviðræðunum um Norður-
írland, sem fram fara í London,
lýkur væntanlega i dag en litið
hefur gengið vegna deilna mót-
mælenda og kaþólikka.
Hafnaði tilboði
Yasser Arafat hafnaði tilboöi
Bandaríkja-
manna um að
ísraelsmenn
drægi sig í
þrepum frá
Vesturbakk-
anum. Hvatti
hann til frið-
sælla mót-
mæla á göt-
um úti.
Verndi fátæka
Alþjóðabankinn hvatti ríkis-
stjómir sem orðið hafa fyrir barð-
inu á efnahagskreppunni í Asíu til
að vemda hagsmuni fátækra og at-
vinnulausra þegar efnahagslífið
verður reist við á ný.
Vantraust
Tékkneska þingið frestaði heit-
um umræðum um vantrauststil-
lögu á ríkisstjómina.
í vondu skapi
Spjallstjarnarn Oprah Winfrey
var úrill og urraði á starfsfólk sitt
þegar hún gerði sjónvarpsþátt
sem olli verðhi'uni á nautakjöti.
Samkomulag
Robin Cook, utanríkisráðherra
Breta, og kona hans hafa náð
samkomulagi um skilnað. Reuter
Frumkvæði og endurnýjun !
Stuttar fréttir
NY HUHSUN í SKÓLAA4ÁLUM
Vtrkjum frumkvœði félagasamtaka
Lögum skólann að þörfum bamanna
Nýlum starfsdaga fvrir íþróttir og mennvngu
Viltu bæta
þjónustuna?
SÍMAKJÓNUSTAH
Pella eímamasr
520 0123
http://www.iTimedia.is/sima
o\\t milli hlpjfa'
Smáauglýsingar
550 5000
ingum forsetans og kallaði ásakanir
forsetafrúarinnar „vitleysu".
Ýmsir demókratar tóku undir
með Hillary og réðust að Starr sak-
sóknara. Þingmenn demókrata hafa
til þessa ekkert tjáð sig um málið.
„Takmarkiö virðist vera að ná
sér niðri á forsetanum með öllum
tiltækum ráðum,“ sagði Patrick
Leahy, öldungadeildarþingmaður
frá Vermont.
Hjól réttvísinnar í málinu héldu
áfram að snúast í gær þegar sérstak-
ur kviðdómur sem metur hvort
ástæða sé til að ákæra í málinu kall-
aði fyrir vitni.
Fyrsti maðurinn til að bera vitni
var John Whitehead, yfirmaður
íhaldssamrar lagastofnunar sem
styður Paulu Jones í málarekstri
hennar gegn Clinton forseta.
Whitehead sagði fréttamönnum að
hann hefði aðeins afhent kviðdóm-
inum gögn en ekki borið vitni. Betty
Currie, einkaritari Clintons, var
einnig kölluð fyrir. Reuter
Monica Lewinsky sagði gömlum
elskhuga sínum árið 1995 að hún
ætti í ástarsambandi við „mjög hátt-
setta manneskju" í Hvíta húsinu á
meðan hún var þar í starfsþjálfun.
„Hún nefndi Clinton forseta
aldrei nokkurn tíma á nafn,“ sagði
Terry Giles, lögfræðingur elskhug-
ans fyrrverandi, hins 32 ára gamla
Andys Bleilers, á heimili hins síðar-
nefnda í Portland í Oregon í gær.
Bleiler hélt fram hjá eiginkonu
sinni með Monicu í flmm ár. Að
sögn lögfræðingsins ræddi Monica
oft við Bleiler og eiginkonu hans á
meðan hún vann í Hvíta húsinu um
kynlífsathafnir sínar í Hvíta hús-
inu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hélt stefnuræðu sína í þinginu í nótt
en minntist ekki einu orði á ásakan-
irnar á hendur honum um að hafa
átt í ástarsambandi við Monicu
Lewinsky. Þess í stað ræddi hann
um kraftinn í efnahagslífinu, sendi
írökum tóninn og hvatti þingheim
til að koma til bjargar almanna-
tryggingakerfinu.
í sem stystu máli vildi hann sýna
og sanna að hann hefði styrka
stjórn á landinu og léti kynlífs-
hneykslið ekki buga sig.
En þótt Clinton segði ekki orð um
málið, sem er á allra vörum í
Bandaríkjunum, verður hið sama
ekki sagt um forsetafrúna, Hillary
Rodham Clinton. Hún kom fram í
morgunþætti NBC-sjónvarpsstöðv-
arinnar í gær og vísaði öOum ásök-
unum á hendur eiginmanni sínum á
bug. Hún var ómyrk í máli þegar
hún sagði að ásakanirnar væru
hluti þess samsæris hægrimanna
sem hefði farið af stað um leið og
Clinton tilkynnti um forsetafram-
boð sitt á sinum tima.
Meðal þeirra sem hún sagði að
tækju þátt í samsærinu eru sjón-
varpspresturinn Jerry Falwell, tveir
öldungadeildarþingmenn repúblik-
ana í Norður-Karólínu, þeir Jesse
Helms og Lauch Faircloth, og Kenn-
eth Starr, sérlegur saksóknari í
Whitewater-fasteignahneykslismál-
inu sem nú rannsakar hvort forset-
inn hafi framið meinsæri þegar
hann vísaði á bug fréttum af meintu
ástarsambandi sínu við Monicu.
Hillary sakaði óvini eiginmanns
síns um að gera að engu úrslit
tvennra kosninga.
Kenneth Starr vísaði alfarið á bug
að hann tæki afstöðu með andstæð-
BLAÐAMENN
Viðskiptablaðið óskar eftir að ráða blaðamenn. Leitað er að
einstaklingum sem geta starfað sjálfstætt og búa yfir frum-
kvæði og hugmyndaauðgi. Háskólapróf í viðskipta- eða
hagfræði er æskilegt sem og reynsla í blaðamennsku.
Gott tak á íslenskri tungu í ræðu og riti er skilyrði. Góð
enskukunnátta er nauðsynleg og kunnátta í Norðurlanda-
máli æskileg. Tölvukunnátta er forsenda ráðningar.
Hlutastarf kemur til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf,
skulu berast til ritstjómar Viðskiptablaðsins, Brautarholti
1, fyrir íostudaginn 6. febrúar nk„ merktar Blaðamaður.
Vidskiptabladid er vikublað um viðskipti og efnahagsmál. Auk þess sér ritstjóm
blaðsins um útvarpsþætti um viðskipti tvisvar sinnum á hverjum virkum degi í
samvinnu við Bylgjuna.
Ðill Clinton Bandaríkjaforseti ræddi um allt annaö en meint ástarsamband
sitt viö Monicu Lewinsky í stefnuræöu sinni í bandaríska þinginu í nótt.
Frétt um lífvörð forsetans birt á ný:
Sá vafasöm samskipti
Clintons og Monicu
í dagblaðinu Dallas Morning
News segir að lífvörður Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta hafi orðið
vitni að vafasömum samskiptum
Clintons og Monicu Lewinsky í
Hvíta húsinu. Hefur lífvörðurinn
haft samband við skrifstofu Starrs
saksóknara og boðið fram aðstoð
sína í málinu gegn Clinton. Frétt
blaðsins birtist á vefsíðu þess.
Svipuð frétt á vefsíðu blaðsins
var dregin til baka í gær vegna
óvissu um heimildir. Þar sagði að
lífvörður forsetans væri reiðubúinn
að vima um að hann hefði séð Clint-
on og Monicu í nánu sambandi. Síð-
ar í gær var fréttin birt á ný. Þar
kom fram að starfsfólk Starrs sak-
sóknara hefði rætt við umræddan
lífvörð.
Clinton afhenti í gær innsiglaðan
vitnisburð sinn í Paulu Jones-mál-
inu svo óháð nefnd gæti athugað
hvort hann hefði logið þegar hann
neitaði að hafa átt í kynferðissam-
bandi við Monicu. Reuter
MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1998
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Utlönd
Gamall elskhugi Monicu Lewinsky skýtur upp kollinum:
Gortaði af ástarsam-
bandi í Hvíta húsinu