Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
27
Iþróttir
íþróttir
ENGLAND
Kenny Dalglish, knattspymustjóri
Newcastle, er búinn aö ganga frá
kaupum á sænska landsliðsmanninn-
um Andreas Andersson frá AC Milan
fyrir 3 milljónir punda. Svíinn knái
kemur til Englands í vikunni og verð-
ur jafnvel með gegn Aston Villa í
ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Dalglish ætlar
ekki að láta þau
kaup nægja til aö
styrkja lið sitt enda
veitir ekki af. Hann
ætlar sér að ná í
Gary Speed, fyrir-
liða Everton, og er
hann reiðubúinn
að greiða 5 milljónir punda fyrir
hann. Þá er líklegt að Dalglish kaupi
Andy Griífin, 18 ára bakvörð frá
Stoke, fyrir 1,5 milljónir punda.
Steve Stone, miðvallarleikmaðurinn
knái hjá Nottingham Forest, hefur
gefið upp á bátinn að komast í enska
landsliðið sem leikur á HM í sumar.
Stone er nýstiginn upp úr erfiðum
hnémeiðslum og segist ætla að ein-
beita sér að því aö koma Forest upp í
úrvalsdeildina að nýju frekar en að
reyna að tryggja sér sæti í landslið-
inu að nýju.
Denis Wise, fyrir-
liði Chelsea, kem-
ur aftur inn i liðið
í kvöld þegar það
mætir Arsenal í
undanúrslitum
deildabikarkeppn-
innar. Wise hefur
ekki leikiö með
liði Chelsea í tvær
vikur, fyrst var hann hann meiddur
og svo tók hann út eins leiks bann.
Ruud Gullitt bindur vonir við að með
tilkomu Wise vænkist hagur liðsins.
Chris Kamara, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá Stoke City, hefur
fengið varnarmanninn Todd Mc-
Kinley frá Celtic að láni næsta mán-
uöinn og er honum ætlað að fylla
skarð Andy Griffin sem er á förum
frá félaginu.
Brian Laudrup,
leikmaður Rangers
í Skotlandi og
danska landsliðs-
ins, er mjög eftir-
sóttur en samning-
ur hans við
Rangers rennur út
í vor. Manchester
United, Arsenal og
Chelsea hafa öll gert honum tilboð og
sömuleiöis Ajax í Hollandi.
Laudrup hefur nú hafnað tilboðum
frá Man. Utd og Arsenal að sögn um-
boðsmanns hans og því mun kappinn
ganga til liðs við annaðhvort Chelsea
eða Ajax nema að betra tilboð berist í
hann.
Patrik Berger, tékkneski landsliðs-
maðurinn sem gekk í raðir Liverpool
á síðasta tímabili og gerði þriggja ára
samning, er mjög óhress með stöðu
sina hjá félaginu en hann hefur að
mestu vermt varamannabekkinn í
vetur. Berger á það á hættu að missa
atvinnuleyfið í Bretlandi en til að
halda þvi þarf hann að spila 70% af
leikjum liðsins á tímabilinu.
Berger segir: „Ég vil ekki vera hér
áfram á næsta tímabili ef þetta á að
halda svona áfram. Mér líður mjög
vel hjá Liverpool en ég verö að fá að
spila en ekki sitja á bekknum. Ég
vonast til að geta hitt Peter Robinson,
stjómarformann félagsins, og rætt
við hann um framtíð mína hjá Liver-
pool.“
Alex Fergson,
stjóri Manchester
United, er óvinsæl-
asti maðurinn i
breskri knatt-
spyrnu að mati les-
enda tímaritsins
Total Football.
34% þeirra 1500
lesenda sem kusu
völdu Ferguson í efsta sæti á óvin-
sældalistanum.
Ferguson á sér marga öfundarmenn
enda hefur hann náð einstökum ár-
angri með lið Man. Utd á undanfóm-
um árum. Það hefur mörgum sem
ekki styðja við bakið á United mislik-
að og því er Ferguson svona óvinsæll.
Graham Taylor, fyrrum þjálfari
enska landsliðsins og núverandi
stjóri hjá Watford, varð annar í kjör-
inu en 13% lesenda völdu hann óvin-
sælastan.
-GH
Shawn Kemp, leikmaðurinn snjalli í liði Cleveland, átti góðan leik með liði sínu gegn Dallas í nótt, skoraði 22 stig og
tók 12 fráköst en þau dugðu skammt í þetta skiptið. Dallas hafði betur í framlengingu. Mynd Reuter
NBA í nótt:
Tvíframlengt og
Rice fór á kostum
Hart var barist í NBA-deildinni í
nótt en þá voru háðir níu leikir.
Tviframlengja þurfti viðureign
Charlotte og Phoenix þar sem Glen
Rice fór á kostum fyrir Charlotte.
Hann skoraöi 42 stig, þar af fyrstu
þrjú stigin í síðari framlenging-
unni. Leikurinn þótti frábær
skemmtun og körfuboltinn var í
hæsta gæöaflokki.
Þá þurfti framlengingu í leik
Dallas og Cleveland.
Úrslit í nótt:
Indiana-Washington.........85-84
Miller 20, Mullin 11 - Howard 25, Chea-
ney 20.
Charlotte-Phoenix .......120-113
Rice 42, Mason 20 - McDyess 30, Chap-
man 20.
Milwaukee-Detroit.........83-81
Dumar 20, Stackhouse 19, Hill 19 - Gilli-
am 15, Robinson 14.
Minnesota-Atlanta.........113-96
Gugliotta 26, Marbury 21 - Henderson
27, Blaylock 19.
Dallas-Cleveland...........84-77
Finley 39, Davis 10 - Kemp 22.
Houston-LA Clippers . . . 115-109
Barkley 21, Drexler 17, Piatkowski 22,
Taylor 21.
Denver-New Jersey......87-120
Kittles 18, Cassell 18 - Gamett 15,
Fortson 15.
Portland-Golden State .... 78-82
Trent 20, Wallace 20 - Smith 23, Coles
19.
Vancouver-Chicago ......85-103
Rahim 16, Reeves 13 - Pippen 29, Jordan
20.
Reggie Miller skoraði sigurkörfú
Indiana gegn Washington.
Charles Barkley átti frábæran
leik fyrir Houston, hitti vel og tók
14 fráköst. Clippers tapaði sinum
fimmta leik í röð.
Armon Gilliam tryggöi
Milwaukee sigurinn gegn Detroit.
Vancouver gerði aðeins sjö stig í
þriðja leikhluta gegn Chicago og
unnu Jordan og félagar síðan auð-
veldan sigur.
-JKS
KFÍ (48) 80
Keflavík (43)90
6-2, 8-7, 18-14, 22-16, 23-27, 26-32,
39-39, (48-43), 52^5, 56-67, 58-69, 66-72,
66-79, 80-90.
Stig KFÍ: Ólafur Ormsson 25, David
Bevis 24, Baldur Jónasson 14, Friðrik
Stefánsson 9, Marcos Salas 6, Guðni
Guönason 2.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason
23, Falur Harðarson 21, Gunnar
Einarsson 15, Dana Dingel 13, Haildór
Karlsson 6, Kristján Guðlaugsson 5,
Fannar 4, Birgir Öm Birgisson 2.
Fráköst: KFÍ 36, Keflavík 32.
3ja stiga körfur: KFÍ 7/12, Keflavik
11/21.
Vitanýting: KFÍ 10/23, Keflavik 6/9.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson
og Bergur Steingrímsson, allt of linir.
Áhorfendur: 600.
Maður leiksins: Falur Harðarson,
Keflavík.
Sigurmark frá Fowler
Robbie Fowler tryggði Liverpool sigur á Middlesbroguh i fyrri leik liðanna í
undanúrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspymu á Anfield Road í
Liverpool í gær. Heimamenn höföu betur, 2-1, og skoraði Fowler sigurmarkið átta
mínútum fyrir leikslok með föstu skoti úr markteignum og var þetta 20. mark
hans í þessari keppni í 24 leikjum.
Það vom gestimir sem náðu forystunni þegar Paul Merson skoraði gott mark
á 29. mínútu eftir að hafa sloppið inn fyrir vöm Liverpool. Adam var ekki lengi
í paradís því aðeins tveimur mínútum síðar jafhaði Jamie Redknapp metin með
glæsilegu skoti af um 20 metra færi.
í síðari hálfleik hélt Liverpool uppi þungri pressu á mark Middlesbrough og
mark Fowlers lá lengi í loftinu. Síðari leikur liðanna verður á River Stadium-leik-
vangnum í Middlesbrough 18. ferbrúar.
Arsenal og Chelsea mætast í kvöld í hinni undanúrslitaviðureigninni en úr-
slitaleikurinn í þessari keppni fer fram á Wembley í mars. -GH
jt síBr
Blond i poka
Petra Schneider, fyrrum ólympíu-
meistari, viðurkenndi í blaðaviðtali
að hafa tekið inn óleyfileg lyf þegar
hún keppti fyrir Austur-Þýskaland á
ólympíuleikunum í Moskvu 1980. Þar
sigraði hún í 400 metra fjórsundi.
Alþjóða sundsambandið (FINA)
ákvað á fundi sínum i London að
semja nýjar og harðari reglur til að
sporna við ólöglegri lyfjanotkun
sundmanna.
-JKS
ENGLAND
Deildabikarinn, fyrri leikur:
Liverpool-Middlesbrough . . . 2-1
0-1 Merson (29.), 1-1 Redknapp (31.),
2-1 Fowler (82.)
1. deild:
Birmingham-Stockport ........4-1
Bradford-Reading ............4-1
Bury-Wolves..................1-3
Sheff. Utd-Huddersfield......1-1
WBA-Ipswich .................2-3
Vésteinn ráöinn
verkefnastjóri
- með Sydney-hópnum
Frjálsíþróttasamband ís-
lands hefur ráðiö Véstein
Hafsteinsson sem verkefnis-
stjóra (þjálfara og umsjónar-
mann) með Sydney-ólympíu-
hópi FRÍ. Vésteinn er vel
kunnur fyrir arek sín í
fijálsum íþróttum og keppti m.a. á femum
Ólympíuleikum og fjölda annarra stórmóta
hérlendis og erlendis.
Að mati stjómar FRÍ hefúr Vésteinn auk
þess yfir góðum skipulagseiginleikum að
búa og sýndi það í verki sem framkvæmda-
stjóri hins glæsilega stórmóts ÍR á dögun-
um. Þá hefúr hann einnig sinnt þjálfara-
störfum og starfað sem umboðsmaður
fijálsíþróttamanna.
Tilgangurinn með Sydney-ólympíuhópn-
um er sá að undirbúa einstaklinga hópsins
fyrir keppni á Ólympíuleikunum í Sydney
árið 2000. Einnig að hópurinn sé hvatning
fyrir íslenskt íþróttafólk til þess að vinna
markvisst að því að komast í hópinn og á
Ólympíuleikana árið 2000. Markmiðið er að
einstaklingarnir í hópnum nái sem flestir
A-lágmörkum. -JKS
Jónas Egilsson, formaður Frjálsíþróttasambandsins:
„Undir högg aö
sækja fjárhagslega"
- þátttaka í Evrópubikarnum í sumar dregin til baka
Frjálsíþróttasamband íslands
hefur uppi áform um að senda 5-6
keppendur á Evrópumótið innan-
húss sem haldið verður í Valencia
á Spáni í lok febrúar. Fimm kepp-
endur hafa náð tilskildum árangri
fyrir mótið en þeir eru Jón Arnar
Magnússon, Vala Flosadóttir, Guð-
rún Arnardóttir, Þórey Elísdóttir
og Pétur Guðmundsson.
Gerum kröfur að einstak-
lingurinn eigi erindi
„Það er ekki sjálfgefið þótt lág-
markinu sé náð að keppandinn
fari á Evrópumótið innanhúss.
Við gerum þær kröfur einnig að
íþróttamaðurinn eigi erindi á um-
rætt mótt. Það er ekki ákveðið enn
hve marga keppendur við sendum
til Spánar. Mér sýnist samt stefna
í það að þeir verði á bilinu 5-6 og
reyndar höfum við búist við að
þeir yrðu á þessu bili. Jón Amar
keppir í sjöþrautinni og Vala í
stangarstökkinu, Guðrún í 200 og
400 metra hlaupum. Þórey Elís-
dóttir hefur náð lágmarkinu í
stangarstökki og Pétur Guð-
mundsson kúluvarpari en við höf-
um ekkert heyrt frá honum. Eins
er Sigriður Anna Guðjónsdóttir
ekki langt frá lágmarkinu í lang-
stökkinu. Við munum ákveða það
fljótlega hverjir fara á Evrópumót-
ið,“ sagði Jónas Egilsson, formað-
ur FRÍ, í samtali við DV í gær.
Hvað með önnur verkefni FRÍ
á þessu ári?
Frjálsíþróttasambandið á undir
högg að sækja fjárhagslega og af
þeim sökum hefur verið ákveðið
að senda ekki landsliðið til þátt-
töku í Evrópubikamum í Kaunas
í Litháen í sumar. Við ætlum í
staðinn að nota árið í að vinna
okkur út úr fjárhagskröggunum.
Við erum með í vinnslu mótun
þar sem okkar stefna verður
ákveðin. Aö öðru leyti er framtíð-
in björt og við eigum hóp af
efnilegum fólki sem eflaust á eftir
að láta að sér kveða í framtíð-
inni,“ sagði Jónas Egilsson við
DV.
Eitt stærsta verkefnið næsta
sumar verður án efa Evrópumótið
utanhúss sem haldið verður í
Búdapest um miðjan ágúst. Þar
má búast við að þátttakendur héð-
an verði ekki færri en fimm talsins.
-JKS
Spennufall
- KFÍ náði ekki að fylgja eftir sigrinum á Njarðvík gegn Keflavík i gær
Wffi
W
Spánverjinn Marcelo Salas skoraði
sex stig fyrir KFÍ þegar liðið beið
lægri hlut fyrir Keflvíkingum á ísafirði
í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
Malmö vill 5
ára samning
Sverrir Sverrisson kemur til
landsins í dag með samningstilboð
frá sænska úrvalsdeildarliðinu
Malmö.
við Sverri Sverrisson, leikmann IBV
þetta tilboð. Ég reiknaði auðvitað ekki með að þeir
vildu gera svona langan samning en það hefur sína
kosti og galla,“ sagði Sverrir við DV í gærkvöldi en
hann kemur til landsins i dag.
-GH
Forráðamenn sænska úrvalsdeildarliðsins Malmö
FF hafa hrifist mjög af frammistöðu Sverris Sverris-
sonar, miðvallarleikmannsins sterka í liði ÍBV, og
vilja gera við hann fimm ára samning. Sverrir átti
fund með forráðamönnum félagsins í gærkvöldi og
þar lögðu þeir fram tilboðið.
„Ég ætla aö gefa mér einhverja daga að fara yfir
DV, Isafirði:
Keflvíkingar komu vestur í miklum
baráttuhug, sem að lokum færði þeim
sigur í leik sem var reyndar ekki í
háum gæðaflokki. Ótal mistök á báða
bóga, fleiri þó í eigu ísfirðinga sem
léku langt undir getu í síðari hálf-
leik eftir að hafa haft fimm stiga
forskot í hálfleik. Lokatölur
leiksins urðu 80-90 fyrir
Keflvíkinga.
Spenna vegna
frestunar
Nokkur spenna var í
mönnum vegna frestunar
leiksins, sem Keflvík-
ingar eiga erfitt með
að sætta sig við. Sit-
ur líklega eitthvað
súrt í þeim vegna
þess að ísfirðing-
ar slógu þá út í
Renault-bikam-
um.
David Bevis
skoraði fyrstu
sex stig ísfirð-
inga en Guð-
jón Skúlason svaraði með þriggja stiga
körfu og Dingle síðar með tveggja stiga
körfu og staðan var 8-7. Friðrik og Bald-
ur breyttu stöðunni í 13-7 og virtust Kefl-
víkingar eiga í vandræðum með sóknar-
leikinn, reyndu of mikið á eigin spýtur.
Þeir náðu þó að lappa upp á hann með
góöri hittni Fals og Guðjóns og jöfnuðu
leikinn, 22-22. Á þessum kafla léku ísfirð-
ingar illa í sókninni og nýttu vítaskotin
afleitlega. Keflvíkingar komust um tima í
sex stiga forystu.
ísfirðingar hristu af sér sleniö og tókst
að minnka muninn í tvö stig, 32-34. Kefl-
vikingar skoruðu næstu fimm stigin, en
með góðri baráttu og körfum Ólafs Orms-
sonar og Bevis tókst þeim að komast yfir,
41-39, og voru komnir fimm stigum yfir í
hálfleik.
Sirkussýning í upphafi síðari
hálfleiks
Blaðamaður DV hélt sig vera kominn á
sirkussýningu fyrstu mínútumar í síðari
hálfleik, svo „skrautlegir" voru tilburðir
beggja liða. Skemmtilegri sóknarmistök
hafa ekki sést hér fyrr. Bæði liðin greini-
lega ákveðin í að selja sig dýrt, en ekki
var dýrt kveðið. Þetta lagaðist þó brátt,
Keflvíkingar söxuðu á forskotið og fór
þar fremstur Gunnar Einarsson með sex
stig á skömmum tíma, 55-53. Þá fór í
hönd góður leikkafli Keflvíkinga á með-
an allt gekk á afturfótunum hjá heima-
mönnum í sókninni. Þeim tókst ekki að
ógna forystu andstæðinganna það sem
eftir lifði leiksins, voru óvenju daufir í
varnarleiknum.
Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka
voru heildarvillur ísfirðinga í leiknum
öllum 10 talsins en Keflvíkinga 21. Þarna
liggur munurinn á liðunum að þessu
sinni. ísfirðingar náðu ekki að sýna þann
vamarleik sem þeir hafa verið rómaðir
fyrir í vetur. Keflvikingar sýndu aftur á
móti öflugan vamarleik í síðari hálfleik
og það ásamt góðum leik Fals og Guðjóns,
sem gerðu margar góðar 3ja stiga körfur,
skilaði þeim sigri sem er þeim e.t.v. ein-
hver sárabót eftir bikarvonbrigðin.
Hjá Keflavík léku langbest þeir Falur
og Guðjón. Gunnar Einarsson átti góðan
síðari hálfleik. Aðrir léku ágætlega.
Hjá Isfirðingum voru bestir Ólafur
Ormsson og David Bevis. Baldur gerði
nokkrar góðar 3ja stiga körfur. Aðrir
léku undir getu.
-PG
Opna ástralska mótiö í tennis:
Meistarinn fallinn
- tapaði fyrir Karol Kucera - Korda sigurstranglegur
Pete Sampras, besti tennisleikari heims,
féll í gær úr leik í 8-manna úrslitum á
opna ástralska meistaramótinu i tennis
þegar hann beið lægri hlut fyrir Slóvak-
anum Karol Kucera í hörkuviðureign
sem endaði 6-4, 6-2, 6-7 og 6-3.
Sampras átti titil að verja
Pete Sampras, sem átti titil að verja
og var að flestra mati talinn eiga sig-
urinn visan á mótinu eftir að Andre
Agassi féll úr leik, varð að játa sig
sigraðan eftir tveggja klukkustunda
viðureign. Kucera, sem er 23 ára
gamall, kom Sampras hvað eftir annað í
opna skjöldu með glæsilegum smössum sem
Sampras réð ekki við.
Kucera mætir Tékkanum Petr Korda í undan-
úrslitunum en Korda lagði Svíann Jonas Björk-
man. Veðbankar spá því að Korda fari alla leið
og hampi titlinum en fyrir mótið spáðu þeir
Sampras öruggum sigri.
„Þetta voru að sjálfsögðu mikil vonbrigði en
ég lék illa og því fór sem fór,“ sagði Sampras
eftir leikinn. Kucera var að vonum í sjöunda
himni eftir leikinn en þetta er besti árangur
hans á stórmóti til þessa og hver veit nema að
hann fylgi þessum sigri eftir og fari alla leiö.
Hjá kvenfólkinu bar það helst til tíðinda að
Lindsey Davenport frá Bandaríkjunum lagði
löndu sína Venus Williams og mætir Cochitu
Martinez frá Spáni í undanúrslitum. Martines
sigraði Sandrine Testud frá Frakklandi nokkuð
létt. -GH
Danir töpuöu fyrir Taílendingum,
1-0, á alþjóðlegu móti sem hófst í
Banko í Taílandi í gær.
Celtic sigraði Dundee United, 1-2, í
skosku úrvalsdeildinni i knattspymu
í gærkvöldi. Kjell Olofsson kom
heimamönnum í Dundee yfir á 24.
mínútu. Varamaðurinn Simon Donn-
elly jafnaði metin á 28. minútu og
Craig Burley skoraði sigurmarkið á
87. mínútu.
Sigurður Jónsson
lék allan tímann í
liði Dundee sem
er um miðja deild.
Rangers er meö
þriggja stiga for-
skot á Celtic og
Hearts.
Ionut Lutu, markahæsti leikmaöur-
inn í rúmensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu, gekk í gær i raðir
Galatasaray í Tyrklandi. Þar hittir
hann fyrir félaga sina i landsliðinu,
þá Gheorghe Hagi, Gheorghe Popescu
og Iulian Filipescu.
Sergi Bubka, margfaldur heims- og
ólympíumeistari í stangarstökki, ætl-
ar að gera atlögu að heimsmeti sínu
innanhúss á móti í Birmingham á
Englandi í næsta mánuði. Metið er
6,16 metrar.
Bayern Miinchen sigraði Coventry,
4-2, í æfingaleik á Englandi í gær.
Scholl, Elber, Jancker og Rizzitelli
gerðu mörkin fyrir Bæjara en
Moldovan og Haworth fyrir
Coventry.
Knútur Sigurösson, handknattleiks-
maður úr FH, leikur ekki með liðinu
næstu vikurnar. Knútur er meiddur í
hné og fer í speglun í vikunni. Óttast
var i fyrstu að krossbönd hefðu slitn-
að en svo er ekki.
-GH
URVALSDEILDIN
Grindavík 14 12 2 1310-1151 24
Haukar 14 11 3 1182-1020 22
Keflavík 14 9 5 1299-1212 18
KFl 14 9 5 1255-1159 18
ÍA 14 8 6 1090-1082 16
Tindastóll 14 8 6 1084-1045 16
Njarövík 14 7 7 1209-1144 14
KR 14 6 8 1125-1174 12
Skallagrímur 14 6 8 1142-1238 12
Valur 14 4 10 1121-1203 8
Þór A. 14 2 12 1093-1319 4
ÍR 14 2 12 1126-1289 4
Næsta umferð verður leikin annað
kvöld. Þá mætast Grindavík-Skalla-
grímur, Þór-KFÍ, KR-Keflavík,
Haukar-Njarðvík, Valur-ÍA.
Pete Sampras gengur niðurlútur af
velli eftir að hafa tapað fyrir Karol
Kucera í 8-manna úrslitunum i gær.
Reuter