Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1998, Blaðsíða 22
34
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
Afmæli_____________________
Pálína Þorsteinsdóttir
Pálína Þorsteinsdóttir, lengst af
húsmóðir á Akranesi, nú búsett að
Dalbraut 20, Reykjavík, er níræð í
dag.
Starfsferill
Pálína fæddist í Þorsteinshúsi á
Stöðvarfirði en ólst frá fjögurra ára
aldri upp hjá afa sínum og ömmu,
þeim séra Guttormi Vigfússyni, í
Stöð í Stöðvarfirði, og Þórhildi Sig-
urðardóttur frá Harðbak á Sléttu.
Pálína stundaði heimanám hjá
afa sínum, séra Guttormi, var einn
vetur í unglingaskóla á Fáskrúðs-
firði þegar hún var sextán ára,
stundaði nám við 2. og 3. deild Hvít-
árbakkaskóla 1926-28 og sótti tíma i
KÍ Í928-29.
Pálína kenndi í Breiðdal og á
Stöðvarfirði 1929-30 og var einnig
farkennari í Miðfirði 1933-34. Þá
gifti hún sig og var síðan húsmóðir
á Akranesi.
Fjölskylda
Pálína giftist 1934 Guðmundi
Bjömssyni, f. 24.3. 1902, d. 1989,
kennara. Hann var kennari í Mið-
firði 1921-33 og einnig eftirlitskenn-
ari í Vestur-Húnavatnssýslu 1932-33
en kenndi eftir það á Akranesi, við
Barnaskólann og Iðnskólann. Guð-
mundur var sonur Bjöms Jónsson-
ar, f. 21.11. 1866, d. 4.5. 1938, bónda í
Núpsdalstungu í Miðfirði, og k.h.,
Ásgerðar Bjarnadóttur, f. 24.8. 1865,
d. 26.9. 1942, húsfreyju.
Böm Pálínu og Guð-
mundar eru Ormar
Þór, f. 2.2. 1935, arki-
tekt í Reykjavík,
kvæntiu- Kristínu Val-
týsdóttur ferðaráðgjafa
og em böm þeirra Sif,
Harri, Orri Þór og
Björk; Gerður Birna, f.
2.4. 1938, snyrtifræð-
ingur í Reykjavík, gift
Daniel Guðnasyni
lækni og em böm
þeirra Guðríður Anna,
Guðni Páll, Guðmund-
ur og Þórhildur Mar-
grét; Bjöm Þorsteinn,
f. 13.7. 1939, lagapró-
fessor í Reykjavík,
kvæntur Þórunni
Bragadóttur deildarstjóra og eru
synir þeirra Guðmundur og Bragi;
Ásgeir Rafn, f. 18.5. 1942, fram-
kvæmdastjóri á Akranesi, kvæntur
Fríðu Ragnarsdóttur bankamanni
og era börn þeirra Ragnheiður,
Pálína og Ásgeir; Atli Freyr, f. 3.4.
1948, skrifstofustjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Þorgerði Jónsdóttur
læknaritara og em böm Atla Freys
og fyrri konu hans, Halínu Boga-
dóttur, þau Svava María og Guð-
mundur Páll en dóttir Þorgerðar er
Sigríður Ama.
Afkomendur Pálínu og Guðmund-
ar eru nú fjörutíu og einn talsins.
Systkini Pálínu: Skúli Þorsteins-
son, f. 24.12.1906, d. 1973, skólastjóri
á Eskifirði og námsstjóri, var
kvæntur Önnu Sig-
urðardóttur, forstöðu-
konu Kvennasögu-
safnsins; Friðgeir
Þorsteinsson, f. 15.2.
1910, útvegsbóndi og
fyrrv. útibússtjóri
Samvinnubankans á
Stöðvarfirði, var
kvæntur Elsu Sveins-
dóttur sem er látin;
Halldór Þorsteinsson,
f. 23.7. 1912, d. 1983,
vélvirki á Akranesi,
var kvæntur Rut Guð-
mundsdóttur; Anna
Þorsteinsdóttir, f. 8.4.
1915, prófastsfrú, gift
Kristni Hóseassyni,
fyrrv. prófasti í Hey-
dölum;Bjöm Þorsteinsson, f. 22.5.
1916, d. 1939; Pétur Þorsteinsson, f.
4.1. 1921, d. 1993, sýslumaður í Búð-
ardal, var kvæntur Björgu Rík-
harðsdóttur.
Foreldrar Pálínu voru Þorsteinn
Þorsteinsson Mýrmann, f. 12.5.1874,
d. 28.9. 1943, frá Slindurholti í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, kaupmaður og
bóndi á Óseyri í Stöðvarfirði, og
k.h., Guðríður Guttormsdóttir, f.
30.4. 1883, d. 27.1. 1975, húsfreyja.
Ætt
Þorsteinn Mýrmann var sonur
Þorsteins, b. í Slindurholti á Mýr-
um í Austur-Skaftafellssýslu Þor-
steinssonar. Móðir Þorsteins í
Slindurholti var Sigríður Jónsdótt-
ir, prests á Kálfafellsstað Þorsteins-
sonar.
Móðir Þorsteins Mýrmanns var
Valgerður Sigurðardóttir, Eiríks-
sonar, Einarssonar. Móðir Eiriks
var Þórdís, systir Jóns Eiríkssonar
konferensráðs. Móðir Valgerðar var
Valgerður Þórðardóttir, systir
Sveins, afa Þórbergs Þórðarsonar.
Guðríður var dóttir Guttorms
prófasts á Stöð Vigfússonar, pr. í
Ási Guttormssonar, prófasts í Valla-
nesi Pálssonar. Móðir Guttorms var
Björg Stefánsdóttir, prófasts á Val-
þjófsstöðum Ámasonar, pr. í
Kirkjubæ í Tungu Þorsteinssonar.
Móðir Stefáns var Björg Pétursdótt-
ir, sýslumanns á Ketilsstöðum á
Völlum Þorsteinssonar.
Móðir Guðríðar var Þórhildur
Sigurðardóttir, b. á Harðbak á
Sléttu Steinssonar, b. á Harðbak Há-
konarsonar. Móðir Steins var Þór-
unn Stefánsdóttir, prests á Presthól-
um Scheving. Móðir Þórhildar var
Friðný Friðriksdóttir, b. í Klifshaga
Ámasonar og Guðnýjar Björnsdótt-
ur, b. í Haga í Reykjadal. Móðir
Guðnýjar var Sigurlaug Amgrims-
dóttir, b. á Hrafnabjörgum í Hlíð
Runólfssonar, b. S Hafrafellstungu
Einarssonar „galdrameistara” og
pr. á Skinnastað Nikulássonar.
Móðir Arngríms var Björg Arn-
grímsdóttir, sýslumanns á Stóru-
Laugum í Reykjadal Hrólfssonar.
Pálina verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Pálína Þorsteinsdóttir.
Jóhanna D aní elsdóttir
Jóhanna Sigríður
Daníelsdóttir, húsmóð-
ir að Vesturbrún 9,
Flúðum, verður fimm-
tug á föstudaginn.
Starfsferill
Jóhanna fæddist að
Efra-Seli í Hruna-
mannahreppi og ólst
þar upp í foreldrahús-
um við öll almenn
sveitastörf. Hún var í
Barnaskólanum á
Flúðum og stundaði
nám við Héraðsskól-
ann á Laugarvatni.
Jóhanna stundaði
verslunarstörf hjá
KRON í Reykjavík á
árunum 1965-70 og
starfaði síðan við
verslunina Grand á
Flúðum í átján ár. Þá
starfaði hún í mötu-
neyti og stundaði
skrifstofustörf hjá
verktakafyrirtæki á
Flúðum um þriggja
ára skeið.
Jóhanna hefur starfað
á vegum Rauðakross-
Jóhanna Daníelsdóttir. deUdar Árnesinga> sat
þar í stjórn og var gjaldkeri félags-
ins í nokkur ár.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 1971 Jóni Hreiðari
Kristóferssyni, f. 15.7. 1941, d. 13.9.
1991, bifreiðastjóra hjá Landleiðum.
Hann var sonur Kristófers Ingi-
mundarsonar, bónda á Grafarbakka
í Hrunamannahreppi, og k.h., Krist-
ínar Jónsdóttur húsfreyju.
Böm Jóhönnu og Jóns em Birgir
Þór, f. 20.9.1970, nemi og starfsmað-
ur hjá Flúðasveppum; Kristín Ásta,
f. 20.11.1980, nemi í Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Systkini Jóhönnu eru Helgi Er-
ling, f. 4.7. 1938, verkamaður á Efra-
Seli; Ásdís, f. 27.2. 1940, starfsmaður
hjá Pósti og síma og húsmóðir í
Kópavogi; Ástríður, f. 30.1. 1948,
húsfreyja að Efraseli.
Foreldrar Jóhönnu: Daníel Frið-
rik Guðmundsson, f. 23.12. 1909, d.
29.5. 1993, bóndi og oddviti að Efra-
Seli, og k.h., Ástríður Guðmunds-
dóttir, f. 28.4. 1911, húsfreyja að
Efra-Seli.
Jóhanna og tvíburasystir hennar,
Ástríður, verða með opið hús í fé-
lagsheimilinu á Flúðum, laugar-
dagsmorgiminn 31.1. milli kl.
9.00-13.00.
Ástríður Daníelsdóttir
Ástríður Guðný Daníelsdóttir,
húsfreyja að Efra-Seli í Hrana-
mannahreppi, verður fimmtug á
föstudaginn.
Starfsferill
Ástríður fæddist á Efra-Seli og
ólst þar upp við öll almenn sveita-
störf. Hún var í Bamaskólanum á
Flúðum, stundaði nám við
Hérðasskólann á Laugarvatni og
síðan við Húsmæðraskóla Reykja-
víkur.
Ástríður stundaði verslunarstörf
í Reykjavík i nokkur ár en hóf bú-
skap með manni sínum að Efra-Seli
1967 og hefur hún verið þar hús-
freyja síðan. Þau eru nú að mestu
hætt hefðbundnum búskap en Ásta
stundar garðyrkjustörf að Flúðum
auk þess sem þau hjónin sjá um
veitingarekstur og golfvöll í Sels-
landi.
staögreiöslu
og greiöslukortaafsláttur oM milli hirnj^ _
og stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
OVi
550 5000
Astríður hefur starf-
að í Kvenfélagi Hruna-
manna um árabil og
sat í stjóm þess auk
þess sem hún situr í
stjórn Golfklúbbs
Flúða.
Fjölskylda
Eiginmaður Ástríð-
ar er Halldór Elís
Guðnason, f. 21.11.
1945, bóndi, húsgagna-
smiður og vallarstjóri
að Efra-Seli. Hann er
sonur Guðna Þórs
Jónssonar, smiðs á
Vopnafirði og i Reykja-
vík og k.h., Halldóra
Geirsdóttur húsmóður.
Böm Ástríðar og Halldórs eru
Daníel, f. 30.4.1970, skrifstofumaður
á Selfossi en unnusta hans er
Brynja Bergsveinsdóttir og er sonur
þeirra Hákon Egill, f. 1.4. 1995 auk
þess sem sonur Brynju er Aron
Kristinn; Halldóra, f. 2.11.1974, hús-
Astríður Daníelsdóttir.
Áslaugar
móðir á Efra-Seli en
unnusti hennar er
Unnsteinn Logi Egg-
ertsson og er dóttir
þeirra Áslaug Guðný,
f. 28.6. 1997.
Systkini Ástríðar eru
Helgi Erling, f. 4.7.
1938, verkamaður á
Efra-Seli; Ásdís, f.
27.2.1940, starfsmaður
hjá Pósti og síma og
húsmóðir í Kópavogi;
Jóhanna Sigríður, f.
30.1. 1948, húsmóðir á
Flúðum.
Foreldrar Ástríðar;
Daníel Friðrik Guð-
mundsson, f. 23.12.
1909, d. 29.5. 1993, bóndi og oddviti
að Efra-Seli, og k.h., Ástríður Guð-
mundsdóttir, f. 28.4. 1911, húsfreyja
að Efra-Seli.
Ástríður og tvíburasystir hennar,
Jóhanna, verða með opið hús í fé-
lagsheimilinu á Flúðum, laugar-
dagsmorguninn 31.1. milli kl.
9.00-13.00.
Hl hamingju
með afmælið
28. janúar
90 ára
Valgeir Jónasson,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
85 ára
Sesselja Sigvaldadóttir,
Krammahólum 6, Reykjavík.
80 ára
Bergþóra Pálsdóttir,
Eskifjaröarseli, Eskifirði.
Oddný Sigtryggsdóttir,
Miðbraut 4, Seltjarnarnesi.
Sigursteina Jörgensdóttir,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
75 ára
Amflnnur Arnfinnsson,
Skarðshlíð 12 C, Akureyri.
Hjalti ísfeld Jóhannsson,
Skeiðarvogi 133, Reykjavík.
Sigvaldi S. Sæmundsson,
Brimnesvegi 24, Ólafsfirði.
70 ára
Hákon Bjarnason,
Hlif 2, Torfnesi, Ísaífirði.
Hildegard Jónsson,
Hamraborg 26, Kópavogi.
Jytta J. Jensen,
Jöklaseli 3, Reykjavík.
60 ára
Sveinn Guðbjartsson,
Klettahrauni 5, Hafnarfirði.
50 ára
Ásta Guðmundsdóttir,
Næfurási 14, Reykjavik.
Bára Guðrún
Sigurðardóttir,
Vestursíðu 14b, Akureyri.
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Skútahrauni 3, Hafharfirði.
40 ára
Benedikt Benediktsson,
Dísarási 12, Reykjavík.
Einar Jónsson,
Spóarima 17, Selfossi.
Guðmundur Árnason,
Beigalda, Borgarhreppi.
Gunnar Þór Gunnarsson,
Furagerði 23, Reykjavík.
Hafdís Ævarsdóttir,
Suðurgarði 6, Keflavík.
Helga Sigurlaug
Aðalgeirsdóttir,
Helgalandi 2, Mosfellsbæ.
Ingibjörg B.
Steingrímsdóttir,
Gullteigi 6, Reykjavík.
Iwona Jagla,
Hörpugötu 14, Reykjavík.
Jón Sigurðsson,
Álfatúni 6, Kópavogi.
Ómar Baldursson,
Simnubraut 17, Keflavik.
Rósa Steinunn Jónsdóttir,
Álagranda 20, Reykjavík.
Rúnar Gústafsson,
Bogasíðu 8, Akureyri.
Sigurður R. Lúðvíksson,
Ennisbraut 10, Ólafsvík.
IJrval
— gott í Hægindastólinn