Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 4
4
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Dómsmálaráðherra á Hólmavík:
Sýsl u mannsf I u t n-
ingur óhaggaður
Frá fundi dómsmálaráðherra meö Strandamönnum þar sem fram kom að afstaða bæði ráð-
herra og heimamanna er óhögguð og Sigurður sýslumaður fer þvt vestur. Hér eru þeir Þor-
steinn Pálsson dómsmáiaráðherra, Þorsteinn Geirsson ráöuneytisstjóri, Ólafur Þór Hauksson,
núverandi sýslumaður á Hólmavík, og Björn H. Karlsson héraösráðsmaður. DV-mynd Guð-
finnur
DV, Hólmavík:
Ráðherra dómsmála, Þorsteinn
Pálsson, ásamt ráðuneytisstjóran-
um í dómsmálaráðuneytinu sýndu
Strandamönnum þann heiður um
helgina að sækja þá heim þar sem
menn skiptust á skoðunum um
svonefnt sýslumannsmál, mál sem
gárað hefur meira mannlífsvötnin
um byggöir Vestfjarða undanfarna
daga en gerst hefur í annan tíma.
Þorsteinn Pálsson sagði fundinn
með héraðsráði Strandamanna hafa
verið mjög gagnlegan, sjónarmið
ráðuneytisins hefðu verið skýrð í
þessu máli og athugasemdir heima-
manna verið mótteknar og þær
ræddar. Starfsmönnum ráðuneytis-
ins þætti miður hversu mikilli óá-
nægju vígslun sýslumanna á
Hólmavík og Akranesi hefði valdiö
meðal Strandamanna. Vilji ráðu-
neytisins stæði ekki til annars en að
þessi mikilvæga þjónusta yrði eins
vel af hendi leyst og nokkur kostur
er, í þeim efnum myndi ráðuneytið
styðja við bakið á Strandamönnum
og veita þeim alla þá liðveislu sem
það gæti. Ákvörðuninni sem tekin
hefur verið um sýslumannsskiptin
verði hins vegar ekki breytt.
„Það kom skýrt fram hjá okkur
að við erum fyrst og fremst óánægð
með þessa ákvörðun ráðherra og
við lýstum því yfir margsinnis og
óskuðum að hann breytti þessari
ákvörðun sinni og báðum hann
lengstra orða þess að Strandamenn
þyrftu ekki að
blandast inn í
þessa deilu ráðu-
neytisins og sýslu-
mannsins á Akra-
nesi. Við vorum
alls ekki að setja
okkur í neitt dóm-
arasæti yfir þeim
manni, til þess
hefðum við
hvorki burði né
nokkra getu,“ seg-
ir Þór Öm Jóns-
son, fram-
kvæmdastjóri
héraðsráðs
Strandasýslu, um
væntanlegan til-
flutning sýslu-
mannanna á
Hólmavík og
Akranesi.
„Við létum á
okkur skiljast að verði ekki á þessu
breyting þurfi að útskýra hana fyr-
ir Strandamönnum, nokkurt verk
sé þar óunnið sem ráðherra þurfi þá
að sinna,“ segir Þór Öm. -GF
Dagfari
Varaformaður íhaldsins
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
er loksins orðinn spámaður í eigin
foðurlandi.
Dagfari á að sönnu ekki við það
hefðbundna nærhald sem haldið
hefur hlýju á viðkvæmustu pörtum
íslenskra víkinga gegnum naprar
aldir, enda engar heimildir um að
Hannes taki íslenska ull fram yfir
útlent silki til þess göfuga
hlutverks.
Nei, hér á Dagfari, sem er gamall
aðdáandi Hannesar, við þá
einstöku spádómsgáfu sem birtist í
framsýni doktorsins fyrr á þessum
vetri. Þá lýsti prófessorinn yfir að
besta svar stjómarflokkanna
tveggja við samrunadansi vinstri
flokkanna væri auðvitað að
Framsóknarflokkurinn rynni í
heilu lagi inn í Sjálfstæðisflokkinn.
Hannes Hóhnsteinn er að sönnu
gáfaðasti maður á íslandi eins og
hann hefur ekki þreyst á að henda
á síðustu áratugina. Sömuleiðis er
hann langklárasti fræðimaður
íslendinga á sviði þeirra stór-
merku vísinda sem á lærðu máli
nefnast stjómmálafræði, og gott ef
það gildir ekki um samanlagða
Evrópu norðan Alpa. Um það efast
fáir og síst hann sjálfur.
Því lögðu menn auðvitað við
hlustir þegar hinn vísi doktor
viðraði þessa nýstárlegu kenningu
í fjölmiðlum. Maður af hans
kalíber kemur ekki fram með
skoðanir af þessu tagi nema að
baki liggi fræðilegar rannsóknir.
Þó má draga í efa að þurft hafi
ljóngáfur prófessorsins eða
yfirburðaþekkingu hans á sviði
stjómmálafræði til að benda
þjóðinni á þau sannindi að Fram-
sóknarflokkurinn ætti hvergi
betur heima en í náðarfaðmi
Sjálfstæðisflokksins. Eftir þriggja
ára samstarf flokkanna þarf ekki
nema meðalgreindan sjimpansa til
að sjá það á löngu færi.
En nú hafa þau sögulegu tíöindi
gerst að Framsóknarflokkurinn
hefur fyrir sitt leyti fallist á
boðskap prófessors Hannesar. Það
gerðist í síðustu viku þegar Davíð
Oddsson kvaddi sér hljóðs á
Alþingi íslendinga og tilkynnti þau
tíðindi að þingflokkur Fram-
sóknarflokkins hefði fallist á að
hér eftir myndu þeir Halldór
Ásgrimsson verða staðgenglar
hvor annars.
Þetta þýðir að þegar Halldór
Ásgrímsson er erlendis, sem er
einn helsti dvalarstaður sérhvers
utanrikisráðherra, þá er formaöur
Sjálfstæðisflokksins í reynd æðsti
yfirmaður Framsóknarflokksins.
Þetta hlýtur að vera sérstakt
gleðiefni fyrir Framsóknarmenn
eins og Guðna Ágústsson og Stefán
Guðmundsson, sem hafa háð
marga kosningahildi undir hinu
gamla kjörorði Jónasar frá Hriflu
og Eysteins: „Allt nema íhaldið!"
Rótin að þessu öllu saman er þó
sú hefð Sjálfstæðisflokksins að þar
gegnir varaformaður jafnan stöðu
forsætisráðherra ef hann er
forfallaður. Bjöm Bjamason hefur
að sjálfsögðu litið á sig sem kjörinn
arftaka Friðriks Sophussonar sem
er á leið út úr stjórnmálum. Geir
H. Haarde, hinn nýbakaði
ráðherra, er á öðm máli. Þessir
heiðursmenn munu innan skamms
bítast um embætti varaformanns.
Fyrir Davíð var því úr sérlega
vöndu að ráða. En auðvitaö var hann
sammála vini sínum Hannesi um að
Framsókn á að verða partur af
íhaldinu með formlegum hætti enda
þegar orðinn að botnlanga á
flokknum. Hann leysti því málin með
þeim brilijant-hætti að gera Halldór
Ásgrímsson að staðgengli sínum.
Með þessu sló Davíð auðvitað
tvær flugur i einu höggi; kom í veg
fyrir slagsmál um varaformennsku
Sjálfstæðisflokksins og innlimaði
um leið Framsókn!
Dagfari leyfir sér þann munað
að óska Framsóknarflokknum
innilega til hamingju með þessa
brakandi snilld. Það er ekki á
hverjum degi sem formanni
Framsóknarflokksins hlotnast sú
upphefð að taka að sér
varaformennsku fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn!
En hvað skyldu þeir Hriflu-
Jónas og Eysteinn segja?
Dagfari
Eiríkur tekinn við
Eiríkur S. Jó-
hannsson, úti-
bússtióri Lands-
bankans á Akur-
eyri, tók á laug-
ardag formlega
við starfi kaupfé-
lagsstjóra Kaup-
félags Eyfirð-
inga, KEA, af Magnúsi Gauta
Gautasyni.
Sameining samþykkt
Sameining Starfsmannafélags-
ins Sóknar, Dagsbrúnar/Fram-
sóknar og Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum, samþykktu samein-
ingu í allsherjaratkvæðagreiöslu
með 85% atkvæða. Þátttakan var
dræm, aðeins 35,1% greiddu at-
kvæði. Almenn ánægja er með
þessa niðurstöðu.
Ókeypis skirteini
í tilefhi 80 ára afmælis Borgar-
bókasafhsins munu 7.000 karlar á
aldrinum 36-45 ára fá gjafabréf fyr-
ir bókasafhsskirteini og konum á
sama aldri verður boðin netkynn-
ing. Þá fá allir yngri en 18 ára
ókeypis bókasafnsskírteini.
Hnjúkalisti tilbúinn
Bæjarmálafélagið Hnjúkar á
Blönduósi hefur samþykkt fram-
boðshsta fyrir bæjarstjómarkosn-
ingamar. Efstu menn á lista em
Sturla Þórðarson, Jóhanna G.
Jónasdóttir, Þórdis Hjálmarsdótt-
ir, Valdimar Guðmannsson og
Björgvin Þórhallsson.
Óskalistinn klár
Þá er Óskalistinn á Fáskrúðs-
firði tilbúinn með sinn framboðs-
lista. Efstu menn þar em Helgi
Guðjónsson, Ólafúr Niels Eiríks-
son, Eygló Ægisdóttir, Kristmund-
ur Sverrir Gestsson og Sunna Lind
Smáradóttir.
Lausn frá störfum
Guðmundur
Bjamason um-
hverfisráðherra
hefurveittÁgústi
Guðmundssyni
lausn um stund-
arsakir frá emb-
ætti forstjóra
Landmælinga ís-
lands með vísun til skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um fjárhagsleg sam-
skipti hans við Landmælingar. Þrir
forstöðumenn sviða Landmælinga
gegna störfum forstjóra.
Sorpförgun í lagi
Frumathugun Skipulagsstofh-
unar á umhverfisáhrifum fyrir-
hugaðrar sorpfóigunar Byggða-
samlagsins Hulu í Eyjafjallahrepp-
um og nágrenni leiðir í ljós að
framkvæmdin raski hvorki jarð-
myndunum á uröunarsvæðum né
fomminjum.
Minna atvinnuleysi
Atvinnuleysi um síðustu mán-
aöamót var 3,1% á landinu og hef-
ur ekki verið minna síöan í nóv-
ember 1991 samkvæmt vinnu-
markaðskönnun Hagstofúnnar.
Þetta þýðir að um 4.700 einstak-
lingar hafi verið án vinnu.
Halldór hefur áhyggjur
Halldór Ás-
grímsson utan-
ríkisráðherra
lýsir yfir áhyggj-
um vegna auk-
innar spennu í
samskiptum
Rússa og Letta.
Hann harmar
sprengingar sem hafa átt sér stað í
Lettlandi. -ffl