Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Fréttir Hefði Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi: mátt koma I veg Landsbankamálið fýrir Hver ber ábyrgðina í Lands- bankamálinu? Það er spurning dagsins, en ljóst er að skýrsla Ríkis- endurskoðunar hefur verið notuð sem einhvers konar dómsúrskurður í málinu. Bankaráðið segir að skýrslan kvitti sig en hún leggur all- þungan dóm á herðar ytri og innri endurskoðenda bankans. Þeir síð- astnefndu kvarta hins vegar undan því að endurskoðun hafl verið mjög erfið því allar reglur hafi í raun skort. Ríkisendurskoðun hefur á undanförnum árum innleitt nýjar verklagsreglur í fjölda opinberra stofnana sem hafa gert alla endur- skoðun og innra eftirlit skilvirkara og öflugra. DV spurði Sigurð Þórðarson rík- isendurskoðanda hvort ekki hefði komið til mála að Ríkisendurskoð- un hefði lagt til eða hreinlega inn- leitt þessar reglur í Landsbankann: „Nei, nei, það hefur ekkert verið í umræðunni." - Af hverju kom það ekki til? „Það veit ég ekkert um, sennilega vegna þess að við vorum ekkert í þessari beinu vinnu við þessa end- urskoðun í bankanum." - En hefðu slíkar reglur ekki get- að komið í veg fyrir þessa uppá- komu í bankanum, ef slíkar reglur Sigurður Þórðarson. hefðu t.d. verið til staðar fyrir tveimur árum? „Jú, jú, það er alveg klárt. Það er alltaf hægt að vera vitur eftir á með þetta „ef ‘ úti um allt.“ - En þið hafið komið þessum verklagsreglum upp víða í opinber- um stofnunum: „Jú, jú, við höfum verið að koma þessu upp víða með aðstoð margra annarra, þá höfum við verið að vinna að auknu eftirliti." - Verður þetta þá tekið upp núna í verklagi innan bankans? „Var ekki verið á síðasta banka- ráðsfundi að ræða þetta? Hann bað okkur um það, nýi bankastjórinn að líta á það með sér hvemig eftirlits- deildin ætti að virka.“ - En það var sem sagt ekki í ykk- ar verkahring að gera tillögu um breytingar í þessa átt í bankanum? „Það má út af fyrir sig segja að þetta hafi verið í okkar verkahring, en við gerðum það ekki. Það er meira mál.“ - Það má segja að það hafi verið miður ?: „Já, já, eins og ég segi þá geta menn verið vitrir eftir á,“ sagði Sig- urður Þórðarson ríkisendurskoð- andi. -phh Framboð verkafólks Anna hjólar í „Mér líst mjög vel á þetta. Ég tel okkur eiga góða von í kosning- unum. Við höfum heimsótt vinnu- staði og fólk er mjög svekkt eftir síöustu samninga. Innan raða list- ans eru aðilar sem börðust gegn síðustu samningum," segir Anna Sjöfn Jónasdóttir, efsti maður á lista Framboðs verkafólks sem Sjöfn Halldór mun bjóða fram í Dagsbrúnar- kosningunum 24. og 25. aprO nk. 13 eru á lista Framboðs verka- fólks sem mun bjóða fram gegn núverandi stjórn A-lista. Anna Sjöfn mun bjóða sig fram til for- manns Dagsbrúnar gegn Halldóri Björnssyni, núverandi formanni. -RR Anna Sjöfn Jónasdóttir. SKÓHÖLLIIM St. 25-3 Kr. 2.29 EBB 1 áleggi I miA fylgir hverju pari Skemmuvegi 32 • S. 557 5777 Kringlan 8-12 • S. 568 6062 Bæjarhrauni 16 • S. 555 4420 KÓPAVOGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.