Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 7 sandkorn Samkomur Það er af sem áður var í Landsbankanum þegar sukk og hóglífi setti mark sitt á líferni bankastjómarinnar. Siðvæðing- in hefur nú flætt yfir bankann og nú er það trú- ræknin sem er í öndvegi. Helgi S. Guðmunds- son, formaður ! bankaráðs, er annálaður trú- maður og hag- ar lífi sínu sem slíkur fjarri glaumi veiðihúsanna. Þá er Halldór Jón Kristjánsson aðal- bankastjóri ekki síður staðfastur í trú sinni og líferni enda alinn upp í kenningum Sjöunda dags aðventista. Nú hefur bankaráð formlega tekið ákvörðun um að hætta laxveiðum og þess er beð- ið að fundir bankaráðs fái nýtt og virðulegra heiti í samræmi við breytta tíma. Þannig er talið við hæfi að í stað þess að skil- greina þá sem fundi verði nú tal- að um samkomur bankaráðs... Eimskip á Indlandi? Á vefnum er að flnna heima- síðu undir slóðinni www.eim- skip.com. Einhverjir kunna kannski að halda að Eimskip sé þarna með alþjóðlega síðu en svo er alls ekki. Þetta er heima- síða indverska kvik- myndafyrirtækisins AVM. Mörg ind- versk fyrirtæki hafa nefnilega stundað það að setja upp heima- síður með slóðum sem innihalda nöfn þekktra stórfyrirtækja. Tilgangurinn er að laða fólk að siðunum. AVM hefur því haft upp á Eim- skip og ákveðið að nota nafn þess í þessum tilgangi. Engum sögum fer hins vegar að þvi hvort þessi slóð hafi borið ein- hvem árangur. Yfir 6.000 manns hafa að vísu skoðað síðuna en ekki er vitað á hve löngum tíma... Moggafréttir Morgunblaðið er þekkt fyrir ítarlegar frásagnir af hinum margvíslegustu atburðum um heimsbyggðina. Heldur færðu menn sig upp á skaftið í sein- ustu viku þegar blaðið fjallaði um hinn ill- ræmda Pol Pot, fyrrum leiðtoga Rauðu khmer- anna. Á inn- síðum blaðsins var fjallaö um böðulinn og sagt að hann hefði fallist á að mæta fyrir alþjóða- dómstól vegna glæpa sinna. Á forsíðu sama blaðs greinir Mogg- inn síðan frá því að Pol Pot sé látinn. Þarna skildu um 25 blað- síður milli lífs og dauða... Á meðan Róm brennur HaUdór Runólfsson yfirdýra- læknir brá sér vestur um haf til Oregon á dögunum til að skoða hinn brottflutta Keikó. Það veltur á mati Halldórs hvort týndi son- urinn fær að snúa heim eður ei. Ekki eru þó allir jafn hrifn- ir af ferðalagi yfirdýralækn- is og segja honum nær að vera heima og huga að hrossa- sóttinni með því að reisa og fella varnargirðingar... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is Fréttir Forstjóri álversins í Straumsvík segir stefnuna vera reyklaust ÍSAL árið 2000: Ráðum frekar fólk sem ekki reykir Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, segir að fyrirtækið líti fremur til þeirra sem ekki reykja en þeirra sem það gera. Hún segir fyrirtækið stefna að því að það verði reyklaust árið 2000. „Við erum að ráða inn þessa dagana menn sem reykja. Þetta er því ekki alveg svo einfalt. Á hinn bóginn höfum við sagt við menn að við hefðum mikinn áhuga á að koma á reyklausu ÍSAL árið 2000. Við gerðum þeim grein fyrir því og að það væri þeirra val hvort þeir reyktu eða ekki. Þetta atriði er því ekki alveg klippt og skorið Rannveig Rist. og því er tekið tillit til fleiri at- riða.“ - En þið lítið fremur til þeirra sem ekki reykja en þeirra sem reykja: „Já, við gerum það að öðru jöfnu. Það er þó ekki þannig að reykinga- menn séu alveg klipptir út þó við vildum það gjarnan. Við höfum ver- ið að fjárfesta hér fyrir marga millj- arða á síðustu árum í alls konar búnaði til að bæta umhverfið og þar með heilsu fólks.“ - Hvað getur þú ímyndað þér að margir starfsmenn á þessu ári hefðu fengið framlengingu á tíma- bundinni ráðningu sinni ef þeir hefðu ekki reykt? „Ég hef enga tölu á því. Þetta er bara eitt af þeim atriðum sem mið- að er við. Þetta sjá menn auðveldast sjálfir. Þetta eru menn sem eru ráðnir tímabundið og þeir eru til- tölulega fáir. Auðvitað leita menn skýringa á því að þeir fá ekki fram- lengingu. En við erum ekki skuld- bundin til að gefa neinar nákvæmar útlistanir á því. Við stöndum við þá samninga sem við gerum en fram- lengjum ekki ef betri kostir eru í stöðunni," sagði Rannveig Rist. -Ótt Stærsta sportvöruverslun landsins! Með tilkomu VINTERSPORT á íslandi hefur þú aðgang að öllu því nýjasta á sviði íþrótta og útiveru. Þín frístund er okkar fag. I dag er opið frá 9 til 18. Opnum á morgun Id. 9. Jj&gikm. north(9)br< vs'sé&sssr SjHEWUNE' Okvis um COnVERSE 'o. www.intersport.is d"*90i,r ■ 5i9 frarn við að fa. . ' " ’ ****J..- ems hagaeða vorumerki íverslun sinni. Starfsmenn Interspórt leiðbeina þér um vöruúrvalið VINTERSPORT ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.