Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 8
8 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Útlönd Stuttar fréttir i>v Nýjar hugmyndir um lausn deilunnar fyrir botni Miðjarðarhafs: Netanyahu tilbúinn að fara til Lundúna Harmur kveðinn að Paul McCartney: Linda látin úr krabba Vill svör um flugvöll Færeyski jafnaöarmaðurinn Joannes Eidesgaard, sem situr á danska þinginu, vill fá svör frá samgönguráöherra Danmerkur um hver afstaða dönsku stjórnar- innar er til lengingar flugbrautar- innar á flugvellinum í Vágum. Uffe kveður Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráöherra Danmerkur, hefur nú form- lega látið af embætti leið- toga Venstre, stærsta stjórn- arandstöðu- flokksins. Á flokksþingi um helgina var Anders Fogh Rasmussen kjörinn i hans staö. Endurbætur í Kirkjubæ Færeyingar ætla á næstu árum að gera átak í að vemda rústimar af miðaldadómkirkjunni í hinni fornu víkingabyggð i Kirkjubæ, skammt frá Þórshöfn, svo þær megi verða heimamönnum og ferðamönnum augnayndi næstu árhundraðin. Raðmorðingi í lestum Mikill ótti greip um sig á Ítalíu í gær þegar blöð skýrðu frá því að kona hefði veriö myrt á laugardag á salerni lestar á ferð. Þetta var annaö morðið af þessu tagi á einni viku í norðvesturhluta Ítalíu. Auknar vonir um frið Kambódíumenn gera sér vonir um að friðvænlegra verði í landi þeirra eftir dauða hins alræmda Pols Pots, fyrrum leiðtoga Rauðu khmeranna. Reiði vegna morðs Mikil reiði er nú í Kólumbíu eftir morðið á einum helsta bar- áttumanni fyrir mannréttindum í landinu, lögfræðingnum Eduardo Umana Mendoza. Viðræður um verslun Leiðtogar Ameríkuríkja ákváðu á fundi sínum í Chile að heíja viðræður um stofnun stærstu fríverslunarsamtaka heimsins, frá Alaska til syðsta odda Suður-Ameriku. Á brattann að sækja Helmut Kohl Þýskalandskansl- ari viðurkenndi í gær að í kosn- ingabaráttunni ætti hann á bratt- ann að sækja. Helstu andstæðing- ar hans, jafnaðarmenn, njóta mun meira fylgis í könnunum. Havel á gjörgæslu Vaclav Havel Tékklandsforseta verður haldið sofandi á gjörgæslu næstu tvo daga og slím verður hreinsað úr lungum hans þrisvar á dag. Andófsmaður vestur Kínverski andófsmaðurinn Wang Dan, einn foringja lýðræð- ishreyfingar námsmanna á Torgi hins himneska friðar árið 1989, var látinn laus úr fangelsi um helgina og hélt til Bandaríkjanna þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús til eftirlits. Kíríjenkó brattur Sergei Kírijenkó sem Jeltsín Rússlandsforseti hefur þrisvar sinnum tilnefnt til embættis for- sætisráðherra sagðist í gær nokkuð viss um að neðri deild rússneska þingsins mundi samþykkja til- nefningu hans á fostudag. Þing- menn hafa tvisvar sinnum hafnað hinum unga Kíríjenkó. Klestil endurkjörinn Thomas Klestil var endurkjör- inn forseti Austurríkis í gær til næstu sex ára. Klestil fékk um 64 prósent atkvæða, nærri fimm sinnum meira en helsti keppi- nautur hans. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, sagðist í gær vera reiðubúinn að fara til Lundúna inn- an eins mánaðar til nýrra viðræðna um hvernig mætti þoka friðarvið- ræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs- ins áfram. Hann skýrði frá hugmyndinni á sameiginlegum fréttamannafundi með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem er á ferð um Mið- Austurlönd. Blair sagði boð Net- anyahus ákaflega mikilvægt. Ekki varð ráðið cif orðum leiðtog- anna hvort um yrði að ræða um- fangsmikinn leiðtogafund. Blair sagði þó að viðræðurnar ættu að byggjast á fyrirliggjandi tillögum bandarískra stjórnvalda. Hann sagði að Bretland mundi ekki gera neitt til að spilla fyrir við- leitni Bandaríkjamanna til að binda enda á þráteflið sem hefur ríkt í meira en ár í friðarviðræðum ísra- ela og Palestínumanna. „Ég er reiðubúinn að fara hvert á land sem er hvenær sem er innan eins mánaðar, hugsanlega til Lund- úna, til að þoka friðarferlinu áleið- is,“ sagði Netanyahu. Saed Erekat, einn helsti samn- ingamaður Palestínumanna, tók til- lögu Netanyahus heldur fálega. „Ég vildi óska þess að Netanyahu færi að einbeita sér að efnisatriðun- um en ekki bara formsatriðunum," sagði Erekat við fréttamann Reuters-fréttastofunnar. Benjamin Netanyahu og Tony Blair ræddust viö í ísrael í gær. Talsmaður Blairs sagði að hug- myndin um Lundúnafund hefði komið upp í rúmlega tveggja tíma löngum viðræðum forsætisráðherr- anna tveggja. Blair hefði boðið Lundúnir fram sem fundarstað en ekki væri þó víst að hann mundi sjálfur stjórna viðræðunum. Fundur Blairs og Netanyahus var liður í ferð breska forsætisráðherr- ans um Mið-Austurlönd þar sem hann kynnti hugmyndir Evrópu- sambandsins um að blása nýju lífi í friðarviðræðumar. Bretar eru nú í forsæti ESB. Dennis Ross, sendimaður Banda- ríkjastjórnar, er væntanlegur til Mið-Austurlanda í næstu viku til frekari viðræðna við ráðamenn. Borís Jeltsín Rússlandsforseti þarf ekki aö krækja í neina stórlaxa til að gleðjast yfir fengnum afla. í heimsókn sinni til Ryutaros Hashimotos, forsætisráðherra Japans, fékk Jeltsín tækifæri til að renna fyrir fisk. Hashimoto þykir greinilega mikið til afla gests síns koma, ef marka má viöbrögð hans. Símamynd Reuter Linda McCartney, eiginkona bít- ilsins Pauls McCartneys, er látin, aðeins 56 ára að aldri. Banamein hennar var krabbamein. Linda lést í Santa Barbara í Kali- forníu snemma á föstudagsmorgun en ekki var skýrt frá dauða hennar fyrr en síðdegis i gær. Linda greindist með brjóstakrabba árið 1995. Hún gekkst undir meðferð og svo virtist sem hún hefði náð sér. „En því miður kom í ljós í mars að krabbameinið hafði komist í lifrina," segir í til- kynningu sem blaðafulltrúi Pauls sendi frá sér í gær. Þau Paul og Linda höfðu verið í frii í Santa Barbara dagana áður en kallið kom. Þau höfðu meira að segja farið í útreiðartúr tveimur dögum áður en hún lést. Hjónin höfðu verið saman í þrjá- tíu ár og allan þann tíma höfðu þau verið aðskilin aðeins eina nótt. Paul og börn þeirra Lindu eru nú saman í Santa Barbara þar sem þau reyna að hugga hvert annað. Paul McCartney og Linda eiginkona hans á góðum degi. Linda lést úr krabbameini vestur í Kaliforníu á föstudag. „Allir sem þekkja fjölskylduna vita hversu samhent hún var svo þetta er hræðilegt áfafl fyrir þau öll. Þau hafa því beðið um að fá að vera í friði,“ sagði talsmaðurinn. Linda var Ijósmyndari að atvinnu þegar þau Paul kynntust. Hún var einn erfingja Kodak-auðævanna. Hin síðari ár framleiddi hún græn- metisrétti undir eigin nafni. Slegist um unga fólkið á vinnu- markaðinum Hið opinbera í Danmörku er til- búið að fara í launastríö við fyrir- tæki í einkageiranum til að tryggja sér ungt fólk til starfa í framtíðinni. Bæði bæjar- og sveitarstjómir og ríkið vilja greiða hærri laun ef unga fólkið hefur áhuga á að ger- ast hjúkrunarfræðingar, kennar- ar og fulltrúar. Komandi árgangar ungs fólks eru mjög fámennir og eftir aðeins fimm til átta ár verður meiri eft- irspum eftir ungu fólki til starfa en framboðið er. Þetta kemur fram í könnun sem danska blaðið Jyllands-Posten hefur gert. Leiðtogar Sinn Fein fylgjandi friðarsamningi Sinn Fein, pólitískur armur írska lýðveldishersins (IRA), frestaði atkvæðagreiðslu um ný- gert friðarsamkomulag. Helstu leið- togar flokksins lýstu hins vegar yf- ir stuðningi sinum við samkomu- lagið á þingi Sinn Fein í Dyflinni. Gerry Adams, leiðtogi flokks- ins, visaði í baráttu Nelsons Mandela, for- ’ seta Suður-Afr- íku, fyrir því að græða sár kyn- þáttaaðskilnað- arstefnunnar þegar hann reyndi að fá kaþólska lýð- veldissinna til að fylkja sér að baki friöarsamkomulaginu. David Trimble, leiðtoga stærsta flokks mótmælenda sem vilja áframhaldandi tengsl við Bret- land, tókst að fá flokksráð sitt til að lýsa yflr stuðningi sínum við samkomulag á laugardag. Stuðn- ingur Sinn Fein er þó nauösynleg- ar ef takast á að binda enda á þriggja áratuga vigaferli á Norð- ur-írlandi sem hafa kostað 3.200 mannslíf. Clinton hafnaði Kama Sutra Bill Clinton Bandaríkjaforseti skilaði umsvifalaust eintaki af hinni fomu indversku kynlifsbók Kama Sutra sem argentískur blaðamaður rétti honum í Chile um helgina. Clinton þótti greini- lega nóg um kápumyndina á bók- inni, af pari í innilegum faðmlög- um. Blaðamaðurinn er þekktur fyrir að reyna að koma stjóm- málamönnum í klemmu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.