Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 14
14 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Sflórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar plmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centnjm.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Einstakt tækifæri íslendinga íslendingar hafa nú sérstakt tækifæri til að taka forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn mengun hafanna. Það opnaðist í samtölum Kofis Annans, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, í New York í síðustu viku. Kofi Annan tjáði forsetanum að Sameinðu þjóðirnar teldu æskilegt að íslendingar tækju að sér alþjóðlega forystu um mótun skynsamlegrar stefnu varðandi nýtingu á auðlindum hafsins. íslensk stjómvöld eiga að stökkva á þetta tækifæri. Slík stefna verður ekki mótuð nema varnir gegn mengun hafsins séu efst á baugi. Öðmvísi stendur hún ekki til framtíðar. Það skilja íslendingar sem fyrstir vöktu máls á hinni miklu hættu af völdum lífrænna þrávirkra efna. Elu heilli skilja það alltof fáir aðrir. Kofi Annan hefur á stuttum ferli í núverandi embætti sýnt að hann er framsýnn stjórnandi sem lætur verkin tala. Þess vegna má ekki afgreiða ósk hans sem hvert annað kurteisishjal erlends fyrirmanns. Hann þekkir til íslands og veit hvað við höfum að bjóða. Vamir gegn mengun hafsins njóta allt of lítillar athygli alþjóðastofnana sem þar að auki beita rangri forgangsröðun. Taki íslendingar að sér verkefnið sem Kofi Annan hefur nú boðið geta þeir komið nýjum og brýnni viðhorfum fremst á forgangslistann. Utanríkisþjónustan á því að gera það að sérstöku verkefni að þróa þetta einstæða tækifæri. Hún þarf þegar í stað að taka upp viðræður gegnum sendiráð okkar við Sameinuðu þjóðimar um hvemig íslendingar geti sinnt þessu nýja hlutverki sínu. Þær eiga að snúast um hvaða stöðu íslandi verði sköpuð innan þeirra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem fara með umhverfismál. Það þarf að vera ljóst með hvaða hætti hugmyndir okkar verði ofnar inn í stefnu þeirra og hvemig þeim verður hrint í framkvæmd. Orðstír okkar varðandi uppbyggingu viðkvæmra fiski- stofna fer vaxandi. í þeim efnum stendur enginn okkur á sporði. Þegar velferð hafsins er annars vegar er hlustað á ísland. Þessa stöðu getum við notfært okkur til að breyta áherslum um mengunarvarnir gagnvart hafinu. Sameinuðu Þjóðimar em í sífelldum flárkröggum. Þess vegna munu möguleikar okkar til að nýta tækifærið sem Kofi Annan býður helgast nokkuð af því fjármagni sem við erum sjálf reiðubúin til að verja til verksins. Það má ekki verða að farartálma. Nýlega kynnti ríkisstjómin hugmyndir um verulega aukningu á utanríkisþjónustunni, með nýjum sendi- ráðum og auknum fjölda starfsfólks. Kostnaðaraukinn af breytingunni er metinn á 300 milljónir króna árlega. Engum fannst það sérstakt áhorfsmál. Sú forysta sem íslandi býðst að taka um vemd auðlinda hafsins og þar með um varnir gegn frekari mengun þess er líkleg til að kosta margfalt minna árlega. Hún mun hins vegar skila margfalt meiru, ekki síst þegar horft er til lengri framtíðar. Röng forgangsröðun í vörnum gegn mengun hafsins birtist meðal annars í eftirfarandi: Þrátt fyrir marga alþjóðlega samninga, sem miða að takmörkun á losun efna sem menga hafið, þá fjallar enginn um verulega takmörkun á losun lífrænna þrávirkra efna. í þeim felst þó gríðarleg hætta fyrir norðurhöfm. íslendingar vöktu fyrstir eftirtekt heimsins á því. Nú eiga þeir að fylgja því eftir gegnum það tækifæri sem bauðst í samtölum Ólafs Ragnars Grímssonar og Kofis Annans. Össur Skarphéðinsson Um miöjan áttunda áratug haföi sú hégiija gengiö sér til húöar meöal íslendinga, aö bandaríski herinn væri á Keflavíkurflugvelli til aö tryggja varnir og öryggi íslands, enda kom haldleysi þeirrar bábilju berlega í Ijós í þorskastríöunum viö Breta. Spurt um sjálfsvlrðingu arðar króna runnið frá setuliðinu beint inní efnahagskerfið, og geta menn þá gert sér í hugarlund hver muni hafa verið ágóð- inn af herstöðinni á árunum 1951-81, ágóði sem fyrst og fremst rann í vasa þeirra gæðinga helminga- skiptaflokkanna, Sjálf- stæðisflokks og Fram- sóknarflokks, sem komust á spenann í öndverðu og tryggðu sér einokunaraðstöðu til að „mjólka helvítis Kanann", einsog einn af formælendum Al- þýðusambands íslands „íslendingar hafa aldrei verið annað en peð í valdatafli stór* veldanna, en öfugt við margar aðrar þjóðir hins vestræna heims, sem státað geta af ofur■ lítilli sjálfsvirðingu, ganga full- trúar íslensku þjóðarinnar með betlistaf fyrir valdsherrana í Washington.” Kjallarinn Sigurður A. Magnússon rithöfundur Sú ógnvænlega fregn flaug fyrir snemma í mars, að bandarísk stjómvöld hygðust draga úr hem- aðarumsvifum á Keflavíkurflug- velli. Fregnin var strax borin til baka af talsmanni utanríkisráðu- neytisins sem fullvissaði lands- menn um, að allt mundi sitja við sama frammyfir aldamót. Væntan- lega andaði allur þorri þjóðarinn- ar léttar! Sú var tíð að formælendur her- setunnar báru kinnroða fyrir und- irlægjuháttinn sem lýsti sér í þeim algera viðsnúningi sem varð frá- þvi i mars 1949, þegar lýst var yfír afdráttarlaust að hér yrði aldrei erlendur herafli á friðartímum, þartil í júní 1951 þegar erlendum her var laumað inní landið, að Al- þingi fomspurðu, og stjómarskrá lýðveldisins þarmeð þverbrotin. Reynt var að berja i bresti fátæk- legrar röksemdafærslu með þeirri staðhæfingu, að aðstaðan á Kefla- víkurflugvelli væri lágmarksfram- lag íslendinga til sameiginlegra vama lýðræðisþjóðanna, en vand- lega þagaö um fríðindin sem Loft- leiðir, Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Samband íslenskra sam- vinnufélaga fengu vestanhafs í skiptum fyrir þjónkun íslenskra stjómvalda við bandaríska hags- muni. Sérkennilegt framlag Þegar frá leið reyndist erfitt að veifa framlagi íslendinga, meðþví spillingin kringum herstöðina varð fljótlega uppvís. Sú spilling hefur nú grassérað i samfleytt hálfan fimmta áratug með afleið- ingum sem landslýð ættu að liggja í augum uppi. Þegar spillingarfor- kólfar fslenskra aðalverktaka skiptu fyrir fimm ámm með sér skattlausum 900 milljónum króna, sem vitaskuld vora bara toppur- inn á ísjakanum, vora menn löngu hættir að tala um framlag fslend- inga til sameiginiegra vama. Um svipað leyti kom á daginn að á ár- unum 1981-93 hefðu tæpir 40 millj- orðaði það, þegar hann hóf að pré- dika aronskuna á fundum uppúr 1970. Forgangsskotmark Um miðjan áttunda áratug hafði sú hégilja gengið sér til húðar meðal íslendinga, að bandaríski herinn væri á Keflavíkurflugvelli til að tryggja varnir og öryggi ís- lands, enda kom haldleysi þeirrar bábilju berlega í ljós í þorskastríð- unum við Breta. Jafnvel tryggustu NATO- sinnar voru farnir að við- urkenna að herstöðin hlyti aö verða forgangsskotmark í kjam- orkustríði tröllveld- anna. En þessir sömu menn vildu fyrir hvern mun fá að deyja með sínum vesturheimsku hug- sjónabræðrum. Þá þegar var orðið dag- fjóst öllum almenn- ingi að herstöðin í Miðnesheiði væri hlekkur í varnar- kerfi Bandaríkjanna og kæmi íslending- um aðeins óbeint við. Á þessu hnykkti Josef Luns fram- kvæmdastjóri NATO árið 1975, þegar hann upplýsti að herstöðin í Keflavik sparaði bandarískum skatt- borgurum 22 millj- arða dollara árlega, því án hennar yrðu Bandaríkin neydd til að hafa sex til sjö flugvélamóöur- skip á Norður-Atl- antshafi til að gegna þeim njósna- og eftirlitsstörfum sem unnin væru frá Keflavik. íslendingar hafa aldrei verið annað en peð í valdatafli stórveldanna, en öf- ugt við margar aðrar þjóðir hins vestræna heims, sem státaö geta af ofurlítilli sjálfsvirðingu, ganga fulltrúar islensku þjóðarinnar með betlistaf fyrir valdsherrana í Washington og sárhæna þá um aukin hernaðarumsvif á sama tíma og allar aðstæður og hlutfóll í alþjóðamálum hafa tekið gagn- gemm breytingum og horfa til friðsamlegri framvindu. Hinsveg- ar er alls óvíst að húsbændurnir í Washington taki svo blygðunar- lausum og þýlyndum betlurum feginsamlega. Sigurður A. Magnússon Skoðanir annarra Samkeppnishæfni atvinnuveganna Eftir bakslag samdráttaráranna 1986 til 1994 hefur íslenskt atvinnu- og efnahagslíf þróast til frjálsræð- is, markaðsbúskapar og samkeppni með tilheyrandi hagsæld. Ef festa á „góðærið" í sessi fram á nýja öld þarf að halda áfram á þessari braut - tryggja sam- keppnishæfni íslenskra atvinnuvega og stöðuglei- kann í efnahagslífmu til langrar framtíðar. Úr leiðara MBL 17. apríl. Lestur dagblaða meiri Athyglisvert er að lestur dagblaða er mun meiri á Norðurlöndum en viðast hvar í öðrum Evrópulönd- um og að þjóðir Evrópu em helmingi meiri blaðales- endur en íbúar í Bandciríkjunum og Kanada en þar er að sama skapi meira horft á sjónvarp. Stefán Ólafsson í Prentaranum. Hvað er í blýhólknum? Það þarf að rannsaka fortíðina, bæði víðar en í Landsbankanum og lengra aftur í tímann en sem nemur bankastjóratíð Sverris Hermannssonar - ekki til þess að hefja nornaveiðar, heldur til þess að við vitum hvar við stöndum og hvar við getum í raun og veru byrjað að byggja þann siðferðisgrund- völl sem nú örlar loksins á. Alþingi hefur greinilega ekki verið tekið ýkja hátíðlega hingað til sem sið- ferðileg eftirlitsstofnun með ríkinu, enda hefur það svo sem ekki gefið tilefni til þess fram að þessu. Illugi Jökulsson í Degi 17. apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.