Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Síða 19
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
19
Fréttir
Á Húsavík er uppi krafa um að leikskólagjöld verði lækkuð.
Verslunarmannafélag Húsavíkur:
Leikskólagjöld
verði lækkuð
DV, Akureyri:
Verslunarmannafélag Húsavikur
hefur lýst yfir vonbrigðum sínum
með þá ákvörðun bæjarstjórnar
Húsavikur að lækka ekki leikskóla-
gjöld eins og félagið hefur lagt til.
Stjórn félagsins væntir þess að gjald-
skrár leikskóla verði leiðréttar við
endurskoðun fjárhagsáætlunar bæj-
arins í haust þannig að foreldrar á
Húsavík séu ekki að greiða hærra
gjald en foreldrar í öðrum sambæri-
legum sveitarfélögum.
í bréfi verslunarmannafélagsins
til bæjarstjórnar segir að í könnun á
gjaldskrám leikskóla sem gerð var í
febrúar hafi komið í ljós að leik-
skólagjöld væru einna hæst á Húsa-
vík af öllum sveitarfélögum og hafi
þessi niðurstaða komið á óvart.
Stjórn verslunarmannafélagsins
fór í framhaldi af því þess á leit við
bæjarstjórn að gjaldskráin yrði
lækkuð til samræmis við það sem al-
mennt gerist í öðrum sambærilegum
sveitarfélögum og var gerð tillaga
um 10% lækkun auk upptöku gjalds
fyrir 8 klukkustunda vistun.
„Fyrstu viðbrögð fulltrúa Húsa-
víkurkaupstaðar voru að tortryggja
könnunina og gefa sér að betri þjón-
usta væri veitt í leikskólum á Húsa-
vík en í öðrum sveitarfélögum.
Stjórn Verslunarmannafélags Húsa-
víkur er kunnugt um að mjög góð
þjónusta er á leikskólunum á Húsa-
vík en það er hún einnig hjá öðrum
sveitarfélögum þannig að yfirlýsing-
ar frá fagnefnd Húsavíkurkaupstað-
ar (leikskólanefnd) um að börn ann-
ars staðar fái ekki jafngott fæði og á
Húsavík eru í meira lagi undarlegar
og alrangar miðað við kannanir sem
félagið hefur gert,“ segir í bréfi
Verslunarmannafélagsins.
Þar segir einnig að í komandi bæj-
arstjórnarkosningum munu málefni
Qölskyldunnar verða í öndvegi. Því
beini félagið þeim eindregnu tilmæl-
um til frambjóðenda að huga sér-
staklega að málefnum þeirrá lág-
launaforeldra sem nýta sér þjónustu
leikskólanna á Húsavík. -gk
Frá undirritun. Gtsli Gíslason aö skrifa undir, Guðbjartur Hannesson og
Guömundur Páll Jónsson frá Akraneskaupstaö, Sigríöur Stephensen,
Agatha Þorleifsdóttir, Ingibjörg Sölvadóttir, Jenný Franklínsdóttir og Þórdís
Björnsdóttir, formaður Kvenfélags Akraness. DV-mynd Daníel
Akranes:
Bærinn og kvenfélagið semja
DV Akranesi:
Undirritaður hefur verið samn-
ingur á milli Kvenfélags Akraness
og Akraneskaupstaðar vegna Skóla-
brautar 11 og annar samningur um
afsal vegna lóðar og húseignar að
Akurgerði 7. Einnig var gengið
formlega frá afsali kvenfélagsins á
leikskólanum við Akurgerði til
Akraneskaupstaðar.
„Að forminu til hefur þetta verið
eign sjóðs sem heitir Dagheimilið
Vorboðinn. Nú þegar við erum að
fara í nýbyggingu á lóðinni þá
breyta menn þinglýsingunni. Það er
nauðsynlegt formsatriði eftir mjög
langa og merkilega sögu fyrsta leik-
skólans á Akranesi. Kvenfélagið átti
stærstan þátt í stofnun hans og stóð
meðal annars að rekstrinum fyrstu
árin. Síðan fór þetta yfir til bæjar-
ins en það hefur aldrei verið gengið
frá formlegu afsali til bæjarins þar
til nú,“ sagði Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, við DV.
Framleiöum brettakanta, sólskyggni og boddýhluti á flestar
geröir jeppa, einnig boddýhluti í vörubíla og vanbíla.
Sérsmíöi og viögeröir.
_ ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 CE)
^'l£RSUfC.
BYGGINGAVÖRUTILBOÐ MÁNAÐARINS
Aprí 1
I Ariston eme 145 1 Kæliskápur D Metabo - Slípirokkur
E3EZ
25.650,-
13.799,-
Aöur: 17.300,-
Huffy Storm - 26" fjallahjól
15.900,-
Aður: 34.200,-
BYKO - Grunnviðarvörn (5 Itr.)
1.820,-
Áöur: 2.275,-
Wolf 22 - Greinaklippur
1.995,-sk
\!& | Áður: 2.5227
Doll - Loftastigi
11.189,-
I Áður: 13.987,-1
590,-
5.347,-
Bjálkaklæöning - Greni (10,5x300)
154, — pr. meter
EITT MESTA URVAL RAFMAGNSHANDVERKFÆRA A ISLANDI
BOSCH #Metabo
TfiakitcL
AEG
AFGREIÐSLUTIMI I BYKO
Komdu og skoðaðu nýjar og glæsilegar deildir meö rafmagnshandverkfæri
í öllum verslunum BYKO. Vönduð verkfæri frá þekktum framleiöendum.
Virkir dagar Laugard. Sunnud.
Breiddin 8-18 Sími: 515 4001 10-16
Hólf&Gólf 8-18 Simi: 515 4001 10-16 13-17
Hringbraut 8-18 Sími: 562 9400 10-16 11-15
Hafnarfj. 8-18 Sími: 555 4411 9-13
Suöurnes 8-18 Sími: 421 7000 9-13