Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Page 23
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 23 Fréttir Hringhurðir í Leifsstöð - og bílastæðum Qölgað mjög DV, Suðurnesjum: Farþegar, sem eiga leið um Leifs- stöð á Keflavíkurflugvelli, munu ef- laust kunna vel að meta þær fram- kvæmdir sem nú standa yfir í og fyrir utan flugstöðina. Hafrn er vinna við bílastæði fyrir langferðabíla sem verða báðum megin við flugstöðina - við komu og brottfór. Þau verða þar sem lista- verkið Eggið er og verða fyrir 16 bíla. Þá eru framkvæmdir við flölgun langtímabílastæða um 150 og verða þau þá rúmlega 500 talsins. Bíla- stæðin eru löngu fullnýtt enda hefur umferð um flugvöllinn stóraukist. Um framkvæmdina sjá íslenskir að- alverktakar eftir útboð hjá Ríkis- kaupum. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum verði lokið i júni. Keflavíkurverktakar eru að hefja undirbúning á að skipta á útgöngu- hurðum. Settar verða í staðinn hringhurðir. Þá verða einnig settar upp neyðarhurðir. Starfsmenn kunna vel að meta þetta og það verður einnig til mikilla bóta fyrir farþega. Mikil blástur hefur verið í flugstöðinni á veturna og oft þurft að loka öðrum megin í flugstöðinni vegna veðurs. Farþegar hafa lent í basli og komið að lokuðum dyrum en með tilkomu þeirra nýju ætti það að heyra sögunni til. Gert er ráö fyrir að þessu verði lokið fyrir haustið. Langur af- greiðslufrestur er á hurðunum frá framleiðendum. Kostnaðurer talinn 40-50 milljónir króna. -ÆMK Unniö við Leifsstöö að byggingu stæöa fyrir langferöabíla. DV-mynd Ægir Már Atvinnuleysistölur á Húsavík: Bæjarmálapólitík Alþýðubandalagsins - segir Sigurjón Benediktsson Gódir hlutir taka tíma Ef |ni þarft cið létta á þcr, komdu |iá til Gauja litla. Það eru til ýmsar kenningar og leiðir til léttara lífs en aðeins fáar skila árangri. Ein af þeim er „Leið til léttara lífs" sem við höfum öll prófað með góðum árangri. Núna stendur yfir skráning á námskeið sem hefjast 20. apríl og standa til 6. júni. Námskeiðin eru opin öllum sem vilja losna við aukakílóin í eitt skipti fyrir öll. Við bjóðum uppá morgun- og kvöldnámskeið. /œum 7 vikna aðhaldsnámskeið - þar sem feitir kenna feitum! Þjálfun 3 til 5 sinnum í viku • Frreðsludagur • Vigtun og fitumælingar • Ytarleg kennslugögn Matardagbækur • Mataruppskriftir • Æfingabolur og vatnsbrúsi • Feikna mikið aðhald • Kennsla i tækjasal • Hvetjandi verðlaun • Naeringarráðgjafi á staðnum • Otakmarkaður aðgangu að World Class í 7 vikur »Vaxtamótun með íþróttakennara • Kínversk orkuleikfimi ^asics ^asic Skranmg i sima 896 I 298 DV, Akureyri: „Það hafa verið uppi deilur milli mín og formanns verkalýösfélagsins um atvinnuleysisskráninguna, og þaö hafa komið í ljós gallar á skrán- ingunni og hvernig hún er kynnt. Ég er mjög ósáttur við það að verka- lýðsfélagið sé sífellt að gera sér ein- hvern mat úr einhverju atvinnu- leysi sem er svo ekki fyrir hendi,“ segir Sigurjón Benediktsson, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Húsa- vík. Sigurjón og Aðalsteinn Baldurs- son, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, hafa deilt um það hvernig tölur um atvinnuleysi á Húsavík eru settar fram, en verka- lýðsfélagið gefur upp í einu lagi heildartölur atvinnulausra á Húsa- vik og á svæði félagsins í S-Þingeyj- arsýslu. Við þetta er Sigurjón mjög ósáttur. „Sveitarfélög geta ekki borið ábyrgð á atvinnu manna út fyrir sitt stjómsýslusvæði. Á þeim tíma sem uppgefin tala atvinnulausra var um 120 var tala atvinnulausra á Húsavík 50. Á sama tima eru fleiri á launaskrá Fiskiðjusamlags Húsa- víkur en voru fyrir þá miklu útgerð- arbreytingu sem menn eru að tala um, en hún var gerð I lok ársins 1996,“ segir Sigurjón og liggur ekki á þeirri skoðun sinni hvað veldur aðferð verkaiýðsfélagsins um kynn- ingu á atvinnuleysi. „Þetta er pólitík. Atvinnuleysi á Húsavík hefur verið mjög lítið, en þarna endurspeglast bæjarmála- pólitík Alþýðubandalagsins," segir Siguijón. -gk Verð á götuna: 2.285.000,- með abs Sjálfskipting kostar 80.000,- BJ HONDA Sími: 520 1100 Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður v' 2.01 4 strokka 16 ventla Léttmálmsvél v' Loftpúðar fyrir ökumann og farþega v' Rafdrifnar rúður og speglar v' ABS bremsukerfi v Veghæð: 20,5 cm v' Fjórhjóladrif s Samlæsingar v' Ryðvörn og skráning v' Útvarp og kassettutæki v' Hjólhaf: 2.62 m v' Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m Umboðsaðilar: Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712 Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.