Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Síða 25
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 33 DV Fréttir Ólafsfjörður: Þormóður rammi-Sæberg í nýjar höfuðstöðvar DV, Ólaísfirði: Sjávarútvegsfyrirtækið Þormóð- ur rammi-Sæberg hf. hefur flutt í nýjar höfuðstöðvar á Ólafsfirði. Skrifstofur fyrirtækisins voru á efri hæð Valbergs hf. og þóttu frekar litlar. Eftir að Magnús Gamalíels- son hf. sameinaðist fyrirtækinu var húsnæði þess að Hombrekkuvegi gert að höfuðstöðvum Þormóðs ramma-Sæbergs í Ólafsfirði. Húsið gengur daglega undir heit- inu Bjarg hér í bæ. Það var útgerð- armaðurinn og frumkvöðullinn Magnús Gamalíelsson sem byggði húsið árið 1944. Framkvæmdastjóri Þormóðs ramma-Sæbergs á Ólafsfirði er Gunnar Sigvaldason en skrifstofu- stjóri er Þorvaldur Jónsson. -HJ Bjarg - skrifstofuhús útgeröarfélagsins. DV-mynd Helgi Dalabyggð: Vínlandssafn í Búðardal DV, Vesturlandi: Á fundi sveitarstjórnar Dala- byggðar nýverið var samþykkt að hefja undirbúning að framkvæmd- um á Eiríksstöðum í Haukadal til minningar um landafundi Leifs heppna Eiríkssonar árið 2000. Einnig var ákveðið að undirbúa byggingu menningarhúss, Vínlands- safns í Búðardal. Til verkefnanna verður varið 9 millj. króna í ár. Þá var fjárhagsáætlun Dalabyggð- ar samþykkt, að sögn Marteins Valdimarssonar, sveitarstjóra í Dalabyggð. Skatttekjur em áætlaðar 118 milljónir eða um 160 þúsund krónur á íbúa. Fasteignaskattur er 0,4% á íbúðarhús, sumarbústaði og mannvirki til landbúnaðarnota en 1,20% á aðrar eignir. Heildargjöld sveitarsjóðs em 162 milljónir en tekjur einstakra málaflokka eru 41 milljón. Fræðslumál eru langdýrasti málaflokkurinn. 60 milljónir, eða rúmlega 50% skatttekna. Næst kem- ur félagsþjónusta með 14 milljónir eða um 12% skatttekna. Ýmsar áætl- anir eru um að fegra og bæta um- hverfi íbúanna. Ákveðið er að ljúka frágangi lóðar grunnskólans í Búð- ardal og stjómsýsluhússins og verja til þess um 6 milljónum. Til lagning- ar reið- og gönguleiða verður varið um 1,2 milljónum. Þá er áætlað að tyrfa íþróttavöllinn og leggja hlaupabrautir. Tfl þess verður varið 5,5 milljónum. -DVÓ V illinganes virkj un: Enn stofnað félag DV, Fljótum: Stofnað hefur verið á Sauðár- króki fyrirtækið Norðlensk orka hf. Tilgangur þess er að vinna að und- irbúningi þess að reisa og reka raf- orkuver við Villinganes í Skaga- firði. Rafmagnsveitur ríkisins eiga 75% hlutafjár en heimaaðilar skipta með sér 25% hlut á móti RARIK. Ljóst er að Rafveita Sauðárkróks mun verða hluthafi í Norðlenskri orku. Einnig Skagfirsk orka sem Kaupfélag Skag- firðinga, Akra- og Lýtingsstaða- hreppar stofnuðu á dögunum. Þá hafa bæði Siglfirðingar og Húnvetn- ingar lýst áhuga á að verða aðilar í félagi sem stofnað verði sem Raf- orkuver í Skagafirði. Þetta er þriðja hlutafélagið sem stofnað er á skömmum tíma í Skagafirði vegna Villinganesvirkj- unar. Auk Skagfirskrar orku stofn- uðu einstaklingar og fyrirtæki á Sauðárkróki félagið Árvirki ehf. -ÖÞ GeriÖ cjajc)cT- ocj verðsamanburð BFCoodnch All-Terrain T/AI/erð stgr 225/75R-16 11.679,- 30x9,5-15 12.191,- 245/75R-16 13.392,- 31x/10,50-15 13.627,- 33x/12,50-15 14.984,- 35x/12,50-15 17.834,- mmmmmmmm dekk Jeppadekk SUÐURSTRÖND 4 S: 561 4110 mmm Ný sending Stultar og sfðar kápur, sumarhattar Tilboð fyrir sumardaginn fyrsta: Stuttkapur kr. 7.900. Sumarjakkar kr. 7.900. opið loug. 10-16. Þjónustusíml 55D 5DDD www.visir.is NÝR HEIMUR Á NETINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.