Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Page 29
dS 37 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Verkefnið internet 2 komið á fullan skrið: Nýja verkefniö mun auka samskiptahraöa rannsóknarstofnana gríöarlega. Intemet 2 er verk- efni sem bandarísk stjómvöld hafa sett af stað í þeim tilgangi að hraða allri þróun í tengslum við Netið. Takmarkið er að menn geti ekki lengur með réttu kallað veraldar- vefinn The World Wide Wait (Veraldarbiðin). Nú hefur þetta verk- efni fengið sinn mesta meðbyr hingað til. Þrjú stórfyrirtæki á sviði hátækni hafa samein- ast um að leggja alls 500 milljónir Banda- ríkjadala í þetta verk- efni. Þetta var gert við hátíðlega athöfn í síð- ustu viku og tók A1 Gore, varaforseti Bandaríkjanna, við peningunum formlega. í fyrra talaði Bill Clinton Bandaríkjafor- seti í stefnuræðu sinni um net næstu kynslóð- ar. Slíkt net yrði til ómetanlegs gagns fyrir háskóla og rannsóknar- stofnanir. Þær gætu átt netsamskipti sín á milli þúsund sinnum hraðar en hægt væri í dag. Nú virðist þetta takmark vera innan seilingar. Hvað er Internet 2? Það hafa margir vísindamenn kvartað yfir því að Netið eins og við þekkjum það í dag sé of hægvirkt og yfirfullt til að hægt sé að nota það í flóknar rannsóknir og aðgerðir. Sem dæmi má nefna að menn vilja hafa það svo háþróaö að læknir í New York gæti fylgst með hjartslætti sjúklings sem býr í hin- um enda landsins og jafnvel sjúk- dómsgreint hann. Internet 2 verkefnið á að gera slíka hluti mögulega. En þá á ekki að reyna að gera Netið, sem almenn- ingur þekkir, öflugra. I staðinn á að búa hreinlega til annað net sem virkar á svipaðan hátt og Netið. Þetta net verður ekki aðgengilegt fyrir almenning en mun í staðinn tengja saman ríkisrekna skóla, stofnanir og stjómsýslufyrirtæki. Hraðinn margfaldast Unnið hefur verið að þessu verk- efni í tvö ár og árangurinn hefur verið ágætur. Netið mun nota ljós- leiðara til að flytja gögnin og verður hann tengdur milli einstakra stofn- ana. Þannig hefur verið ákveðið að leggja slíkan streng frá New York til Los Angeles. Strengur þessi, sem yrði um 25.000 km langur, mun tengja saman um 125 borgir og þetta allt saman á að mynda net sem kall- ast Project Abiline. Áætlað er að það verði komið í gagnið næsta vor. Á sama hátt á að tengja háskóla í Bandaríkjunum við net National Science Foundation sem ber nafhið vBNS (Very high speed Backbone Network Service). Þetta net getur flutt 622 milljón bæti á sekúndu samanborið við 56 þúsund bæti hjá hraðvirkustu mótöldunum. Áætlað er að áður en langt um líður geti þetta net flutt 2.400 milljón bæti á sekúndu. Stjórnvöld segja að takmarkið með þessu verkefni sé að gera verk- efni sem treysta á Netið og reyndar tölvunet almennt áreiðanlegri. Það mun sjást best í því að öll gögn, Símamynd Reuter. hvort sem það er einfaldur tölvu- póstur eða beint útsending af hjartslætti barns, munu koma nán- ast á sama hraða. Svindl? Það eru þó ekki allir sem eru jafn ánægðir með þetta verkefni. Til eru menn sem halda því fram að þetta sé allt eitt stórt svindl. Þá eru þeir einkum að tala um þátt stjórnvalda í þessu máli. Það sjónarmið hefur komið fram að stjómvöld eigi hrein- lega ekkert að leggja neitt af pening- um skattborgaranna í þetta verk- efni heldur láta fyrirtækin alfarið um það. Óljóst er hversu víðtækt þetta sjónarmið er meðal netfröm- uða. -HI/Reuter Nýtt net til rannsókna Þýskar álfelgur á erðir bíla. naust Sími 535 9000 www.visir.is FYRSTUIi WCÍ' fP,£TTi«tvAf: Fræðslumiðstöðin kaupir 325 tölvur Frá vinstri: Guöbjörg Andrea Jónsdóttir, Pétur Ragnarsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Jökull M. Steinarsson og Stefán Þór Hreinsson. Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar hef- ur staðfest kaup á 325 IBM og Tulip einmenn- ingstölvum frá Nýherja. Þessar tölvur koma að mestu leyti sem hrein viðbót við þann tölvu- kost sem fyrir er hjá miðstöðinni og er mikil- vægur liður í tölvuvæð- ingu þeirra, segir í fréttatilkynningu. Fræðslumiðstöðin hefur undanfarið verið með þjónustusamning við Nýherja þar sem síð- amefnda fyrirtækið hef- ur bæði sinnt stofnun- inni sjálfri og skólunum. Ákveðið var að ganga til samninga um tölvukaup við Nýherja einkum vegna ánægju með þá þjónustu sem fyrirtækið hefúr veitt hingað til. ífréttatil- kynningu frá Nýherja segir að það hafi verið grundvallaratriði að al- þjóðlegt viðurkennt vörumerki yrði fyrir valinu en með því yrði bilanatíðni lágmörkuð. Þannig megi gera ráð fyrir alltaf 50% minni viðhaldskostnaði á þessum tölvum en öðrum kostum sem í boði vora. -HI Skráning í sumarbúðirnar Kaldárseli, Vindáshlid, Ölveri og Hólavatni hefst miövikudaginn 22. apríl k1. 8:00. KFUM ^jKFUK Frísk félög fyrir hressa krakka! Sumarbúðir KFUM Flokkaskrá sumararins mun birtast í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Hana er einnig að finna á bls. 629 í textavarpi sjónvarpsins og á heimasíðu KFUM og KFUK, www.kfum.is. Skráning í sumarbúðirnar í Vatnaskógi hefst dag 20. apríl kl. 8:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Einnig er tekið við skráningum í símum 588-8899 og 588-1999.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.