Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 39
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 47 Fréttir íslenska magnesiumfélagið: Astralir keyptu hluta- bréf fyrir 174 milljónir DV, Suöurnesjum: „Með kaupunum hafa líkur auk- ist á því að magnesíumverksmiðjan rísi hér. Þetta er stórt skref fram á við en mörg eftir. Það er engin spurning um áform þeirra. Þeir vilja byggja verksmiðjuna á íslandi ásamt því að byggja verksmiðju í Ástralíu," sagði Júlíus Jónsson, for- stjóri Hitaveitu Suðurnesja og stjórnarformaður í ísl. magnesíum- félaginu hf., við DV Ástralskt fyrirtæki, Australian Magnesium Investment, hefur ákveðið að kaupa hlutabréf í ísl. magnesíumfyrirtækinu fyrir 174 millj. króna. Gerast 40% hluthafi í IMF með rétti til að auka hlut sinn í 51% síðar. Fyrirtækin á hak við hlutabréfakaup ástralska fyrirtækis- ins eru Queensland Metals Corpor- ation Ltd. og Commercial Minerals Limited, sem er 100% í eigu Nor- mandy Mining Ltd. Það er námufyr- irtæki í Ástralíu, aðallega í eigu heimamanna. Stærstu gullframleið- endur í Ástralíu og 4. í heimi. Lækk- andi heimsmarkaðsverð á gulli hefur Júlíus Jónsson. DV-mynd ÆMK leitt til þess að Normandy hyggst nú leggja megináherslu á magnesíum. Júlíus segir að dótturfyrirtæki AMI, Austrian Magnesium Corpor- ation, vinni nú að því að ljúka hag- kvæmniathugun á byggingu mag- nesíumverksmiðju í Queensland í Ástraliu. Hluti af athuguninni felst í byggingu 1.500 tonna verksmiðju til að sannreyna nýja tækni við magnesíumframleiðslu með lægsta framleiðslukostnað í heiminum. Verksmiðja er að stórum hluta til- búin. Áætlað er að hagkvæmniat- huguninni ljúki í desember 1998. Ef hún verður jákvæð verður ráðist í að ljúka einnig hagkvæmniathugun fyrir verksmiðju hér á landi. Júlíus segir að nýju hluthafarnir leggi mikla áherslu á magnesíum iðnaðinn og líti á þessa fjárfestingu sem tækifæri til að auka aðild sina að vaxandi iðnaði. Byggingartími magnesíumverksmiðju hér á landi er áætlaður 1999-2002 og að fram- leiðsla hefjist um mitt ár 2002. Áætl- að að verksmiðjan framleiði 90.000 tonn á ári af magnesíum. Samning- ar hafa tekist um að Ford-verk- smiðjurnar kaupi 45.000 tonn á ári frá 2003. „Miðað við samninga, sem við höfum gert, eigum við að fá svar fyrir mitt næsta ár. Þá verður tekin ákvörðun um framhaldið," sagði Júlíus. -ÆMK Færeyska skútan sem fyrirhugað er að sigli á Eyjafirði meö ferðamenn í sumar. Skútusigling á Eyjafirði DV, Akureyri: „Þetta er ekki endanlega afráðið en ég vona að það takist að koma þess- um siglingum á í sumar,“ segir Níels J. Erlingsson á Akureyri en hann hef- ur í hyggju að hefja siglingar með ferðamenn á færeyskri skútu á Eyja- flrði í sumar. Níels segir að ætlunin sé að gera færeysku skútuna út í daglegar ferðir með ferðamenn frá Akureyri og geti verið um að ræða útsýnisferðir, stangaveiðiferðir, hvalaskoðunarferð- ir og miðnætursólarferðir svo að eitt- hvað sé nefnt. Skipið sem um ræðir getur tekið um 50 manns í styttri ferð- ir en svefnpláss er í þvi fyrir 21 far- þega sé um lengri ferðir að ræða. Skútan hefur verið gerð upp og innréttuð neðan þilja þar sem eru vistarverur, hreinlætisaðstaða, sturt- ur, eldhús, setustofa, lúkar og káeta. -gk Kennarar Verzlunarskóli íslands óskar að ráða kennara næsta haust í eftirtaldar náms- greinar: Enska • Stærðfræði-raungreinar • Bókfærsla • Hagfræði • Lögfræði Um er að ræða bæði fullar stöður og stunda- kennslu í einstökum námsgreinum. Skólastjóri og deildarstjórar viðkomandi deilda veita nánari upplýsingar um starfið og taka á móti umsóknum. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Höfumflutt staifseminal Mytt hemtílisfang: SN0RRABRAUT 60 (Skátahúsið) Nvtt súttaitúmer; 5112590 Nvttfaxnúmer mmw ww Ws!mm% . 5112599 VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík Sími: 511 2590 • Fax: 511 2599 Netfang: vinnuskoli@rvk.is ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MED 2 ÓRYGGIS- LOFTPÚÐUM. /*...... SUZUKl AI:L OG ÖRVGGl ..:....^ CT T7T TX^'T ^ vJ JLá vJ 1V.A Góður í ferða Baleno Wagon er rúmgóður og þægilegur í akstri, hagkvæmur í rekstri og hefur allt að 1.377 lítra farangursrými. Baleno Wagon gerir ferðalagið enn ánægjulegra BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4 SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Baleno Wagon GLX 4X4: 1.595.000 kr. Baleno Wagon GLX: 1.445.000 kr. SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hí, Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.