Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 42
50 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Fólk í fréttum Geir H. Haarde Geir Hilmar Haarde, hagfræðing- ur, alþm. og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, til heimilis að Granaskjóli 20, Reykjavík, tók við embætti fjármálaráðherra af Frið- riki Sophussyni á fimmtudaginn var. Starfsferill Geir fæddist í Reykjavík þann 8.4. 1951 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1971, BA-prófi í hagfræði við Brandeis University í Waltham í Massachusetts i Banda- ríkjunum 1973, MA-prófi í alþjóða- stjórnmálum við Johns Hopkins University, School of Advanced International Studies í Washington DC i Bandaríkjunum 1975 og MA- prófi í þjóðhagfræði við University of Minnesota í Minneapolis í Banda- ríkjunum 1977. Geir var blaðamaður við Morgun- blaðið á sumrin 1972-77, hagfræð- ingur í alþjóðadeild Seðlabanka ís- lands 1977-83, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra 1983-87, varaþm. Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá 1983, er alþm. frá 1987 og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins frá 1991. Geir var formaður SUS 1981-85, forseti Norðurlandaráðs 1995, for- maður þingmannahóps vestrænna ríkja innan Alþjóðaþingmannasam- bandsins 1992-94, í framkvæmda- stjórn sambandsins frá 1994 og vara- forseti þess frá 1995-97, formaður flokkahóps íhaldsmanna innan Norð- urlandaráðs 1995-97 og formaður utanríksmála- nefndar alþingis frá 1995. Fjölskylda Eiginkona Geirs er Inga Jóna Þórðardóttir, f. 24.9. 1951, viðskiptafræð- ingur og borgarfulltrúi. Hún er dóttir Þórðar Guð- jónssonar, skipstjóra og útgerðarmanns á Akranesi, og k.h., Marselíu Guðjónsdóttur húsmóður. Böm Geirs og Ingu Jónu eru Borgar Þór Einarsson, f. 4.5. 1975 (stjúpsonur Geirs); Helga Lára, f. 27.1. 1984; Hildur María, f. 15.11. 1989. Dætur Geirs frá fyrra hjónabandi og Patriciu Mistrettu Guðmundsson eru Ilia Anna, f. 28.7.1977, og Sylvía, f. 9.6. 1981. Bræður Geirs: Bernhard Haarde, f. 31.1.1938, d. 2.3.1962, bankamaður í Reykjavík; Steindór Helgi Haarde, f. 12.9. 1940, byggingaverkfræðingur og lektor við Tækniskóla íslands, búsettur á Seltjarnarnesi, kvæntur Jórunni Hönnu Bergmundsdóttur, húsmóður og tækniteiknara, og eiga þau þrjú böm. Foreldrar Geirs: Tomas Haarde, f. í Sandeid í Rogalandi í Noregi 14.12. 1901, d. 18.5. 1962, síma- fræðingur í Reykjavík, og k.h., Anna Steindórs- dóttir, f. 3.5. 1914, hús- móðir. Ætt Anna er dóttir Steindórs Helga, forstjóra Bifreiða- stöðvar Steindórs Einars- sonar, b. í Ráðagerði, bróður Elínar, ömmu Björns R. Einarssonar hljóðfæraleikara. Einar var sonur Björns, b. á Litla-Hálsi, bróður Kristínar, langömmu Giss- urar, fóður Hannesar Hólmsteins. Bjöm var sonur Odds, b. á Þúfu í Ölfusi, Björnssonar, bróður Katrín- ar, langömmu Vals leikara, föður Vals bankastjóra, og langömmu Garðars, foður Guðmundar H., fyrrv. alþm.. Móðir Bjöms á Litla- Hálsi var Jórunn, systir Magnúsar á Hrauni, langafa Aldísar, móður Ellerts B. Schram, forseta ÍSÍ. Jór- unn var dóttir Magnúsar ríka, hreppstjóra í Þorlákshöfn, Bein- teinssonar, b. í Þorlákshöfn, Ingi- mundarsonar, b. á Hólum, Bergs- sonar, ættföður Bergsættar Stur- laugssonar. Móðir Steindórs Helga var Guð- rún Steindórsdóttir, b. í Landakoti í Reykjavík, bróður Jóns í Gröf, afa Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöf- undar, fóður Ólafs Jóhanns, rithöf- undar og forstjóra. Steindór var sonur Matthíasar, kaupmanns i Hafnarfirði, bróður Páls, langafa Ólafs Bjömssonar, hagfræðiprófess- ors og fyrrv. alþm, og Guðrúnar, móður Vilmundar ráðherra og Þor- valds hagfræðiprófessors Gylfasona. Matthías var sonur Jóns, pr. í Arn- arbæli, Matthíassonar, stúdents á Eyri, bróður Markúsar, langafa Ás- geirs forseta. Matthías var sonur Þórðar, ættföður Vigurættar, Ólafs- sonar, ættföður Eyrarættar, Jóns- sonar, langafa Jóns forseta. Móðir Önnu var Ásrún Sigurðar- dóttir, b. í Sigluvik á Svalbarðs- strönd, Jónssonar, bróður Ásmund- ar á Auðbjargarstöðum, afa Guð- mundar Benediktssonar ráðuneytis- stjóra. Móðir Ásrúnar var Anna, systir Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxdal í Radíóbúðinni. Anna var dóttir Gríms, b. i Garðsvík, og Sæ- unnar Jónsdóttir frá Látram. Móðir Sæunnar var Jóhanna Jóhannes- dóttir, b. í Grenivík, Árnasonar. Móðir Jóhannesar var Sigríður Sör- ensdóttir frá Ljósavatni. Móðir Sig- ríðar var Guðrún Þorvaldsdóttir, pr. á Hofi, Stefánssonar, skálds í Vallanesi, Ólafssonar, prófasts og skálds ,á Kirkjubæ, Einarssonar, prófasts og skálds í Heydölum, Sig- urðssonar. Geir H. Haarde. Afmæli Kristján Arinbjörn Hjartarson Kristján Arinbjöm Hjartarson iðnverkamaður, til heimilis að Grand á Skagaströnd, verður sjö- tugur á morgun. Starfsferill Kristján fæddist á Blönduósi en ólst upp hjá foreldrum sínum á Skagaströnd og að hluta til á Finns- stöðum. Hann var hjá Gísla Pálma- syni á Bergsstöðum í Svartárdal 1939-41 og Þorsteini Jónssyni á Gili í Svartárdal 1941-43. Kristján stundaði nám við Héraðsskólann að Reykjum 1944-46 og sótti síðan námskeið í orgelleik og kórstjórn. Hann var verkamaður á Skagaströnd 1946-48 og vann þá m.a. við smíðar hjá Sveini Sveins- syni, móðurbróður sínum, var sjó- maður á Akranesi 1951-52 en hefur síðan verið búsettur á Skagaströnd. Kristján reri skamma hríð með Þórarni, bróður sínum, var lengst af beitningamaður á Skagaströnd 1948-51 og 1952-64, starfaði á Véla- verkstæði Karls og Þórarins 1964-74 og 1976-85, var húsvörður í félags- heimilinu Fellsborg 1973-76, verka- maður hjá Rækjuvinnslunni hf., síð- ar Hólmanesi hf. 1986-92 og hefur verið iðnverkamaður hjá skóverk- smiðjunni Skrefinu hf. frá 1992. Þá starfrækti hann Skagastrandarbíó um árabil ásamt bræðrum sínum, Hallbirni og Hirti, og fleirum. Hann er harmónikuleikari og lék um ára- hil á dansleikjum og samkomum, er organisti í Hofskirkju og Höskulds- staðakirkju og var áður organisti og kórstjóri á Skagaströnd í átján ár. Kristján sat í hreppsnefnd Höfða- hrepps 1970-74 og í fyrstu stjóm Skagstrendings hf. frá stofnun 1968. Hann sendi frá sér ljóðabókina Við brimsins gný árið 1995. Fjölskylda Kristján kvæntist 27.12. 1954 Sig- urbjörgu Bjömsdóttur, f. 17.6. 1930, d. 3.4.1981, húsmóður. Hún var dótt- ir Björns Jóhannessonar, f. 23.9. 1906, d. 5.11. 1993, bónda á Sigríðar- stöðum og Litlu-Borg í Vesturhópi og á Snælandi á Hvammstanga, sjó- manns og verkamanns á Skaga- strönd og loks byggingarverka- manns í Reykjavík, og k.h., Ragn- heiðar Jónsdóttur, f. 20.2. 1907, d. 13.10.1994, húsfreyju. Böm Kristjáns og Sigurbjargar eru Guðmundur Rúnar Kristjáns- son, f. 15.11. 1951, húsasmíðameist- ari og skáld á Skagaströnd, kvæntur Guðrúnu Hrólfsdóttur, húsmóður og leikskólastarfsmanni, og eiga þau þrjú börn; Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir, f. 22.6. 1954, skrif- stofumaður og húsmóðir á Skaga- strönd, gift Þorláki Rúnari Lofts- syni vöruflutningabíl- stjóra og eiga þau tvær dætur; Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir, f. 21.4. 1958, húsmóðir, verka- kona og dagskrárgerðar- maður á Skagaströnd, gift Grétari Haraldssyni verk- stjóra og eiga þau þrjá syni; Sveinn Hjörtur Kristjánsson, f. 11.11. 1964, iðnverkamaður á Hvammstanga, kvæntur Hrafnhildi Katrínu Pét- ursdóttur, húsmóður og ræstitækni, og eiga þau fjögur böm; Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, f. 26.2. 1966, húsmóðir á Skagaströnd, gift Guðmundi Sigurbimi Óskars- syni verkamanni og eiga þau tvö börn auk þess sem hún á dóttur frá fyrra hjónabandi með Konráði Jóns- syni. Systkini Kristjáns: Hólmfríður Hjartardóttir, f. 31.12. 1909, d. 15.12. 1991, húsmóðir á Skagaströnd; Bær- ing Júní Hjartarson, f. 27.6. 1911, d. 30.12. 1991, verkamaður, síðast í Lundi í Varmahlíð; Ólína Guðlaug Hjartardóttir, f. 16.8. 1912, d. 27.7. 1983, húsmóðir í Dagsbrún á Skaga- strönd; Sigurður Hjartarson, f. 28.9. 1913, d. 8.5. 1914 úr lungnabólgu; Viktoría Margrét Hjartardóttir, f. 25.1. 1915, fyrrv. starfs-stúlka við heimilishjálp, búsett í Reykjavík; Sigurbjörg Kristín Guðmunda Hjart- ardóttir, f. 26.9. 1916, d. 14.7. 1985, húsmóðir í Vík á Skagaströnd; Guðný Ein- arsína Hjartardóttir, f. 28.6. 1918, lengst af hús- móðir í Blálandi á Skaga- strönd; Þórarinn Þorvald- ur Hjartarson, f. 12.1.1920, d. 28.1. 1991, formaður á Skagaströnd; Sveinn Guð- varður Hjartarson, f. 17.4. 1921, d. 22.11. 1961, vél- stjóri og útgerðaramaður á Skaga- strönd; Georg Rafn Hjartarson, f. 27.5. 1923, múrari í Reykjavík; Hjörtur Ást- flnnur Hjartarson, f. 22.3. 1925, d. 22.11. 1961, formaður á Skagaströnd; óskírður drengur Hjartarson, f. 7.8. 1926, d. 13.9. 1926; Sigurður Hjartar- son, f. 7.2. 1930, bóndi og umsjónar- maður á Staðarbakka í Helgafells- sveit; óskírður drengur, f. 13.9. 1931, d. 24.10.1931; Hallbjörn Jóhann Hjart- arson, f. 5.6. 1935, , tónlistarmaður, veitingamaður og útvarpsstjóri í Brimnesi á Skagaströnd. Foreldrar Kristjáns voru Hjörtur Jónas Klemensson, f. 15.2. 1887, d. 6.2. 1965, formaður í Vík á Skaga- strönd, og k.h., Ásta Þórann Sveins- dóttir, f. 21.7. 1891, d. 30.12. 1960, húsfreyja. Kristján Arinbjörn Hjartarson. Véiðivon 800 fískar hafa veiðsf Sjóbirtingsveiðin hefur gengið vonum framar og eru líklega komnir um 800 fiskar á land af öllum svæðunum þar sem veitt er núna. Frekar kalt hefur verið á veiðimenn kringum Klaustur en veðurfarið hefur hlýnað. Stærstu sjóbirting- amir era um 13 pund. Stutt er í Minnivallalæk- ur í Landssveit opni og þar hafa sést stærri fiskar en 13 pund. En lækurinn verður opnaður 1. maí eins og Elliðavatnið. 15-16 punda fiskar hafa sést synda um lækinn. „Veðurfarið hefur verið heldur leiðinlegt. Það var kalt þegar ég var þar en við fengum fiska og það var það sem við vorum að leita að,“ sagði Óskar Færseth i Keflavík er við spurðum hann um veiðiskapinn í gær. „Við fengum sjö fiska í Vatnamótunum og sá stærsti var 6 punda. Við lentum í isreki. Ég frétti af veiðimönnum á eftir okkur sem hefðu veitt 28 fiska en þá hafði hlýnað verulega. Veiddi líka í Geirlandsá og þar fengum við 14 fiska, sá stærsti var 7 punda. Veiðin hefur ver- ið frekar róleg en það er allt í lagi,“ sagði Ósk- ar ennfremur. „Hróarslækurinn hefur verið að gefa eitt- hvað af fiski en við vitum ekki hve mikið. Á Hrauninu er þetta rétt að byrja,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson er við spurðum frétta af sjóbirting- um. „Varmáin er alltaf góð og margir hafa fengið fina veiði þar síðustu daga,“ sagði Ingólfur sem ætlaði í Hróarslækinn næstu daga. „Ég held að veiðin sé að glæðast hérna fyrir austan, alla vega hefur hlýnað og fiskurinn ætti að fara að gefa sig meira,“ sagði veiðimaður við veiðar við Klaustur í gær. „Við höfum fengið nokkra en þeir eru ekki stórir," sagði veiðimaðurinn ennfremur. Veiöiskapurinn gengur rólega þessa dagana en lík- lega hafa veiöst um 800 fiskar og þá mest í Varmá sem hefur gefiö á milli 400 og 500 fiska. Þessir tóku það rólega viö Vatnamótin. DV-mynd G.B. Tll hamingju með afmælið 20. apríl 85 ára Katrín Jónsdóttir, Firði 7, Seyðisfirði. 80 ára Aðalbjörg Þorgrímsdóttir, Flúðabakka 1, Blönduósi. Jóna S. Kristófersdóttir, Kleppsvegi 120, Reykjavík. 75 ára Grétar Símonarson, Goðdölum, Lýtingsstaðahreppi. 70 ára Birna Friðgeirsdóttir, Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði. Gxmnar B. Sigurðsson, Fífuseli 7, Reykjavík. Ingibjörg Gísladóttir, Unufefli 4, Reykjavík. Óskar Halldórsson, Syðri-Úlfsstöðum, Austur-Landeyjahreppi. Svava Pálsdóttir, Hrafnkelsstöðum III, Hrunamannahreppi. 60 ára Gissur Þór Sigurðsson, Langholtsvegi 174, Reykjavík. Guðríður Helga Magnúsdóttir, Túngötu 36, Reykjavík. Hólmfríður Snorradóttir, Holtsgötu 1, Njarðvík. Karl Magnús Gunnarsson, Hamrabergi 30, Reykjavík. Sigfús J. Árnsson, Hofi, Vopnafirði. Sigurður Ingólfsson, Bleikjukvísl 16, Reykjavík. 50 ára Jón Ragnarsson, Reynivöllum 4, Akureyri. Sigrún Gerður Bogadóttir, Sunnuvegi 3, Selfossi. Steingrímur Ólafur Ellingsen, Nesbala 126, Seltjamamesi. Sveinn Arason, Holtsbúð 38, Garðabæ. 40 ára Arnar Bjarnason, Skaftahlíð 16, Reykjavík. Halldór Árnason, Furulundi 2 G, Akureyri. Halldóra Guðbjörg Ottósdóttir, Efstahjafla 17, Kópavogi. HaUur Sigurðsson, Vesturbraut 13, Höfn. Ingvar Teitsson, Furuhjalla 1, Kópavogi. Kristinn Kristinsson, Dofrabergi 15, Hafnarfirði. Lóa Sigurðardóttir, Efstahjalla 2, Reykjavík. Sigmundur Einar Ófeigsson, Hjallalundi 2, Akureyri. Steinunn Björnsdóttir, Mávahlíð 29, Reykjavík. UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri _______sem hér segir:____ Seljaland 5, 1. hæð t.h., þingl. eig. Auð- unn Ófeigur Helgason, gerðarbeiðendur Kristján G. Jóhannsson og Stefán Jóns- son, föstudaginn 24. apríl 1998 kl. 14.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.