Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 Fréttir Stuttar fréttir dv Stór skoðanakönnun á fylgi framboðanna í Reykjavík gerð af DV í gærkvöldi: Töluvert dregur saman með R-lista og D-lista Töluvert dregur saman með Reykjavíkurlistanum og Sjálfstæðis- flokknum í nýrri skoðanakönnun DV sem gerð var síðdegis í gær og fram á kvöld. Er þá miðað við síðustu könn- un blaðsins fyrir viku. Þá var R-list- inn með 9 fuÚtrúa en fengi nú 8 full- trúa i borgarstjóm á móti 7 hjá D- lista. Stutt er þó í níunda frambjóð- anda R-listans. Mimurinn hefur ekki verið svo lítill á flokkunum í könnun- um DV á þessu ári. Mesta fylgisbreyt- ingin milli vikna er hjá Launalistan- um. Hann komst ekki á blað fyrir viku en fær nú 1 prósent atkvæða þeirra sem afstöðu tóku í könnvminni í gær. Þetta er stærsta úrtak sem DV hef- ur tekið á kjósendum í Reykjavík, eða 1200 manns; 600 karlar og 600 konur. Spurt var: „Hvaða lista mundir þú kjósa ef borgarstjómarkosningar færa fram núna?“ Miðað við svör allra í könnuninni sögðust 36,2 prósent ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 42,8 prósent Skipting borgarfulltrúa Eftir kosningar 28. maí '94 60% 50 40 Svör allra í könnun DV Sko3»akonnun 10 0 □ 5.-6. maí '98 m 14. maí '98 Q 21. maí '98 30 20 : WÉfi ...... Sjálfstæöisflokkurinn Reykjavíkur- listlnn Húmanista- flokkurínn Launa- llstlnn Óákv./sv. ekkl Samkvæmt skoðana- könnun DV 21. maí '98 Fylgi borgarstjórnarflokkanna i$koianakönnun Onnur framboö REYKJAVI LISTINN Niðurstöður kosninga 28. maí '94 skoðanakönnunar DV þeir sem afstööu tóku 21. maí '98 Reykjavíkurlistann, 0,4 prósent Húmanistaflokkinn og 0,8 prósent Launalistann. Óákveðnir í afstöðu sinni vora 11,3 prósent og 8,4 prósent sögðust ætla að skila auðu í kosning- imum, ekki mæta á kjörstað eða vildu ekki svara spumingunni. AIls taka þvi um 80 prósent úrtaksins afstöðu sem er svipað hlutfall og í síðustu könnunum DV. Ef aðeins er tekið mið af þeim sem afstöðu tóku þá ætla 45,1 prósent að styðja Sjálfstæðisflokkinn, 53,4 pró- sent Reykjavíkurlistann, 0,5 prósent flokk húmanista og 1 prósent Launa- listann. Munurinn á fylgi borgarstjómar- flokkanna er 8,3 prósentustig og hefur minnkað um 6,4 prósentustig á einni viku. Eins og áður sagði hefúr ekki munað svo litlu á flokkunum í langan tfma í könnunum DV eða frá því í október í fyrra þegar D-listinn mæld- ist með nauman meirihluta. Fylgi H-listans breytist litillega nið- ur á við á mifli vikna en Launalistinn tekur stökk eins og áður sagði, úr engu fylgi fyrir viku í 1 prósents fylgi nú. Sé borgarfuiltrúum skipt á milli flokkanna í samræmi við atkvæða- magn í könnuninni þá fengi R-listinn 8 menn kjöma líkt og hann hefur í dag og D-listinn 7. Á tveimur vikum hefur R-listinn misst tvo menn miöað við kannanir DV. Níundi maður á R- lista er ekki svo langt frá því að fella sjöunda mann sjálfstæðismanna. Mesti munur á afstöðu kynjanna er í hópi þeirra sem ekki hafa gert upp hug sinn. Konur era mun fjölmennari í þeim hópi. Karlar era ívið fleiri en konur innan stuðningshóps Sjálfstæð- isflokks en kynjaskiptingin hefur jafnast innan R-listans. -bjb Skoðanakönnun DV á því hvern Reykvíkingar vilja sem borgarstjóra: Forskot Ingibjargar er mikið Árni Sigfússon sækir á Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur en for- skot hennar er enn töluvert. Þetta má lesa út úr skoðanakönnun DV sem gerð var í gær á því hvem Reykvíkingar vilja sem næsta borg- arstjóra. Forskot Ingibjargar hefur minnkað um 4,4 prósentustig á einni viku miðað við síðustu könn- un blaðsins. Úrtakið í könmminni var 1200 manns, jafnt skipt á milli kynja. Spurt var: „Hvort viltu fá sem borg- arstjóra, Áma Sigfússon eða Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur?" Miðað við svör allra vildu 33,2 prósent fá Áma, 53,4 prósent vildu Ingibjörgu, 8,8 prósent gátu ekki gert upp á milli þeirra og 4,6 pró- sent vildu ekki svara spumingunni. Svipað hlutfall aðspurðra tekur af- stöðu til spumingarinnar og í síð- ustu könnunum DV. Karlmönnum fjölgar í liði Ingibjargar Af þeim sem tóku afstöðu vildu 6/5 '98 ■ 14/5 '98 21/5 '98 38.3 prósent fá Áma í stól þorgarstjóra en 61,7 pró- sent vfldu Ingibjörgu. Munurinn er 23.4 prósentu- stig og hefur minnkað um 4.4 prósentu- stig á einni viku eins og áður sagði en um 18 pró- sentustig á hálfum mán- uði. Eins og sjá má á síðunni hér að ofan munar tals- verðu á persónufylgi Áma og Ingi- bjargar annars vegar og hins vegar því fylgi sem flokkar þeirra fá í könnun DV. Á Ingibjörgu munar 8,3 prósentustigum, henni í hag. Árni eða Ingibjörg? - niöurstöður skoðanakönnunar DV 21. maí '98 - 70,7% mmm 63,9% 61J% 29,3% 36,1% 38,3% ’kmm 32 í,2% 53,4 Ami Ingibjörg Svör allra 21. maí '98 HUMaukMMB yisg Miðaö viö könnun DV fyrir viku virðist sem körlum hafi fjölgað tölu- vert sem vildu Ingibjörgu frekar en Árna. Enn em konur þó fleiri í hennar liði á meðan karlar eru fjöl- mennari í stuðningshópi Árna. Á morgun birtum við greiningu á afstöðu Reykvíkinga til borgar- stjóraefnanna eftir því hvaða lista þeir ætla að kjósa. Kosningavakt Vísis Kosningavakt verður á Netmiðl- inum Vísi. Þar verða nýjustu tölur birtar jafnóðum og greint frá fyrstu viðbrögðum frambjóðenda. Ávallt verður hægt að nálgast nýjustu töl- ur í öllum sveitarfélögum jafnóð- um. Slóðin er www.visir.is. SaKverksmiðjan Búist er við að saltverksmiðjan á Reykjanesi verði gangsett á ný í sumar. Hún varð gjalddþrota fyrir fjórum árum. Bandarísk-kanadískt fyrirtæki vill kaupa allt að 4000 tonn af salti á næstu árum. Gunnar Levý farinn Gunnar Levý Gissurarson, vara- borgarfulltrúi Reykjavíkurlist- ans, hefúr sagt sig úr Alþýðuflokkn- um vegna óánægju með að flokkurinn eigi engan fufltrúa í efstu sætum listans og að maður með vafasamt viðskiptasiðferði sé í einu af efstu sætum R-listans. Kosið um nafn Kosið verður á morgun um nafh á nýju sameinuöu sveitarfélagi Dal- víkur, Árskógshrepps og Svarfarð- ardals. Kosiö verður um nööiin Ár- dalsvík, Víkurbyggð, Eyjafjarðar- bær, Norðurslóð, Víkurströnd, Noröurbyggð og Vallabyggð. Loks endurgreitt Eftir helgina verður byrjað að endurgreiöa hlut rikis til þeirra sjúklinga sem leituðu til séiifræði- lækna meðan læknamir vora enn samningslausir við Tryggingastofn- un. Endurgreitt verður samkvæmt þeim samningum sem gfltu við læknana fyrir uppsögn. Breiðvarpið á Húsavík Húsavík er fyrsta sveitarfélag- iö utan Reykjavík- ur þar sem aflar 20 sjónvarpsútsend- ingar og útvarps- sendingar Breið- varps Landssím- ans nást en búið er að leggja breið- band í hvert hús í bænum. Halldór Blöndal samgönguráðherra opnaði Breiðvarpið formlega á Húsavík í gær. Of seinir Samherjamenn vom of seinir, að sögn Guðbrandar Sigurðssonar, for- stjóra ÚA, tfl að leggja fram tilboð í Mecklemburger Hochseefischerei. Þess vegna varð hollenskt fyrirtæki hlutskarpara. RÚV sagði frá. Óánægðir með kostina Kjósendur í ísafjarðarbæ virðast ekki ánægðir með þá kosti sem þeim bjóðast í kosningunum á morgun. í Gallupkönnun sögðust 14% ætla ekki að kiósa eða skfla auðu. D-listi ofan á Sjálfstæðismenn hafa um 40% fylgi á Akureyri samkvæmt Gallup- könnun. Það þýðir að þeir fengju fimm bæjarfulltrúa ef þetta gengi eftir í kosningum. Fasanaveiðar Hjón austur á Héraði hafa flutt inn um 100 frjóvguð fasanaegg sem ungað verður út. Fasanamir sem úr eggjunum koma verða bráð skot- veiðimanna í haust. Stöð 2 sagði frá. Loðnusamningar Þríhliða samn- ingur hefur verið undirritaður milli íslands, Græn- lands og Noregs um stjóm, veiðar og skiptingu afla úr loðnustofninum á hafsvæðinu milli landanna þriggja. Hlutur íslendinga úr loðnu- stofriinum eykst úr 78% í 81% en hlutur Norðmanna minnkar úr 11% í 8%. Hætta við ísafjörð íslandsflug ætlar að hætta flugi til ísafjarðar frá og með 1. júní vegna taprekstrar á þessari flug- leið. -SÁ/JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.