Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Blaðsíða 10
10 wnmng FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998 JL^’^ SANYLÞAKRENNUR Fást (flestum byggingavöruverslunum lan ííAUFABORG? " KNARRARVOGI 4 • * 568 6755 Gormar í flestar gerðir bíla. Straumar, straumar Straumar mættust í margvíslegum skilningi í Iðnó stundu fyrir miðnætti síðastliðið miðvikudagskvöld. Yfir- skriftin visaði auðvitað sterkast til þeirrar fjölbreytni í verkefnavali sem einkenndi dagskrána, safn dúóa og tríóa sem upprunnin voru frá ýmsum heimshornum. En fjölbreytnin rikti á fleiri sviðum. Þeir sem í Iðnó komu þetta kvöld voru ýmist að fara á tónleika eða njóta ann- arra listisemda í veitingasal hússins. Ilmvötn kepptu við matarlyktina í hin- um nýja tónleikasal. Umgangur ann- arra sala keppti við tónlistina. Hitinn í ekki alltof vel loftræstum salnum mætti svalanum við Tjörnina í hléi og umhverfið allt andaði enn um þau átök sem stóðu um nýtingu hússins. Straumar voru því viðeigandi yfir- skrift fyrir þetta kvöld. Borgarstjóri ávarpaði gesti og af- henti húsinu formlega flygil að gjöf. Hún kvaðst vona að slíkt framlag styddi enn frekar við tónlistarflutning í húsinu. Og víst er að svo verður þeg- ar þau vandamál sem drepið hefur verið á verða leyst. Salurinn er ágæt- lega hljómandi og fallegur. Sex dúmk- ur eftir Dvorak í píanótríói hans op. 90 hljómuðu fyrstar. Þau Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Peter Máté léku af öryggi og oft mjög næmri tilfinningu í ljóðrænni hlutunum. Martial Nardeau og Peter Máté léku Dúó fyrir flautu og píanó eftir Aaron Copland. Verkið er verulega krefjandi i flutningi og var hljóðfæra- leikurinn framúrskarandi. En verkið var aftur á móti ekki nógu áhugavert frá hendi höfundar. Laube enchanté, sem byggt er á indversku morgunraga, er eftir Ravi Shankar. Verkið er skrifað fyrir flautu og hörpu og það voru þau Martial Nardeau og Elísabet Waage sem léku. Verkið hélt athyglinni ótrúlega vel og vakti and- 4 a* '' Tríó Reykjavíkur frumflutti verk eftir Jón Nordal. ann á yfirvegaðan hátt. Það ruddi þannig braut fyrir skemmtilega fyrstu tvo kaflana í sögu tangósins eftir Piazzolla sem fylgdu í kjölfarið. Það voru þeir Mcirtial Nar- deau og Pétur Jónasson gítar- leikari sem léku. Yoshihisa Taira samdi sitt sérkennilega Synkronie fyrir tvær flautur árið 1986, sem er alltof seint fyrir þann stíl sem einkennir verkið og þau Tónlist Sigfnður Bjömsdóttir viðhorf til tónlistar sem að baki virðast búa. Martial og Guðrún Birgisdóttir léku með þeirri reisn sem ein getur haldið uppi verki sem þessu. Andað á sofinn streng er verk í einum hægum þætti eftir Jón Nordal og var það frumflutt þetta kvöld. Það er samið fyrir fiðlu, selló og píanó og - Tríó Reykjavíkur flutti. Andi verksins er hógvær og óá- gengur. Heildin hljómaði ljóðræn og sterk. Æskilegt væri að heyra verkið flutt aftur við sanngjarnari að- stæður. Það hlýtur að teljast fullkrefjandi fyrir flesta að hlusta á tónlist eftir klukkan eitt að nóttu þegar langur vinnudagur er að baki. Aukin þiónusta Opið: Mán.-fös. 8-21 Lau. 8-19 Sun. 10-19 Húsasmiðjan Fossaleyni 2 Gralurvogi S: 586 2000 HUSASMIÐJAN Auglýsing frá ÁTVR | Athygli er vakin á að samkvæmt áfengislögum skulu áfengis- verslanir vera lokaðar þá daga er almennar kosningar til sveitarstjórna fara fram. Verslanir ÁTVR verða því lokaðar laugardaginn 23. maí 1998. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins| „Superkitsch" Einari Má Guðmundssyni er sýnd sú virðing í nýjasta hefti þýska tíma- ritsins Der Spiegel að þar er birtur ít- arlegur ritdómur um bók hans Engla alheimsins. Timaritiö lætur skrifa rit- dóma um fáar bækur en auk þess eru birtar örstuttar umsagnir um fáeinar bækur. Willi Winkler skrifar ritdóminn í Spiegel undir fyrirsögninni „Friður sé með hinum geðveiku frá Kleppi" og segir í undirfyrirsögn: „íslendingur- inn Einar Már Guðmundsson sendir í skáldsögunni Wjv Englar alheimsins hóp af geðsjúku og rugluðu fólki út í veröld hinna venjulegu". Svo kall- ar hann bókina „sjaldgæfan happa- feng.“ Winkler er upptekinn af frásögn skáldsögunnar af aukapersónunni Viktori sem ímyndar sér að hann sé Adolf Hitler, og Winkler spyr að lok- inni endursögn á sögu hans hvort Hitler geti virkilega verið fyndinn. Sér til furðu hlýtur hann að svara játandi: Þegar Einar Már sýnir Viktor sfjörnugalinn yfir rauðvínsglasi að ræða brýn verkefni við vin sinn Himmler þá er ekki hægt annaö en brosa að honum. „Einar Már býöur upp á alit í Engl- um alheimsins sem annars er strang- lega bannað í nútímabókmenntum," segir gagnrýnandinn. Þar talar sögu- maður upp úr gröf sinni; þar glitrar ís- land eins og skandinaviskir álfheimar og svo er allt morandi í geðsjúkling- um: „Superkitsch." En þrátt fyrir ör- væntinguna sem rekur nokkrar per- sónur til sjálfsmorðs er þetta bijálæð- islega skemmtileg bók, að mati gagn- rýnanda Spiegels. Frá sýningunni Hlið sunnanvindsins f Ráðhúsi Reykjavíkur. Afríku ísleifur frá Mósambík í fáfræði minni ímyndaði ég mér að „afrískir" listamenn hlytu að mála landslagsmyndir. Eru ekki alls staðar málaðar landslagsmyndir? En svo er mér sagt að listamenn í þess- ari miklu álfu hafi takmarkaðan áhuga á sínu stórbrotna landslagi og að Estevao Mucavele, sem sýnir hér yndislegar landslagsstemmur sem minna á ísleif Konráðsson, sé þar al- gjör undantekning. Landslagsmynd- ir hans eru aukinheldur ímyndanir fremur en tilraunir til að gera til góða þekktum stöðum, svo ef til vill er það ekki að marka. Feginn vildi ég geta hælt tréskurð- armyndum Albertos Chissano, sem fluttar hafa verið hingað með ærn mn tilkostnaði og fyrirhöfn. En þv: miður, jafnvel þótt ég virði lífs reynslu hans, þá þykja mér myndir hans standa langt að baki eldri tréskurði ýmissa ættbálka í næsta nágrenni við Mósambík, bæði hvað vinnubrögð og hugmyndaauðgi snertir. Verði hún til þess að velta upp spumingum varð- andi þá menningarlegu víxlverkun sem áður var nefhd, hefur þessi sýning gert í blóðið sitt. Vonandi heldur Þróunarstofnun áfram að lóðsa hingað mynd- list eftir skjólstæðinga sína meðal fiarlægra þjóða. Sýningin Hlið sunnanvindsins í Ráðhúsi Reykja- víkur stendur til 7. júní og er opin kl. 9-19 virka daga en kl. 12-18 um helgar. Tll og frá Það er sama hvað sýnt er i al- menningnum i Ráðhúsinu; allt fer það halloka fyrir grámóskunni og þunglamalegri steypunni þar inni. Jafnvel afrísk list, ólgandi af lífsafli og flæðandi í litum, ber ekki sitt barr við þessar aðstæður. Sem breytir ekki því að það var gott framtak og virðingarvert af Þró- unarstofnun og Listahátíð að reyna að koma þar fyrir listaverkum eftir þrjá listamenn frá Mósambik, þá Malangatana, Alberto Chissano og Estevao Mucavele. Og nú ætti að gef- ast tækifæri til að ígrunda margþætt og sérkennileg tengsl afrískrar listar og evrópskrar i stóru samhengi, því í Listasafni íslands er að finna verk eftir evrópskan listamann, Max Ernst sem eru að hluta sprottin upp úr afrískri list. Einu sinni voru þessi tengsl mest- megnis einhliða og ekki ýkja flókin. Picasso, Emst og fleiri evrópskir listamenn leit- uðu fanga í afrískri list, sem í þeirra huga hafði til aö bera kynngi, formræna dirfsku og hug- myndaauðgi sem evrópska list vantaði. Síðan snerist dæmið við, afrískir listamenn fóru að líkja eftir list evrópskra herraþjóða sinna sem tryggði þeim brautargengi þeirra á meðal. í dag má æ oftar sjá myndlist eftir afríska lista- menn sem eru undir áhrifum evrópskra lista- manna sem eru undir áhrifum afrískrar listar. Og hefur þessi vixlverkun þannig bitið i skottið á sér. Þetta á einmitt við um Mósambik- manninn Malangatana sem gæti hæg- lega hafa sótt innblástur í sín litríku og erótísku verk til Kóbralistamanna, þar á meðal Svavars Guðnasonar. Sem er auðvitað undarleg tilhugsun. Annars vitum við mest lítið um þró- un afrískrar listar á undanfómum ámm og ára- tugum. Ætli sé ekki goðgá að tala um „afríska list“ yfirleitt þegar við vitum að í álfunni era þús- undir þjóða og ættbálka, hver með sitt eigið tján- ingarform? Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.