Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Side 21
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1998
49
Fréttir
Kanadísku gestirnir ásamt bæjarstjórnarmönnum á Hornafirði og Sigfúsi
Jónssyni frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. DV-mynd Júlía
Hornafjörður:
Kanadamenn
í heimsókn
DV, Hö£n:
Hópur sveitarstjómarmanna frá
Prince Edwards-eyju í Kanada
heimsótti á dögunum sveitarstjóm-
armenn á Homafirði. Með heim-
sókninni em þeir að endurgjalda
heimsókn fulltrúa íslenskra sveitar-
félaga sem fóru til Princ Edwards-
eyju að kynna sveitarstjómarmál á
Islandi.
„Þeirra sveitarstjórnarsvið eru
miklu vanþróaðri en okkar og þeir
hafa áhuga á að sjá hvernig samein-
að sveitarfélag er. Hér á Hornafirði
höfum við yfirtekið verkefni frá rík-
inu, reynsluverkefni, og hér er veitt
margs konar þjónusta sem sveitar-
félagið sér um og hefur tekist vel.
Kanadamönnunum fannst athygl-
isverðast að svona fyrirkomulag
skyldi geta gengið í ekki fjölmenn-
ara sveitarfélagi og hægt væri að
veita svona fjölbreytta þjónustu,
sérstaklega í heilbrigðis- og skóla-
málum,“ sagði Anna Sigurðardóttir
á Höfn.
Farið var í heimsóknir í skóla og
heiibrigðisstofnanir á staðnum og í
siglingu með Birni Lóðs út fyrir
Hornafjarðarós. -JI
Starfsmenn Línuhönnunar við jarðmælingar á rústasvæði á Kirkjubæjar-
klaustri. -EAV
Hvar stóð klaustrið?
DV, Kirkjubæjarklaustri:
Fyrir skömmu hélt verkfræðistof-
an Línuhönnun áfram rannsóknum
á rústasvæðum á Kirkjubæjar-
klaustri. Rannsóknir hófust árið 1995
með framlagi Skaftárhrepps, Þjóðhá-
tíðarsjóðs og Línuhönnunar hf.
Kirkjubæjarklaustur er merkur
sögustaður. Þar var höfðingjasetur
til forna og nunnuklaustur hátt á
fjórðu öld. Mörg örnefni á staðnum
eru tengd klaustrinu, eins og
Systrafoss og Systrastapi. Bæjar-
stæðið hið foma og umhverfi þess
hefur verið friðlýst siðan 1931. Þar
leynast eflaust merkjar minjar í
jörðu. En stóra spumingin er: Hvar
stóð kiaustrið? Er það von heima-
manna að starfsmönnum Línuhönn-
unar muni takast með jarðmæling-
um að fínna hinar fomu rústir, því
vissulega yrði gaman að geta sýnt
hinum fjölmörgu ferðamönnum,
sem heimskja staðinn, nákvæmlega
hvar klaustrið stóð. Fundur klaust-
urrústanna myndi síðan skapa forn-
leifafræðingum ærin verkefni.
Hvalfjarðarganga-
safn á Skaganum
DV, Akranesi:
Nú er unnið að því að koma upp
safni þar sem sögu og framkvæmd
við gerð Hvalíjarðarganga er gerð
skil. Safnið mun verða til húsa á
Kalmannsvöllum 3 á Akranesi.
Akraneskaupstaður hefur farið þess
á leit við stjómendur fyrirtækja
sem em eigendur Spalar hf. og verk-
taka ganganna að þeir komi að und-
irbúningi safnsins til að gera það
sem veglegast. Mjög vel hefur verið
tekið í þær hugmyndir en um er að
ræða einn mesta viðburð í sögu
samgangna á íslandi. Gert er ráð
fyrir að í safninu verði líkan af
göngunum sem sýnir afstöðu þeirra
og reynt verður að svara ýmsum
forvitnilegum spumingum varðandi
göngin.
-DVÓ
^íKSLA
4 V
1 Blómaker úr plasti. (Hvítt, 1 ummál 38 cm) 4 Bosch hleðsluborvél. (Með tösku og 2 rafhlöðum, 12 v.) 11
290,-
Aður: 340,-
12.900,-
Greni panill. (12x95)
72," pr. Im.
Pallaefni gagnvarið,
b-flokkur (22x95)
73,-
pr. Im.
f i!i
Áður:
EITT MESTA URVAL RAFMAGNSHANDVERKFÆRA Á ÍSLANDI AFGREIÐSLUTÍMI í BYKO
BOSCH (jÍDMelabo
ThakitíL
AEG
Komdu og skoðaðu nýjar og glæsilegar deildir með rafmagnshandverkfæri
í öllum verslunum BYKO. Vönduö verkfæri frá þekktum framleiðendum.
Virklrdagar laugard. Sunnud.
Broiddin - Verslun Slmi: 515 4001 8-18 10-16 12-16
Brolddln - Timbursala 8 -18 i 10-14
Síml: 515 4100 (Lokað 12-13)
Hólf&Gólf Sími: 515 4030 8-18 10-16 12-16
Hringbraut Slmi: 562 9400 8-18 10-16 11-15
Hafnarfjöróur 8-18 9-13
Slmi: 555 4411 Suðurnes 8-18 9-13
Slmi: 421 7000
Akureyri Sfmi: 461 2780 8-18 10-14