Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Page 36
Vinning mið.vikudaginn olu 20. 05. 98 I 381 Fjöldi vinninga Vinningar Vinningáupphœð I.6al6 38.361.110 2-5 gf 6Lt 4.766.700 270.500 . j 2.150 5-3 ttK* 350 526 Heildarvinningáupphœð 44.012.410 A Iátandi 5.651.300 L T €» FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR LfJ yi O ÍIln > 2 LT3 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö t DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Seldi hund fyrir hassi „Irann hitti stúlku með hund i ól í bænum i fyrrinótt sem var að afla sér peninga fyrir flkniefnum. Hún vildi fá 1.500 krónur fyrir hundinn til að geta keypt sér hass. Honum fannst hræðilegt að skiija hundinn eftir hjá stúlkunni þannig að hann keypti hann af henni,“ sagði amma nítján ára pilts úr Kópavogi við DV í morgun. Talsvert óvissuástand er á heimil- inu. Fólkið situr nú uppi með lítinn hund eftir að pilturinn keypti hann af unglingsstúlku í fyrrinótt. „Hann hafði verið í Ölveri að horfa á fótbolta og var á leið heim og að ná sér í leigubíl. Þá kom þessi stúlka," sagði amman. Hún sagði jafnframt að hundur- inn væri með „fina ól sem hægt sé að renna út og inn“. Við viljum Jtoma hundinum til réttra aðila ef þeir eru til,“ sagði konan. -Ótt Helgarblað DV: Fallegustu konur Islands í helgarblaði DV á morgun eru —'þær 22 stúlkur kynntar til sögunnar sem keppa um titilinn Ungfrú ís- land 1998. Keppnin fer fram á Broadway 29. mai næstkomandi. Við birtum viðtal við Bubba Morthens sem er þessa dagana að sýna á sér nýjar hliðar á sviði ís- lensku óperunnar. Hann kemur enn meira á óvart í viðtalinu. Rætt er við sr. Sigurð Pálsson í Hallgríms- kirkju sem sent hefur frá sér bók um börn og sorg. Bókina byggir hann að hluta á eigin reynslu. í inn- lendu fréttaljósi er að sjálfsögðu fjallað um kosningamar á morgun og í erlendu fréttaljósi er upplýst hver þessi Suharto í Indónesíu er. Þannig mætti lengi telja af fjöl- .. ^þreyttu efni helgarblaðsins. -bjb/sól Noregskonungur á leið til Rússlands: Ráðabrugg gegn íslendingum vegna Smugu DV, Ósló: Norðmenn munu á mánudaginn hefla að nýju tilraunir til að fá Rússa í lið með sér við að loka Smugunni í Barentshafi fyrir ís- lendingum. Noregskonungur hefur á mánudaginn opinbera heimsókn sína í Moskvu og með í for verður m.a. Knut Vollebæk utanríkisráð- herra. Vollebæk staðfestir við norska fjölmiðla að Smugan verði rædd á fundi með Jevgenij Primakov utna- ríkisráðherra í næstu viku og að ætlunin sé að leita eftir samstöðu með Rússum í deilunni við íslend- inga. Vollebæk segir við fréttastof- una NTB að síðar verði svo haft samband við íslendinga. Sambúð Noregs og Rússlands hef- ur verið afar stirð eftir að fjórir rússneskir njósnarar voru reknir frá Noregi í vetur. Rússar hafa m.a. bannað Norðmönnum að senda hafrannsóknarskip inn í rússneska landhelgi og ekki verið til viðræðu um sjávarútvegsmál eftir að njósna- málið kom upp. Séra Kjell Magne Bondevik for- sætisráöherra sagði við DV í vetur að njósnamálið myndi tefja lausn Smugudeilunnar um óákveðinn tíma eða þar til sambúð Rússa og Norðmanna væri komin í eðlilegt horf á ný. Bondevik aflýsti vegna njósnanna fyrirhugaðri ferð til Rússlands. Vollebæk utanríkisráðherra segir nú að sambúðin hafi batnað til muna eftir fund hans með Prima- kov í Bonn fyrir rúmum mánuði og með konungsheimsókninni nú í næstu viku ætti hún að komast í eðlilegt horf. -GK Veðrið á morgun: Hlýjast fyr- ir austan Á morgun verður vestan- og suðvestangola eða kaldi, súld eða rigning með köflum á vestan- verðu landinu og úti við norður- ströndina en bjartviðri suðaustan til. Hiti verður á bilinu 9 til 18 stig, hlýjast suðaustanlands. Veörið í dag er á bls. 61. Ingibjörg Sólrún: Er þakklát „Þetta eru svipaðar tölur og við höfum verið að sjá í öðrum könnun- rnn að undanfómu. Ég held að við getum ágætlega vel við þær unað. Hins vegar sýna þær líka að okkar fólk verður að sýna sam- stöðu og árvekni á kjördag og skila sér á kjörstað," sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri um niðurstöður könnunar DV. Spurð um fylgi við borgarstjóra- efni R- og D-lista sagðist Ingibjörg Sólrún vera þakklát fyrir þann stuðning sem borgarbúar sýndu henni. Hann væri mjög mikils viröi, ekki síst við þær aðstæður sem ver- ið hefðu í kosningabaráttunni und- anfama daga og vikur. -SÁ Árni Sigfússon: Úrslitin ráðast í kjörklefanum „Mér líst vel á þetta og sýnist úr- slitin ráðast í kjörklefanum," sagði Árni Sigfússon, odd- viti D-lista sjálfstæðis- manna, í morgun þeg- ar DV bar undir hann niðurstöðu skoðana- könnunar DV frá í gærkvöldi. Samkvæmt könnuninni hafa sjálf- stæðismenn enn dreg- ið á Reykjavíkurlistann og er munur- inn nú sá minnsti hingað til. Samkvæmt könnuninni hefur einnig dregið saman í persónufylgi borgarstjóraefnanna. „Þar sem spurt er beint um borgarstjóra virð- ist sýna sig að fleiri gera sér grein fyrir því að málið snýst um 15 borg- arfulltrúa fyrst og fremst." -SÁ Fólksbíll eyðilagðist f árekstrinum. DV-mynd ÆMK Harður árekstur Harður árekstur varð um fimm- leytið í gærdag á gatnamótum Reykjanesbrautar og Stekks, þ.e. við Fitjar í Njarðvík. Fólksflutningabíll og tveir fólks- bílar skullu saman og var einn mað- ur fluttur til Reykjavíkur á sjúkra- hús, talsvert slasaður. Tuttugu og fimm farþegar voru í rútunni og sakaði þá ekki. -glm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.