Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Page 7
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 7 sandkorn Fréttir Greind þingmanna í nýútkomnu skólablaði Menntaskólans við Hamrahlíð er viðtal við Sverri Stormsker. Á einum stað í viðtalinu segir Sverrir frá því er hann hitti kunnan þingmann stjórn- arliðsins af Suð- urlandi eitt sinn á fomum vegi. Spurði Sverrir þingmanninn hversu hár hann væri og þingmaðurinn svaraði að bragði: 1,80. Benti þá Sverrir þingmanninum kurteis- lega á að hann hefði verið aö spyrja um hæðina en ekki greindarvísitöluna ... íhaldskrummar Sjálfstæðisflokkurinn, með sr. Gísla Gunnarsson sem fremsta mann, er ótvíræður sigurvegari kosninganna í nýjum, samein- uðum Skagafirði. Þeir fengu fimm fulltrúa kjörna en þóttust áður góðir ef þeir fengju góra. Skagafjarð- arlistinn, sam- einað framboð vinstri manna, fékk tvo menn og útibússtjóri ÁTVR á Króknum, Stefán Guð- mundsson, sendi vini sínum á þeim lista þessi huggunarorð: Enginn sigur fæst án fórna, farið heim og sleikið sárin. íhaldskrummar ætla að stjóma okkur næstu fjögur árin. Hæðið Stúdentablað Fjölmiðlar hafa löngum gert ýmislegt annað en að lofa og hæla umfjöllunarefnum sínum. Dyggir lesendur Stúdentablaðs- ins eiga þó öðru að venjast enda má þar einlægt finna lofgjörð til dýrðar hinum og þessum mönnum og málefnum. Lof- söngurinn hef- ur þó farið misvel í menn. Fyrir skömmu fjallaði blaðið af miklu hrifhæmi um eitt ljóð Sigurðar Pálssonar, skálds og kvikmyndagerðarmanns. Sigurð- ur mun þó ekki hafa tekið um- fjölluninni betur en svo að hann hringdi i ritstjóra blaðsins og spurði hvort verið væri að hæð- ast að sér. Gremja hjá tryggingunum Lögmenn eru kampakátir yfir dómi Hæstaréttar þar sem ákvæði skaðbótalaga var talið andstætt stjómarskrá. Niður- staðan þykir staðfesta gagn- rýni Jóns Steinars Gunn- laugssonar og fleiri lögmanna á lögin. Þeir hafa talið þau óeðlilega hag- stæð trygg- ingarfélögunum, en dómurinn mun leiða til þess að margir skjólstæðinga lög- manna fá hærri bætur en áður. Hjá tryggingarfélögunum er ánægjan ekki eins mikil. Þar gnísta menn tönnum yfir þvi að þurfa að greiða tugi milljóna króna meira í bætur. Umsjón Stefán Ásgrímsson Netfang: sandkorn @ff. is Með 20 íslenska hesta í Svíþjóð: Á leiðinni á lands- mót að kaupa fleiri „Hestamir hafa komið mjög vel út. Næstum allir hafa gam- an af því að riða íslenskum hesti. Nú þarf óg bara að koma til íslands og kaupa fleiri," sagði Mia Johanson, sænskur hrossaræktandi í nágrenni Stokkhólms, við tíðindamann DV er hún lagði til tvo íslenska hesta við stúdentaútskrift í menntaskóla í einum úthverfa Stokkhólms. Þar var íslenskur piltur að útskrifast og faðir hans kom riðandi í víkinga- skrúða til að sækja son sinn til íslands. Nánar verður sagt frá þeim viðburði i Helgarblaði DV nk. laugardag. Mia hefur um nokkurt skeið rekið reiðskóla og hestaleigu í nágrenni við Stokkhólm. Þar er hún eingöngu með 20 íslenska hesta. hestum og ætlar að koma á landsmót hestamanna á Mel- gerðismelum í sumar. Þar hyggst hún kaupa nokkra hesta i viðbót. Lætur hitasótt- ina, sem herjað hefur á ís- lenska fákinn, ekki aftra sér enda er búið að gefa grænt ljós á útflutning. „Ég er búin að sjá það að ís- lenskir hestar sem fæðast hér í Svíþjóð missa allan sjarma og ýmsa hæfileika. Þess vegna ætla ég að koma til íslands og kaupa þar hreinræktaða, ís- lenska hesta,“ sagði Mia sem m.a. á graðfolann Dofra frá Höfn sem var mikill verð- launahestur á íslandi á árum áður. Dofri var einmitt látinn undir íslenska víkinginn og komust báðir vel frá verkefninu. -S/bjb Mia Johanson viö graöhestinn Dofra frá Höfn, einn 20 hesta sem hún er meö á búgarði sínum í nágrenni Stokkhólms. DV-mynd S Vegna flutnings á stærri búgarð í Vásterás ætlar hún að fjölga við sig íslendingar stálhraustir má nefna að það tók 14 ár, frá 1983 til Islendingar eru i efsta sæti varð- andi heilsu, lífslíkur og lága dánar- tiðni miðað við önnur Evrópulönd samkvæmt kynningarritinu „Heilsa á íslandi" sem landlæknir kynnti í gær. Markmiðið með ritinu er að sýna fram á að íslendingar eru í sömu sporum eða jafnvel framar öðr- um vestrænum þjóðum hvað varðar heilbrigði. Lífslíkur karla meiri í ritinu kemur fram að mjög fáir íslendingar deyja úr lifrarsjúkdóm- um og er það þakkað lítilli drykkju. Reykingar hafa minnkað en landinn innbyrðir meira af þunglyndislyfl- um. Karlar hafa tekið að saxa á kon- ur í auknum lífslíkum. Þær hafa hækkað um 3 til 4 ár á síðasta ára- tug, í tæp 77 ár, en staðið í stað hjá konum í 80,7 árum. Ungbamadauði hefur ávallt verið og er enn með því lægsta sem gerist. Hjarta- og krans- æðasjúkdómar hafa minnkað um 50% síðustu 20 ár. Hjartaaðgerðir eru mjög algengar hér en læknar hafa til- einkað sér fullkomna tækni og þarf þess vegna mun færra fólk við aö- gerðir ásamt því að hægt er að út- skrifa sjúklinga innan sólarhrings frá aðgerð. Þá hefur dauðsföllum vegna umferðarslysa fækkað. „Þessi góði árangur byggist á ára- tugastarfi. Það tekur mikinn tíma að koma breytingum í gegn,“ sagði Ólaf- ur Ólafsson landlæknir er hann kynnti ritið ásamt Magnúsi Baldurs- syni og Haraldi Briem, starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins. „Sem dæmi 1997 áður en tillaga okkar um notkun reiðhjólahjálma hlaut hljómgrunn. Pólitíkusar taka seint við sér.“ -sf Gular flögur Alltaf fenkt... Select 16" m/tveim áleggsteg. aðeins 940 kr. Ef sóttar eru t v <e r 16* pizzur ftesl 250 kr. auka afsláttur. 18" m/tveim áleggsteg. aðeins 1080 kr. Ef sóttar e ru tvcer 18" piziur f cr s t 3 00 kr. aukaafsláttur. l\*eiflcjaoilc 5Ó8 4848 ^Æa án a táj özduz 5Ó5 1515 Sent heim 18" m/þrem áleggsteg. 12" hvítlauksbrauð, 21. Coke og hvítlauksolía aðeins 1890 kr. 16" m/þrem áleggsteg. aðeins 1280 kr. FÉLAG GARÐPLÖNTU- FRAMLEIÐENDA í heimagarða og sumarbústaðalönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.