Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 13 Lífið er dásamlegt Oft er sagt að okkur líði eins vel og við viljum sjálf. Ef við barasta erum jákvæð og þakklát fyrir það sem er og munum að allt gæti verið miklu verra, þá verði lífið unaðslegt og sælan vís. Því er oft bætt við að við íslendingar höf- um alveg sérstaklega mikið að þakka okkur sjálfum og öllum til- veruaðstæðum okkar, enda erum við mjög hamingjusamt fólk í skoðanakönnunum. Víst er þetta notaleg kenning. Auðvelt að ".......... nota hana í einkalífi, fjármálum, pólitík og reyndar á öllum sviðum. Möguleikarnir á því að hrósa happi í lífinu eru reyndar óteljandi. Tökum nokkur dæmi. Einkalíf og annaö. Einkalíf: Ef unglingurinn í hús- inu drekkur eins og svín þá segir það sig sjálft að foreldrarnir hljóta að þakka fyrir að hann er ekki kominn í dóp. Ef þú ert sjálfur grúttimbraður og ælandi átt þú í rauninni gott af því þú hefur þó verið fullur. Ef geta þín og löngun til kvenna er horfin skaltu ekki hengja haus heldur fagna því að þú átt ekki lengur á hættu það slys að feðra börn í þennan heimska heim. Og (svo vitnað sé i hollráð frá Anton Tsjekhov) - ef konan þín heldur fram hjá þér þá skaltu gleðjast yfir því að hún er bara að svíkja þig en ekki ættjörðina. Náttúruvernd: Ef þig sker í augu og hjarta hvernig jeppa- skrattar hafa rist sundur heiðina sem þú gengur á, þá skaltu þakka fyrir að ekki er Guðni Ágústsson búinn að leggja veg upp á Heklu. Embættisrekstur: Hafðu ekki áhyggjur yfir dópinu sem lögregl- an í Reykjavík týndi, heldur fagn- aðu því að hún þarf ekki að vesen- ast í því að geyma geislavirkt úran eins og þeir í Skotlandi. Fjármálasukk: Við önsum því ekki þótt einhver ergi sig yfir því að laxar gleypi peninga hans í Landsbankanum, sá sem ekki er búinn að færa sig yflr á einka- banka er áreiðanlega masókisti sem ekki vill vera glaður. Og ef Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur eitthvert sukk kemur upp í einkabankan- um þínum, þá er áreiðanlega ekki ver- ið að eyða þinum peningum heldur bara hluthafanna. Ef þér finnst slælega haldið á málum Lindar og fram- kvæmdastjóra þess skrýtna fyrirtækis þá skaltu heldur vera feginn því að þú ert á íslandi en ekki í Rússlandi: þar eru öll mál Lindarmál í öðru veldi og allir fallít framkvæmda- stjórar löngu komnir í ríkisstjórnina. Kvótahugganir Fiskveiðistjórn: Hér er úr vöndu að ráða, því kvótakerfið er heldur lítill gleðigjafi, frómt frá sagt. Þó skal enginn fá okkur til að trúa því að ekki megi finna á því smugur til að hleypa inn gleði, þakklæti og samanburðarvellíðan. Ef að þig nagar að innan gremja yfir því að útgerðarsukkarar sem alltaf voru á hausnum með þessa koppa sína skuli hafa fengið fisk- inn í sjónum gefins og þar með milljarða, þá getur þú byrjað á að fagna því að þetta hreina og tæra loft á íslandi er þó ókeypis og vatnið eiginlega líka. „Efgeta þín og löngun til kvenna er horfin skaltu ekki hengja haus heldur fagna því að þú átt ekki lengur á hættu það slys að feðra börn í þennan heimska heim.“ Það er og sígilt fagnaðarefni, enda mikið notað í bókmenntum heimsins, að sá sem ekkert á (í okkar dæmi; engan kvóta) hlýtur að vera sælli en sá sem á mikið. Hann gengur sæll og kvótalaus til náða á hverju kvöldi og þarf ekki að bylta sér sveittur og angistar- fullur af ótta við að þjófar brjótist inn og steli, eða - í okkar dæmi - að fiskifræðingar, ótímabærir hjónaskilnaðir eða byltingarhreyf- ing Sverris Hermannssonar steyp- ist yfir hann og hirði af honum kvótann, allan í einu eða í áföng- um. Og enn eitt: ef þér finnst kvóta- brask ósiðlegt, þá skaltu fagna því, að þar eru bara einhverjir karl- skrattar að selja hver öðrum heimska þorska og kannski orma- fulla - það er ekki eins og þeir séu að selja dótt- ur þína í vændis- hús í Hamborg eða Japan. Og ef þér stendur ógn af því hve reiður Davíð Oddsson er ríkissjón- varpinu nú á kosningaári, þá skaltu þakka þínum sæla að í rauninni er hann reiðastur Morg- unblaðinu - og altént ekki þeim friðsæla smáborgara sem þú ert sjálfur. Árni Bergmann „Möguleikarnir á því að hrósa happi í lífinu eru reyndar óteljandi,' einu lukkutröllinu í mannfélaginu fylgja meö. segir Arni m.a. í grein sinni og lætur mynd af Kynjaða veröld Að reykingar skuli vera að aukast meðal ungs fólks er vax- andi áhyggjuefni bæði foreldra og heilbrigðisyfirvalda. Þetta er því sárari staðreynd að nánast ómældu fjármagni og tíma hefur verið varið til forvarnastarfs; starfs sem virðist ekki skila til- ætluðum árangri. Hvaö er aö? Hvað veldur? Eru aðferðimar hallærislegar í augum unga fólks- ins? Eða vantar enn meiri fjár- muni? Eða þarf að herða enn frek- ar aðgengi ungs fólks að tóbaks- vörnum? Eða eru þetta e.t.v. am- erísku hollywoodstjörnurnar og bresku poppgoðin sem spilla æskulýðnum með dulbúnum tó- baksauglýsingum? Eða vantar einfaldlega enn fleiri boð og enn fleiri bönn gegn reykingum? Rannsóknir benda til að reyk- ingar séu aðallega að aukast með- al ungra stúlkna. Ungt fólk er m.ö.o. ekki að reykja meira en áður, heldur til- tekinn hópur meðal þess. Sé þetta rétt segir það okkur býsna margt! Til dæm- is að þetta sé enn eitt dæmið um þá „kynj- uðu“ veröld sem við búum í, þ.e. að kynin séu býsna ólík, ekki bara í líkamlegu tilliti heldur á fjölmörgum öðrum sviðum, e.t.v. fleiri sviðum en við höfum verið reiðubúin að viður- kenna til þessa. Kynjuö greining tryggir árangur Þetta segir okkur jafnframt að ef við viljum draga úr reykingum meðal ungs fólks þarf að beina forvörnum að ungum stúlkum sérstaklega, á forsendum sem „Athuganir hafa m.a. leitt í Ijós að hækkað lyfjaverð til sjúklinga hef- ur bitnað mun verr á eldri konum en körlum. Þær virðast einfald- lega hafa úr minna að spila..." höfða til þeirra og þær skilja. Líklegt er að einhver hluti skýring- arinnar felist í þörf þeirra tU að uppfyUa granna fegurðar- ímynd okkar Vestur- landabúa. Ef rétt er þarf að skoða þetta samspil náið og skipuleggja forvarnir þeim til handa með hliðsjón af því. Með þessu móti getum við aukið ár- angur forvarnastarfs- ins án þess að þurfa að kosta til frekari fjármunum eða boð- um eða bönnum. Snertir flest sviö Reykingar ungs fólks eru langt frá því eina dæmið um mikilvægi þess að viðurkenna ólíkar þarfir, viðhorf og aðstæður kynjanna áður en mikilvægar samfélagslegar ákvarðanir eru teknar. Athuganir hafa m.a. leitt í ljós að hækkað lyfjaverð til sjúklinga hefur bitn- að mun verr á eldri konum en Kjallarinn körlum. Þær virðast einfaldlega hafa úr mun minna að spila en karlarnir. Staða drengja innan skóla- kerfisins er annað dæmi. í þvi sam- bandi hefur verið velt upp hvort um- hverfi grunnskólans sé um of „stúlku- vænt“. Þannig er að koma betur og betur í ljós að nám, íþróttir, sjúkdómar, lækn- ingar, skattlagning, möguleikar á at- vinnumarkaðnum og margt, margt fleira er að ein- hverju leyti kyn- bundið. Af þeim sökum verður að at- huga hvort ákvarðanir sem snerta slík kynbundin svið hafi svipuð eða sambærileg áhrif á bæði kyn eða (eins og er alltof al- gengt) hvort aðeins annað kynið njóti góðs af? Helga Guðrún Jónasdóttir Helga Guörún Jónasdóttir sérfræöingur á Skrif- stofu jafnréttismála Með og á móti Útsendingar á RÚV frá heimsmeistaramótinu í knattspyrnu Frábært sjónvarps- „Heimsmeistarakeppnin i fót- bolta er auðvitað algjör veisla í sjónvarpi. Þama koma fram allar helstu stjörnur knattspymunnar sem fótboltaáhugamenn líta upp til og vilja sjá. Það er enginn vafi að fótbolt- inn er vin- sælasta íþrótta- grein heims. Það þarf ekki annað en horfa til þess áhorf- endafjölda sem sækir keppnina auk þeirra mörgu milljóna manna sem horfa á leikina ekki sé talað um þann gríðarlega fjölda sem annaðhvort stundar boltann og sækir aðra leiki. Ég veit að það eru til antisportistar sem vilja sjá eitthvað annað í sjónvarpinu en þeir verða bara að bíða. Þetta er nú einu sinni bara einn mánuður og þetta fólk hlýtur að geta fundið sér eitthvað að dunda við. Ég mæli með garð- yrkju fýrir þá sem ekki þola fót- boltann. Það er bara ekki hægt að vorkenna þessu fólki, vitandi hversu margir njóta þess að horfa á boltann. Sumir hafa haft áhyggjur af áhorfendafjölda í Landssímadeildinni á meðan á þessu stendur en það er mín skoðun að því meiri fótbolti, því meiri áhugi. Áhugi á fótbolta er örugglega meiri en margur held- ur enda afskaplega göfug og skemmtileg íþrótt. Þess vegna er það mikið gleðiefni að sjónvarpið skuli gera merkustu keppni inn- an fótboltans, sjálfu heimsmeist- aramótinu, jafngóð skil og raun ber vitni. Yfir því ætti enginn að agnúast og menn ættu miklu fremur að reyna að njóta þessa frábæra sjónvarpsefnis á meðan það er í boði.“ Jóhannos Ólafs* son, formaður knattspyrnudeildar ÍBV. í sjónvarpi, svo Óttalega leiðinlegt Guðrún Helgadóttir rithöfundur. „Ef ég á að tala fyrir sjálfa mig þá verð ég nú að viðurkenna að mér finnst þetta óttalega leiðin- legt sjónvarpsefni. Ég geri mér samt vel grein fyrir því að það er mikill áhugi á þessu sjón- varpsefni en það er samt ansi mikið á þá lagt sem engan áhuga hafa á fótbolta. Ég sé vel fyrir mér að þeir sem þurfa að vera mikið heima við, til dæmis aldraðir og sjúkir, verði nú ósköp leiðir á þessum gaura- gangi í heilan mánuð. Ég get heldur ekki séð að öðrum iþrótta- greinum sé gert svo hátt undir höfði. Mér þætti fróðlegt að vita hvað fólki fyndist ef eitthvert annað efhi væri sent út í sama magni; til dæmis menningarefni á borð við tónlist eða leiklist. Það virðist vera sem fótboltinn sé allsráðandi og ég dreg ekki vin- sældir hans í efa. Ég hef heldur ekki amast við þessum útsending- um í útvarpsráði þar sem ég á sæti. Það væri auðvitað langsam- lega besta lausnin ef sjónvarpið gæti sent efni eins og heimsmeist- aramótið í knattspyrnu út á sér- stakri íþróttarás.“ -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.