Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Blaðsíða 3
wmmmmmmmmwmmmwmmm
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998
Vestmannaeyjar:
Saga Eyjanna
írskir þrælar Hjörleifs land-
námsmanns eiga að hafa flúið
til Eyjanna eftir að hafa vegið
húsbónda sinn. Þá kom Lngólf-
ur Arnarson á vettvang, felldi
þrælana og bjargaði konum og
börnum. írar nefndust Vest-
menn og Ingólfur nefndi eyjarn-
ar því Vestmannaeyjar. Eyjarn-
ar eru 15 auk 30 dranga og
skerja.
Heimaey er langstærst og
eina eyjan sem er byggð. íbúar
eru um 5000 og eru sjósókn og
fiskvinnsla helstu atvinnuveg-
Eldgos í Eyjum
Þann 23. janúar 1973 voru
Vestmannaeyingar illþyrmilega
minntir á hversu kröftug móðir
náttúra getur verið. Þá nótt
byrjaði að gjósa í Heimaey og
þurftu íbúarnir að yfirgefa
heimili sín og voru flestir flutt-
ir til lands sömu nótt. Gosið
stóð í rúma fimm mánuði og
þegar yfir lauk hafði Heimaey
stækkað um 20 prósent og nýtt
fell, Eldfell 225 m á hæð, hafði
myndast.
Börnin í bænum vita hvaö gera
þarf þegar pysjan kemur úr
holunnl.
Stór hluti bæjarins fór und-
ir hraun og ösku en alls
eyðilögðust um 360 hús og enn
fleiri skemmdust. Það tók rúm
tvö ár að grafa upp hús og
hreinsa ösku og gjall sem féll á
bæinn.
Fjölskrúðugt
fuglalíf
Að jafnaði verpa um 30
fuglategundir í Vestmannaeyj-
um og árlega staldra þar við
milljónir fugla. Á sumrin fara
menn í úteyjar og dvelja þar
dögum saman við veiðar og
eggjatöku.
Lundinn er konungur fugla í
Vestmannaeyjum enda er
hvergi í heiminum eins mikið
af honum. í ágústmánuði fer
pysjan (ungi lundans) úr holu
sinni. Ljósin í kaupstaðnum
freista og hundruðum saman
fljúga þær á vit ljósanna. Hvar-
vetna eru hjálpfúsar hendur
barna sem fara um bæinn og
safna þeim saman og fara meö
þær niður að sjó þar sem þeim
er sleppt.
SKATABUÐIN
-SMWK fWMtiR
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2030 • Fax 511 2031
www. itn.islskatabudin