Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Blaðsíða 22
> 38 /ít QS& Sérstök fjölskyldutilboð á Sport Hóteli ÍSÍ í sumar. Á hótelinu eru 13 herbergi með WC, sturtu, síma og sjónvarpi. Sport Hótel ÍSÍ • íþróttamiðstöðinni í Laugardal Sími 581 337 • Fax 588 8848 • Tölvupóstur: isi@toto.is EYJAFERDIR ógleymanlegt ævintýri MIÐVIKUDAGUR 24. JUNI 1998 Fjölskyldan á Vatnsleysu í Skagafiröi er í óðaönn að reisa 160 ára gamalt bjálkahús fyrir ferðamenn. Vatnsleysa í Skagafirði: Reisa 160 ára gamalt bjálkahús Undanfarin ár hefur heimilisfólk- iö á Vatnsleysu í Skagafirði, þau Jón, Árdís og sonur þeirra Björn, unnið að því að reisa bjálkahús á Vatnsleysu. Tilgangurinn er að nota það til móttöku á ferðamönnum. Bjálkahúsið er að stærstum hluta upprunnið frá vesturströnd Noregs eða nánar tiltekið frá Innfjorden og er elsti hluti þess 160 ára gamall. Fjölskyldan á Vatnsleysu hefur haft talsverð samskipti við Norðmenn í mörg ár í sambandi við útflutning á hrossum og komst þannig á snoðir um þetta gamla hús. Fjölskyldan eignaðist húsið og vann svo sjálf við að taka það í sundur, ásamt góðum vinum í Noregi. Árið 1994 byrjaði fjölskyldan svo að setja húsið sam- an á ný. Yfirsmiður er Þorsteinn Kárason frá Sauöarkróki. Verkinu senn lokið Bjálkahúsið stendur við Gljúfurá og hið stórbrotna Gljúfurárgil, tals- verðan spotta frá þjóðveginum þar sem hann liggur um Viðvíkursveit- ina. „Þessi húsbygging er fyrst og fremst gæluverkefni en þó höfum við haft það fyrir augum að hægt væri að skapa heimilisfólkinu ein- hverja vinnu með búskapnum," segja Jón og Árdís. „Upphaflega var stefnan sú að ljúka þessu fyrir alda- mótin en nú er hins vegar talsvert farið að spyrja um húsið og bæði erlendir og innlendir hópar bíða eftir að koma og dvelja í því. Við ákváðum því að taka lokaáfanga hússins með áhlaupi og vonumst við til að ljúka honum nú síðla sumars." Húsið er að hluta til á tveimur hæðum. Á neðri hæð verður eldhús, matstofa og skáli (setustofa) en uppi verður gistiaðstaða, m.a. í lokrekkj- um undir súð. Þar eru enn fremur stórar svalir þaðan sem útsýni um Skagafjörðinn er frábært. Skemmtileg vinna „Það er mjög skemmtilegt að setja saman svona gamalt hús,“ segir Jón Friðriksson. „Bjálkahús eru frábrugðin öðrum húsum í því að það er nánast ekkert neglt sam- an heldur er allt timbrið nótað saman. Þegar við tókum húsið sundur voru allir bjálkamir núm- eraðir og því var tiltölulega auð- velt að setja það saman á ný.“ En það eru ekki bara gamlir bjálkar í húsinu á Vatnsleysu. Gömul og sver rekaviðartré hafa verið felld inn í húsið og setja þau óneitan- lega mikinn svip á alla bygginguna og gera hana afar sérstæða. Raun- ar hefur talsvert af fólki lagt leið sina að Vatnsleysu til að skoða þetta mannvirki sem nú styttist í að verði tekið í notkun. -ÖÞ II lc« l.indic u/hm / r nr/TÆcr * »*ch'ns * Stórhvalaskoðun * „Grand"-ferðir * Fuglaparadís * Skelveiði og smökkun * Sjávarfallastraumar * Hótel og margt fleira Eyjaferðir Leitið upplýsiiiga Stykkishólmi Sími 438 1450 Hvalaskoðun í Hafnarfirði Húni 2. er 130 tonna bátur í eigu Þorvalds Skaftasonar og Ernu Sigurbjörnsdóttur. Bát- urinn var áður fiskibátur en hefur nú fengið nýtt hlutverk. Kl. 14 stundvíslega, alla daga vikunnar nema sunnu- daga, leggur báturinn úr höfn í Hafnafirði og siglir út fyrir Garðskaga. Tilgangurinn er að sýna áhugasömum ferðamönnum hvali og í 97% tilfella hefur þeim orðið að ósk sinni. Ferð- in tekur þrjár til fjórar klst. Báturinn er stór og rúm- góður og er aðstaða um borð í alla staði góð. 50 manna veislusalur er um borð svo ekkert er því til fyrirstöðu að halda veislu úti á miðju hafi. -me Húni 2. fer i hvalaskoöunar- feröir frá Hafnafiröi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.