Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1998, Síða 11
JL>V MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998
27
Sund í fögru umhverfi
Fyrir 10 árum var opnuð
sundlaug á Seljavöllum í
Austur-Eyjafjallahreppi.
Þetta er lítil og notaleg laug
en það sem er sérstakt við
hana er hin stórkostlega
staðsetning. Sundlaugin er
inni í dal og eru fjöll allt í
kringum hana. Raufarfell er
á hægri hönd, Lambafell á
þá vinstri og innar í dcilnum
hvelfast Svarthamrar yfír
dalinn í allri sinni dýrð.
Að sögn Óskars Grétars-
sonar sundlaugarvarðar er
það nær eingöngu fjöl-
skyldufólk sem kemur í
laugina og er mest að gera
um helgar. „Aðsóknin hefur
verið að vaxa hægt og bit-
andi. Það er mikið sama
fólkið sem er að koma hing-
að aftur og aftur og það tek-
ur svo vini og kunningja
með sér,“ segir Óskar.
Annað sem vekur athygli
sundlaugargesta eru heitu
pottamir. „Við ákváðum að
hafa heita pottinn úr stuðla-
bergi sem við náðum í héma
uppi í fjalli og einnig em
sætin og stólamir við laug-
ina úr stuðlabergi. Okkur
fannst þetta passa vel inn í
umhverfið og höfum við
fengið mikið hrós fyrir upp-
átækið.“ -me
Það er aöallega fjölskyldu-
fólk sem leggur leiö sína í
sundlaugina á Seljavöllum.
Fimmvörðuháls:
Vinsæl gönguleið
Hálsinn á milli Eyjafjallajökuls
og Mýrdalsjökuls nefnist Fimm-
vörðuháls. Á síðari árum hefur
leiðin um hálsinn, á milli Skóga og
Þórsmerkur, verið ein af vinsæl-
ustu gönguleiðum hér á landi.
Bæði Ferðafélag íslands og Útivist
bjóða göngur um Fimmvörðuháls.
Leiðin liggur frá Skógiun og upp
með fram Skógagili þar sem Skógá
rennur til suðurs í fogrum fossum
og flúðum. Farið er yfir ána á
göngubrú og haldið áfram upp
Skógaheiði. Á heiðinni er Útivist
með ferðamannaskála, Fimmvörðu-
skála, og tekur um 6 klst. að ganga
í hann frá Skógum. Ef farið er með
Útivist er gist í skálanum en ef
gengið er með Ferðafélagi íslands
er gengið yfir hálsinn á einum
degi. Gengið er frá sjávarmáli og
upp í 1100 m hæð. Þá liggur leiðin
niður í móti. Gengið er um Jökul-
fannir og Ása um Goðalandsbrún-
ir, á Þrívörðusker og niður Bröttu-
fönn. Frá norðanverðum hálsinum
er í góðu skyggni ógleymanlegt út-
sýni inn yfir Emstrur, Torfajökuls-
svæðið og til fjalla á Landmannaaf-
rétti. Eins er víðsýnt frá Fimm-
vörðuskála austur til Mýrdals og
niður eftir hálsinum. Frá Bröttu-
fónn er haldið um Heljarkamb. Úti-
vist gengur Kattarhrygginn niður í
Strákagil og endar ferðina í Básum
en Ferðafélag íslands endar í
Langadal.
-me
Að göngu lokinni er gott aö slappa af í fögru umhverfi Þórsmerkur og hvíla
lúin bein.
Eigum mikið úrval af farangurskössum, toppgrindum
og burðarbogum á flestar gerðir bifreiða.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum
okkar í síma 588 2550.
BílavörubúÖin
toppgrindur og burðarbogar
FJÖDRIN
*
I fararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
% &' /»
:s
jVJíjzí'drbuuí GTA
Nýjustu gönguskórnir frá The Brasher
Boot Company. Þeir flokkast með
gönguskóm, sem styðja best við ökkla, en
eru jafnframt ekki síður þægilegir en hinir
vinsælu Hillmaster. Masterboot GTX eru
léttir og að flestu leyti eins og Hillmaster
GTX nema hvað þeir ná hærra upp á
legginn.
%
\v
^4 li
•fe I
IljJJijJHjtei' ULX
& i .j:ly GTX
Hálfháir gönguskor með Gore-TexR
vatnsvarnarfilmu. Það er nýjung í
Hillmastger GTX og Lady GTX að skórnir
eru fóðraöir að innan með leðri svo að
óhreinindi og aðrar smáagnir ná ekki að
skemma vatnsvarnarfilmuna og hún endist
mun lengur. Lady GTX, kvenskórinn, er
finlegri yfir ökkla og hæl og með mjorri
hvelfingu fyrir tærnar.
C'uíjijiryjuíj^rer Qurfic
Þessir skor eru bunir til fyrir þá hafa
kynnst hversu þægilegt er að vera í
Hillmaster-gönguskonum og vilja fá
jafnþægilega götusko. Countrymaster
-skórnir eru ovenju lettir, sterkir og
þægilegir en samt nogu grófir til nota
jafnt i stuttai gönguferðir uppi i sveit
sem í smáskrepp ut i búð.
Q£
3
LU
Hí
CC
cc
UJ
LO
QÉ
Þ
VUJ
cc
<
<
cc
Uu
Lu
LU
QC
SC
LO
Skeljungsbúðin
Sudurlandsbraut 4, simi 560 3878