Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Qupperneq 12
popp
plötudómar
The Big Lebowski ★★★
Með góðan smekk
Café Amsterdam. Borgnesing-
arnir úr hljómsveitinni Úlrik
skemmta.
Feiti dvergurinn. Sjálfur Herbert
Guðmundsson tryllir dverginn
bæöi föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fógetinn. Mannakorn syngja og
spila úr söngbók Magga Eiríks í
kvöld og annað kvöld.
Hitt húsið. Canada, 200.000
Naglbítar og Stjörnukisi spila í
dag á síödegistónleikum Hins
hússins. Tónleikarnir fara fram á
Ingólfstorgi og byrja klukkan 17.
Hótel Saga. Páll Óskar og
Casino halda sína fyrstu tónleika
í Súlnasal Hótel Sögu laugardag-
inn 4. júlí. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina Spariball - og vei þeim
sem ekki tekur mark á því. For-
sala aðgöngumiða verður á
Mímisbar Hótel Sögu samdæg-
urs frá kl. 13.00.
Ingólfscafé. Sálin í kvöld.
Kaffileikhúsið. Örtónleikar með
Möggu verða annað kvöld.
Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin
Sixties I kvöld. Á laugardags-
kvöld tekur Stuðbandið við og
reynir að standa undir nafni. Rut
Reginalds verður með come-
back á sunnudagskvöldið. Á
mánudagskvöldið heldur Bubbi
áfram að rifja sjálfan sig upp frá
hálftlu en Rut Reginalds tekur
við seinna um kvöldið. Gulltenór-
inn Grétar Örvars og flauels-bar-
ítoninn Bjarni Ara syngja kven-
nasmelli á þriðjudagskvöldið.
Bubbi heldur áfram á miöviku-
daginn.
Kringlukráin. Léttir Sprettir
spila t aðalsal en Rúnar Guð-
mundsson leikur í Leikjastofu fyr-
ir þá sem eru að spila póker í
kvöld og annað kvöld. Léttir
Sprettir mæta aftur á sunnu-
dagskvöldið.
Lundinn. Hljómsveitin B.P. (áður
B.P. og þegiðu Ingibjörg) verður á
Lundanum í kvöld og annað
kvöld.
Miðgarður, Skagafirði. Hljóm-
sveitin Skítamórall á föstudags-
kvöldið. Dansleikurinn er hluti af
lítilli hátíð sem heitir Andrés ‘98
og má ekki rugla því saman við
Andrésarleikana. Ekki mæta í
skíðagallanum.
Ýdalir. Sálin leikur á laugardags-
kvöld. Með í för verða að vanda
fjöllistamennirnir Ben og Gúrion
en þeir fremja hljóð- og sjón-
galdra.
Sjallinn. Sóldögg leikur í Sjallan-
um á ísafirði föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Valaskjálf. Á laugardagskvöld
mæta hinir óþreytandi Stuð-
menn.
Valhöll. Skítamórall spilar á
laugardag. Dansleikurinn er fyrir
16 ára og eldri.
Það er ekki langt í hugmyndir
þýska krautrokksins í þessum
flæðilögum. Mest af tónlistinni er
ósungið en þegar raddir eru með
eru þær (r)afskræmdar. Sveitin á
sér marga aðdáendur í bransan-
um. Jarvis Cocker er t.d. mikill
aðdáandi og sést iðulega hoppa
um á tónleikum sveitarinnar.
Tónleikamir eru alræmdir um
alla Lundúnaborg fyrir að vera
nánast óbærilega háværir. „Fólk
kemur til okkar eftir á og segir að
það sé orðið heyrnarlaust en
samt hafi verið frábært," segir
Ann, „eða það kemur og hellir
bjór yfir okkur. Það er allt eða
ekkert."
Barry tekur í sama streng:
„Tónlistin hefur líkamleg áhrif á
fólk. Einn gaur þurfti að yfirgefa
tónleika því hann hélt að maginn
á sér væri að springa. Aðrir þurfa
að æla og stundum fer að blæða
úr eyrunum á fólki. Við erum
hættuleg en spennandi!“
Rafmagnið er undirstaða sveit-
arinnar. „Rafmagn er guð,“ full-
yrðir Barry, „það býr til te fyrir
þig en á næstu mínútu geturðu
fengið rafstuð og dottið dauður
niður.“
Framtíðaráform Add N to X
eru ekkert slor því auk þess að
gera fleiri plötur ætla hljóm-
sveitin að spila úr loftfari yfir
Lundúnum um aldamótin og
halda risatónleika með 1000
manna hljóðgervlasveit. Það er
því ekki annað að sjá en Add N to
X verði fyrsta stórsveit næstu
aldar.
-glh
„Það er engin fortíðarþrá í tón-
list okkar og við erum ekki að
reyna að búa til tónlist fyrir
framtíðina. Tónlist okkar er bara
það sem gerist þegar við stingum
græjunum í samband."
Hér talar einn meðlimur tríós-
ins Add N to X. Græjurnar eru
gamlir hljóðgervlar sem þau hafa
fundið á flóamörkuðum og ýmis-
leg rafmagnstól. Þau nota þessi
tæki auk hefðbundinna hljóðfæra
á stöku stað til að framleiða veru-
lega spennandi raftónlist sem
minnir á frumkvöðla tölvu- og
raftónlistarpoppsins - Suicide,
Kraftwerk og Cabaret Voltaire -
en er þó ekki „retro“ nema á yfir-
borðinu því lagasmíðamar em
góðar.
Ann, Stephen og Barry, sem
skipa tríóið, höfðu lítið gert sér
frægðar nema að vera á bótum
áður en þau stofnuðu Add N to X
fyrir fjóram árum. Fyrsta platan
kom út 1996 og hét Vero Elect-
ronics og var lítið annað en sam-
felldur rafvæddur hávaðaveggur,
en á plötunni On the Nerves of
Our Wires, sem kom út í vor, era
bæði nokkur stutt lög, þar er
greinilega verið að semja popp
með avant garde-legum áhersl-
um (sveitin kallar tónlist sína
Avant Hard), og löng og flæðandi
rafverk sem flóa um hóla og hæð-
ir í töfrandi rafbylgjum eins og
upp á eigin spýtur og fyrir duttl-
unga tólanna.
í Big Lebowski er farin sú leið í
tónlistarvali sem Tarantino bless-
aður hefur markað með myndum
sínum, þ.e.a.s. að velja saman lög
sem mynda heildstæða umgjörð
um myndina og gefa henni ákveð-
inn blæ. Kvikmynd Coen-bræðra
er að mínu viti langbesta mynd
ársins og tónhstin er valin eins og
hún geti hafa komið úr plötu-
safni aðalsöguhetjunnar, hins
miðaldra Dude, auk laga sem
undirstrika atburðarásina. Dúd-
inn er ekta miðaldra táfylublús-
ari, latur hasshaus og fílar leti-
legt blúsað rokk sem við fáum
hér frá Bob Dylan, Captain
Beefheart og Elvis Costello í
þremur sallafínum lögum sem
„hefa“ plötuna. Nú tekur við eðal-
fín ósungin tónlist, með Henry
Mancini og liði sem ég þeki ekki;
Piero Piccioni og Moondog, sem
miðað við sýnishomin hér er þess
virði að tékka betur á. Perúska
galdrakonan Yma Sumac á hér
ógnþrungið verk og Meredith
Monk reynir einig á raddsviðið
með sínu lagi. Hið klassíska lag
Kennys Rogers & The First
Edition, Just Dropped in (To See
What Condition My Condition
Was in) er hér og var notað
skemmtilega í mynd-
inni við draumasenu.
Mörg önnur skemmti-
leg lög era á þessari
plötu, en Hotel Cali-
fornia í flutningi Gipsy
Kings er kannski
veikasti blettur
hljóðrásarinnar. Cart-
er Burwell sér um
aukatónlist og semur
líka lagið Technopop.
Það er fyndin stæling á
þýsku tölvupoppi áttunda áratug-
arins enda klaufalegir erkiþijót-
arnir í myndinni einmitt fyrram
meðlimir tölvusveitarinnar
Autobahn. Þetta er skemmtileg-
asta bíóplata ársins og gaman til
þess að vita að Coen-bræður era
með góðan tónlistarsmekk í við-
bót við aðra snilligáfu.
Gunnar Lárus Hjálmarsson