Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Blaðsíða 13
+
The Dandy Warhols:
Rokka og sukka
lega út, The Dandy Warhols Come Down, og
hefur verið að fá góða dóma. Teprulegir
enskir blaðamenn eru sérstaklega spenntir
fyrir bersögli hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin hitaði upp fyrir Blur í
Bandaríkjunum og ýmsar kjaftasögur
spruttu upp eftir það, t.d. að Zia McCabe,
hljómborðsleikari Dandy, hefði náð Damoni í
rúmið. Hún gefur sig út fyrir að vera mikil
partígella, kemur iðulega nakin fram og sést
pissa út á götu í umslagi nýju plötunnar. I
viðtölum ræðir hún mikið um helstu erfið-
leika lífs síns, vandamálin við að fá gleðikon-
ur til að gagnast sér.
Ekki síðri foli er Courtney sjálfur, sem seg-
ir sögur um kampavínsflæðandi hópreiðar á
hótelherbergjum. Allir meðlimimir tala svo
opinskátt um eiturlyfjaneyslu og hefur ýmis-
legt verið reynt í því sambandi. Hljómsveitin
hefur þó komist að því að "heróín er hallæris-
legt" og þann boðskap syngja þau í viðlagi
lagsins Not If You Were the Last Junkie on
Earth, sem kom út á smáskífu af nýju plöt-
unni. Sveitin tekur gamla rokksukkara eins
og Iggy Pop til fyrirmyndar en fyrir utan að
sukka finnst þeim mest gaman að horfa á
Charlie's Angelsí sjónvarpinu og bryðja valí-
um. Yndislegir
krakkar, ekki satt?
Geymist þar sem
börn ná
til.
Hljómsveitin The Dandy Warhols kemur
frá Portland í Oregon-ríki og hefur verið að
vekja athygli fyrir sitt sækadelíska rokkpopp
og ekki síður fyrir mikið sukk og opinská við-
töl.
Aðalmaðurinn heitir Courtney Taylor,
semur lögin, syngur og spilar á gítar. Hann
var áður í glimmerbandinu Beauty Stab en
stofnaði Dandy Warhols með þrem kunningj-
um árið 1993. Fyrsta platan hét Rules OK og
kom út 1995 hjá smáfyrirtækinu Tim/Kerr
(gefur einnig út Everclear, Poison Idea o.fl.).
Platan vakti verðskuldaða athygh, bandið
var sagt hljóma breskt en einnig minna á
Velvet Underground og T-Rex. Hjá Tim/Kerr
vann bara einn starfsmaður í kynningar-
deildinni en Dandy Warhol fór þó víða, m.a.
inn á MTV með lagið TV Theme Song og í
kjölfarið fundu stóru plötufyrirtækin pen-
ingalykt og komu í kippum hnusandi utan í
bandið.
Það hefur frá upphafi verið yfirlýst stefna
hjá sveitinni að fyrir utan að gera góða tón-
Ust eru þau að þessu til að lifa hátt og þurfa
helst aldrei að vinna handtak á ævinni.
Blómaskeið rann nú í garð þegar sveitin
gerði sér glaðan dag á kostnað plötufyrir-
tækja; fríar máltíðir, flugferðir og hótelher-
bergi og endalaus partí með vongóðum út-
sendurum. Peningamenn hjá Capitol mok-
uðu mestu fé í bandið og því var gerður
samningur við þá. Önnur platan kom svo ný-
Goodie Mob - Still standing ★★★
Rassadillir
Goodie Mob crewið
samanstendur af þeim
Gipp, Cee-Lo, Khujo og T-
Mo. Eg verð að viður-
kenna að ég hef ekki
hlustað mikið á fyrri
diska þeirra félaga en hef
einungis heyrt vel af þeim
látið. Það var því með
nokkurri eftirvæntingu
sem ég setti diskinn yfir
geislann og ég verða að
segja að eftir fyrstu hlust-
un fannst mér þetta
ekkert sérstakt. Það var
ekki fyrr en ég var búinn
að hlusta nokkrum sinn-
um í gegn að ég fór að fíla
óminn sem streymdi út
um hátalarana. Maður
þarf nefnilega að venjast
stílnum hjá þeim félögum,
en hann er svona í hægari
kantinum með frekar
þungum slögum og
djúpum bassa, það er
svona ákveðin dulúð yfir
þeim. Það er líka flott
vegna þess að það er
svipaður fílingur í tón-
listinni og á umslaginu
sem er með disknum. Þar
eru fáir litir, svart og silfr-
að öðru megin og svart og
rautt hinu megin.
Eins og flestar rapp-
hljómsveitir er Goodie
Mob ekki ein að verki
heldur fær utanaðkom-
andi aðstoð. Meðal þeirra
sem koma fram á
diskinum eru meist-
aramir í OutKast og einn-
ig Cool Breeze, Lil'Wil óg
Backbone. Einnig hjálpar
félagi DJ Muggs við að
semja eitt lag og er það
vel við hæfi þar sem hans
stíll passar vel við þá
Goodie Mob-félaga.
Eg verð að segja að ég
er ekki mikill aðdáandi
hægrar rapptónlistar en
það er bara eitthvað við
Goodie Mob sem fær
mann til að dilla rass-
inum og það er ekkert
annað en gott um það að
segja.
Guðmundur Halldór
Guðmundsson
Corgan í Cleveland
Smashing Pumpkins eru einu sæti neðar en I
síðustu viku, eða í þriðja sæti. Billy Corgan,
söngvari sveitarinnar, er orðinn þaö heimskunn-
ur að síminn stoppar ekki heima hjá honum.
Um daginn var hann beðinn að halda ræðu
þegar hljómsveitinni Pink Floyd var boðin inn-
ganga í Rock and Roll Hall of Fame í Cleveland I
Bandaríkjunum
Corgan segist hafa skammað tónlistariðnaö-
inn hálfa ræðuna og minntist þess að Pink Floyd
átti í sjálfu sér aldrei neitt “hit" lag í gegnum tíðina en gerði samt eina söluhæstu plötu
allra tíma. Corgan benti á að stýring hljómplötufyrirtækjanna á tónlistarmönnum væri
hörmuleg.
Um nýju plötuna, Adore, segir Corgan að hún sé brottför frá fyrra efni Pumpkins. “Þetta
er eiginlega eins og trúarleg tónlist,” segir Corgan. “Platan hefur um sig einhvern skín-
andi geislabaug.”
líslenski listinn
Sæti NR. 279 vikuna 3.7.-10.7. 1998 Vikur Lag Flytjandi 19.6 26.6
1 3 UP UP AND AWAY PÁLL ÓSKAR & CASIN0 1 7
2 2 EL PRESIDENT DRUGST0RE FEATTH0M Y0RKE 5 -
3 6 AVA AD0RE SMASHING PUMKINS 2 1
4 4 ALLT SEM RÚ LEST ER LYGI MAUS 7 24
5 1 C0ME WITH ME PUFFDADDY&JIMMY PAGE N ý t t
6 9 TEAR DR0P MASSIVE ATTACK 3 2
7 4 SPACE QUEEN 10 SPEED 9 13
8 5 WHISING 1 WASTHERE NATALIE IMBRUGLIA 5 5
9 5 GHETT0 SUPERSTAR PRAZ MICHAEL & OL’DIRTY BASTARD 4 3
10 1 G0 DEEP JANET JACKS0N N ý t t
11 6 THE CUP 0F LIFE RICKY MARTIN 18 25
12 3 HORNY’98 M0USSETVS HOrN’JUICY 22 23
13 6 FEEL IT TAMPERER & MAYA 13 12
14 2 NÁKVÆMLEGA SKÍTAMÓRALL 15 19
15 4 ELSKAN...FÚ ERT NAMM GREIFARNIR 25 26
16 4 SAVE T0NIGHT EAGLE EYE CHERRY 16 8
17 2 MEM0RY CL0UD MÓA 17 -
18 3 HEG0TGAME PUBLIC ENEMY 12 18
19 4 SEX & CANDY MARCY PLAYGR0UND 11 4
20 3 C’ESTLA VIE B’WITCHED 32 40
21 3 STRANDED LUTRICIA MCNEAL 21 21
22 1 SÍÐAN HITTUMST VIÐ AFTUR S.S.SÓL N ý t t
23 2 GAUR ENSÍMI 23 -
24 3 DIVA DANA INTERNATIONAL 28 36
25 6 ROCKAFELLER SKANK FATB0Y SLIM 10 9
26 3 G0TTHE FEELIN’ FIVE 27 31
27 5 AIRBAG RADI0HEAD 6 6
28 4 LADY MARMALADE’98 ALL SAINTS 30 30
29 2 FAILURE SKINNY 19 -
30 2 VERA VÍNYLL 38 -
31 2 THEWAY FASTBALL 34 -
32 5 CARNAVAL DE PARIS DARI0 G : 20 19
33 2 WHERE ARE Y0U IMAANI 40 -
34 5 FIRE BABYFACE & DES’REE 14 11
35 1 1 DON’T WANTT0 MISS ATHING AER0SMITH N ý tt
36 6 LESTIN ER AÐ FARA SÁLIN HANS JÓNS MÍNS : 26 17
37 1 S0 AL0NE BANG GANG N ý tt
38 10 JUSTTHE TW0 0F US WILL SMITH 24 10
39 5 S0UNDS 0F DRUMS KULA SHAKER 29 22
40 1 TALENT SUBTERRANEAN N ý tt|
Taktu þátt í vali list—
ans í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er f 300 til 400 manns á
aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fálk hringt f sfma 550 0044 og tekiS þátt
f vali listans. íslenski listinn er frumHuttur á fimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og er
birtur á hverjum föstudegi f DV. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum lau-
gardegi kl. 16.00. Ustinn er birtur, að hluta, f textavarpi MTV sjönvarpsstöðvarinnar. íslenski
listinn tekur þátt í vali „World Chart" sem framleiddur er af Radio Express f Los Angeles.
Einnig hefur hann áhrif á Evrdpulistann sem birtur er f tónlistarblaðinu Music & Media sem
er rekið af bandarfska tdnlistarblaðinu BiTlboard.
YPirumsjón með skoíanakönnun: Halldóra Hauksdóttlr - Framkvarmd könnunan Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiðslu: ívar
Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: þorsteinn Ásgeirsson og Fra'mn Stelnsson - Útsendingastjórn: Ásgeir Kolbeinsson og Jóhann Jóhannsson - Kynnir f útvarpl: ívar Guðmundsson
ODB skotinn um nótt
Old Dirty Bastard, einn meðlima Wu Tang Clan sem heim-
sótti okkur íslendinga í fyrra, var skotinn þegar hann opnaði
útidyrnar um miðja nótt heima hjá frænda sínum í Brooklyn
þar sem hann gisti.
Old Dirty Bastard líður þó eftir atvikum vel.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu í Brooklyn börðu tveir
menn að dyrum hússins kl. hálfsex um morgun, skutu á
ODB og höfðu á brott með sér bæði peninga og skartgripi.
Enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins.
t
3. júlí 1998 f Ó k U S