Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Síða 4
Þetta var bara egóflipp
„Þetta var bara egóflipp. Mér leið eins
og drottningu í myndatökunni þarsem ég
var „wet naked“ i heitum potti með
kertaljós og finerí í kringum mig og fjöld-
inn aliur af fólki að stjana við mig,“ seg-
ir Helga, sem er 26 ára Reykvíkingur og
er ein þeirra 18 stúlkna sem sátu fyrir
hjá Playboy-timaritinu. Hún vinnur hjá
St. Jósepsspítala í sumarafleysingarstarfí
og framtíðin er nokk óráðin. Hún hugs-
aði sig ekki tvisvar um þegar henni var
boðið að sitja fyrir hjá tímaritinu.
„Vinur minn kom á fundi með mér og
Jim Larsen sem stýrir myndatökunni.
Um leið og Larsen sá mig gekk hann að
mér, tók i hönd mina og sagði að sér yrði
heiður gerður ef ég myndi sitja fyrir í
blaðinu hjá honum. Ég sagði bara strax:
ókei, frábært!" Enda lítið mál fyrir Helgu
sem hefur oft áður setið fyrir hjá ljós-
myndurum og er ekki kvalin af feimni
yfir fallegum líkama sínum. Þegar hún
hóf fyrirsætustörf árið 1995 byrjaði hún á
því að sitja nakin í baði fyrir framan
sjónvarpsvélarnar þegar upptökur fóru
fram á Fiskur án reiðhjóls.
En hún getur ekki hugsað sér að vinna
við þetta alla ævi. „Þá verður maður að
vera svo „self-orienated“, alltaf að spá í
línurnar og andlitið o.s.frv., ég geri aftur
á móti bara það sem mig langar til, fæ
mér McDonalds og pitsur þegar ég vil.“
Hún kann að njóta lífsins með hæfilegri
blöndu af líkamsátökum og dekri við
sjálfa sig. Á milli skyndibita fer hún í
fjallgöngur og stefnir á svarta beltið í
Tang kwai do, þó að hlé hafi orðið á tíma-
sókn hennar í vetur. „Sú íþrótt er ekki
eitthvað „Spice girls power“-dæmi, held-
ur er um miklu meiri hörku að ræða í
Tang kwai do og það væri gaman að ná
svarta beltinu í íþróttinni en ég veit ekki
hvort af því verður með hliðsjón af þvi
að ég tók mér hlé nú í vetur.“
En hún vill ekkert ræða um launin
sem hún fékk fyrir þá fjóra tíma sem það
tók að sitja kviknakin fyrir í nuddpotti á
Planet Pulse sem er likamsræktarstöð á
Suðurlandsbraut 2, auk nokkurra
klukkutíma myndavélatöku við Hafnar-
fjarðarbryggju, þar sem hún var kapp-
klædd. „Ég get bara sagt þér að mér hef-
ur brugðið að heyra einhverjar stelpur
vera að segja að þær hafi getað keypt
íbúð eða bíl fyrir launin og maður veltir
fyrir sér hvort það hafi allt annar samn-
ingur gilt hjá sumum eða hvort skýring-
in sé önnur?“
„Annars var þetta svo lítið mál og
bara reglulega gaman, allt starfsfólkið
hjá Playboy var ljúft og yndislegt í fram-
komu. Það hefur enginn í kringum mig
deilt með mér efasemdum um þetta upp-
átæki, þvert á móti. Það eina sem kær-
asti minn sagði var að hann væri ekki
viss um hvernig mamma hans tæki
þessu. Mér fannst það skrítið og vildi
þess vegna leysa úr því sem fyrst og við
fórum til mömmu hans og ég sagði henni
að ég hefði setið fyrir hjá Playboy. Já, já,
sagði hún og svo var það búið.“
-BG
TOHIEKTA
BÍLGEISLI
TENS4Í 4x25 IV
• 4 x 25 watta magnari • Loudness n Kr.19.90I ai
BBbBBbHhw ■■ fefr _ M ■■ 4* m
SIE,UMÚLA i . . m
f Ó k U S 10. júlí 1998
Playboy-heftið
með íslensku
stelpunum
komið út
og verður
kynnt á
Astró í kvöld.
Ijóskuleit á íslandi
í máli og mörgum myndum
í kvöld, föstudaginn 10.
júlí, verður haldin útgáfuhá-
tíð vegna komu ágústheftis
Playboy-tímaritsins þar sem
blaðinu verður dreift og það
kynnt. Daginn eftir mun
heftið verða komið í versl-
anir um land allt. Margar
síður fara í umfjöllun um
ísland og íslensku stúlk-
urnar 18 sem sátu naktar
fyrir hjá ljósmyndurum
Playboy-heftisins. Þetta er
í fyrsta skipti sem hið
heimsfræga tímarit Play-
boy veitir íslenskum
stúlkum slíka athygli og
hefur landinn tekið uppá-
tækinu með nokkurri ró.
Ekkert hefur enn borið á
hneykslunargjömum hús-
mæðrum eða öfundar-
röddum, þvert á móti tek-
ur fólk uppátækinu yfir-
leitt vel. Ljósmyndarar
Playboy-blaðsins eru
vandaðir og myndimar
mjög fallegar. Ólíkt
smekklegri myndir en sjást oft
í víðlesnum tímaritum hérlend-
is. Umfjöllun um ísland og siði
þjóðarinnar er þó nokkur og
blaðamaður Playboy-tímarits-
ins fjallar um leit sína að fmm-
mynd ljóskunnar í langri grein.
pi"" :°“rink’ Par‘y- chm,
Picnic and-Of Course-Have Sex
Hann lætur
sögur heimamanna af tröllum
ekki afvegaleiða sig, hann leit-
ar að ljóskum. Hann finnur
þær úti um alla Reykjavík og í
uinfjöllun hans um friðan flokk
íslenskra ljóskna ratar Vigdís
Finnbogadóttir þó
að hann kvarti yfir
því að ekki sé hægt
að bera nafn henn-
ar fram. Greinin er
skrifuð í sjálfum-
glöðum stíl og er
frekar asnaleg en
slungin fyndnum
punktum.
Af stúlkunum 18
sem sátu fyrir hjá
ljósmyndumm Play-
boy verða 13 á Astró
í kvöld. Flogið verð-
ur sérstaklega með
Berglindi Ólafsdóttur
(sem er ein fyrirsæt-
nanna) til íslands svo
hún geti séð um
veislustjórn um
kvöldið. Páll Óskar og
Casino munu
skemmta og slides-
myndum úr blaðinu
verður varpað á veggi
á skemmtistaðnum.
Boðið verður upp á
kampavín og smárétti
og þjónar kvöldsins verða
klæddir í kanínubúninga að
hætti Playboy. Blaðið sjálft
verður síðan komið í verslanir
á laugardaginn.
-BG
I
Það eru myndir af átján íslenskum stelpum í ágústhefti Piayboy og minnst á eina að auki — Vigdísi Rnnbogadótt-
ur. Þaö er þó engin mynd af henni.